Morgunblaðið - 05.12.1996, Blaðsíða 55
I
!
J
i
I
I
:
I
I
Í
i
'J
4
MORGUNBLAÐIÐ______________________________________
MINNINGAR
FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 1996 55
vörðum við að miklu leyti með
Helga við uppbyggingu skátaskál-
ans Kúts á Hellisheiði, í fjallaferð-
um, bíóferðum, tedrykkjum og
öðru þar sem hann miðlaði af
reynslu sinni á flestum sviðum
okkur til handa. Er ekki nokkur
vafi að þessi ár með Helga höfðu
mikil og varanleg áhrif á okkur
og munum við búa að þeim um
langa framtíð.
Minningarnar hrannast upp:
Enski séntilmaðurinn á Jagúam-
um, fjallamaðurinn á Toyotunni,
græjukarlinn úr Skátabúðinni,
smiðurinn bjástrandi við arininn
uppi í Kút, trúbadorinn á stuttbux-
unum hvítu í kojunni við vegginn,
stýrið á Toyotunni sem fékk að
kenna á óæskilegum stærðarmun
milli skafls og dekkja skaflinum í
vil. Bókmenntakvöld í Kút þar sem
Helgi las upp úr verkum nóbel-
skáldsins, Vivaldi á 80 km hraða
með allar rúður niðurskrúfaðar á
leið gegnum Vaglaskóg. Listinn
er ótæmandi og ótrúlega fjöl-
breyttur.
Hópurinn var nokkuð stór og
gengum við oft undir nafninu
„strákarnir hans Helga“ og var það
ekki ofsögum sagt. Hann var 20
árum eldri en við en tókst samt
að vera bæði foringi og félagi.
Eitt var það sem batt okkur
saman sterkum böndum. Það var
uppbygging Kúts sem Helgi
stjórnaði af röggsemi. Heilt sumar
fór t.d. í að grafa undan skálanum
og skipti þá engu hvort skullu á
jarðskjálftar eða rigning, myrkur
eða bjart, alltaf dró Helgi okkur
út að vinna. Áhugi okkar beindist
þó þegar á leið smátt og smátt
að öðru en þó hélt Helgi áfram
ótrauður eins og sjá má á Kútnum
í dag.
Þegar Helgi er farinn heim
munu verk hans standa. Minningin
um góðan vin og leiðtoga lifir.
Við bakkann hníga bláir straumar,
blika út við sjónhring - draumar, eins og þá.
Og meðan vindur voginn gárar,
verð ég einn að setja’ út árar, eins og þá.
(Jón Öm Marinósson)
Sigurður Úlfars, Gunnar
ÓIi og Eggert (bróðir).
• Fleiri minningargreinar um
Helga Eiríksson bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu
daga.
t
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
GUÐMUNDUR ÞÓRARINSSON,
Miklubraut 58,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í
Reykjavík föstudaginn 6. desember
kl. 15.00.
Þeim, sem vildu minnast hins látna, er
bent á líknarstofnanir.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir.
Jóhannes Þór Guðmundsson, Erla Lára Guðjónsdóttir,
Kristín Ingibjörg Guðmundsdóttir, Viggó Hagalin Hagalínsson
og barnabörn.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og
systir,
EDDA STEFÁNSDÓTTIR,
Vífilsgötu 6,
Reykjavik,
lést á Landspítalanum fimmtudaginn
28. nóvember sl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Margrét Ingólfsdóttir, Helgi Jón Davíðsson,
Gunnar Guðmundsson,
Hugrún Ósk Heiðdal, Björn Arason,
barnabörn og systkini hinnar látnu.
4
4
4
4
4
i
4
4
i
4
4
4
ATVINNU AUGL YSINGAR
Máttur
óskar eftir eftirtöidu starfsfólki:
íþróttakennara, þolfimikennara,
aðstoðarfólki við afgreiðslu og þrif.
Við opnum nýjan Mátt í Langarima 21-23
í Grafarvogi um áramót og þurfum að fjölga
starfsfólki vegna þess.
Auk þess vantar kennara í afleysingar í Mátt,
Skipholti og Faxafeni.
Upplýsingar og umsóknareyðublöð eru
í Mætti, Faxafeni 14, sími 568 9915.
Ármannsfell
Kranamaður óskast
Viljum ráða vanan kranamann á byggingar-
krana.
Þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Upplýsingar á skrifstofunni, Funahöfða 19,
sími 577 3700.
Ármannsfell hf.
Sölufólk óskast
Viljum ráða harðduglegt sölufólk til starfa
fram að jólum, síðdegis eða á kvöldin.
Æskilegt er að sölumenn hafi bíl til umráða
eða séu nokkrir saman um bíl.
Góð sölulaun í boði.
Tilvalið fyrir skólafólk eða þá, sem vilja auka
tekjur sínar.
Áhugasamir hringi í síma 894 4305.
Grindavík
- laus kennarastaða
Frá 1. janúar 1997 er laus staða við Grunn-
skólann í Grindavík.
Kennslugreinar: íslenska, samfélagsfræði og
náttúrufræði í 8. til 10. bekk.
Greiddur er flutningsstyrkur og aðstoðað við
öflun húsnæðis.
Upplýsingar veita skólastjóri og aðstoðar-
skólastjóri í síma 426 8555.
Grindavík, 4. desember 1996.
Bæjarstjóri.
Sendikennarastaða
íVín
Laus er til umsóknar kennarastaða í íslensku
við Vínarháskóla.
Staðan verður veitt frá 1. mars 1997
til 30. september 2000.
Umsækjendur skulu hafa lokið háskólaprófi
í norrænum fræðum.
Æskilegt er að þeir hafi íslensku að móður-
máli og góða þýskukunnáttu.
Umsóknareyðublöð og upplýsingar um
kennsluskyldu og launakjör fást hjá forstöðu-
manni Stofnunar Sigurðar Nordals.
Umsóknir berist stofnuninni, Þingholtsstræti
29,101 Reykjavík, fyrir20. desember 1996.
Stofnun Sigurðar Nordals.
i
|®Niir0iwi#WiiSí - kjarni máhins!