Morgunblaðið - 05.12.1996, Blaðsíða 30
30 FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 1996
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Smáheimar
MYNPLIST
Sudurgata 7/
Tehúsid, Vcsturgötu B
LJÓSMYNDAVERK/
INNSETNING
Svala Sigurleifsdóttir/Ragna Ró-
bertsdóttir. Suðurgata 7: Opið kl.
14-18 alla daga til 8. des.; aðgangur
ókeypis. Tehúsið: Opið kl. 14-18 á
Iaugard.; aðgangur ókeypis.
TVÆR sýningar í Kvosinni í
Reykjavík bæta nú nýjum viðkomu-
stöðum við ferðir listunnenda á þær
slóðir; annars vegar er sýning á jarð-
hæð Suðurgötu 7 og hins vegar við
Hlaðvarpann að Vesturgötu 3.
Svala Sigurleifsdóttir
Staðarheitið Suðurgata 7 kveikir
eflaust góðar minningar í hugum
margra, enda var þar um tíma rekið
merkilegt sýningarhúsnæði fyrir
myndlist. Það hús er löngu horfið og
í stað þess var reist stórhýsi að sam-
tímakröfum steinsteypunnar. Tilvilj-
anir efnahagslífsins hafa séð til þess
að þar hefur jarðhæð staðið auð um
nokkurt skeið og því hefur gefíst
kostur á að efna til þessarar sýning-
ar; hvort slík starfsemi verður á þess-
um stað til frambúðar er hins vegar
óljóst.
Svala hefur um árabil unnið lista-
verk með því að nota svart/hvítar
ljósmyndir sem hún hefur síðan mál-
að sterkum litum (sem jafnvel ná
einnig til rammanna) og þannig gef-
ið annað og tilþrifameira líf en fyrr.
Hér hefur hún sett upp heila veröld
með þessum hætti í nokkrum mynd-
um, þar sem maðurinn er settur í
nokkuð annað hlutverk en hann hef-
ur alla jafna.
I þessum heimi smæðar og nektar
er athyglisvert hversu tæknin er ráð-
andi afl; í myndinni „Málari og mód-
el“ situr málarinn við tölvuskjá, líkt
og hann leiti þar þeirra þeirrar fyrir-
myndar, sem hann sér ekki að baki
sér. Svipað má segja um „Digitaldýr-
in“, sem eru límd við skjáinn, en sjá
ekki sitt nánasta umhverfi.
Hversdagsleikinn er hins vegar það
sem mótar lífið hvað mest, hvort sem
litið er til náttúrunnar, árstíðaskipta,
lífsbaráttunnar eða fegurðar íssins á
stilltum polli. Allt er þetta augljósara
en ella í verkum Svölu hér, þar sem
stirðbusalegar smástyttur koma í
okkar stað. í raun erum við aðeins
frumstæð peð í þeim smáheimum sem
Morgunblaðið/Á. Sæberg
Tehúsið
við sköpum í kringum okkur, þrátt
fyrir litadýrð og íburð.
Það er gott að minnast þess stöku
sinnum, þegar oflætið er tekið að
gerast helst tii mikið.
Ragna Róbertsdóttir
Nýtt sýninganými bættist í mynd-
listarheiminn í höfuðborginni undir
lok október og örugglega það
minnsta. Þetta er lítill kofí sem stend-
ur á lóð Hlaðvarpans að Vesturgötu
3 b og ber það virðulega heiti Tehús-
ið sem mun tengjast fyrri tilveru hans.
Ragna Róbertsdóttir varð fyrst til
að sýna á þessum stað og vann i því
tilefni litla innsetningu, þar sem hún
beitti sömu vinnubrögðum og hún
notaði fyrir nýlega sýningu sína í
salnum að Ingólfsstræti 8. Þar hafði
hún límt mismunandi Iitan vikur í
rétthymda fleti á veggi salarins og
skapaði með því skemmtilegar heild-
ir þar sem efnið, áferð þess og and-
staða við umhverfíð vom veigamestu
þættimir.
Hér var unnið út frá svipaðri hugs-
un, en byggt á heiti hússins, og við
það bættust fleiri þættir í eðli inn-
setningarinnar: Listakonan notaði te
sem hráefni að þessu sinni og mis-
munandi gerðir þess vom límdar í
reiti á veggi salarins. Ólíkir litir og
áferð skapa flötunum fjölbreyttan
svip, og ef hitastigið er réttu megin
við frostmarkið hefur lyktarskynið
eflaust einnig tekið þátt í heildar-
myndinni, a.m.k. framan af sýning-
artímanum.
