Morgunblaðið - 05.12.1996, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 05.12.1996, Qupperneq 20
20 FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 1996 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Bildt lætur af störfum í Bosníu eftir áramót Fáir í fyrstu ferðinni um Ermarsunds- göngin FÁIR farþegar fóru með fyrstu lest Eurostar um Erm- arsundsgöngin eftir að þeim var lokað vegna eldsvoðans, sem varð inni í þeim 18. nóv- ember. Þessir japönsku ferðalangar duttu hins vegar í lukkupottinn því að þeir fengu að sitja í fyrsta farrými þótt þeir hefðu keypt miða í almennt farrými. Ferðir Eurostar lágu niðri í tvær vikur á meðan unnið var að viðgerðum dag og nótt. Myndin var tekin skömmu fyrir brottför frá Waterloo- stöð í London. Kaupmannahöfn. Morgnnblaöið. JOHN Major forsætisráðherra Breta tilkynnti í gær á fundi í London um uppbygginguna í Bosníu að Carl Bildt yfirumsjónar- maður uppbyggingar Bosníu léti af störfum snemma á næsta ári. Tilkynningin kom á óvart, því búist var við að fundurinn sam- þykkti að veita Bildt aukin völd og hann mundi sitja fram á vor. Skilaboð Mayors til Bosníumanna voru að aðstoð yrði skilyrt því að þeir styddu friðarferlið betur en hingað til, bæði Bildt, Mayor og fleiri gagnrýndu leiðtoga Bosníu fyrir að vinna fremur með en á móti skiptingu Bosníu. Carl Bildt formaður sænska Hægriflokksins og fyrrum for- sætisráðherra hefur eindregið sagst snúa aftur til sænsks stjóm- málalífs, en ekki var búist við að það yrði fyrr en á miðju næsta ári. Bildt hefur kosið að tilkynna ekki hvenær hann hætti, því það kynni að grafa undan starfi hans. Legið hefur í loftinu að Banda- ríkjastjórn sætti sig ekki við starf hans að öllu leyti og iðulega hefur borist hörð gagnrýni þaðan. Flokksmenn og stuðningsmenn Hægriflokksins fögnuðu í gær fréttum af heimkomu Bildts, því Jafnaðarmenn væru of einráðir í sænskri stjórnmálaumræðu. Þótt Hægriflokkurinn standi vel í skoð- anakönnunum sagði einn af leið- andi þingmönnum flokksins í sam- tali við Morgunblaðið að óhjá- kvæmilega færi fjarvera Bildts að bitna á flokksstarfínu. Óvíst er um eftirmann Bildts, en í sænska blaðinu Dagens Ny- heter um helgina voru þau Uffe Ellemann-Jensen fyrrum utanrík- isráðherra Dana og Gro Harlem Brundtland fyrrum forsætisráð- herra Noregs nefnd sem hugsan- legir eftirmenn og sjálfur nefndi Bildt hana til í gær að sögn sænska útvarpsins. Ellemann-Jensen hef- ur áður sagt í samtali við Morgun- blaðið að hann hafi ekki áhuga á starfinu, þar sem það sé aðeins tímabundið og þingkosningar í Danmörku verða ekki seinna en haustið 1998. Reuter AÐBORÐ Frá 29. nóvember til 23. desember bjóðum við okkar ljúffenga jólahlaðborð. Verð kr. 1490.- í hádeginu og 2290.- á kvöldin. Pantið tímanlega í síma 568-9566 Munið skötuhlaðborðið í hádeginu á Þorláksmessu. HÓTEL ESJA ICELANDAIR HOTELS Matargestir eru sjálfkrafa þátttakendur í ferðahappdrætti. Jóhannes Páll páfi ávarpar Asíuþjóðir Skorar á Kínverja að tryggja trúfrelsi Páfagarði. Reuter. JOHANNES Páll páfi hefur hvatt kommúnistastjórnina í Kína til að setja lög sem heimila kaþólsku kirkjunni að starfa í landinu og leyfa kínverskum kaþólikkum að iðka trú sína án takmarkana. „Lærisveinn Krists getur iðkað trú sína við hvaða stjórnskipulag sem er, svo fremi að stjórnvöld virði rétt hans til að hegða sér í samræmi við samvisku sína og trú,“ sagði páfi í sérstakri útvarps- sendingu til Asíu á þriðjudag. Til- efni ávarpsins var að 70 ár eru liðin frá því fyrsti kínverski bisk- upinn var vígður í Róm og hálf öld síðan kaþólsk kirkja var form- lega stofnuð