Morgunblaðið - 05.12.1996, Page 44

Morgunblaðið - 05.12.1996, Page 44
44 FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ AÐSEIMDAR GREINAR Lyfjanotkun mínni á íslandi en öðrum Norðurlöndum RÁÐUNEYTI heilbrigðismála stefnir að því að spara 400 milljón- ir í lyfjaútgjöldum á næsta ári. Þetta kom m.a. fram í viðtali við Þóri Haraldsson, aðstoðarmann heilbrigðisráðherra, í Morgunblað- inu hinn 20. október sl. Einnig seg- ir í viðtalinu að jafnframt hafi sú stefna verið mörkuð að hækka ekki almennt hlutdeild sjúklinga í lyfja- kostnaði. Þetta eru athyglisverð markmið og umhugsunarverð. Samkvæmt opinberum skýrslum er lyfjanotkun á íslandi miðað við hvern íbúa lægri en á nokkru hinna Norðurlandanna. Er þá miðað við lyfjaskammta en ekki lyfjakostnað. Þetta er samkvæmt nýjustu fyrir- liggjandi upplýsingum eða frá 1992. Verður fróðlegt að sjá nýrri upplýsingar þar um en þær munu væntanlegar. Varðandi lyfjaverð hér á landi hefur nefnd á vegum heilbrigðisráðuneytisins komist að þeirri niðurstöðu að mismunur okk- ur í óhag sé að stærstum hluta útskýranlegur með smæð og að- stæðum hér á markaði. „Sparnaðurinn" hefur ávallt orðið að mestu á kostnað sjúklinga Á undanförnum árum hefur hvað því hvað eftir annað verið lýst yfír að gripið skuli til spamaðar á lyfja- kostnaði ríkisins. Ávallt hefur verið tekið fram að þessi sparnaður eigi ekki að verða á kostnað sjúklinga heldur eigi að spara í álagningu, bæði í smásölu og heildsölu. Einnig eigi að kaupa lyf ódýrar inn. Sannleikurinn er hins vegar sá að þessi sparnaður ríkiskassans vegna lyijakaupa hef- ur ávallt verið að meg- inhluta á kostnað sjúklinga. í dag nemur kostnaður sjúklinga í lyíjakostnaði 30-32%. Nokkrar sveiflur hafa verið á þessu hlutfalli en lægst mun það hafa verið árið 1983, þá 11%. Ríkið greiðir „sparnað“ T ry ggingastofnunar í gegnum sjúkrahúsin Einnig má nefna aðra svokallaða „sparnaðarleið". Hér er nefnt ein- falt dæmi en þó raunhæft. Ef ákveðið er að um það bil 36 ein- staklingar sem hver um sig notar lyf fyrir 30 þúsund krónur á dag, séu lagðir á sjúkrahús, í stað þess að búa á heimilum sínum og taka virkan þátt í þjóðfélaginu, þá hefur þessi 400 milljóna króna spamaður náðst. Á þennan hátt má „stoppa upp í 400 mpóna gat“ Trygg- ingastofnunar ríkisins. En í stað þess að ríkis- sjóður greiði lyfin í gegnum Trygginga- stofnun greiðir hann það nú í gegnum sjúkrahúsin. Þessi meinti sparnaður er því aðeins millifærsla á milli gjaldaliða en ekki raunverulegur sparn- aður. Einhverjum finnst kannski að hér sé stórt mál einfaldað um of en staðreyndin er sú að dæmið er rétt. Þannig er farið að því að „spara“ í lyfjaútgjöldum, án þess að draga úr lyfjagjöf til sjúkl- inga sem þarfnast kostnaðarsamra lyfja, né auka hlut sjúklinga í lyfja- kostnaði. Sé þessi leið farin (og hún hefur verið farin) þá má ekki gleyma því að innlögn á sjúkrahús kostar auðvitað stórfé til viðbótar lyfjakostnaðinum og eykur enn heilbrigðiskostnaðinn. Lyf eru ódýrasta úrræðið til að fást við sjúkdóma