Þessi litla innsetning fer vel á
þessum stað og þó menn hitti ekki
á opnunartíma (sem mun aðeins vera
á laugardögum) má njóta hugmynd-
arinnar engu að síður.
Eiríkur Þorláksson
Með sitt
LEIKUST
Bæjarlcikhúsið
LITLA HAFMEYJAN
Leikfélag Mosfellssveitar. Leikstjóri
Bjamey Lúðvíksdóttir. Tónlistar-
stjóm Birgir Tryggvason. Lýsing
Alfreð S. Böðvarsson. Búningar Sig-
urborg S. Guðmundsdóttir. Aðalhlut-
verk Hjördis Elín Lárusdóttir, Erla
Björk Baldursdóttir, Sturla Sighvats-
son, Kristvin Guðmundsson, Frímann
Sigurðsson, Grétar Snær Hjartarson,
Sigvaldi Kristjánsson, Bóel Hallgríms-
dóttir, Rannveig Jónsdóttir og fl.
ALLTAF er maður að reyna eitt-
hvað nýtt. Nú síðast var það
bamaleikrit klukkan hálfníu á laugar-
dagskvöldi. Það var uppi í Mosfellsbæ
hvar ég sá Litlu hafmeyna. Sýningar
verða klukkan þijú í framtíðinni.
Danski ævintýrahöfundurinn
H.C. Andersen skrifaði um litla haf-
mey sem yfirgaf sjóinn og hóf nýtt
líf á landi. Walt Disney-báknið
(-fyrirtækið) „poppaði" söguna eilít-
ið upp og framleiddi teiknimyndina
Little Mermaid. Upp úr því handriti
er leikgerð Leikfélags Mosfellssveit-
ar að mestu leyti unnin, öll tónlistin
er þaðan svo og ýmsar persónur.
Söguþráðurinn er sá sami og hjá
Andersen en endirinn var meira í
anda Grimm-bræðra (,,...og þau
áþurru
Iifðu hamingjusöm til æviloka").
Leikarar voru á nær öllum aldri,
og ekkert nema gott um það að segja.
Þeir sem eldri eru geta þá miðlað
reynslu sinni til þeirra yngri. Og það
hafa þeir án efa gert því frammi-
staða krossfiskanna og fískanna
(þeirra yngstu í sýningunni) var með
eindæmum góð; skýr framsögn og
náðu vei saman. Aðrir leikarar stóðu
sig ekki síður vel, þó sérstaklega
Sturla Sighvatsson í hlutverki hum-
arsins Sebastíans - merkilegt hvað
slíkir karakterar eru þreytandi í
raunveruleikanum en skemmtilegir
þegar þeir eru skrifaðir upp á svið.
Mikið var sungið í sýningunni. Hijóð-
færaleikurinn var allur af bandi og
söngurinn líka, oftar en ekki. Þar
sem ég sat framarlega heyrði ég
stundum söng leikaranna líka og því
veit ég sem er; þessi bandsöngur var
alveg óþarfur. Það kom bezt í ljós
þegar Kristvin Guðmundsson söng
sjávarréttalag Francois kokks sjálf-
ur. Bandsöngurinn var reyndar rétt-
lætanlegur í dúetti Eiríks prins og
Öldu, fyrrverandi hafmeyjar (Frí-
rnann Sigurðsson og Hjördís Elín
Lárusdóttir), en hann mætti kalla
einhvers konar innra eintal.
Leikfélag Mosfellssveitar er tutt-
ugu ára um þessar mundir. Ég óska
því til hamingju með þann áfanga
og sýninguna á laugardaginn.
Heimir Viðarsson
Tíminn og t eiknimyndahetj an
KVIKMYNPIR
Laugarásbíó
SKUGGI
(„THE PHANTOM") ★ ★
Leikstjóri Simon Wincer. Handrits-
höfundur Jeffrey Boam. Kvik-
myndatökustjóri David Burr. Tón-
list David Newman, Hans Zimmer.
Aðalleikendur Billy Zane, Treat
Williams, Kristy Swanson, Cather-
ine Zeta Jones, James Remar, Sam-
antha Eggar, Patrick McGoohan.
100 min. Bandarísk. Paramount
19%.
