Morgunblaðið - 05.12.1996, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 05.12.1996, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ NEYTEMPUR Jólainnkaupin Verðmerkingar í sýningargluggum eru óviðunandi STARFSFÓLK Samkeppnisstofn- unar hefur lengi reynt að fá kaup- menn til liðs við sig til að verð- merkja bæði í verslunum og sýning- argluggum. Að sögn Kristínar Fær- seth hjá Samkeppnisstofnun er ástandið núna mjög slæmt og mun verra en oft áður. „Starfsfólk okkar kannaði ástandið í lok síðustu viku, þ.e.a.s. sýningarglugga í Kringl- unni og við Laugaveg. Niðurstaðan er sú að við Laugaveg eru 45% verslana ekki með neinar verðmerk- ingar í sýningargluggum og sömu sögu er að segja frá 35% verslana í Kringlunni." Kristín segir að til samanburðar megi geta þess að á sama tíma í fyrra voru 24% versl- ana við Laugaveg ekki með merkt- ar vörur í sýningargluggum. - En hveijar telur hún vera skýr- ingarnar á þessu? „Vonandi hafa verslunareigend- ur ekki verið búnir að verðmerkja í jólagluggunum hjá sér þegar við vorum á ferðinni." Hyggjast beita dagsektum - Hver verða viðbrögð ykkar hjá Samkeppnisstofnun? „Við höfum fram til þessa reynt að ræða um þessa hluti við kaup- menn en sjáum ekki fram á annað en grípa þurfi til róttækari aðgerða sem geta þá m.a. verið dagsektir samkvæmt Samkeppnislögum. Á næstu dögum munum við væntanlega hafa samband við þær verslanir sem um ræðir og taka ákvörðun um framhaldið." Ástand verðmerkinga í sýningargluggum Laugavegur Kringla Fjöldi fyrirtækja Fjöldi fyrirtækja 142 149 156 143 58 60 51 60 wBsa HðEBM mtnra hbesb - ’^ianæni mmm 1993 1994 1995 1996 nóv. ' 71993 1994 1995 1996 nóv. Nýtt Morgunblaðið/Hallfríður. KRISTBJÖRG Kristinsdóttir og Hörður Þórhallsson, eig- endur KK-matvæla. KK-matvæli á Reyðarfirði opna formlega nýtt húsnæði Reyðarfjörður - Það var hátíðlegt um að litast í nýju og glæsilegu húsnæði KK-matvæla síðasta laug- ardag. Eigendurnir, hjónin Krist- björg Kristinsdóttir og Hörður Þór- hallsson tóku þá á móti gestum, sýndu húsnæðið og buðu fólki upp á veitingar í tilefni dagsins. Lesendur spyrja Hvað þýðir K-ið í Kökubók Hagkaups? LESANDI hafði samband og sagði að víða í Kökubók Hagkaups væri vísað í K-ið og þetta væri ergjandi þar sem hann vissi ekkert um hvað væri verið að ræða. Hvað í ósköpun- um þýðir þetta K? Svar: Að sögn forráðamanna hjá Hagkaup er K-ið notað um sérstakt hnoðjárn sem fylgir flestum hræri- vélum. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Taðreykt hangikjöt í gjafakössum í NÓATÚNI er hægt að fá tað- reykt soðið Húsavíkurhangikjöt í sérstökum gjafapakkningum. Um er að ræða trékassa sem hangi- kjötið er sett í. Þá eru í kössunum upplýsingar um hangikjötið á nokkrum tungumálum svo og vottorð frá dýralækni sem gerir fólki kleyft að senda kjötið beint til útlanda. Morgunblaðið/ÁSÆ Demantahúsið í stærri Kringlu DEMTANTAHÚSIÐ, í eigu Stef- áns B. Stefánssonar gull- og silfur- smiðs, hefur opnað aftur á sama stað í stærri Kringlu. í ÚRVERINU FÆREYSKI togarinn Sverri Ólason við bryggju í Færeyjum. Húsvíkingar kaupa fær- | eyskan togara á uppboði ÚTGERÐARFÉLAGIÐ Geiri Pét- urs á Húsavík hefur keypt fær- eyskan rækjutogara, Sverri Óla- son, á uppboði. Kaupverð var um 170 milljónir íslenzkra króna. Færeyska fréttablaðið Dimma- lætting segir að íslendingar hafi fengið skipið á gjafverði og komið í veg fyrir að skipinu yrði áfram haldið í Færeyjum. Nú er í undir- búningi áætlun landstjórnarinnar í Færeyjum um að fella niður skuldir á færeyska úthafsfloanum að upphæð rúmlega milljarð króna. Sigurður V. Olgeirsson, skip- stjóri og útgerðarmaður á Húsa- vík, sagðist í samtali við Verið ætla að nota nýja togarann til rækjuveiða, en á móti þyrfti hann að úrelda minni togara sinn, Geira Péturs ÞH 344, og yrði hann að öllum líkindum seldur til Noregs auk þess að þurfa að kaupa sér meiri úreldingu