í Kína. Páfi hvatti kínverska ráðamenn til að „hræðast hvorki Guð né kirkju hans“. „Eg bið þá þess vegna, í fullri virðingu, að virða hið sanna frelsi, sem er réttur allra karla og kvenna frá fæðingu, og heimila þeim, sem trúa á Krist, að beita orku sinni og hæfileikum í þágu þjóðarinnar." Viðurkenna ekki vald páfa Kínverskum kaþólikkum hefur verið meinað að iðka trú sína nema þeir séu félagar í Kaþólska föðurlandssambandinu, sem kommúnistaflokkurinn hefur lagt blessun sína yfir. Sambandið víg- ir eigin biskupa og viðurkennir ekki vald páfa. Fjórar milljónir Kínveija eru í sambandinu og talið er að nokkrar milljónir ka- þólikka séu utan þess. Páfi hvatti alla kínverska kaþólikka til að sýna Páfagarði hollustu og bað biskupa óopinberu kirkjunnar í Kína að freista þess að ná sáttum’ við kirkjuna, sem stjórnvöld hafa lagt blessun sína yfir. Hann kvaðst ennfremur vonast til þess að geta heimsótt Kínveija einhvern tíma í framtíð- inni. Á ýmsu hefur gengið í sam- skiptum Páfagarðs og Kína frá því Kínveijar slitu sambandinu á sjötta áratugnum eftir að Páfa- garður viðurkenndi sjálfstæði Tævans. Kínverska stjórnin hefur neitað að sættast við Páfagarð nema tengslin við Tævan verði rofin og Páfagarður krefst þess að Kínveijar viðurkenni kirkju- vald páfa. címcat SEVERLY HiLLS Blað allra landsmanna! - kjarni málsins! Zaire að hrynja? SÓKN uppreisnarmanna í austurhluta Zaire hélt áfram í gær og stjórn landsins sak- aði Úgandamenn um innrás í landið. Nokkrir uppreisnar- menn frá Úganda, sem hafa bækistöðvar í Zaire, réðust á hermenn Úganda og var hart barist á landamærunum í gær og mikið mannfall. Beitt var þungavopnum og fjöldi óbreyttra borgara hefur flúið á brott. Erlendir stjórnarerin- drekar í Kinshasa, höfuðborg Zaire, segja að ríkið sé í reynd að klofna í einstök héruð sem fari nú sínu fram. Sauðfé bjarg- ar skógum SKÓGARBÆNDUR í Ástral- íu telja sig hafa fundið ráð til að tryggja vöxt og viðgang dýrmætra furutijáa sem seld eru sem jólatré. Breskt sauðfé frá Shropshire, sem flutt hef- ur verið til landsins, bítur snyrtilega allt gras sem vex umhverfis fururnar og heldur þannig skógarbotninum hreinum en lætur litla furu- sprota eiga sig. Innlenda féð hagar sér öðruvísi, það étur allt sem tönn á festir og getur valdið miklu tjóni á skóginum. Mannskæð umferð í Rússlandi MEIRA en 24.000 manns fór- ust í bíl-, járnbrautar- og flug- slysum fyrstu tíu mánuði árs- ins í Rússlandi, að sögn Itar- Tass-fréttastofunnar. Um 200 manns létu lífið í flugslys- um, þrisvar sinnum fleiri en árið á undan. Á hinn bóginn fækkaði bílslysum um 14%, alls týndu 28.000 lífi á vegum landsins og hefur bílum þó fjölgað mjög hratt. Sérfræð- ingar segja að skortur á fjár- munum til viðhalds sé aðalor- sök aukinnar slysatíðni í flugi. Sviss vísaði 30.000 flótta- mönnum burt KOMIÐ hefur í ljós við kann- anir á svissneskum skjölum að þarlend stjórnvöld létu vísa á brott a.m.k. 30.000 manns sem reyndu að flýja þangað undan ógnarstjórn nasista á íjórða og fimmta áratugnum. Flestum var hafnað þegar á landamærunum. Þess má geta að Svisslendingar veittu um 230.000 flóttamönnum landvist en samt þykja upp- lýsingarnar varpa skugga á fortíð þjóðarinnar; áður hafði verið fullyrt að aðeins um 10.000 manns hefði verið hafnað. Snemmbær lending GEIMFERJUNNI Kólumbíu verður snúið til jarðar í dag, fimmtudag, einum degi fyrr en áætlað var, vegna slæmrar veðurspár. Bilun hefur orðið í siglingartækjum geimferj- unnar og hætta varð við geim- göngu þar hurð geimfeijunn- ar varð ekki haggað.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.