Morgunblaðið - 05.12.1996, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 05.12.1996, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 1996 61 BRÉF TIL BLAÐSINS Barátta við fordóma Frá Völu Dóru Magnúsdóttur: í MAÍMÁNUÐI sl. var mér sagt upp störfum frá og með 1. júní. Ástæða uppsagnar er eins og allt í samskiptum fólks umdeilanleg. Ég hef alltaf haft þá skoðun að það þurfi tvo eða fleiri til að upp komi ágreiningur og það þurfi jafn marga til að viðhalda ástandinu og einnig þurfi að taka tillit til allra aðila, ef vilji er fyrir hendi til að leysa ágreininginn. í minu tilfelli var það aldrei reynt. Ég vona að þessi að- gerð ráðamanna fyrirtækisins hafi haft í för með sér að þar ríki nú fádæma góður starfsandi. Píslarganga í ágúst sl. hafði ég loks kjark til að byija að kanna hvaða störf væru í boði á vinnumarkaðnum og gætu hentað mér með tilliti til fyrri starfa og þeirrar reynslu sem ég hef og fer hér á eftir hvernig sú ganga hefur verið. Vinnumiðlanir Ég hef lagt inn umsóknir hjá fjór- um vinnumiðlunum um ákveðin störf, svörun var í öllum tilvikum neikvæð, en umsóknin yrði skoðuð ef til kæmi starf við mitt hæfi. Ekki í eitt skipti var rætt við mig á þessum miðlunum til að kanna hvort ég væri gjaldgeng á vinnu- markaðnum. Á næstu vikum komu auglýsingar frá þessum miðlunum um störf, sem ég hefði með góðu móti geta tekist á við. Aldrei var haft samband við mig á þessum tíma. Af þessari reynslu dreg ég þá ályktun að fordómar séu þar í gildi sem og annars staðar. Auglýst störf Það hefur verið nánast sama reynla og af vinnumiðlunum. Samantekt Eins og sjá má á meðfylgjandi töflu hef ég sótt um tuttugu og níu störf (auk þess fjögur sem ekki eru á töflunni) og ekki fengið. Svörin hafa verið nei, því miður og svo léleg afsökun um að það hafi svo margir sótt um starfið og af þeim sökum hafi umsókn minni verið hafnað. Um þriðjungur hafði ekki fyrir því að svara umsóknum mín- um. Ástæður þessara svara eru án efa aldur minn. Lokaorð Ég fyllist mikilli reiði þegar ég heyri af hve mikilli vanþekkingu félagsmálaráðherra talar um at- vinnuþausa og setur alla undir sama hatt. Ég held að hann ætti að bæta heimavinnu sína. Ég trúi því ekki að sá hópur atvinnulausra sé stór sem ekki nennir að vinna. Ef marg- ir atvinnulausir sitja heima eins og ég með fulla starfsgetu og löngun til að vinna, en fá ekki vinnu fyrir það eitt að vera ekki á réttum aldri, þá er illa komið. Ekki erum við að biðja um ráðningu til tíu eða fimmt- án ára, heldur tækifæri til að sanna að við erum enn nýtir starfsmenn. Ég mun halda áfram að sækja um þau störf sem höfða til mín. Að sjálfsögðu velti ég því fyrir mér hve lengi ég hef kjark til að halda þess- ari baráttu áfram, sem fram til þessa hefur verið vonlítil. Ég verð kannski einn af letingjum félags- málaráðherra. VALA DÓRA MAGNÚ SDÓTTIR, atvinnulaus VR-félagi. umsókn hvar sótt um starf sem sótt er um hvar auglýst send inn fyrir svörun send inn 12..8.96 Guðni Jónsson sími * skrifst.st Morqunbl. 12.8.96 nei 12.8,96 Skattst.Reyk janes skrifst.st Morqunbl 12.8.96 nei 8,8,96 Tæknigarður skrifst.st Morgunbl 8.8.96 nei 4,8,96 Rikissaksóknari skrifst.st Morgunbl 4.8.96 nei 4.8.96 Merkt starf V skrifst.st Morgunbl. 4.8.96 nei 7.8.96 Merkt 5-1061 skrifst.st Morgunbl 7.8.96 ekki svaraþ 13.8,96 Liósauki aim.skrifsts.st Morqunbl 13.8.96 nei 13.8.96 LiBsauki innsl.i concorde Morgunbl 13,8,96 nei 20,8,96 Merkt H-15231 simav.oq alm.skrifst. Morqunbl 23,8,96 ekki svarab 20,8,96 Metnaóur Word Excel bókhald Morqunbl ekki tekiö fram nei 20,8,96 Hagvangur Stéttarfél.þ jónustufyfirtæki Morgunbl. 27,8,96 ekki svaraö 20,8,96 Löqmannsstofa alm.skrifst.st Morqunbl 22.8,96 ekki svarað 22.8.96 Sölufulltrúar Auqlýsinqar Morqunbl 26.8.96 nei 27.8,96 6reiníngar*rá&gj Læknaritari Morgunbl 10.9,96 nei 27,8,96 Abendi Bókarar m.reynslu Morgunbl. ekki tekið fram ekki svarað 1.9.96 Leikf.R.vikur Mibasala Morgunbl 9.9.96 nei 1,9,96 Laus störf h361 símav.alm.skrifst.störf Morgunbl 6.9.96 nei 1,9,96 Sýsium.R.vik störf þinql.oq uppboð Morgunbl 15,9,96 nei 1,9,96 Lyfjabúöir ehf afqreiöslustörf Morqunbl 6,9,96 nei 10,9,96 Merkt f jöih-839 ritari Morqunb! 