Morgunblaðið - 05.12.1996, Blaðsíða 37
36 FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 1996 37
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
STEFNUMOTUN
í VÍMUVÖRNUM
RÍKISSTJÓRNIN hefur kynnt heildstæða áætlun
fram til aldamóta í fíkniefna-, áfengis- og tóbaks-
vörnum. Verður verulegu fé varið til áætlunarinnar,
lögreglumönnum og tollgæzlumönnum fjölgað, tækja-
kostur bættur og forvarnastarf endurskipulagt. Ýmis
nýmæli felast í þessum ráðstöfunum, m.a. verður sér-
stök forvarnamiðstöð í heilbrigðisráðuneytinu. Alþjóð-
legt samstarf í baráttunni gegn fíkniefnum verður auk-
ið. Reglur um upptöku fíkniefnagróða verða hertar
mjög. Þungamiðja aðgerða ríkisstjórnarinnar beinist að
því að koma í veg fyrir, að ungmenni ánetjist hvers
kyns vímugjöfum.
Framtak ríkisstjórnarinnar er tímabært og í samræmi
við þá miklu umræðu um fíkniefnavandann, sem fram
hefur farið síðustu mánuði og misseri. Allt bendir til
þess, að ísland fari ekki varhluta af þeirri þróun, sem
orðið hefur í nágrannalöndum í þessum efnum, en þar
hafa fíkniefnasalar beint spjótum sínum æ meir að
ungmennum. Ekki má gleyma því, að ísland er orðið í
alfaraleið og þátttaka í alþjóðlegum samskiptum hefur
stóraukist síðustu árin, að ekki sé minnst á umfang
ferðalaga landsmanna utanlands. Aðeins eru nokkrir
dagar frá því að Christer Brannerud, fulltrúi í fíkniefna-
deild alþjóðalögreglunnar, Interpol, varaði íslendinga
við því í heimsókn sinni hér, að miklar líkur væru á
því, að alþjóðlegir glæpahringar reyni að smygla fíkni-
efnum um ísland á markaði í Evrópu. Hann kvað reynsl-
una sýna, að ætíð verði eitthvert magn fíkniefna eftir
á stöðum, sem séu notaðir sem millistöðvar smygl-
hringa. Brannerud taldi eftirlit á Keflavíkurflugvelli
ekki nægilegt til að fást við þennan vanda og minntist
þar sérstaklega á eftirlit með svonefndum áningarfar-
þegum.
Óhjákvæmilegt er að taka viðvaranir Interpol-fulltrú-
ans alvarlega og þess vegna er það fagnaðarefni, að
fjölgað verður í tollgæzlu og löggæzlu og tækjabúnaður
bættur til að herða fíkniefnaeftirlit. Þá verður keyptur
hundur til leitar.
Fjárveiting verður til aukins forvarnastarfs, m.a. í
skólum, og jafnframt til stuðnings við ungmenni og
foreldra þeirra í áhættuhópum. Mikilvægt atriði í barátt-
unni gegn fíkniefnasölum er lagabreyting, sem gerir
dómurum kleift að ákveða upptöku á ávinningi þeirra
af lögbrotunum.
PUNKTAKERFIVIÐ
UMFERÐARLAGABROT
DÓMSMÁLARÁÐHERRA leggur á vorþingi fram
frumvarp um nýja aðferð til að ákvarða refsingar
vegna brota á umferðarlögum, sem gagnast hefur vel
erlendis, einkum í baráttu gegn umferðarlagabrotum
yngstu ökumannanna. Gert er ráð fyrir því, að hver
einstaklingur, sem hefur ökuréttindi, fái ákveðinn fjölda
punkta í ökuferilsskrá sína, sem síðan fækkar við hvert
nýtt brot. Hverfi punktarnir allir vegna ítrekaðra um-
ferðarlagabrota missir viðkomandi ökuréttindi tíma-
bundið. Missi menn punkta en brjóti ekki af sér næstu
þrjú árin fá þeir á ný „fullt hús punkta“.
Aðstoðarmaður dómsmálaráðherra nefndi í viðtali við
Morgunblaðið í gær dæmi af nítján ára ökumanni, sem
hefur verið sektaður 27 sinnum fyrir umferðarlagabrot.
