Morgunblaðið - 03.12.1996, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 03.12.1996, Blaðsíða 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR t Ástkær eiginmaður minn, fað'r, tengdafaðir og afi, EIRÍKUR GUÐBERG ÞORVALDSSON, Dvergaborgum 3, lést á Landspítalanum sunnudaginn 1. désember. Fyrir hönd aðstandenda, Margrét Eiriksdóttir. t Systir okkar, HULDA SAMÚELSDÓTTIR, er látin. Kristjana Samúelsdóttir, Guðmundur Samúelsson. t Elskuleg systir okkar, SYSTIR THERESIA MARGARETHE CSJ, andaðist á Sjúkrahúsi Reykjavíkur þann 1. desember sl. Jarðarförin fer fram frá Kristskirkju, Landakoti, föstudaginn 6. desember kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakk- aðir. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Krabbameinsfélagið. St. Jósefssystur. t Ástkær systir mín, mágkona og frænka, KRISTÍIM H. SIGFÚSDÓTTIR, Bólstaðarhlið 68, Reykjavík, sem lést þriðjudaginn 26. nóvember, verður jarðsungin frá Háteigskirkju fimmtudaginn 5. desember kl. 15.00. Ragnheiður Sigfúsdóttir, Sigfús Guðmundsson, Auðbjörg Ögmundsdóttir, Þórdís Sigfúsdóttir, Ögmundur Sigfússon, Guðmundur Guðjónsson, Ástvaldur Guðmundsson, Jórunn Garðarsdóttir, Guðmundur A. Ástvaldsson, Ragnheiður K. Ástvaldsdóttir. t Elskulegur eiginmaður minn, faðir okk- ar, tengdafaðir, afi og langafi, SÆMUNDUR SIGURÐSSON málarameistari, lést sunnudaginn 1. desember. Sigríður Þórðardóttir, Inga Rúna Sæmundsdóttir, Hafsteinn Pétursson, Kolbrún Sæmundsdóttir, Björn Árdal, Auður Stefania Sæmundsdóttir, Sigurður Rúnar Sæmundsson, Anna María Steindórsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Kærar þakkir fyrir samúð og hlýju við andlát og útför eiginmanns míns, tengdasonar, föður okkar, tengdaföður og afa, GARÐARS SIGURÐAR ÞORSTEINSSONAR frá Flateyri Gullsmára 8, Kópavogi. Elisabet Sara Guðmundsdóttir, Guðmunda Þ. Ólafsdóttir, Guðmunda A. Júlíusdóttir, Þorsteinn Garðarsson, Helga I. Guðmundsdóttir, Lilja E. Garðarsdóttir, Haraldur S. Gunnarsson, Sigurður H. Garðarsson, Carol Speedie, Rúna Ósk Garðarsdóttir, Ingvi Hrafn Óskarsson, Erla Skúladóttir og barnabörn. ÞÓRÐUR EINARSSON + Þórður Einars- son fæddist á Siglunesi á Barða- strönd 25. október 1921. Hann lést á Landspítalanum 24. nóvember síðstlið- inn. Foreldrar Þórðar voru Einar Ebenesarson, fædd- ur 13. maí 1879 að Hvammi á Barða- strönd, dáinn 1. júlí 1952 í Eeykjavik, og kona hans Guð- ríður Ásgeirsdóttir, fædd 20. janúar 1883 að Melsnesi á Rauðasandi, dáin 24. febrúar 1961 á Pat- reksfirði. Þórður var einn af 14 systkinum og eru þrjú þeirra enn á lífi. Hinn 16. mars 1949 giftist Þórður eftirlifandi konu sinni Maríu Sigríði Júlíusdóttur. Böm þeirra em: 1) Hugrún Guðríður, fædd 4. október 1948, bú- sett í Reykjavík. 2) Ásgeir Ebeneser, fæddur 15. ágúst 1950, búsettur í Reykjavík. 3) Júl- íus, fæddur 27. jan- úar 1960, búsettur í Reykjavík. Þórður vann við hin ýmsu störf þar til hann stofnaði og rak sitt eigið fyrir- tæki í Reykjavík en síðustu starfsárin var hann starfs- maður Alþingis. Hann var virk- ur í félagsmálum og gegndi þar mörgum trúnaðarstörfum. Þórður var mjög virkur í störf- um sínum innan Sjálfstæðis- flokksins. Útför Þórðar fer fram frá Dómkirkjunni í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Góður félagi er fallinn í valinn. Ég kynntist Þórði Einarssyni þegar leiðir okkar lágu saman er stofnuð voru hverfasamtök sjálfstæðis- manna