Morgunblaðið - 05.12.1996, Side 54
54 FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 1996
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
t
Hjartkær eiginmaður minn,
INGIBERG ÓLAFSSON,
Nýlendugötu 7,
andaðist á gjörgæsludeild Sjúkrahúss
Reykjavíkur 24. nóvember sl.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hins látna.
Kærar þakkir eru færðar Guðmundi
Oddsyni, hjartalækni, og starfsfólki
gjörgæsludeildar SR.
Þakka auðsýnda samúð.
Fyrir hönd aðstandenda,
Margrét Björnsdóttir.
t
Elskuleg eiginkona mín, fósturmóðir
okkar, tengdamóðir og amma,
INGA KARLSDÓTTIR,
fædd llse Inge Wagner,
Framnesvegi 63,
lést 26. nóvember síðastliðinn.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Bjarni Gunnarsson,
Guðný Marta Óskarsdóttir, Hannes Jónsson,
Oddný Aldís Óskarsdóttir, Finnbjörn A. Hermannsson
og barnabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir
og afi,
KNÚTUR SKEGGJASON,
Kvisthaga 16,
lést á heimili sínu 3. desember.
Ingeborg G. Skeggjason,
Ása Kristrn Knútsdóttir, Einar Þorsteinsson
og dótturbörn.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
VILHJÁLMUR FRIÐRIKSSON,
Skúlagötu 74,
Reykjavík,
sem lést á hjartadeild Sjúkrahúss
Reykjavíkur sunnudaginn 24. nóvember,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
föstudaginn 6. desember kl. 13.30.
Fyrir hönd barna, tengdabarna og
barnabarna hins látna,
Guðrún Jóakimsdóttir.
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okk-
ar, tengdafaðir og afi,
GUNNAR BERGMANN ODDSSON,
Dalalandi 16,
lést á heimili sínu laugardaginn 23. nóv-
ember sl.
Útför hans hefur farið fram.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð.
Erna Bjargey Magnúsdóttir,
Oddur K. Gunnarsson, Hrafnhildur B. Halldórsdóttir,
Ásgeir Örn Gunnarsson,
Þórdís Gunnarsdóttir, Jóhann Vilbogason,
Margrét Þ. Gunnarsdóttir, Hjálmar Elíesersson
og barnabörn.
t
Móðir okkar og tengdamóðir,
KRISTÍN SIGVALDADÓTTIR
frá Þórunnarseli,
sem lést 1. desember síðastliðinn, verður jarðsett frá Garðskirkju
í Kelduhverfi laugardaginn 7. desember kl. 14.00.
Áslaug Jónsdóttir,
Sigvaldi Jónsson,
Páll Þór Jónsson,
Eysteinn Jónsson,
Jóhann Jónsson,
tengdadætur
og aðrir aðstandendur.
t
Eiginmaður minn,
SNORRI GUNNLAUGSSON,
Aðalstræti 83,
Patreksfirði,
lést þriðjudaginn 3. desember.
Lára H. Kolbeins.
Faðir minn og tengdafaðir, afi okkar og
langafi,
KRISTINN BECK,
Valhöll,
Reyðarfirði,
lést á Landspítalanum 3. desember.
Útför hans verður gerð frá Reyðar-
fjarðarkirkju laugardaginn 14. desem-
ber kl. 14.00.
Kristín Beck, Sigurður Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
EIRÍKUR GUÐBERG
ÞORVALDSSON,
Dvergaborgum 3,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
föstudaginn 6. desember kl. 15.00.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent
á Krabbameinsfélagið.
Margrét Eiriksdóttir,
Kristín Eiríksdóttir, Lars Olaf Stáhl,
Hildur Eiríksdóttir, Tryggvi Ottósson,
Elsa Eiríksdóttir, Gylfi Már Bjarnason,
Sigurey Valdís Eiriksdóttir, Stefán Torfi Sigurðsson,
Eiríkur Pétur Eiriksson, Steinunn Lovísa Óladóttir,
Lilja Skaftadóttir, Leonardo Benatov
og barnabörn.
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ÁRNÝ FJÓLA
STEFÁNSDÓTTIR,
andaðist á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja
laugardaginn 30. nóvember.
Jarðarförin fer fram frá Bústaðakirkju
á morgun, föstudaginn 6. desember,
kl. 13.30.