Hann greiðir sektir sínar jafnharðan en heldur upptekn-
um ökuhætti. Með punktakerfi því, sem nú er rætt um
að taka upp, væri búið að svipta hann ökuréttindum.
Þetta nýja kerfi hefur reynzt vel í Ástralíu, Bretlandi
og Þýzkalandi. í Þýzkalandi fækkaði slysum, sem ung-
ir ökumenn valda, um langleiðina í fjórðung. Heild-
arfækkun umferðarslysa nam um sex af hundraði. Þetta
er mikill og eftirsóknarverður árangur. Við þurfum að
nýta öll fyrirbyggjandi ráð til að fækka umferðarslys-
um, sem kosta okkur að meðaltali tvö mannslíf í mán-
uði hveijum, auk gífurlegs eignatjóns.
Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 1997
Stefnt er að
hallalausum
rekstri
Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið
1997 verður lögð fram á fundi borgarstjómar
í kvöld. Vinna við fjárhagsáætlunina hefur
verið með nokkm öðm móti en áður, og í
umfjöllun Krístínar Gunnarsdóttur koma
fram helstu nýjungar sem stefnt er að í rekstri
og stjómun borgarinnar.
Samanburður á heildarskuldum, yfirdrætti og vaxtagjöldum 1991-97
Heildarskuldir. ■. , , . .■- s> » m
I Yfirdráttur } a arslokaverðlag, 1996 § | |
| Vaxtagjöld á meðalverðlagi 1996
g
Milljón króna 7.824 C)
5.331 1.544 15 1.491 0
■u
N
1991
1992
- S
1 mL
1993
8I
lo
1994
8
8
1995
1996
1997
Fjarfestingar á meðalverðlagi 1996 Risnukostnaður borgarsjóðs 1991 -96
AÐ SÖGN Ingibjargar Sól-
rúnar Gísladóttur borgar-
stjóra er gert ráð fyrir að
rekstur borgarinnar verði
hallalaus í fyrsta sinn síðan árið 1990.
í fjárhagsáætluninni er ekki gert ráð
fyrir nýjum lántökum á árinu. Gert
er ráð fyrir að heildartekjur borgar-
innar verði 18,8 milljarðar, þar af eru
skatttekjur rúmar 13,7 milljarðar en
gjöld eru rúmir 17 milljarðar.
Borgarstjóri sagði á blaðamanna-
fundi þar sem hún kynnti fjárhags-
áætlunina að undirbúningur og vinna
við hana hafi verið með nokkru öðru
móti en áður. Hver borgarstofnun
fékk úthlutað rekstrarramma sem
þeim var gert að fylla út og semja
um starfsáætlun. Starfsáætlunin var
unnin í samráði við forstöðumenn
stofnana og nefndir og ráð borgarinn-
ar og er þar lýsing á starfsemi næsta
árs og hvemig henni verður fram-
fylgt. „Það verður að segjast eins og
er að ákveðnir hlutir standa útaf hjá
nefndunum, sem þær treysta sér ekki
tii að framkvæma með þá fjármuni
sem þær hafa,“ sagði Ingibjörg. „Við
gerðum ráð fyrir því og settum 400
miiljónir til hliðar í upphafi, sem við
ætlum að nota til forgangsröðunar og
verður þeim úthlutað til stofnana á
milli umræðna um íjárhagsáætlunina.
Þessar 400 milljónir eru inni í rekstr-
arútgjöldunum núna og breyta ekki
þeirri tölu.“
Breytingar í stjórnsýslu
Borgarstjóri sagði að í fjárhags-
áætluninni væru boðaðar talsverðar
breytingar í stjórnsýslu borgarinnar
og vinnulagi. Markmiðið væri að skila
hagkvæmari rekstri, betri nýtingu á
skattfé borgarinnar og jafnframt betri
þjónustu við borgarbúa. „Það sem er
markverðast er að íjárhagsáætlunin
er lögð fram hallalaus," sagði Ingi-
björg Sólrún. „Það er með öðrum orð-
um ekki gert ráð fyrir nýrri lántöku
í þessari áætlun og það hljóta að vera
talsverð tíðindi. Eg held að það hafi
ekki gerst síðan 1990.“ Borgarstjóri
benti á að heildarskuldir, yfirdráttur
og vaxtagjöld hafi dregist saman síð-
ustu ár eins og súluritin sýna. Enn-
fremur hafi verið unnið verulegt átak
í iækkun vaxtabyrða. Fram kom að
yfírdráttur í Landsbanka Islands hafi
yfirleitt verið 1,5 milljarðar í áslok á
árunum 1991-1994 en var 719 millj-
ónir árið 1995, 200 milljónir árið 1996
og er reiknað með að hann verið 100
milljónir árið 1997. „í stað þess að
nýta yfirdráttinn sem lántökuform er
hann notaður sem sveiflujöfnunartæki
innan hvers mánaðar og hafa vaxta-
gjöld auðvitað lækkað verulega,"
sagði hún.