í Laugarnesi og við lentum þar í stjórn saman. Þórður var traustur maður í fé- lagsskap. Hann var vel kunnugur hér í hverfinu, hann var ósérhlífinn við vinnu og lét sig sjaldan vanta þegar félagsstörfín kölluðu. Hann var bjartsýnn og fijálshuga maður og trúði á hin gömlu gildi enda skip- aði hann sér þar í sveit hvað skoðan- ir snerti. Hann mat menn eftir gjörð- um þeirra og innræti enda kynntist Þórður lífinu í öllum sínum breyti- leika við störf sín á lífsleiðinni en þar fór hann um víðan völl. Samstarf okkar Þórðar var gott og skilur eftir sig góðar minningar. Þegar ég sat Landsfund Sjálfstæð- isflokksins síðstliðið haust fannst mér eitthvað vanta, það vantaði Þórð sem gat ekki setið fundinn vegna veikinda sinna. Þórður tók veikindum sínum með karlmennsku og rósemi enda ekki maður sem bar tilfinningar sínar á torg. Hann gerði sér grein fyrir því að fyrr eða síðar mundi fara sem fór og hann vissi og trúði að þá tæki annað og betra við. Það er mikil eftirsjá í góðum dreng eins og Þórði en huggun er það í harmi fyrir eiginkonu, böm, tengdaböm og barnabörn að eiga ljúfar og góðar minningar um Þórð. Þær em og verða eftirmælin um hann. Ég minnist með þakklæti vináttu okkar og samstarfs í Félagi sjálf- stæðismanna í Laugarnesi og á öðr- um vettvangi. Ég bið algóðan guð að styrkja eftirlifandi ástvini í harmi sínum. Megi guðleg forsjón leiða Þórð á nýjum vegum, blessuð sé minning hans. Baldvin Jóhannesson. Með þessum fáu orðum kveðj- um við þig elsku afi. Lífið skal lifa og Dauðinn skal deyja, drottinn er mannkyni búinn að segja. Og haldlítið reynist í heilanum snauðum, ég hlýt þó að lifa ef ég ris upp frá dauðum. (Guðrún Gísladóttir „Eyjan Svarta“) Elsku amma, kæra fjölskylda megi Drottinn vera með okkur öllum og leiða okkur styrkri hönd í gegn- um sorgina. Ævar Sveinsson, Brynja Eir Thorsdóttir. Elsku afi. Ég á fjársjóð, minningar um ynd- islegan afa, afa sem ég kallaði pabba, vegna þess að þú gekkst mér í föður stað þegar ég var lítil. Það rifjast upp hugrenningar mínar þeg- ar skólagangan hófst, mér fannst ég svo rík vegna þess að ég átti dálítið sem enginn annar átti, þijá pabba. Pabba, þig og Guð. Sunnudagarnir voru mér heilagir. Þá sóttir þú mig og við fórum í bæinn niður að Tjörn, settum saman vísur og fengum okkur ís. Margir urðu á vegi okkar og þá sagðir þú stoltur „þetta er hún María Þórunn trippólínan mín“. Sonur minn sem nú er fimm ára var svo lánsamur að kynnast þér. Ekki gat hann skilgreint hvort þú værir afi hans eða langafi. Eftir á er sérstakt til þess að hugsa að það var hann sem tilkynnti mér að þú værir dáinn, „orðinn að fallegum engli hjá Guði“, þó svo að hann vissi ekki hversu alvarleg veikindi þín voru. Hann bað mig að skila kveðju til þín. Áfi minn, ég veit að þér líður vel núna en söknuður minn er mikill, þó ég viti að hver dagur síðustu árin hafí verið kraftaverk þá var ég aldrei tilbúin að kveðja þig. Ég bið almáttugan Guð að styrkja okkur fjölskylduna í gegnum sorgina og býð þér góða nótt. María Þórunn Helgadóttir, Ævar Öm Sigurðsson. Stórt skarð er hoggið í raðir okk- ar sjálfstæðismanna í Laugarnes- hverfi. Þórður Einarsson umsjónar- maður, Sigtúni 35, er fallinn frá. Ég kynntist Þórði fyrir 14 árum Islenskur efnlviður I KAUYN Ol<»MV »H íslenskar steintegundir henta margar afar vel í legsteina og hverskonar minnismerki. Eigum jafnan til