í FRUMSKÓGUM Bengalla rík-
ir hálfguðinn Skuggi, afkomandi
skipbrotsmanns sem skolaði uppá
ströndina fyrr á öldum og einsetti
sér að helga líf sitt baráttunni
gegn glæpum og óréttlæti hvers-
konar. Fékk hálfvillta frumbyggj-
ana í lið með sér sem lutu honum
í auðmýkt. Nú er komið fram á
fjórða áratug þessarar aldar og
allt við það sama í Bengalla.
Skuggi (Billy Zane) stýrir ríki sínu
úr Hauskúpuhelli og á í útistöðum
við ógeðslega leynireglu Xanders
Drax (Treat Williams) sem hyggst
ná heimsyfirráðum með fulltingi
Hauskúpnanna þriggja. Skuggi er
handhafi einnar þeirra og ekki á
þvi að gefast upp fyrir illmennum
frekar en fyrri daginn.
Skuggi er gamalgróin teikni-
myndahetja sem löngum prýddi
síður Tímans og Sambands-
hrammurinn, af sinni alkunnu
umhyggjusemi, bar inná hvert
byggt ból á landinu ásamt mjólk-
urbrúsum og kaupfélagisgóssi...
Nú er öldin önnur á samlagssvæð-
inu. Hrammurinn stirðnaður,
Tíminn annarlegur og Skuggi
orðin sætabrauðsleg kvikmynda-
hetja. Að ytra búningi er flest til
staðar sem prýddi þessa ágætu
myndasögu. Frumskógarparadís-
in, hvíti gæðingurinn, hundurinn
DjöfuII, kvennablóminn Diana
(Kristy Swanson), eilíf átök hetj-
unnar við skúrkana. Því miður er
framvindan tómt brambolt og
gauragangur þó það sé greinilegt
að talsvert fé hafur verið sett í
framleiðsluna. Það sést á svipm-
iklum sviðsmyndum og búning-
um, takan er góð og tónlistin líka.
Hinsvegar skortir allan metnað,
spennu og ærlega gamansemi í
handritið, Skuggi er flöt mynd
og tilþrifalítil og leikararnir mis-
vondir. Skuggi var þokkafyllri í
höndunum á Lee Falk og félögum
og mun magnaðri en það blóðlitla
gauð sem hinn dísæti Zane skilar
af sér og Swanson er ámóta slök
sem draumadísin Díana. Skúrk-
arnir eru öllu skárri, einkum gef-
ur Treat Williams skálknum Drax
ábúðarmikið teiknimyndafas.
Hvorki leiðinleg né skemmtileg,
ofbeldi og átök öll á gamansömum
nótum svo óhætt er að spá
Skugga betri tíð á myndbanda-
markaðnum. Einkum fyrir börn
og unglinga.
Sæbjörn Valdimarsson
SAMANTEKT FELAGSVISINDASTOFNUNAR A SOLU BOKA 18.-30. NÓVEMBER 1996. UNNIÐ FYRIR
MORGUNBLAÐIÐ, FÉLAG ÍSLENSKRA BÓKAÚTGEFENDA OG FÉLAG BÓKA- OG RITFANGAVERSLANA.
Bóksölulisti
1
2
3
4
5
KÖKUBÓK HAGKAUPS (-) 6 LITLU DÝRIN Á BÆNUM (-)
Jóhann Felixson. Útg. Hagkaup JÁTNINGAR BERTS James C. Shooter og J. Ellen Dolce. Útg. Bókatútgáfan Björk
(-)
Anders Jacobsson & Sören Olsson. Útg. Skjaldborg ehf. 7 LÖGMÁLIN SJÖ UM VELGENGNI Deepak Chopra. Útg. Bókaútgáfan Vöxtur (-)
ÞJÓÐSÖGUR JÓNS MÚLA Jón Múli Árnason. Útg. Mál og menning (-) 8 LÍFSKRAFTUR Sr. Pétur og Inga í Laufási Friðrik Erlingsson. Útg. Vaka-Helgafell hf. (-)
EKKERT Að MARKA! Guðrún Helgadóttir. Útg. Vaka-Helgafell (-) 9 Z ÁSTARSAGA (-)
Vigdís Grímsdóttir. Útg. Iðunn
LÁVARÐUR HEIMS Ólafur Jóhann Ólafsson. Útg. Vaka-Helgafell (-) 10 STAFKARLARNIR Bergljót Arnalds. (-)
Myndir: Jón Hámundur Marinósson. Útg. Skjaldborg ehf.