Rekstrargjöld sem hlutfall af skatt-
tekjum voru að sögn borgarstóra
fremur lág á árunum 1991-1992 en
borgarsjóður tók þá engu að síður
talsverð lán vegna mikilla fjáfestinga
eða 5 milljarða fyrst og fremst vegna
Ráðhússins. „Við höfum verið að
reyna að ná betri tökum á fjármálum
borgarinnar og ekki síst lánastýring-
unni því eins og allir gera sér grein
fyrir, sem sjá þessar skuldir sem borg-
in er með, skiptir það verulegu máli
að vera sífellt að huga að hvar boðið
er upp á hagstæð lán og hagstæða
vexti og vera sífellt að breyta skuldum
borgarinnar með tilliti til þess,“ sagði
borgarstjóri. „Við teljum að á næsta
ári munum við ná árangri og áætlun-
in bendir til að ekki komi til ný lán-
taka. Ég verð þó að segja svo öllu sé
til haga haldið að líklega munar
40-50 milljónum, sem kalla má nýja
lántöku, en það er 0,4% af veltu borg-
arsjóðs og í raun innan skekkju-
marka.“ í fjárhagsáætluninni er gert
ráð fyrir að rekstrargjöld án vaxta
sem hlutfall af skatttekjum verði 82%
að teknu tilliti til grunnskólans en
hann kemur inn í reksturinn í ár og
er hlutfallið því það sama og verið
hefur undanfarin tvö ár.
Hlutafélag um leiguíbúðir
Borgarstjóri sagði að tillaga, sem
hefur verið vísað til borgarstjðmar um
stofnun sérstaks hlutafélags í eigu
borgarinnar um leiguíbúðir borgarinn-
ar, geri það að verkum að fjárhags-
áætlunin er hallalaus. „Við gerum ráð
fyrir að þetta hlutafélag leysi smátt
og smátt til sín þessar íbúðir sem borg-
in á,“ sagði Ingibjörg Sólrún. „íbúðim-
ar em metnar á um 5 milljarða og
mjög litlar skuldir hvíla á þeim en við
höfum gert ráð fyrir að þetta félag
leysti til sín ‘/6 af þeim íbúðum sem
við eigum á næsta ári. Það verður þá
um milljarður og við áætlum að af
miiljarðinum séu 200 milljónir skuldir,
en það er ríflega áætlað.“
Á undanfömum árum hefur borgin
keypt 20 leiguíbúðir á ári og sagði
Ingbjörg Sólrún að þær hafi ekki dug-
að til að mæta eftirspurn. „Hugmynd-
in að baki stofnun hlutafélags er að
reyna að skapa hreyfingu á þessum
íbúðum þannig að þeir sem bíða úti í
kuldanum núna eigi möguleika á að
komast inn og að hinir sem em inni
greiði sanngjama húsaleigu sem mið-
ast við efni og aðstæður hveiju sinni,“
sagði hún. „Þannig að ekki verði sjálf-
krafa niðurgreiðsla í leiguíbúðum borg-
arinnar fremur en í leiguíbúðum á
leigumarkaði, en meðal leiga í þessum
íbúðum er í dag milli 12-18 þúsund á
mánuði. Auðvitað þjuggu margir sem
farið hafa inn í þessar íbúðir við erfið-
ar aðstæður en svo hefur hagurinn
vænkast og eftir sem áður halda menn
íbúðunum og þessari leigu.“ Sagði
borgarstjóri að ekki væri gert ráð fyr-
ir að fólk þyrfti að flytja úr íbúðunum,
en leigan yrði látin miðast við tekjur.
