Morgunblaðið - 05.12.1996, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 05.12.1996, Blaðsíða 26
26 FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 1996 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Leikrit um ástkonu Hitlers fær afleita dóma Sagt óspennandi og klisjukennt Berlín. Reuter. NÝTT þýskt leikrit um líf Evu Braun, ástkonu Adolfs Hitlers, sem frumsýnt var um helgina í Berlín, fær afleita dóma í þýskum fjölmiðl- um. Þykir verkið óspennandi og kli- sjukennt en höfundur þess þykir fullur samúðar í garð Braun. Verkið „Eva, Hitiers Geliebte" (Ástkona Hitlers) var frumsýnt fyrir fullu húsi sl. föstudag. Það er 90 mínútna einleikur Corinnu Harfo- uch, sem á að gerast á þeim tveimur dögum sem liðu frá því að Braun og Hitler gengu í hjónaband, 28. apríl og þar til þau frömdu sjálfs- morð, hinn 30. apríl 1945. Dregin er upp sú mynd af Braun að hún hafi verið einföld stúlka en bráðlynd og alið með sér draum um leikferil í Hollywood. Hún rifjar upp ýmis atriði í sambandi sínu við „Úlf ‘ eins og hún kallar Hitler, t.d. fyrsta ástarfund þeirra á sófa í Munchen þar sem hann sat síðar með Cham- berlain [forsætisráðherra Bret- lands]. Höfundur verksins, Stefan Kold- itz, segist hafa viljað draga fram manniega hlið Evu Braun, veikleika hennar og þrár, til þess að fólk ætti auðveldara með að skiija hana. Hún hafi hingað til verið talin „skrímsli" við hlið „risaskrímslisins“. En gagnrýnendur létu ekki segj- ast. „Þurfum við virkilega að horfa á vangaveltur um tilfinningalíf konu Eva Braun sem gegndi engu hlutverki öðru en að vera ástkona fjöldamorðingja," spurði leiklistargagnrýnandi Info- Radio og bætti því við að leikritið væri smekklaus klisja. Berliner Morgenpost sagði verkið hvorki fyndið né óvenjulegt, upplýsandi eða ergjandi og að það gæfi litla hug- mynd um hver Eva Braun hafi raun- verulega verið. Leikkonan Corinna Harfouch nýt- ur mikilla vinsælda í Þýskalandi og hefur leikið bæði á sviði og í kvik- myndum. Telja gagnrýnendur að verkið kunni að reynast mesta fall hennar, enda púuðu áhorfendur á hana í lok frumsýningarinnar. Hún segir að sér finnist ekkert athuga- vert við það enda kalli efni verksins á sterk viðbrögð. beuRMi(: Erum flutt að nýju í Kringluna. Verið vélkomin í verslun okkar á 2. hœð. ♦♦ Ný og spennandi spáspil +\ ^ Englaspil - indíánaspil - gyðjuspil v “ +\ Allt það besta í slöfeunartónlist +\ * Flauta - píanó - fugiasöngur - ölduniður * +\ Leiddar hugleiðslusnældur +\ ♦ Guðrún - Garðar - Fanney - Helga * i\ Úrval af fallegum staðfestingarfeortum * Englakortin - kærleikskornin - elskaðu líkamann +\ Úrval af nýjum forvitnilegum bókum á bæði íslensku og ensku Guðrún -Bergmann aðstoðar við afgreiðslu og Guðlaugur Bergmann les ókeypis í Víkingakortin föstudaginn 6. desember frá kl. 13.00. Betra Llf Kringlunni 4-6, s. 581 1380. Póstferöfuþjónusta Norrænn jazz TÓNLISTARSKÓLIFÍH stendur fyrir tónleikum i Norræna hús- inu í kvöld fimmtudagskvöld kl. 21.30. Fram kemru kvartett sem meðal annars er skipaður þrem- ur sænskum skiptinemum sem dvalið hafa við skólann frá því í september en snúa nú heim. Svíarnir eru nemendur við Tón- listarháskólann í Ingesund. Dvöl þeirra á íslandi er til kominn í gegnum Nord + skiptinemasam- bandið, en Tónlistarskóli FÍH tekur þátt í jazzhluta þess. Einn íslenskur jazznemandi við Tón- listarskóla FÍH hefur dvalið í Ingesund frá hausti. A tónleikunum leika Svíarnir Thomas Gunnillason á gítar, Martin Holmlund á bassa og Eric Quick á trommur. Fjórði meðlim- KVARTETTINN sem kemur fram í Norræna húsinu í kvöld. ur kvartettsins er íslendingurinn og pianóleikarinn Árni Heiðar Karlsson, en hann hefur notið leiðsagnar Sigurðar Flosasonar og Hilmars Jenssonar. Efnisskrá kvöldsins samanstendur af nýj- um og eldri verkum eftir Sigurð, en síðar eru ráðgerðir tónleikar með efni eftir