Morgunblaðið - 05.12.1996, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 05.12.1996, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 1996 13 AKUREYRI Nýtt skipulag hjá UA tekur gildi um áramót Skipulag Útgeröarfélags Akureyringa hf. frá og meö 1. janúar 1997 STjORN 5 fulltrúar og 5 varafulltrúar I Framkvæmdastjói Gu&brandur Sigur&sson U R Framkvæmdará&^) X T Framlei&slu- og markaössvið Magnús Magnússon Útgeröar- stjórn Sæmundur Fribriksson Framlei&slustjórnun Gæ&aeftirlit Vöruþróun Hráefnisöflun 3 ísfisktogarar 3 frystitogarar \ Vi&hald og tæknimál Gunnar Larsen V J Fjárhags- svið NN V > i — i r v Vélaverkstæöi Rafmagnsverkstæöi Trésmiöaverkstæ&i k J r \ Skrifstofa Mötuneyti Netaverkstæöi V J Gallerí AllraHanda 10 ára GALLERÍ AllraHanda í Grófarg- ili hefur starfað í 10 ára, fyrstu 5 árin var það til húsa í Brekku- götu 5 við Ráðhústorg en í Gróf- argili síðan, en galleríið hóf starf- semi 5. desember 1986. Á þessum árum hefur galleríið verið með kynningar og sölu á íslenskum listaverkum, en upphaf þess má rekja til félagsins Nytja- listar. Margir listamenn hafa ver- ið kynntir síðasta áratuginn, haldnar hafa verið 23 einkasýn- ingar og galleríið hefur staðið fyrir samsýningum og kynnt lista- menn í glugga Bautans við Hafn- arstræti. í kaffihúsinu í Hótel Hjalteyri, sem sömu menn eiga, hafa 15 listamenn kynnt verk sín. Leitast hefur verið við að kynna ijölbreytta list, verk unnin í olíu, grafík, leir, glerlist, myndvefnað, útskurð í tré, silfur og málmsmíði. í tilefni af þessum tímamótum verður efnt til sýningar á verkum þeirra listamanna sem kynntir hafa verið eða verið með einka- sýningu á verkum sínum í Gall- eríi AllraHanda, en hún verður í sýningarsal á Dalsbraut 1, þar sem verksmiðjan Hekla var eitt sinn til húsa. NÝ DAGVIST Geðdeildar Fjorð- ungssjúkrahússins á Akureyri var tekin í notkun nú fyrir skömmu. Hún er við Skólastíg 7 og er ætluð geðsjúkum og geðfötluðum sem þarfnast meðferðar og endurhæf- ingar en geta verið utan sjúkra- stofnana um nætur og um helgar. Um tveggja ára tilraunaverkefni er að ræða í samráði við stjórn FSA og heilbrigðisráðuneyti. Dagvistin er ný þjónustueining sem rekin er fyrir fjárframlög sem áður fóru til reksturs Brekkudeild- ar, en sú deild hefði orðið 50 ára á þessu ári, var rekin frá 1946 til loka síðasta árs sem langlegudeild fyrir geðsjúka. Vistmenn Brekku- deildar búa nú á sambýli fyrir geð- sjúka og hjúkrunardeildum aldr- aðra. Dr. Björg Bjarnadóttir sálfræð- ingur er forstöðumaður dagvistar- innar og Þóra Ásdís Arnfinnsdóttir stoðhjúkrunarfræðingur. Auk þeirra eru þrír starfsmenn í hluta- stöðum við dagvistina. Dagvistarþjónusta er brýn Þörf fyrir dagvistarþjónustu hefur árum saman verið brýn. Við NÝTT skipulag fyrir Útgerðarfé- lag Akureyringa tekur gildi um næstu áramót, 1. janúar, en það felur í sér nokkrar áherslubreyt- ingar í starfsemi félagsins. Helstu breytingarnar eru þær að Magnús Magnússon verður for- stöðumaður framleiðslu- og mark- aðssviðs, en undir það fellur öll framleiðsla í landi, gæðastjórnun henni tengd, vöruþróun og hrá- efnisöflun umfram það sem kemur af skipum félagsins. Sæmundur Friðriksson tekur við starfi útgerðarstjóra af Magnúsi. Á sama tíma verður sú breyting gerð að starfsemi löndunardeildar verður lögð niður auk þess sem starfsemi netagerðarverkstæðis verður færð undir fjárhagssvið. Gunnar Aspar sem gegnt hefur starfi