Morgunblaðið - 03.12.1996, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 03.12.1996, Blaðsíða 49
I MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 1996 49 MINNINGAR !vatni. Þetta seinasta samtal okkar Helga mun seint líða mér úr minni. Hann dró upp mynd af því hvemig honum fyndist að við ættum að standa að málum á Úlfljótsvatni á næstu árum. Byggja upp glæsilega aðstöðu fyrir íslensk ungmenni til þroskandi útilífs og félagsstarfs. Þar ætti að vera hægt að halda útimót og hátíðir, námskeið og fundi. Hon- 1 um var mikið í mun að staðurinn héldi sérkennum sínum og að verk- I legar framkvæmdir væm í fullri | sátt við þessa náttúruperlu. Hann ræddi málið eins og sá einn getur sem hefur hugsað það til hlítar. Það var mikið lán fyrir Úlfljóts- vatnsráð að fá Helga til liðs við sig. Hann hafði frá unga aldri tek- ið ástfóstri við staðinn eins og svo margir sem hafa átt þess kost að dvelja þar. Hann var mikill útivist- armaður og á Úlfljótsvatni naut hann þess að fara í langar göngu- ferðir. Það var þó félagsstarfið sem átti hug hans allan og fáir duglegri en hann við að leggja lið hvers konar námskeiðum og fræðslustarf- semi. Þótt starfskrafta Helga nyti stutt við í Úlfljótsvatnsráði þá hafði hann þar mikil áhrif og hugmyndir hans munu lifa. Ekki var síður ánægjulegt að fá tækifæri til að endurnýja gömul kynni við góðan dreng. Við í Úlfljótsvatnsráði kveðjum góðan félaga með söknuði. Að- standendum öllum sendum við hug- heilar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Helga Eiríkssonar. Grímur Valdimarsson. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin strið. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Við sendum aðstandendum inni- legustu samúðarkveðjur og biðjum guð að blessa minningiq hans. Málfundafélaglð Óðinn og verkalýðsráð Sjálfstæðisflokksins. Kveðja frá Skátasambandi Reykjavíkur Andvari í laufi leikur, litar himin roði bleikur vor úr skógi ilmar og angar. Árniðurinn töfrana eykur. Undrafegurð hjartað fangar. Ljósakrossai á leiði Lýstu hinum látnu yfírjólin og þú munt öðlast frið íhjarta Rafmagnsverkstæði Birgis Sími/fax 587 2442 GSM 893 1986 Boðtæki 846 1212 Bflasími 853 1986 Heildsala - Smásala. Miili tijáa eldur iðar, ástkær sól er hnigin til viðar. Huga skátans náttúran hefur. Hversdagslífið lagt er til hliðar. Heill, þér skapari, sem gefur. Eldmóður af andlitum ljómar, angurblíður skátasöngur hljómar. Drengskapurinn brennur í bijósti. Búningana bera skal með sóma og bræðrahugsjón græða í gjósti. (H.Z.) Hann Helgi er farinn heim. Það bar mjög snöggt að og við sem eft- ir stöndum veltum fyrir okkur til- ganginum. Hans hljóta að bíða stór verkefni á nýjum heimaslóðum. Skátasamband Reykjavíkur þakkar honum allt það mikla og óeigin- gjarna starf sem hann vann fyrir skáta í Reykjavík í gegnum árin. Hans er sárt saknað. Við sendum fjölskyldu hans, vinum og skátum öllum okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Megi Guð styrkja ykkur í sorginni. Skátasamband Reykjavíkur. Þegar þau sviplegu tíðindi bárust mér á mánudag í síðustu viku að minn gamli félagi Helgi Eiríksson hefði látist kvöldið áður kom gamla máltækið í hugann „þeir sem guð- irnir elska deyja ungir“. Leiðir okk- ar Helga lágu fyrst saman á ungl- ingsárunum þegar við stunduðum skátastarf saman og áttum við margar góðar stundir við félags- störf og útivist á þeim vettvangi. Óteljandi ferðirnar fórum við einnig til að gera upp skátaskálann Núps- tún sem við vorum með í fóstri á þessum árum. Á þeim árum kynnt- ist ég því hversu traustur og ósér- hlífinn félagi Helgi var og vinur vina sinna. Leiðir okkar Helga lágu svo aftur saman fyrir þremur árum er hann réðst hingað til Vatns- veitunnar sem innkaupa- og lager- stjóri. Þar tókst hann á við nýtt starfssvið hjá fyrirtækinu sem þurfti að móta og finna farveg. Þetta nýja starf hjá Helga gerði einnig miklar kröfur, þarna þurfti að skapa nýtt svið, bæta starfsanda hjá þeim sem við það