fyrir- liggjandi margskonar íslenskt efni: Grástein, Blágrýti, Líparít og Gabbró. Áralöng reynsla. Leitið upplýsinga. s S. HELGASON HF STEINSMIÐJA SKEMMUVEGI 48 . SÍMI 557 6677 þegar hann hringdi í mig til að for- vitnast um það hvort ég hefði ekki áhuga á að taka þátt í starfi Félags sjálfstæðismanna í Laugarnesi. Eg lét til leiðast og kynntist þar með einstökum manni, einlægum og tryggiyndum með gífurlegan áhuga á félagsmálum, sannan sjálfstæðis- mann. Þórður vann mikið að félags- málum fyrir Sjálfstæðisflokkinn og var einn af stofnendum Félags sjálf- stæðismanna í Laugarnesi 1968. Þórður var lengi varaformaður fé- lagsins og kosningastjóri. Sem kosn- ingastjóri vann hann mikið og óeig- ingjamt starf fyrir flokkinn, hann var til margra ára lykilmaður og akkeri alls undirbúningsstafs fyrir kosningar í félaginu. Það var aldrei komið að tómum kofunum þegar spurt var um íbúa í hverfinu, hann þekkti lá við alla með nafni. Það var því mikill fengur fyrir mig að hafa Þórð sem lærimeistara í stjórnun kosningastarfs og við undibúning kosninga þegar ég tók við sem kosn- ingastjóri félagsins. Um langt árabil stjórnaði Þórður ferðum fyrir aldr- aða sem félagið sá um, þetta var mikið hugsjónarstarf og vinsælt meðal aldraðra í hverfinu. Störf Þórðar fyrir Sjálfstæðis- flokkinn einskorðuðust ekki bara við Laugarneshverfið, hann var einnig til margra ára umsjónarmaður í Valhöll. Fyrir þessi störf hans í þágu sjálf- stæðismanna eru honum færðar hugheilar þakkir. Við sjálfstæðis- menn í Laugarneshverfi kveðjum góðan stuðningsmann, þökkum sam- fylgdina og vottum ástvinum Þórðar Einarssonar okkar dýpstu samúð. Fyrir hönd Félags sjálfstæðis- manna í Laugarneshverfi. Halldór Guðmundsson. Þórður Einarsson gegndi starfi umsjónarmanns á vegum Alþingis á síðustu æviárum sínum. Við vorum undir sama þaki í Skólabrú 2 á árun- um 1987 til 1990 þar sem undirrituð hafði skrifstofu og þingflokkur Kvennalistans og starfskona voru til húsa. Þórður annaðist daglega umsjón og húsvörslu og sinnti mjög vel þeim margvíslegu erindum sem slíku starfi tengjast. Þetta getur verið erilsamt starf bæði þegar annríki er mest í þinginu en einnig endra- nær. Hann var mjög vel til starfsins fallinn, hafði áður unnið ýmis störf en lengi við málningu og hreingern- ingar og bar gott skynbragð á umönnun og viðhald húsa. Þórður var auk þess snyrtimenni í allri umgengni, áreiðanlegur og ábyrgur. Það skipti ekki minna máli hve hann var dagfarsprúður, glaðlyndur og ljúfur maður. Honum fylgdi notalegt andrúmsloft sem gæddi húsið heimil- islegum þokka enda var oft gest- kvæmt hjá Þórði. Þeir sem áttu er- indi við þingmenn og aðra voru vel- komnir og bæði þeir og aðrir starfs- menn Alþingis tylltu sér oft og þáðu kaffibolla. Hann var mér einstaklega velvilj- aður, hafði þekkt fjölskyldu mína lengi og mundi eftir mér frá því að ég var smátelpa. Kvennalistakonum sem og öðrum sem þarna unnu var hann vinsamlegur og hlýr og okkur þótti öllum gott að vita af honum í húsinu og njóta starfa hans. Ég vil að leiðarlokum, fyrir hönd kvennalistakvenna og fjölskyldu minnar, þakka Þórði innilega fyrir gott samstarf, alúð hans og velvilja. Ástvinum hans og fjölskyldu sendi ég hugheilar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Þórðar Ein- arssonar. Guðrún Agnarsdóttir. ULiixiimxr l Erfidrykkjur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.