Morgunblaðið - 05.12.1996, Síða 49

Morgunblaðið - 05.12.1996, Síða 49
1 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 1996 49 I » g I 0 J í NEW York í helgarferð hjá Halldóru Rútsdóttur. Halldóra og Guðrún Á Símonar eru hér með eiginmönnum sínum ásamt höfundi. Ci I 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 MEÐ sonum sínum, Ugga og Úlfí. í einu bréfinu lýsti hún fyrir mér kveðjustund á járnbrautarstöðinni í Osaka, þegar hún með foreldrum sínum kvaddi elsta bróðurinn, sem hafði verið kvaddur í herinn til að beijast í Mansjúríu gegn Kínveijum, en kveðjusöngur hermannanna var um að fá að fórna lífi sínu fyrir keisarann og föðurlandið og koma aftur heim sem aska í krukku. Við héldum í drauma okkar þó að stríðsblikan yrði æ dimmari og ógnþrungnari. Á þeim misserum innlimaði Hitler Austurríki í Þriðja ríkið og var hug- ur minn fullur af ruglingslegum slitrum úr þeim hrunadansi sem var orðinn örlagadómur Evrópu. Bréf frá Amildu héldu áfram að berast, en erfiðleikar sem ég átti í vegna veikinda og dvalar á Vífíls- stöðum ollu því að allar skýjaborgir hrundu og smám saman urðu bréfin stijálli, þegar ekkert svar barst frá mér, uns þau hættu með öllu að berast og sonettutímabilinu lauk við brostnar vonir Grunaður um morð Það var skemmtun í skólanum sem ég fór á eitt kvöldið að áliðnum jólum, en þótti hún heldur innantóm þegar á leið, svo að ég ákvað að fara heldur á bar í nágrenninu sem kallaður var sænski barinn. Var ég þar drykklanga stund og hélt síðan heim. Oft var ég vanur að sjá sjón- varpsmynd fyrir svefninn, sérstak- lega framhaldsþátt um glæpahyski A1 Capone, þar sem aðalhetja lög- reglunnar var Elliot Ness, mikil hetja, en f þetta sinn var ég of seint á ferðinni og fór því beint í rúmið. Daginn eftir fór ég seinna á fæt- ur en venjulega, en þegar ég kom niður stigann sagði húsvörðurinn við mig, að tveir menn biðu mín í anddyrinu. Kom það mér á óvart, hélt kannski að einhveijir íslending- ar væru þar á ferð. Mennimir voru dökkklæddir eins og bankastarfs- menn, en þegar þeir sýndu mér skil- ríki sín kom í ljós að þeir voru frá rannsóknarlögreglunni FBI. Sögðu þeir mér umbúðalaust að ég væri grunaður um morð nóttina áður. Eg rak upp hlátur af undmn og spurði hvemig þeim gæti dottið annað eins í hug. Þeir sögðu að þeir hefðu gengið í hvert hús í hverfinu og húsmæður hefðu tekið eftir grunsamlegum manni sem ætti við lýsingu á mér. Ég gengi með svarta baskahúfu, sæist alltaf aleinn á ferli, án nokk- urs félagsskapar og gengi alltaf sömu leiðina, oft með viðkomu í kirkjugarðinum þar á aðra hönd við götuna. Hvað væri ég að gera í kirkjugarðinum? Ég sagði þeim að ég hefði gaman af að virða fyrir mér íkornana sem stykkju fimlega á milli greinanna og kæmu niður á jörðina til mín þegar ég væri með hnetur handa þeim. Það fannst lögreglumönnunum sýnilega furðulegt uppátæki. Þeir báðu um að fá að koma inn í her- bergi mitt í leit að einhveiju grun- samlegu. Ég var ekki mótfallinn því, þó að þeir hefðu átt að vera með hús- rannsóknarheimild. Þeir lituðust um í herbergi mínu og spurðu hvort ég hefði nokkurt eggjárn í fórum mínum. Framið hefði verið kynferðislegt ódæðisverk á þeim myrta. Þá kom í ljós nýlegur blóðblettur á handklæði og var ég beðinn skýr- inga á honum. Ég sagði að ég hefði skorið mig við rakstur. — Þú hefur þá verið skjálfhentur, spurði annar þeirra. Ég játti því. — Hversvegna varstu skjálfhent- ur? — Kannski vegna þess að ég fékk mér aldrei þessu vant nokkra viskýsjússa í gærkveldi. Ég var á skemmtun leiklistarskólans. Þar var ég kominn í dálitla klemmu, því á þessari skemmtun höfðu ekki verið veittir áfengir drykkir. Ég sagði þeim að ég hefði komið við á bar á leiðinni heim. Ég sá að þeir voru