framleiðslustjóra undanfarin ár mun á næsta ári vinna að sér- verkefnum er lúta að niðurskurði frystra flaka hjá Coldwater Seafo- od Corporation í Bandaríkjunum. Gunnar mun leggja áherslu á að kynna sér framhaldsvinnslu en stefna fyrirtækisins er að fram- haldsvinnsla sjávarafurða verði aukin á næstu misserum og árum. Enn hefur ekki verið gengið frá Geðdeild FSA eru 10 pláss fyrir innlagða sjúklinga en þar að auki hefur verið eitt pláss fyrir dag- sjúkling, en ásóknin í það hefur verið mun meiri en hægt hefur verið að anna með góðu móti. Oft hafa 5-10 manns óskað eftir að vera í dagvist og njóta þjónustu Geðdeildar og iðjuþjálfunar sem fram hefur farið í húsnæðinu við Skólastíg á morgnana. í húsnæði dagvistarinnar að Skólastíg fer nú fram iðjuþjálfun fyrir sjúklinga í sólarhringsvistun á Geðdeild auk þess sem 6-8 manns komast að í dagvistinni. Markmið hennar er að veita „heild- ræna umhyggju sem byggir á skilningi og virðingu fyrir þörfum hvers og eins jafnframt því að hlúa að hæfni til aukinnar sjálfshjálpar í samfélaginu, auka gæði lífs og draga úr þörf fyrir endurteknar innlagnir,“ eins og segir í frétt um dagvistina. Kiwanisklúbbar á Norðurlandi afhenti dagvistinni veglega gjöf þegar hún var tekin í notkun, ýmis tæki sem eflaust eiga eftir að koma sér vel, sjónvarp og hljóm- flutningstæki. ráðningu forstöðumanns fjárhags- sviðs, en gert ráð fyrir að því verði lokið fyrir áramót. Vöruþróunarstarfsemi Stefnt verður að því að auka tengsl félagsins og starfsmanna þess við markaðinn og er einn lið- ur í þeirri viðleitni að koma á fót formlegri vöruþróunarstarfsemi innan fyrirtækisins. Meiri áhersla A FRAMHALDSAÐALFUNDI Búnaðarsambands Eyjaijarðar, sem haldinn var í Feyvangi í Eyja- fjarðarsveit um sl. helgi, voru sam- þykkt ný lög fyrir sambandið. Þar er kveðið á um að búnaðarfélög og búgreinafélög verði ekki lengur grunneiningar að Búnaðarsam- bandinu en í staðinn nái samband- ið til allra bænda í héraðinu millil- iðalaust. Þetta kemur fram í fréttabréfi BSE sem út kom nýlega. Þar seg- ir einnig að búgreinafélög verði ekki með beina aðild en í stað þess komi deildarskiptur aðalfund- ur þar sem hver deild eða búgrein gerir tillögu um meðferð sinna VALBERG hf. í Ólafsfirði gekk nýlega til samstarfs við samtökin „Þín Verslun" sem eru samtök matvöruverslana um land allt en þau standa fyrir innflutningi á matvælum og samningum við heildsala. Jón Þorvaldsson einn eiganda Valbergs segir að samtökin hafi verið stofnuð fyrir um tveimur árum og sé svar við stórmarkaðs- verslunum. Boðið væru upp á sama verð í öllum aðildarverslun- um samtakanna hvort sem versl- unin er í Reykjavík eða Ólafsfirði. Til þess að ná hagstæðum verðum er einnig staðið að sameiginlegum innflutningi. „Með þessum samtökum mat- verður lögð á öflun hráefnis, um- fram það sem kemur af skipum félagsins, bæði innan lands og utan. Rík áhersla verður lögð á uppbyggingu gæðakerfis fyrir fyr- irtækið í heild þar sem m.a. verður unnið markvisst að úrbótum á starfsemi þess í formi umbótaverk- efr.a sem margir starfsmenn þekkja til í gegnum liðsvinnu lið- inna ára. mála og leggi fyrir sameinaðan fund. Þessar deildir tilnefni 3 menn í búgreinaráð sem verði stjórn Búnaðarsambandsins til stuðnings í málefnum greinarinn- ar. í stað 20 félaga verði eitt félag en starfsemi margra búnaðarfé- laga er orðin næsta lítil og mörg hver starfa aðeins vegna lagalegr- ar skyldu. Nokkur