þar sem að nýi togarinn er mun stærri en sá eldri. Geiri Péturs er 34 metrar að lengd og tekur um 240 tonn, en sá nýi, sem væntanlega kemur til með að bera sama nafn, er 40,65 metrar Verður gerður út á rækju hér við land að lengd og tekur um 300 tonn, að sögn Sigurðar. Setja frystibúnað um borð mjög bjartsýnn á útgerð nýja skipsins. Hann hefði yfir að ráða um 1.300 þorskígildistonnum á kvótaárinu, aðallega í rækju. Gert I er ráð fyrir 12-14 manna áhöfn á } nýja togarann, sem eins og áður i segir, mun verða gerður út á ’ rækju, aðallega fyrir norðan og austan land, að sögn Sigurðar. Nýi eigandinn ætlar að halda utan um áramótin og ætti því skip- ið að koma í heimahöfn í janúar- byijun, en áður en hann heldur á veiðar, þarf að gera ýmsar breyt- ingar á skipinu, m.a. setja í það frystibúnað og rækjuvinnslu. „Við frystum stærstu rækjuna á Jap- ansmarkað, millirækjuna sjóðum við á Evrópumarkað, en smæstu rækjuna leggjum við upp hjá rækjuverksmiðju FH á Húsavík." Ígíldi 1.300 tonna af þorski Skipið keypti Sigurður á upp- boði í Færeyjum og voru þrír um hituna, en viðskiptabanki fær- eysku útgerðaraðilanna var þá búinn að leysa skipið til sín. Sig- urður sagðist telja kaupverðið hafa verið mjög þokkalegt og væri hann Lækka skuldir færeyska úthafsveiðiflotans Færeyska landsstjórnin bauð einnig í skipið en hætti boðum er upphæðin var komin yfir 169 millj- ónir króna. John Petersen, sjávar- útvegsráðherra Færeyja, segir í samtali við Dimmalætting, að ekki hafi verið hægt að fara hærra. „Við vorum búnir að reikna út, að ekki mætti greiða meira fyrir skip- ið. Það gæti ekki skilað hagnaði á hærra verði miðað við þann kvóta, sem það ætti kost á.“ Petersen hefur lagt fram frumvarp til laga á Lögþinginu um að skuldir úthafs- veiðiflotans færeyska verði lækk- aðar um rúman milljarð, en mikill rekstarvandi blair við flestum þess- um skipa. \ I I I I Vilja mikinn niðurskurð RÁÐGJAFARNEFND Alþjóða hafrannsóknaráðsins telur nánast alla helztu fískistofna innan lög- sögu Evrópusambandsríkjanna of- veidda. í tillögum nefndarinnar um veiði á næsta ári er ýmist lagð- ur til mikill niðurskurður frá aflan- um 1995 eða algjört veiðibann. „Hætta á ofveiði er úr öllum stofn- um flatfisks og bolfísks," segir í ráðleggingum nefndarinnar. Ráðgjafarnefndin bendir á að þorskstofnar í Norður-Atlantshafi hafi hrunið þrátt fyrir hlutfalls- lega minni veiði en eigi sér stað úr þorskstofninum í Norðursjó. Leyfílegur þorskafli úr Norðursjó er nú 130.00 tonn, en ráðgjafar- nefndin leggur til niðurskurð um 20% frá árinu 1995 er aflinn var 120.000. Einnig er lagður til um 20% niðurskurður á þorski á öðr- um slóðum, svo og flatfiski og allt að 70% niðurskurður þors- kveiða á írlandshafi. Þá er lagt til að veiðar á flatfiski verði skornar niður um allt að 60% á Ermarsundi. Tiilögur ráðgjafarnefndar Alþjóða hafrannsókna- ráðsins um veiðar á helstu f iskstof num árið 1997 I Hafsvæði Fisktegund Ráðlagður niðurskurður 1997 m.v. 1995 Samþykktur Samþykktur kvóti 1995 kvóti 1996 tonn tonn Norðursjór Þorskur -20% 120.000 130.000 Skagerak 20.000 23.000 A-Ermarsund og Vlld Norðursjór Skarkoli -20% 115.000 81.000 Keltahaf og V-Ermars. Þorskur -20% 17.000 20.000 Keltahaf og V-Ermars. Lýsa -20% 25.000 26.000 Keltahaf Skarkoli -20% 1.400 1.100 Keltahaf Lúra -20% 1.100 1.000 V-Ermarsund Skarkoli -60% 8.000 7.500 Biscayaf lói Lúra -40% 6.600 6.600 írlandshaf Þorskur -70% 5.800 6.200 írlandshaf Lúra ■20% 1.300 1.000 NA-íshaf Grálúða engar veiðar 2.500 2.500 Vestur af Skotlandi Þorskur verul. minnk. 13.000 13.000 Vestur af Skotlandi Ýsa verul. minnk. 21.000 22.900 Vestur af Skotlandi Lýsa verul. minnk. 6.800 10.000 Norður og vestur af Lýslngur lágmarksveiðar 8.500 9.000 Spáni og Portúgal Sardína lágmarksvelðar enginn kvóti Norðl. stofnar Lýsingur -20% 55.500 51.100
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.