13,9,96 nei 10.9.96 Vaki-öryggiskerfi alm.skrifst.st Morgunbl 13,9,96 ekki svarab 10,9.96 Pharma ehf Afgr.st Morgunbl 14,9,96 ekki svaraft 17,9,96 Póstur oq simi alm.skrifst Laqt inn 18,9,96 nei 17,9,96 Merkt B-12 bókhald Morgunbl 18.9.96 ekki svaraþ 22,9,96 Arskógar fél.m. ritarast Morgunbl 2.10.96 ekki svarað 16.10.96 Kópavoqsbær ritari á skólaskrifst. Morgunbl 18.10.96 biö 22.10.96 Merkt 1-857 skrifst.st Morqunbl 24.10.96 ekki svaraö 22.10.96 Merkt skrst-22 h.Saqa skrifst.st Morqunbl 25.10.96 nei 20.1 1.96 Félaqsm.st.Kópavoqs ritarastörf Morgunbl 2.12.96 bib Að svíkja sína trú Frá Þorkeli Ágústi Óttarssyni: PRESTUR Fríkirkjunnar, Guð- mundur Örn Ragnarsson, skrifaði 23. nóvember bréf til blaðsins þar sem hann skammaði þjóðkirkjuna og „svokallaðar kristnar ríkis- stjórnir vesturlanda" fyrir að vinna ekki með og fyrir Israel. Ástæðan er sú að endurkoma Krists og stofn- un Ísraelsríkis fer saman sam- kvæmt spádóm- um Biblíunnar. Mér finnst ekk- ert athugavert við það að fólk vænti endurkomu Krists en mér finnst varhugavert þegar það á að fara að svíkja trú sína til að flýta þeirri endurkomu. Já, að svíkja trú sína því þeir sem hvetja til ofbeldis, ranglætis og kúgunar í nafni kristinnar trúar hafa ekki lesið Nýja testamentið nógu vel, ekki kynnt sér söguna sem skyldi eða snúist gegn upphöfnum og dásamlegum boðskap Jesú Krists. Hann boðaði kærleika á meðal manna og hvatti til umburðarlynd- is og fórnfýsi. Það sem Ísraelsríki er að gera gegn Palestínumönnum og öðrum nágrannaþjóðum er ekki > neinu samræmi við það sem Kristur boðaði. Ég er þess fullviss að heimhvarf gyðinga til ísraels er uppfylling spádóma en það merkir ekki að allt sem þar gerðist hafi verið Guði þóknanlegt. Þau hryðuverk og morð sem framin hafa verið í þessu helga landi, bæði af hálfu gyðinga sem og múslima, eru skammarblettur á sögu mannkyns- ins, sorgleg örlög vitfirrts heims. Því hlýtur hver kristinn maður sem og aðrir kærleikselskandi menn að styðja við bakið á þeim sem leita friðarins og réttlætis þjóðunum til handa. „Sælir eru friðflytjendur, því þeir munu Guðs börn kallaðir verða,“ segir í fjallræðunni (Mt. 5:9). Tilgangur trúarbragða á að vera að stuðla að einingu og kærleika á meðal manna. Ef þeim tekst það ekki er það tákn þess að fylgjend- umir eru á villigötum. Kærleiks- lögmál Krists nær ekki aðeins til trúbræðra okkar, heldur til allrar sköpunar Guðs, fylgjenda annarra ^emoMtaAÚAÍá Handsmíðaðir 14kt gullhringar Kringlunni 4-12, sími 588 9944 trúarbragða meðatalinna. Ba- há’u’lláh, boðberi bahá’í trúarinnar (borið fram bahæ) sagði: „Ó fólk! Umgangist fylgjendur allra trúar- bragða í anda vináttu og bróður- þels,“ og „Ó mannana börn! Vitið þér eigi hvers vegna vér skópum yður af einu og sama dufti? Til þess að enginn skyldi upphefja sig yfir annan,“ og enn aftur „Þeim ber ekki að miklast sem elskar ættjörð sína heldur þeim sem elska heiminn allan. Jörðin er aðeins eitt land og mannkynið íbúar þess.“ Er hægt að orða kærleiksboð- skap Krists á betri veg? ÞORKELL ÁGÚST ÓTTARSSON, Skipholti 30, Reykjavík. MASTER HITABLÁSARAR Reykjavík: Ármúla 11 - sími 568-1500 Akureyri: Lónsbakka - sími 461-1070 Coíy Gifshlutir Máiiðsjáif ** Mikið úrval af jólavörum og öðrum skrautmunum GífSVÖrtir, Funahöfða 17, síma 587 8555. Póstsendum Barock - roecoeo Sófasett 3+1+1+borð+2 auka stólar aðeins kr. 232.000 stgr. allt settið. Litir: Bleikt, rautt og drapplitað. Einnig kommóður, skatthol, bókahillur. Borðstofuborð og stólar í sama stíl á hagstæðu verði. Yalhúsgögn ÁRMÚLA 8, SÍMAR 581 2275 og 568 5375 nýjasta gegn a 20% afsláttur af öllum 0R0BLU sokkabuxum fimmtudaginn 5. desember kl. 13:00 " 17:00. Kringlú a ny r, t ivö ruverj l u n nni - Austurstræti í sambandi við neytendur frá morgni til kvölds!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.