Hilmar. Aðgangur er ókeypis. Kveimasögusafn Islands opnað KVENNASÖGUSAFN íslands - Háskólasafni í Þjóðarbókhlöðu verður opnað í dag, fimmtudag 5. desember. Brautryðjandi Kvennasögusafn Islands var stofnað 1. janúar árið 1975 af Önnu Sigurðardóttur, Else Miu Einarsdóttur og Svanlaugu Bald- ursdóttur. Frá stofndegi til þessa árs var safnið til húsa á heimili Önnu Sigurðardóttur og veitti hún því forstöðu. í kynningu segir: „Anna vann ómetanlegt brautryðjendastarf á sviði kvennasögurannsókna með stofnun, varðveislu og úrvinnslu á heimildum um sögu kvenna og hlaut hún margvíslegar viðurkenn- ingar fyrir, m.a. heiðursdoktors- nafnbót við Háskóla íslands árið 1986“. Safnið verður formlega opnað á afmælisdegi Önnu, 5. desember. Flutt verða nokkur ávörp, Ingi- björg Sólrún Gísladóttir borgar- stjóri opnar safnið, Marta Guðrún Halldórsdóttir syngur og loks verður opnuð sýning á gögnum og munum úr fórum Kvennasögu- safns íslands. Athöfnin fer fram á 2. hæð Landsbókasafns - Háskólabóka- safns og hefst kl. 16. Kvöldvaka Kvöldvaka Kvennasögusafns íslands verður haldin í_ veitinga- stofu Landsbókasafns íslands - Háskólabókasafns í Þjóðarbók- hlöðu 5. desember kl. 20. Dagskrá er sem hér segir. Sig- ríður Th. Erlendsdóttir: Dr. Anna Sigurðardóttir og Kvennasögusafn íslands. Hluti úr Vox Feminae syngur nokkur lög. Annadís Rú- dólfsdóttir; Á valdi ímyndanna? Inga Huld Hákonardóttir; Há- skólahefðin og ræturnar. Helga Kress; „Saga mín er sönn en smá“ - Sjálfsævisaga og sjálfsmynd í ljóðagerð íslenskra kvenna. Vil- borg Dagbjartsdóttir les eigin ljóð. Ragnhildur Richter: „Þessi undar- lega sterka eining“ - Um mæður og dætur í sjálfsævisögum kvenna. Kvöldvakan er öllum opin. Námstefna um Samspil lista, menningar og ferðaþjónustu SAMSPIL lista, menningar og ferðaþjónustu nefnist námstefna sem verður haldin á Scandic Hótel Loftleiðum, föstudaginn 6. desem- ber kl. 9.30-17.15. Frumkvæði að henni átti Listahátíð í Reykja- vík og fékk Ráðstefnuskrifstofu íslands í lið með sér. Þrír fyrirlesarar koma á vegum Evrópudeildar alþjóðasamtaka listahátíða IFEAE. Þeir eru Nock Dodds, framkvæmdastjóri alþjóð- legu listahátíðarinnar í Edinborg, Charlotte deWitt forseti IFEAE og Eva Whitmore dagskrárstjóri Stockholm Water Festival. í boði verða fyrirlestrar um mál er snerta skipulagningu, fjár- mögnun, dagskrárgerð, markaðs- öflun, kynningu, kostun og stjóm- un hátíða og viðburða og upplýst hvernig þessir þættir tengjast ferðamálum með auknum straumi gesta og þjónustu við þá. Skýrt verður m.a. frá skipu- lagningu Listahátíðar í Edinborg sem er orðin stærsta listahátíð í heimi og aflar skosku efnahagslífi 10 milljarða ísl. kr. á ári, Stock- holm Water Festival, sem laðar að sér árlega eina milljón gesta og einnig því frumkvöðulsstarfi sem aukið hefur á hróður og að- dráttarafl bæjarfélaga á íslandi vegna þeirra hátíða og viðburða sem þar eru haldnir. Innlendir fyrirlesarar em Jó- hanna Tómasdóttir framkvæmda- stjóri Ráðstefnuskrifstofu íslands, Þorgeir Ólafsson deildarsérfræð- ingur menntamálaráðuneytinu, Rögnvaldur Guðmundsson fram- kvæmdastjóri Víkingahátíðar, Árni ísleifsson tónlistarkennari, Jazzhátíðinni á Egilsstöðum, Guð- rún Ágústsdóttir forseti borgar- stjómar er situr í undirbúning- nefnd Menningarborgarinnar árið 2000, Signý Pálsdóttir fram- kvæmdastjóri Listahátíðar í Reykjavík, Þorsteinn M. Jónsson framkvæmdastjóri Vífilfells og Ragnheiður Ólafsdóttir ritari Gil- félagsins á Akureyri. Þórunn Sig- urðardóttir formaður fram- kvæmdastjómar Listahátíðar 1998 flytur einnig ávarp. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri og formaður Listahátíðar í Reykjavík 1998 setur námstefnuna og býður til móttöku í lok hennar. Fundar- stjóri verður Sigrún Vaibergsdóttir leikstjóri. I I I eru i símaskránni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.