Það ætti ekki að vera happdrættisvinn-
ingur fyrir lífstíð að fá inni í leiguíbúð
hjá borginni.
Helstu framkvæmdir á árinu
I fjárhagsáætluninni er gert ráð
fyrir að byggð verði sundlaug í Graf-
arvogi. Hugmyndir eru uppi um að
gera Tryggvagötu 15, sem er í eigu
borgarinnar, að safnahúsi sem mun
hýsa Borgarbókasafnið, Borgarskjala-
safnið og Ljósmyndasafn Reykjavík-
urborgar. Að sögn borgarstjóra er
hugmyndin að selja Aðalstræti 6 ef
af verður, en til stóð að flytja Borgar-
bókasafnið þangað. Tveir nýir leik-
skólar verða byggðir á árinu og nokkr-
um eldri leikskólum verður breytt
þannig að þeir geti tekið inn heilsdags-
böm. Gert er ráð fyrir að 818 millj.
verði varið til skólamála. Þar af er
gert ráð fyrir byggingu Engjaskóla
fyrir um 351 millj. og kostnaði við
bygging Rimaskóla sem er áætlaður
220 millj. Ennfremur að byggt verði
við Grandaskóla fyrir 125 millj. auk
annarra verkefna sem tengjast ein-
setningu skólanna, en gert er ráð fyr-
ir að þeir verði allir einsetnir á næstu
5 árum.
Borgarstjóri sagði bjartara fram-
undan í atvinnumálum borgarinnar.
Miklar líkur væru á að ráðist yrði í
virkjunarframkvæmdir á Nesjavöllum
á næsta ári. Þá hafi aldrei verið meiri
eftirspum eftir ióðum hjá Reykjavík-
urhöfn en á þessu ári í 80 ára sögu
hafnarinnar. Það ætti reyndar ekki
eingöngu við um höfnina, því aukin
eftirspurn væri eftir atvinnuhúsnæði
almennt í borginni.
Nýjar leiðir í rekstri
íþrótta- og tómstundaráð hefur leit-
að nýrra leiða í rekstri. Gerður hefur
verið samningur við KSÍ um byggingu
stúku við Laugardalsvöll og rekstur
vallarins. Sagði borgarstjóri að hug-
myndir væru uppi um fleiri samninga
og er verið að ljúka samningl við
Bandalag íslenskra atvinnuleikhópa
um rekstur á Tjamarbíói. Dagvist
bama hafi einnig farið þessa leið og
samið við Félagsstofnun stúdenta um
rekstur á einum leikskóla og sagði
borgarstjóri að fyrirhugað væri að
Risna hefur
lækkað um
30 milljónir
RISNA Reykjavíkurborgar hefur
lækkað um 30 milljónir síðan
árið 1992 en það ár var hún 45
milljónir.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri segir að tölur sem
tengdust risnu borgarinnar væru
alltaf athyglisverðar. „Risna er
það sem gjarnan er spurt um,“
sagði hún.
„Við höfum stefnt að því á
ýmsum sviðum að skera niður eða
spara eins og dæmi er um risn-
una. Hún hefur lækkað úr 45
milljónum árið 1992 í 15 milljónir
árið 1996. Vel hepnaður sparnað-
ur. Þetta segi ég til marks um
sparnað sem menn hafa ekki
fundið fyrir. Þetta er kannski
breytt stefna í því hvernig maður
tekur á móti sínum gestum því
ég held að móttökum hafi ekki
fækkað heldur er staðið að þeim
með öðrum hætti en áður var.“
gera rekstrarsamning um hjúkrunar-
heimili og félagsmiðstöð í Suður-
Mjódd, sem tekin verður í notkun á
næsta ári.
Ingibjörg sagðist vilja leggja áherslu
á að með þessari flárhagsáætlun væru
innleiddir nýir stjómarhætti hjá borg-
inni. „Við leggjum mikla áherslu á að
þetta snúist ekki um að sljóma vexti
heldur að stjóma breytingum,“ sagði
hún. „Við leggjum áherslu á að borgar-
stofnanir skilgreini sig ekki sem stjóm-
vald heldur sem þjónustustofnanir við
borgarbúa. Við munum auka mjög
stjómendafræðslu hjá borginni með
markmið árangursstjómunar að leiðar-
ljósi. Það má geta þess að allir yfir-
menn í Ráðhúsinu hafa verið á nám-
skeiði í stjómendafræðslu, þar sem þeim
hefur verið kennd vinnuaðferð
árangursstjórnunar."