Einstakir flokkar:
Skáldverk
6
LÁVARÐUR HEIMS (-
Ólafur Jóhann Ólafsson. Útg. Vaka-Helgafell ZÁSTARSAGA (6
Vigdís Grímsdóttir. Útg. Iðunn ÍSLANDSFÖRIN (3-4
Guðmundur Andri Thorsson. Útg. Mál og menning LÍFSINSTRÉ (-
Böðvar Guðmundsson. Útg. Mál og menning LÍFSKLUKKAN TIFAR (2
Skúli Björn Gunnarsson. Útg. Vaka-Heigafell hf. BLÓÐAKUR (1
Ólafur Gunnarsson. Útg. Forlagið SVIKINN VERULEIKI (-
Michael Larsen. Útg. Vaka-Helgafell hf. ENGILL DAUÐANS (-
Jack Higgins. Útg. Hörpuútgáfan -10 KVENNAM. DEYR (-
8
Óttar Guðmundsson.
Útg. Iðunn
9-10 Röddarnarins (-
Linda Lay Schuler.
Útg. Vaka-Helgafell hf.
(D
(-)
Almennt efnl
1 KÖKUBÓK HAGKAUPS (-)
Jóhann Felixson. Útg. Hagkaup
9 WÓÐSÖGUR
JONSMULA
Jón Múli Ámason.
Útg. Mál og menning
3 LÖGMÁLIN SJÖ
UMVELGENGNI
Deepak Chopra.
Útg. Bókaútgáfan Vöxtur
4 LÍFSKRAFTUR
Sr. Pétur og Inga í Laufási (-)
Friðrik ErUngsson.
Útg. Vaka-Helgafell
5 ÚTKALL Á ELLEFTU
STUNDU (-)
Óttar Sveinsson.
Útg. íslenska bókaútgáfan
6 TÍUNDAINNSÝNIN (10-12)
James Redfield. Útg. Leiðarljós
ehf.
7 SAKLAUS í KLÓM
RETTVISINNAR
Magnús Leópoldsson
Jónas Jónasson.
Útg. Vaka-Helgafell hf.
8 HÁMARKS ÁRANGUR (-)
Brian Tracy. Útg. Leiðarljós ehf.
9 SÚPA FYRIR SÁLINA (6)
Jack Canfield og Mark Victor
Hansen. Útg. Vaka-Helgafell hf.
10-11 ÁTTUVONÁ
v GESTUM? (5)
Þýð. Guðrún H. Hilm-
arsdóttir.
Útg. Setberg
10-11 SNJALLYRÐI (-)
Kjartan Örn Ólafsson
tók saman. Útg.
Vaka-Helgafell hf.
(2)
Börn og unglingar
1 JÁTNINGAR BERTS (-)
Anders Jacobsson & Sören
Olsson.
Útg. Skjaldborg ehf.
2 EKKERT Að MARKA! (-)
Guðrún Helgadóttir.
Útg. Vaka-Helgafell hf.
3 LITLU DÝRIN Á BÆNUM
(-)
James C. Shooter og J.
Ellen Dolce.
Útg. Bókaútgáfan Björk
4 STAFAKARLARNIR (-)
Bergljót Amalds.
Myndir: Jón Hámundur Mar-
inósson.
Útg. Skjaldborg ehf.
5 HÁRFLÉTTUR (-)
Moira Butteríield.
Útg. Skjaldborg ehf.
6 JÓL í BETLEHEM (-)
Joy N. Hulme. Myndir: J. El-
len Dolce.
Útg. Bókaútgáfan Björk
7 JÓLIN KOMA (-)
Jóhannes úr Kötlum.
Útg. Mál og menning
8 VIÐ JÓLATRÉÐ
- JÓLAVÍSUR (-)
Útg. Hörpuútgáfan
9 SKÓRNIR í
GLUGGANUM (-)
Lisa Streetler Wenner.
Myndir: Maribel Gonzales
Sigurjóns.
Útg. Mál og menning
10 FYRSTU JÓLIN (-)
Georgie Adams.
Myndir: Anna Cynthia Leplar.
Útg. Mál og menning
!
I
i
)
>
>
>
l'
>
t
!
I
i
I
I
!;
I
I
!
!
Íí
I-