Morgunblaðið - 05.12.1996, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 1996 23
Neitar
vitneskju
um dauða-
sveitir
Istanbúl. Reuter.
NECMETTIN Erbakan, forsætis-
ráðherra Tyrklands, rauf á þriðju-
dag þögnina og sór sig frá aðild
að hneykslismáli um meintar ríkis-
reknar dauðasveitir, sem stjórnar-
andstæðingar segja að beri m.a.
ábyrgð á dularfullum dauða 3.500
Kúrda á undanfömum 12 ámm.
„Það er útilokað að ríki reki
glæpastarfsemi, engum leyfist að
aðhafast eitthvað sem brýtur í
bága við lög, á því geta ekki orðið
neinar undantekningar,“ sagði Er-
bakan.
Deilur blossuðu upp í síðasta
mánuði eftir að Abdulla Catli, al-
ræmdur illvirki sem hefur verið
eftirlýstur um árabil, beið bana í
bílslysi í kyrrlátum smábæ, Sus:
urluk, í vesturhluta Tyrklands. í
bílnum var auk hans háttsettur
lögregluþjónn, sem einnig beið
bana, og þingmaðurinn Sedat Buc-
ak, sem er flokksbróðir Tansu Cill-
er, aðstoðarforsætisráðherra, og
leiðtogi kúrdískra sveita, sem betj-
ast gegn sveitum Verkamanna-
flokks Kúrdistans (PKK) í suðaust-
urhluta Tyrklands.
Lýðræðisflokkur alþýðunnar
(HADEP), stjómarandstöðuflokk-
ur sem varið hefur málstað Kúrda,
sakaði í gær ríkisrekin glæpasam-
tök um óupplýst morð á 3.500
Kúrdum. „Þetta eru ekki lengur
getgátur, heldur liggja játningar
embættismanna á tilurð sveitanna
fyrir,“ sagði Guven Ozata, einn af
leiðtogum flokksins, á blaða-
mannafundi.
Ofanígjöf við Ciller
Hneykslismálið hefur þegar
skekið ríkisstjómina og kostað
Mehmet Agar, innanríkisráðherra,
ráðherrastólinn, en hann er harð-
línumaður og flokksbróðir Cillers.
Hann hefur verið sakaður um að
hafa vitað fyrirfram um ökuferð-
ina, sem endaði með banaslysinu
í Susurluk.
„Ekkert afsakar glæpi, ekki einu
sinni átökin við PKK. Ef slíkt ger-
ist verður að leysa glæpagengin
upp,“ sagði Erbakan. Vom um-
mæli hans túlkuð sem ofanígjöf
við Ciller, sem sagði á dögunum,
að sérhver sá er berðist í þágu rík-
isins væri hetja.
Borðstofustóll
með tefion áklæði
6 litir á lager
Öðruvísi
húsgögn
Suðurlandsbraut 54, sími 568 2866
Blað allra landsmanna!
- kjarni málsins!
ERLENT
*
Arleg tann-
hreinsun
Þórseðlu-
bróður
STARFSMAÐUR breska nátt-
úrurgripasafnsins í Lundúnum
burstar tennur eftirlíkingar af
Þórseðlubróður, 26 metra
langri risaeðlu.
Eftirlíkingin hefur verið eitt
aðalaðdráttarafl safnsins frá
árinu 1905. Hanaþarf að
hreinsa árlega og tekur það
fjóra starfsmenn tvo daga að
snyrta hana og snurfusa.
Reuter
Gordíjevskí
biðst
afsökunar
London. Reuter.
BRESKI þingmaðurinn George
Robertson fékk í gær formlega
afsökunarbeiðni og skaðabætur frá
Sovétmanni sem sakaði Robertson
um að hafa borið fram spurningu
á þingi fyrir sovésku leyniþjón-
ustuna.
Sovétmaðurinn, Oleg Gordí-
jevskí, og útgáfan sem gaf út sjálf-
sævisögu hans vom dæmd til að
greiða sakarkostnað. Lögmaður
Gordíjevskís viðurkenndi fyrir rétti
að ekkert væri hæft í ásökunum
hans á hendur Robertsons.
s
blÓ: II íl
Jiálaljm
Enn meira úrval - enn betra verð -
Inniseríur
10 Ijósa kr. - -99 40 Ijósa kr. -■ --869
20 Ijósa kr. - —189 fiiboð 80 Ijósa kr. -■ -1299
35 Ijósa kr. - -340 120 Ijósa kr. - -2125
50 Ijósa kr. - -449 240 Ijósa kr. - -4190
100 Ijósa kr. - -865 480 Ijósa kr. - -7990
35 Ijósa 40 Ijósa stærri skrúfperur
(kúluperur) kr. - -689 m. straumbreyti kr. -2550
20 Ijósa 20 Ijósa stærri
stærri perur kr. - -1239 perur kr. - -2995
35 Ijósa 120 Ijósa
stærri perur kr. - -1890 blikksería kr. - -3780
Útíseríur
Sértilboð
fimmtudug til sunnudags
Grenilengja
(2,75m)
kr. 499
20 ljósa innisería
kr. 189
Ljósahringur
í glugga (49 ljósa)
kr. 799
Sogskálar fyrir
gluggaseríur
kr. 199