Morgunblaðið - 03.12.1996, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 03.12.1996, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 1996 59 ÍDAG ÁRA afmæli. Á morgun, miðvikudag- inn 4. desember, verður sjö- tíu og fímm ára Jón Andrésson, Skúlaskeiði 22, Hafnarfirði. Hann tek- ur á móti gestum í safnaðar- heimili Víðistaðakirkju milli kl. 17 og 19 á afmælisdag- inn. ÁRA afmæli. í dag, þriðjudaginn 3. des- ember, er sextug Sigur- jóna Jónsdóttir. Hún tekur á móti ættingjum frá kl. 16, laugardaginn 7. desem- ber nk. í Heiðarlundi 4E, Akureyri. ÁRA afmæli. í dag, þriðjudaginn 3. des- ember, er fimmtug Sóley Örnólfsdóttir, Sævangi 33, Hafnarfirði. Eiginmað- ur hennar er Kristján G. Bergþórsson prentari. Þau taka á móti gestum á heim- ili sínu eftir kl. 20 í kvöld. BRIDS bmsjón Guómundur l’áll Arnarson HOWARD Schenken (1905- 1979) er af mörgum talinn besti spilari allra tíma. Hann hafði lítið fyrir að vinna sex spaða í spilinu hér að neðan: Norður ♦ Á1082 ¥ 1064 ♦ Á743 ♦ 32 Vestur Austur * 75 ♦ 64 ¥ 9852 11 fÁG73 ♦ 98 111111 ♦ DG105 ♦ 98754 ♦ DG10 Suður ♦ KDG93 ¥ KD ♦ K62 ♦ ÁK6 Þeir sem spila vel hafa efni á að melda mikið. En Schenken var vissulega hepp- inn með ieguna í þessu spili, því austur á öll lykilspilin - ÁG í hjarta og fjórlit í tígli. Útspilið var laufnía, sem Schenken drap, tók tvisvar spaða og spilaði hjarta. Aust- ur stakk upp ás og spilaði laufi. Schenken tók þann slag, trompaði lauf, tók hjartakóng og spilaði tromp- unum til enda. í lokastöðunni átti blindur hjartatíu og ásinn annan í tígli, en heima var Schenken með kóng þriðja í tígli. Og austur? Hann gat ekki bæði valdað tígulinn og haldið eftir hjartagosa. Ein- föld þvingun. Austur var óánægður með vöm sína: „Þú ferð niður ef ég dúkka,“ sagði hann við Schenken. „Ekki aldeilis," svaraði Schenken. „Upp kemur sama þvingun, nema þú átt eftir AG og DGIO í tígli þegar síðasta trompinu er spilað. Þú verður að henda hjartagosa og þá spila ég hjartadrottningu og fæ slag á hjartatíu." Schenken benti einnig á að besta vömin væri að drepa og spila tíguldrottn- ingu. En hún dugir ekki held- ur. Suður drepur á tígulkóng og nær upp þessari lokastöðu: Norður * - ¥ 106 ♦ Á ♦ - Vestur Austur ♦ - ♦ - ¥ 98 ♦ 9 il ¥ G7 ♦ G10 ♦ - Suður ♦ - ♦ - ¥ K ♦ 62 ♦ - í þessari stöðu á austur eftir að henda, en eins og sést má hann ekkert spil missa. Víxlþvingun. Hlutavelta Morgunblaðið/ Hallfrfður ÞAÐ voru vaskir nemendur 6. bekkjar ásamt for- eldrum og umsjónarkennara, sem stóðu fyrir hluta- veltu í Safnaðarheimilinu á Reyðarfirði um síðustu helgi. Það var létt yfir hópnum þegar blaðamann bar að garði og þarna gat að líta marga slynga sölumenn. Allur ágóðinn rennur til skólasafnsins sem verið er að byggja upp, en því hefur nú verið valinn nýr staður í skólanum. Með morgunkaffinu HVAÐA myndir eru þetta eiginlega sem þú þarft endilega að framkalla í myrkri? Farsi Paloma Grindavík Sími 426 8711 STJÖRNUSPÁ cltir Franees Drakc BOGMAÐUR Afmælisbarn dagsins: Kappsemi ogdugnaður tryggja þér og þínum góð a a fkomu. Hrútur (21. mars - 19. apríl) Gættu þess að virða skoðan- ir og þarfir ástvinar, og var- astu óþarfa stjómsemi. Þið ættuð að setjast niður og ræða málin. Naut (20. apríl - 20. maí) Iffö Þú kemst að því að ekki er öllum treystandi í viðskipt- um. En ástvinir eiga góðan dag og skemmta sér saman í kvöld. Tvíburar (21.maí-20.júnf) ÆjSp Þú tekur að þér flókið mál í vinnunni, sem þú _ert vel fær um að leysa. Ástvinir njóta kvöldsins heima og íhuga ferðalag. Krabbi (21. júní - 22. júlí) HjiB Einhver nákominn þarfnast aðstoðar þinnar í dag við að ganga frá viðskiptum. Þér býðst óvænt tækifæri í vinn- unni. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) W Farðu að öllu með gát í fjár- málum svo þú lendir ekki á villigötum. Með dugnaði tekst þér að koma ár þinni vel fyrir borð. Meyja (23. ágúst - 22. september) Þér gengur erfiðlega að leysa verkefni, sem þú vinn- ur að, og þú ættir að leita aðstoðar starfsfélaga. Þið finnið réttu lausnina. Vog „ (23. sept. - 22. október) Þú ættir ekki að trúa öllu, sem þér er sagt. Einhver gæti reynt að blekkja þig í dag. En samstaða ríkir hjá ástvinum í kvöld. Sþorddreki (23. okt. - 21. nóvember) Annríki í vinnunni getur breytt fyrirætlunum þínum í kvöld. Ástvinur á við smá vanda að stríða, sem þú get- ur leyst. Bogmaður (22. nóv. - 21. desember) Þér berast góðar fréttir af fjármálunum, en einhver misskilningur kemur upp í vinnunni. Njóttu hvíldar heima þegar kvöldar. Steingeit (22. des. - 19.janúar) Varaðu þig á villandi upplýs- ingum, sem þér eru gefnar í dag, og íhugaðu málið vel áður en þú grípur til gagnað- gerða. Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar) Eitthvað angrar þig í vinn- unni í dag, og aðstoð, sem þú áttir von á, lætur á sér standa. En einhugur ríkir heima í kvöld. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) !££< Þú ferð vel af stað í vinn- unni í dag, og nærð góðum árangri. Síðdegis berast þér svo góðar fréttir varðandi fjármálin. Stjörnuspána & að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi byggjast ekki á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Kókos- og sísalteppi í úrvali! Seld í metratali og stök teppi í ýmsum stærðum. Sýnishom og stök teppi á lager. Opiö frá kl. 09 -18. Laugardaga frá kl. 10 -14. cpal Faxafeni 7, Reykjavík Sími 568-7733 QhrntVe hf. tískuverslun v/Nesveg, Seltjarnarnesi, sími561 1680 Ptjóna- kjólar með sjali
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.