Þverpólitísk samstaða
um framtíðarsýn
Ingibjörg sagði að borgarfulltrúum
yrði boðið upp á árangursstjómun þar
sem reynt yrði að leita eftir pólitískri
samstöðu þvert á flokksbönd um að
móta Reykjavíkurborg framtíðarsýn.
„Það er mín skoðun að mjög mikil-
vægt sé fyrir borg eins og Reykjavik
að hafa framtíðarsýn sem menn geta
verið sæmilega sáttir við þvert á alla
flokkapólitík,“ sagði hún. „Síðan geta
stjómmálamenn sett sitt mark með
því að hafa mismunandi skoðanir á
því hvaða leiðir séu að markmiðinu
en menn varða að hafa sæmilega sátt
um markmiðin og hvert við stefnum
sameiginlega með þessari borg.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
HELGA Jónsdóttir borgarritari, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarsljóri, Kristín Árnadóttir aðstoðar-
kona borgarsljóra og Jóhannes Hauksson fjárhagsáætlunar fulltrúi.
Leggja hita-
veitu í huganum
Morgunblaðið/Helgi Bjamason
NÝ sundlaug verður á forgangslista bæjarsljórnar Stykkishólms
ef hægt verður að nýta heita vatnið frá Hofsstöðum. Hér standa
Rúnar Gíslason forseti bæjarstjórnar til vinstri og Ólafur Hilmar
Sverrisson bæjarstjóri, með Högna Bæringsson, bæjarverksljóra
og væntanlegan „hitaveitustjóra", á milli sín.
Hólmarar gera sér vonir
um að heitt vatn sem
nýlega fannst skammt
frá Stykkishólmi bæti
búsetuskilyrði og auki
atvinnu þannig að fólki
fjölgi. Sumir telja að líkja
megi ástandinu við gull-
æði. Forystumenn bæj-
arfélagsins eiga fullt í
fangi með að halda aftur
af fólki. Helgi Bjarna-
son kynnti sér málið.
RARIK og Stykkishólmsbær
stóðu saman að jarðhitaleit
með þeim árangri að útlit
er fyrir að hægt verði að
ná allt að 100 sekúndulítrum af 87
gráða heitu vatni í landi Hofsstaða í
Helgafellssveit, um 5 kílómetra frá
miðju Stykkishólmsbæjar. Á næstu
mánuðum verður borholan prófuð og
efnainnihald vatnsins rannsakað.
Mikilvægt að lækka
húshitunarkostnað
„Við sjáum ekki fyrir alla möguleik-
ana, þeir koma í ljós með tímanum,"
segir Ólafur Hilmar Sverrisson bæjar-
stjóri í Stykkishólmi þegar blaðamað-
ur ræddi við hann og Rúnar Gíslason
forseta bæjarstjórnar. Þeir eru sam-
mála um að fyrst þurfi að kanna hag-
kvæmni þess að nota jarðhitann til
húshitunar. Hús í Stykkishólmi eru
flest hituð með rafmagni, ýmist beint
með þilofnum eða með rafhitun á
vatni. Er húshitun í Stykkishólmi því
dýr, þó rafmagnið sé niðurgreitt af
ríkinu. Aðeins allra dýrustu hitaveitur
koma verr út í samanburði á lands-
vísu. „Það yrði mikilvægast fyrir okk-
ur ef það tækist að lækka húshitunar-
kostnaðinn með hitaveitu en einnig
geta skapast möguleikar á nýjungum
í atvinnulífinu," segir Ólafur.
Á næstu mánuðum verður borholan
prófuð og efnainnihald vatnsins rann-
sakað. Vitað er að salt er í því en
ekki hve mikið. „Gæði vatnsins geta
haft afgerandi áhrif á arðsemi notkun-
ar þess til húshitunar. Ef það er of
salt til þess að hægt sé að nota það
beint á ofna þarf varmaskipti, annað
hvort fyrir hvert hús eða einn fyrir
allt bæjarkerfið. Það myndi auka mjög
stofnkostnað og hugsanlega einnig
rekstrarkostnað veitunnar," segir Ól-
afur.