Umræður um lyíjamál og lyfja- kostnað hafa verið mjög umfangs- Lyf eru ódýrasta leiðin til lækkunar kostnaðar í heilbrigðiskerfinu, segir Guðmundur Hallgrímsson og aukin lyfjanotkun á undan- förnum árum og ára- tugum, hefur sparað mikla fjármuni. miklar á undanförnum misserum og árum. Þar hafa mörg stór orð fallið og margir ráðamenn tilkynnt vilja sinn til að lækka lyfjakostnað. Þessi lyfjaumræða hefur ávallt tengst umræðum um heilbrigðismál og útgjöld ríkisins af þeim. Hlutfall lyfja í heildarheilbrigðis- kostnaði hér á landi mun vera um 10-12% af heilbrigðiskostnaði eftir því hvernig reiknað er. En lyf eru ekki aðeins kostnaðarauki. Lyf eru líka ódýrasta leiðin til að fást við sjúkdóma eftir að þeir leggjast á fólk. Þannig er mjög auðvelt að sýna fram á að aukin lyfjanotkun Guðmundur Hallgrímsson á undanförnum árum og áratugum hafi verið sá hluti heilbrigðiskerfis- ins, sem mest hafa sparað þjóðinni fé. Magalyfin fækkuðu innlögnum og uppskurðum um 90% Einfalt og þekkt dæmi um sparn- að af nýjum lyfjum eru til dæmis magalyfin sem komu fram síðari hluta áttunda áratugarins. Áður en þau voru tekin upp voru lagðir inn á sjúkrahús um 200 sjúklingar árlega vegna magasjúkdóma. Þar af þurfti að skera upp um það bil 100. í dag eru lagðir inn um 20 sjúklingar á ári og þar af um helm- ingur skorinn upp. Þessi árangur að fækka innlögnum og aðgerðum um 90% er nýjum lyijum að þakka. Af þessu varð gífurlegur beinn peningasparnaður fyrir ríkissjóð. Sparnaður í vinnustundum, lífs- hamingju og velferð viðkomandi einstaklinga er hér ótalinn enda ekki á dagskrá í þessum stutta pistli en þann sparnað má aldrei vanmeta. Fleiri dæmi í sama dúr mætti nefna. Sparnaður sjúkrahúsanna eykur eyðslu Tryggingastofnunar Að lokum vil ég vekja athygli á lítilli frétt sem birtist nýlega hér í blaðinu. Þar sagði frá því að nú stæði yfír könnun hjá Trygginga- stofnun ríkisins um það hversu mikið lyfjakostnaður stofnunarinn- ar hefði hækkað vegna sparnaðar- aðgerða sjúkrahúsa. í fljótu bragði mætti halda að þarna væri verið að vinna að spamaði. Svo er alls ekki eins og bent hefur verið á. Höfundur er lyfjafræðingur. Q.‘ íiiniiiiiiiiiiii Traðarkot, Hverfisgötu 20, gegnl Þ{óðleikliusinu. Ve.sturgata 7, innke\Tsla fni Vesturgölu uin Miáslræli. Bergstaðir, á horni Bergstaðastrætis og SkólavörðusU'gs. Kolagortið,\iðJijkofn£ieg^sJainiðSeðlabarfi<a^ Vitatorg, bflahús með innkeyrslu frá Vitastíg og Skúlagötu. Ráðhús Reykjavíkur, innkeyrsla í kjallara frá Tjamargötu. Staðsetnin bilastæða er götukortur Urval bílastæða Velkomin í miðborgína Veist þú að frá miðastæðum og bílahúsum er mest þriggja mínútna gangur hvert sem er í miðborgina? , Jólaumferðin er ,\ framundan og þörfín jf á bílastæðum eykst. * Þú getur þó áhyggju- laus lagt leið þína í miðborgina því þar er mikið framboð af bílastæðum. Bílahús, miðastæði eða stöðu- maelar. Þitt er valið! Bílahúsin eru opin í —- samræmi við afgreiðslu- tíma verslana í desember.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.