hróðugir yfir að hafa stillt mér upp við vegg. — Á hvaða bar? — Á sænska barnum, varð ég að viðurkenna. — Nú á þeim alræmda bar, þú hefur verið orðinn drukkinn? Ég bar á móti því. — Þvl varstu að reyna að hylma yfir það að þú hefðir verið á sænska bamum? — Ég var ekki að hylma yfir neitt, ég sagði að ég hefði komið þar við, það var allt og sumt. — Jú, þú ert orðinn tvísaga. Ég reyndi að leiðrétta þessa óná- kvæmni mína, en þeir báðu mig að koma með sér á stöðina til frekari yfírheyrslu. Mennirnir í móttökunni ráku upp stór augu þegar þeir leiddu mig út í bílinn. Á stöðinni var ég settur á fremur óþægilegan stól og ljóskastarar lýstu hvor á sinn vanga til að fylgj- ast með svipbrigðum mínum við spumingum þeirra. Þeir spurðu mig hversvegna ég gengi með húfu í stæl við terrorista. Ég sagði að þetta væri baskahúfa sem ég hefði keypt á Spáni. — Hér um slóðir gengur enginn með terroristahúfu. Næst fóru þeir að spyija mig um einkalíf mitt, hversvegna ég væri alltaf einn á ferð, hefði ég haft einhver geðræn vandamál, tæki ég einhver deyfilyf, en róandi pillur höfðu þeir fundið í skúffu skrif- borðs míns. Ég sagði að þetta væru engin deyfilyf heldur aðeins svolítið róandi sem ég hefði stundum á ferðalögum með mér til að láta ekki skrölt í járnbrautarlestum og annan næturhávaða halda fyrir mér vöku. Ætti ég enga kunningja? Ég hugsaði mig um. Hvemig væri kynlíf mitt, hvers- vegna var konan ekki með mér. Eg sagði þeim að hún gætti sona okkar heima. Og ég væri að heiman mánuðum saman, væri það ekki nokkurs kon- ar skilnaður? Ég fór að verða dálítið dasaður, sérstaklega af sterku ljósinu á and- lit mér og hitanum af því. Þeir spurðu mig hvort ég hefði verjð í meðferð hjá sálfræðingi. Ég hristi höfuðið. Þeir héldu áfram að spyija mig í þaula og báðu um leyfi, til að setja á mig lygamæli. Ég spurði hvort hann væri hund- rað prósent öruggur, en þeir svömðu að hann gæti gefið vissar vísbend- ingar þegar ég væri spurður um eitthvað sem vekti hjá mér óróa við- brögð. Eg sagði þeim að ég væri sérlega næmur og margt gæti komið mér úr jafnvægi. Þeir sögðu að það væri engin hætta á því ef að ég væri saklaus. — Það er ljóst að þið vitið ekki hvað næmi er . . . Ég var allt í einu orðinn öskureið- ur, spurði þá hvort að þeir héldu að Fulbright—styrkurinn frægi væri veittur vangefnum vesalingum og morðingjum, ég myndi kæra þá fýr- ir State Department í Washington, ambassador íslands í Washington myndi sömuleiðis skerast í málið, auk þess væri ég kunnur rithöfund- ur í heimalandi mínu og myndi skrifa greinar um gáfnastig amerí- " skra lögreglumanna og heimskra húsmæðra sem hata útlendinga og gruna mann um mannsmorð af því að hann gengi með baskahúfu. Ég hefði alltaf haldið að Ameríkanar væru bestu skinn, en svona fram- koma opnaði augu mín fyrir því, að þeir væru heimskir hræsnarar. Ég var orðinn svo æstur að orð komust ekki til skila. Þá sáu þeir sitt óvænna, reyndu að róa mig, ég væri alls ekki ákærð- ur um neitt, en þeir yrðu að ganga úr skugga um að ég væri alsaklaus. ^ Skildum við með það sáttir að kalla. Ég spurði annan yfirheyrslu- manninn hvort hann héldi virkilega að ég væri morðingi og hann svar- aði dálítið kankvís á svipinn: — Who knows... En næstu vikumar á eftir fann ég að það var haft auga með mér og fór það óneitanlega dálítið í taug- amar á mér. Morðgátan var áfram óleyst. • Bókarheiti: í vagni tímans, 352 bls. Höfnndur Agnar Þórðar- son. Útgefandi er Mál og menn- ing. Bókin gefin út bæði inn- bundin (leiðb. verð 1.980 kr.) og sem kilja (leiðbein. verð 980 kr.) ___ Kringlan, s. 568 6244 • Laugavegi 95, s. 552 1444 • Brekkugötu 3, s. 462 7708. .990 '2L. - Alcot kjóll kr. 5.790

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.