Rúnar segir að töluverður stofn-
kostnaður sé við hitaveitu. Vatnið
þurfi að vera samkeppnisfært í verði
við niðurgreidda raforku í upphafi og
menn vonist til að það geti síðan lækk-
að þegar tekist hafi að grynnka á
skuldunum. Þetta sé reynslan í öðrum
bæjarfélögum. „Fólk horfir til staða
sem hafa ódýra hitaveitu og sér hvaða
möguleika það gefur,“ segir hann.
Ólafur bendir á að undirbúa þurfi
málið vel, því þó menn sjái staði sem
blómstri vegna ódýrrar hitaveitu verði
menn líka að muna eftir hitaveituæv-
intýrum sem ekki hafi endað eins vel.
Sundlaug og ferðaþjónusta
Rúnar bendir á að vatnið sé fimm-
falt meira en nota þurfí til húshitunar
í Stykkishólmi. Það skapi ýmsa mögu-
leika. Þegar bæjarstjórinn og forset-
inn eru spurðir að því hvaða hugmynd-
ir hafi helst verið í umræðunni nefna
þeir möguleika á að þurrka sjávarfang
og gufusjóða skelfisk. Einnig aukna
möguleika í ferðaþjónustu, byggingu
gróðurhúsa til ylræktar og fleira.
„Við fáum sömu möguleika og aðrir
sem búa við jarðhita. Þetta ræðst af
því hvaða hugmyndir menn fá og
hvemig tekst að fjáirnagna fram-
kvæmd þeirra," segir Ólafur.
Töluverð uppbygging hefur verið í
ferðaþjónustu í Stykkishólmi á undan-
förnum árum. Hún hófst með bygg-
ingu Hótels Stykkishólms fyrir tutt-
ugu árum. Síðan hefur ýmislegt bæst
við, Eyjaferðir hafa verið að byggja
upp afþreyingu og margt fólk notar
nýju Breiðafjarðarfeijuna. Bæjaryfir-
völd hafa reynt að fylgja þessu eftir
með því að stuðla að endurbyggingu
gamalla húsa og uppbyggingu hafnar-
innar þar sem tekist hefur að flétta
saman notkun hennar fyrir fiskiskip
og ferðafólk. Þá er níu holna golfvöll-
ur við hótelið.
Rúnar og Ólafur segja að strax
hafi verið farið að tala um byggingu
nýrrar sundlaugar. Hægt yrði að nota
vatnið beint í hana og ef efnainnihald
vatnsins gæfi tilefni til yrði hægt að
koma upp heilsuböðum í tengslum við
laugina, í líkingu við Bláa lónið í
Grindavík. Þetta mætti tengja þeirri
þjónustu sem fyrir er í bænum og
hugsanlega lengja ferðamannatím-
ann.
Rúnar telur að nýir atvinnu- og
búsetumöguleikar geti stuðlað að
fólksfjölgun í Stykkishólmi. Notkun
heita vatnsins gæti laðað að fólk með
aðra þekkingu og áhugamál en þar
býr í dag. Á siðasta ári fjölgaði tölu-
vert í Hólminum, eða um 2,4% sem
er langt yfir landsmeðaltali. íbúar
voru 1296 1. desember fyrir ári og
forystumenn bæjarins vonast til að
þeir nái þrettánda hundraðinu nú en
það er svipaður fjöldi og búsettur var
í Stykkishólmi um 1980 þegar íbúarn-
ir voru sem flestir.