búnaðarfélög á svæðinu munu þó að öllum líkind- um starfa áfram, sérstaklega þau sem hafa komið sér upp miklum tækjalager, t.d. plógum, mykju- dreifurum, úðadælum og fleiri tækjum sem þau hafa síðan leigt félagsmönnum til afnota. vörukaupmanna hefur myndast nýtt afl sem hefur á bak við sig umtalsverða veltu og er þannig hægt að ná fram hagstæðari við- skiptakjörum. Þá eru samtökin með samning við Superlager og með staðlaða superlínu í öllum verslunum. Það sem ávinnst eru m.a. sameiginleg tilboð sem verða vikulega í öllum verslunum á hag- stæðu verði, sameiginlegar aug- lýsingar og hagræðing í vöru- verði. Þetta eru vissulega nýir tímar. Við erum að ganga í gegn- um breytingaskeið sem hefur mót- að öll viðskipti matvörumarkaðar- ins hér og í nágrannalöndunum," sagði Jón Þorvaldsson. Lægri upphæð í fjárhags- aðstoð ÚTLIT er fyrir að nokkru lægri fjárhæð fari til fjárhags- aðstoðar á vegum Akureyrar- bæjar í ár en í fyrra. Sigfríður Þorsteinsdóttir bæjarfulltrúi og formaður fé- lagsmálaráðs greindi frá því á fundi bæjarstjórnar í vikunni að í lok októbermánaðar hefði tæpum 18 milljónum króna verið varið í styrki og lán en á sama tíma í fyrra var upp- hæðin um 26 milljónir króna. Ekki liggur enn fyrir hversu miklu fé var varið til fjárhags- aðstoðar í nýliðnum nóvember- mánuði síðastliðnum, en í fyrra var um 2 milljónir að ræða og 4 í desember. „Við vitum ekki hvað gerist núna, en þó svo að upphæðin verði um 5 milljónir í viðbót erum við að greiða lægri upphæð í fjárhagsaðstoð á þessu ári en við gerðum í fyrra. Fjárhags- aðstoð hefur haldist í hendur við atvinnuleysi, það hefur verið minna það sem af er árinu en virðist vera að aukast aftur nú á síðustu mánuðum ársins,“ sagði Sigfríður. Lífeyrissjóður starfsmanna Akur ey rarbæj ar Heimilt að kaupa hlutabréf BÆJARSTJÓRN Akureyrar samþykkti á fundi í vikunni að veita Lífeyrissjóði starfs- manna Ákureyrarbæjar, STAK, heimild til hlutabréfa- kaupa. Stjórn sjóðsins hafði óskað eftir því við bæjarstjórn að hún veitti sjóðnum heimild til hlutabréfakaupa á árunum 1996 til 1997 fyrir allt að 100 milljónir króna af ráðstöfun- arfé sjóðsins, en með því hyggst stjórnin bæta ávöxtun hans. Fram kom í máli Jakobs Björnssonar bæjarstjóra á fundi bæjarstjórnar að sjóður- inn hefði ekki áður keypt hlutabréf fyrir ráðstöfunarfé sitt, en stjórn hans hefði áhuga á að fikra sig inn á þá braut til að ná fram hagstæðari ávöxtun en náðst hefði með hefðbundnum aðferðum. Eflandi umhyggja FYRSTA málstofa heilbrigðis- deildar Háskólans á Akureyri verður á morgun, föstudaginn 6. desember, frá kl. 12-13 í húsakynnum háskólans við Þingvallastræti, en ákveðið hefur verið innan deildarinnar að efna til málstofu mánaðar- lega yfir vetrartímann. Fyrsti fyrirlesari málstof- unnar verður dr. Mary Farley Fulbright prófessor deildar- innar. Fyrirlestur hennar verð- ur fluttur á ensku og nefnist „Empowered Caring" eða „ef- landi umhyggja“. Dr. Farley hefur langa reynslu innan hjúkrunar og er koma hennar til íslands mikill fengur fyrir heilbrigðisdeild, en jafnt nem- endur sem kennarar hafa notið góðs af þekkingu hennar. Málstofan er öllum opin og er aðgangur ókeypis. Geðdeild Fjórðungssjúkrahússins Ný dagvist ætluð geðsjúkum opnuð Búnaðarsamband Eyjafjarðar Satnbandið nái til allra bænda Eyjafjarðarsveit. Ólafsfjörður Valberg hf. með í „Þinni verslun“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.