störfuðu, auka þjónustulund og bæta þjón- ustuna. Það má segja að Helgi leysti þetta starf frábærlega af hendi og var einnig með óþijótandi nýjar hugmyndir um það hvernig bæta mætti þjónustu síns sviðs. Ráðning Helga vakti á sínum tíma nokkrar spurningar þar sem hann var ráðinn beint úr öskunni í eitt veigameira störfunum hjá Vatnsveitunni. Helgi hafði verið áður hjá okkur og þekkti alla innviði mjög vel en hafði ákveð- ið að bregða sér í öskuna til að koma sér í toppþjálfun og til að hafa meiri tíma fyrir áhugamálin. Sagan sýndi hins vegar að sú ákvörðun var vel heppnuð og hef ég ekki séð eftir henni. Kosturinn við Helga sem samstarfsmann var að hann var alltaf reiðubúinn að bæta á sig verkefnum og leysti þau vel af hendi. Sem félagi var hann einnig potturinn og pannan í öllu félagsstarfi og alltaf tilbúinn að rétta hjálparhönd ef á þurfti að halda. Mikill sjónarsviptir verður að því að hafa Helga ekki lengur. Við Halldóra vottum ástvinum sam- úð okkar. Megi minning Helga lifa. Guðmundur Þóroddsson. • Fleiri minning-argreinar um Helga Eiríksson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. + Eiginmaður minn og faðir okkar, BOGI NIKULÁSARSON, Sunnuvegi 18, Selfossi, lést á dvalarheimilinu Lundi, Hellu, sunnudaginn 1. desember. Ragnhildur Sigurðardóttir og dætur. t SVANLAUG FINNBOGADÓTTIR frá Galtalæk á Landi, Víðimel 21, Reykjavik, andaðist sunnudaginn 1. desember. Fyrir hönd aðstandenda, Magnús Magnússon. + Astkær sonur okkar, stjúpsonur, bróðir og mágur, HELGI EIRÍKSSON, Laugarásvegi 57, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag, þriðjudaginn 3. des- ember, kl. 10.30. Vaka Sigurjónsdóttir, Bergþór Sigurðsson, Eiríkur Helgason, Anna Eiríksdóttir, Bjarni Hákonarson, Jóhanna Eiríksdóttir, JónWendel, Jóhannes Eiríksson, Kolbrún Steingrímsdóttir. + Systir mín og móðursystir okkar, EMILÍA SNORRASON, Hrafnistu, Hafnarfirði, lést mánudaginn 25. nóvember. Jarðarförin hefur farið fam í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Guðrún Þorsteinsdóttir Sívertsen, Þorsteinn Sfvertsen, Sigurður Emil Marinósson, Ingibjörg Sívertsen, Agnes Marinósdóttir, Bjarni Sívertsen, Valur Marinósson. Bróðir okkar, + JÓN JÓHANNSSON frá Kirkjubóli, Brekkuhvammi 1, Hafnarfirði, lést á heimili sínu 1 desember. Systkinin. + Elskuleg móðir mín og tengdamóðir, PÁLÍNA LILJA GUÐNADÓTTIR, til heimilis f Austurbergi 36, lést á Landspítalanum 30. nóvember. Steinunn A. Bjarnarson, Bjarni Njálsson og fjölskyldur. + Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÓSKAR SIGURJÓNSSON, Móakoti, Garði, lést sunnudaginn 1. desember. Jarðarförin fer fram frá Útskálakirkju laugardaginn 7. desember kl. 14.00. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. + Eiginmaður minn, SIGURÐUR SIGURÐSSON listmálari lést þann 1. desember síðastliðinn. Anna Kristfn Jónsdóttir. + Eiginkona mín og móðir okkar, ARNFRÍÐUR MATHIESEN, Austurgötu 30, Hafnarfirði, andaðist 29. nóvember. Ásgeir Gfslason, Guðmundur H. Jónsson, Svavar G. Jónsson, Erla Hildur Jónsdóttir, Kristólína G. Jónsdóttir. + Móðir okkar og tengdamóðir, GYÐA BRYNJÓLFSDÓTTIR, Gautlandi 5, Reykjavík, andaðist á heimili sínu aðfaranótt sunnu- dagsins 1. desember. Jarðarförin fer fram frá Grensáskirkju þriðjudaginn 10. desember kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hinnar látnu, er vinsamlegast bent á heimahlynningu Krabbameinsfélagsins. Bryndís Skúladóttir, Páll Árnason, Gunnsteinn Skúlason, Sigrún Gunnarsdóttir, Guðlaug Skúladóttir, Vilberg Skúlason, Sigrún Skúladóttir, Jón Þórarinn Sverrisson, Halldór Skúlason, Jóna Ágústa Helgadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Faðir okkar, ARINBJÖRN SIGURÐSSON, Snorrabraut 56, Reykjavík, lést á Hrafnistu, hjúkrunardeild, aðfara- nótt sunnudagsins 1. desember. Synir hins látna. Lokað Lokað í dag frá kl. 9.00-13.00 vegna jarðarfarar HELGA EIRÍKSSONAR. , , , A. Wendel, Sóltúni 1.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.