Undir „öðru Helgafelli"
Ekki hefur verið ákveðið hvernig
staðið verður að virkjun jarðhitans á
Hofsstöðum. Jarðhitaleitin og borunin
var samstarfsverkefni Rafmagn-
sveitna rikisins og Stykkishólmsbæj-
ar. Vitað hefur verið um jarðhita á
Þórsnesi í mörg ár en ekki hefur tek-
ist að finna heitt vatn áður. Sú vinna
sem nú stendur yfir hófst fyrir tveim-
ur árum er RARIK spurðist fyrir um
áhuga Stykkishólmsbæjar á að taka
þátt í jarðhitaleit. RARIK hafði áhuga
á að draga úr raforkunotkun til að
fresta lagningu nýrrar línu á Snæfells-
nes og vildi athuga hvort það væri
hægt að gera með því að nota heitt
vatn til húshitunar. Bæjarstjórn
Stykkishólms ákvað að taka þátt í
verkefninu til jafns við RARIK, og
var Stykkishólmur eina bæjarfélagið
á Nesinu sem það gerði. Forystumenn
í Stykkishólmi sjá ekki eftir því nú
þó kostnaður hafi verið talsverður, en
hann er áætlaður um 30 milljónir kr.
alls.
Kristján Sæmundsson, jarðfræð-
ingur á Orkustofnun, stjómaði jarð-
hitaleitinni. Hann segir að lengi hafi
verið grunur um jarðhita í nágrenni
við Stykkishólm og víðar á norðan-
verðu Snæfellsnesi en ekki hafi tekist
að finna heitt vatn þegar leitað var í
Stykkishólmi fyrir allmörgum árum.
Að þessu sinni var notuð ný tækni
við leitina. Boraðar voru margar til-
raunaholur, víðsvegar um Þórsnes þar
til ákveðið var að bora eftir vatni í
landi Hofsstaða í Helgafellssveit.
Heimamönnum fannst athyglisvert
þegar jarðfræðingamir töluðu um að
þar væri „annað Helgafell". Kristján
útskýrir það þannig að Helgafell sé
gamalt innskot bergs sem stóð eftir
þegar jökullinn mótaði landið. Fleiri
slík innskot séu á þessum slóðum,
meðal annars þar nærri sem holunni
var valinn staður. Mikið af vel heitu
vatni kom upp þegar borinn náði 855
metra niður í jörðina.
Mikíl eftirvænting
Ólafur bæjarstjóri segir að sam-
starfið við RARIK hafi gengið vel og
þó að sveitarfélagið hafi forgang að
virkjun fyrir bæinn hafi bæjarstjórnin
mestan áhuga á að vinna áfram að
málinu í samstarfi við RARIK. Segir
hann þó ýmis ljón í veginum, meðal
annars vantaði heimild í lög til að
RARIK mætti stofna félag með öðr-
um.
Rúnar og Ólafur segja að mjög
skemmtilegt hafi verið að fylgjast með
jarðhitaleitinni. „Við höfum haft mjög
færa menn til að vinna að þessu máli.
Það hefur til dæmis allt gengið eftir
sem Kristján Sæmundsson sagði okk-
ur í upphafí," segir Rúnar.
Eftirvæntingin hefur verið mikil í
bænum og segir Rúnar að menn hafi
verið farnir að leggja hitaveitu í hug-
anum löngu áður en vatnsæðin fannst.
„Maður hefur verið í því að reyna að
draga úr væntingum manna en ekki
varð við neitt ráðið þegar svona mikið
vatn fannst. Enn verðum við að segja
fólki að bíða eftir niðurstöðum efna-
greiningar því þær geta ráðið svo
miklu um það hvort hægt verður að
nýta vatnið á arðbæran hátt,“ segir
Rúnar Gíslason.
Enn vonir í Grundarfirði
RARIK hefur einnig staðið fyrir
jarðhitarannsóknum í Grundarfirði og
Snæfellsbæ. Kristján Sæmundsson
segist ekki vera búinn að missa vonina
um að finna vatn í Grundarfirði og
standa rannsóknir þar enn yfir. Hins
vegar séu minni vonir um árangur í
Snæfellsbæ eins og málin standi nú.
í Dalasýslu var borað eftir heitu
vatni í Reykjadal fyrir nokkrum árum.
Vatnið sem þar fékkst er rúmlega 80
gráðu heitt en tæpast nógu mikið í
hitaveitu til Búðardals en þangað eru
rúmlega 20 kílómetrar frá holunni.
RARIK hefur nýlega komið inn í hita-
veitumál Dalamanna og staðið fyrir
frekari rannsóknum, bæði nær Búðar-
dal og í Reykjadal. Niðurstaða þeirra
rannsókna er að sögn Kristjáns að
hitaveita frá Reykjadal sé vænlegasti
kosturinn.