Morgunblaðið - 05.12.1996, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 05.12.1996, Qupperneq 40
40 FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 1996 euphorbia pulcherrima Staðsetning: Plantan þarf að njóta góðrar birtu. Kjörhitastig er um 20°C. Vökvun: Haldið moldinni rakri. Áburðargjöf er ekki nauðsynleg á blómgunar- Athugið: Plantan er viðkvæm fyrir dragsúg og kulda, því er nauðsynlegt að söluaðilar pakki henni vel inn fyrir viðskiptavini sína. Blómaframleiðendur AÐSEIMDAR GREINAR Sálræn umfjöllun um Reykjavíkurflugvöll NÝLEGA birtist grein hér í blaðinu eftir einn þeirra ágætu manna sem tóku þátt í að byggja Reykjavíkur- flugvöll, en hann vill nú völlinn burt. Staðreyndir virðast ekkert þvælast fyrir greinarhöfundi, enda komið nóg af slíku, að hans mati. Greinarhöfundur minntist á flug- slys sem varð nærri Hringbrautinni við Tjarnarendann. Þótt bílslys yrði á svipuðum stað, dytti fáum í hug að kenna Hringbrautinni um, og ennþá síður að leggja niður Hring- brautina til að forða við slysum. Óþarft er að rekja þær sálrænu tilfinningar sem tengst hafa umræðu um flugvöllinn, en sú umræða hefur ekki farið framhjá neinum. Niðurstaða er nú fengin í málinu; völlurinn verður endumýjaður þótt dýrt sé, enda ljóst að allar aðrar lausnir á flugsamgöngum Reykjavík- ur eru mun dýrari en sú sem endan- lega hefur verið valin. Samgönguráðherra og borgar- stjóri hafa þar komist að sameigin- legri niðurstöðu. Flughræðslan Það sem eftir stendur óhaggað, er flughræðsla sem hrjáir nokkra íbúa borgarinnar. Ekki tjáir að rökstyðja það að borgarbúum stafi meiri hætta af flestum öðrum farar- tækjum en flugvélum, og varla get- um við byggt yfir þá flughræddu í ÍKJÖLFAR „Manga með svartan vanga“ og „Fólk og fvrnindi“ er komin út bókin MANNLÍFS ^STIKLUR shki,iik SPAMAOUKINH (UJI.U )R1N(ÍIRNÍR ()(, li.URA I Ól K w\ í fv- ; ; Ljósmynd: Sigurjón Ragnar Nú fer Ómar hringferð um landið á „Skaftinu" um stórbrotið landslag og tyllir sér niður til að kynnast ógleymanlegum persónum. w RAGNARSS ON Uppi á íjalli við Hellisheiði við torfbæ hjónanna sem þar bjuggu í níu ár í Svínadal í Skaftártungu • Efst á Jökuldal Við Náttfaravíkur • í Gauksdal • í Haga Frá Bifröst í Borgarfirði spinnst litskrúðug saga „gulldrengjanna", Husebys, Torfa, Clausenbræðra og félaga, sem gerðu garðinn frægan. FRÖÐI BÓKA & BLAÐAÚTGÁFA MORGUNBLAÐIÐ Stefán Sæmundsson flugvernduðu umhverfi fjarri flug- völlum - eða hvað? Við fáum því ekki breytt að í flug- vélum er fólk, og flugslys verða allt- af til staðar hversu vel sem að öllum öryggismálum er staðið. Hinsvegar er hægt að gera margt til að stuðla að auknu öryggi í flugi, og það mun ég reyna að renna stoð- um undir í sem fæstum orðum. Flugráð sendi nýlega frá sér álykt- un varðandi ástand Reykjavíkurflug- vallar. Ekki til að hræða fólk, heldur til að fræða fólk. Eigi veldur sá er varar, segir í gömlu máltæki. Nú er svo komið að ástand flug- vallarins er ekki lengur ásættanlegt, flugbrautir eru orðnar nánast bót við Ekkert brýnna verkefni er nú á flugmálaáætlun, segir Stefán Sæmundarson, en að endurbyggja Reykj avíkurflugvöll. bót og akstursleiðir meðfram braut- um nær allar ófærar jafnt vetur sem sumar. Fyrirhugaðar framkvæmdir Tvær tveggja km brautir, sem samsvara fjórbreiðum steyptum vegi, er það sem þarf til að tryggja sam- göngur í lofti til og frá Reykjavík. Flugbrautir, þótt stuttar séu, hafa þann makalausa eiginleiga að tengja saman fjariæga staði á hagkvæman hátt. Nýlega var lyft grettistaki með því að tengja hringveginn að nýju eftir náttúruhamfarir sem öllum eru kunnar. Á Reykjavíkurflugvelli hefur nátt- úran unnið skemmdir á annan hátt, en vonandi þarf ekki eldgos til að ýta við ráðamönnum svo vatnsflóðið á flugvellinum verði brúað. Flugmálaáætlun Hver sá sem ferðast með flugvél greiðir skatt sem rennur til flug- málaáætlunar, bæði beint og óbeint. Skattur er á flugvélaeldsneyti, flugrekendur greiða lendingargjöld í hvert sinn sem hjól flugvélarinnar renna um flugbrautir og þú og ég greiðum flugvallarskatt þegar við för- um til útlanda. Þetta fé skal lögum samkvæmt nýta til flugmálaáætlunar. Ekkert brýnna verkefni er nú á flugmálaáætlun en það að endur- byggja Reykjavíkurflugvöll. Það er eins með hringveginn og flugvöllinn, hann nýtist ekki fyrr en verkinu er lokið (og því fyrr því betra). Sú framkvæmd sem að mínu áliti mundi enn frekar stuðla að öryggi á Reykjavíkurflugvelli, er að lengja braut 14/32 til vesturs yfir Suðurgöt- una, þá leið sem Fokkerinn fór forð- um daga. Þá væri hægt að minnka flugumferð yfir borgina og nýta oft- ar flugleiðir yfír Skeijafjörðinn. Langt er síðan áætlun var gerð fyrir slíka framkvæmd, sem nánast er eini raunhæfi möguleikinn á lengingu flugbrauta. Væri ekki ráð að hætta allri um- ræðu um að forða slysum með því að flytja flugvelli, en stuðla frekar að því að bæta öryggið strax á Reykjavikurflugvelli? Fordómar og flughræðsla mega ekki firra okkur allri skynsemi í þess- um umræðum. Höfundur er flugmaður.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.