Hreiðar Stefánsson,
Hildur Hrönn Stefánsdóttir, Óskar Elías Óskarsson,
Rfkharður Jón Stefánsson, Matthildur Einarsdóttir,
Þuri'ður Georgsdóttir, Páll Róbert Óskarsson,
Vigdís Stefánsdóttir, Jósep Lee Lemacks,
Gunnar Héðinn Stefánsson, Málfríður Jóhannesdóttir,
Kai August Gundersen
og barnabörn.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
RAGNHILDUR GUÐJÓNSDÓTTIR,
Rauðafelli,
Austur-Eyjafjöllum,
verður jarðsungin frá Eyvindarhólakirkju laugardaginn 7. desem-
ber kl. 14.00.
Guðrún Anna Jónasdóttir, Hilmar Árnason,
Þórhildur Jónasdóttir, Ólafur Már Sigmundsson,
Þorsteinn Jónasson, Árný Guðlaugsdóttir,
Guðný Ingunn Jónasdóttir,
Guðni Rúnar Jónasson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
HELGA ÁGÚSTSDÓTTIR,
Hamragerði 12,
Akureyri,
sem lést fimmtudaginn 28. nóvember,
verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju
föstudaginn 6. desember kl. 13.30.
Ágúst Steinsson,
Baldur Ágústsson, Anna María Hallsdóttir,
Vilhelm Agústsson, Edda Vilhjálmsdóttir,
Birgir Ágústsson, Inga Þóra Baldvins,
Skúli Ágústsson, Fjóla Stefánsdóttir,
Eyjólfur Ágústsson, Sigríður Sigurþórsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
HELGI
EIRÍKS-
SON
+ Helgi Eiriksson fæddist 28.
febrúar 1954. Hann lést í
Reykjavík 24. nóvember síð-
astliðinn og fór útför hans
fram frá Dómkirkjunni í
Reylgavík 3. desember.
Góður granni og félagi er fallinn
frá, allt of fljótt. Stórt skarð er
nú höggvið í raðir unnenda Hellis-
heiðarinnar. í gegnum tíðina hefur
þar verið athvarf skáta og margra
annarra borgarbúa sem leita í frelsi
fjallanna og þar er einnig að finna
eitt áhugamálið. Helgi var mikill
áhugamaður um uppbyggingu
gömlu skátaskálanna á heiðinni,
og tók sérlegu ástfóstri við einn
þeirra. Þær voru fjölmargar stund-
irnar sem hann eyddi með verk-
færi í hönd við Kút og ber skálinn
í dag meistara sínum fagurt vitni.
í þessu ásamt mörgu öðru áttum
við samleið. Á leið meðfram Skarð-
smýrarfjallinu var oft komið við í
Kút til að líta síðustu viðbætur.
Og þar var aldeilis ekki komið að
tómum kofunum. Einskær natni
hans og þolinmæði var okkur fyrir-
mynd og raun hvatning til að ráð-
ast í það verkefni sem við áttum
fyrir höndum; að endurbyggja
Hreysi. Helgi átti margar ferðirnar
yfír hálsinn til okkar. Honum var
greinilega umhugað um verkið og
lagði oft sjálfur gjörva hönd á plóg-
inn. Samverustundirnar á heiðinni
verða ekki fleiri, en lifa hins vegar
í verkum hans og minningunni um
góðan dreng.
Kveðja,
Hreysismenn.
Skyndilegt fráfall Helga kom
okkur öllum mjög á óvart. Við
kynntumst Helga sumarið 1984
þegar hann kom inn í frjálsíþrótta-
deild UMFK fyrir Landsmótið það
ár. Hann varð fljótlega lykilmaður
í hópnum og ásamt því að sjá að
hluta til um þjálfun átti hann stór-
an þátt í að skapa samkennd í
hópnum. Helgi var mjög drífandi
persóna og því sem hann tók sér
fyrir hendur sinnti hann af miklum
krafti. Hann bar frj álsíþróttadeild-
ina uppi þau ár sem hann starfaði
fyrir UMFK. Okkur eru öllum
minnisstæðar keppnisferðir og æf-
ingar með honum og einnig fjöl-
margar notalegar stundir á heimili
hans en þangað fórum við oft eftir
æfingar. Eftir Landsmótið 1987
skildu leiðir okkar flestra en þetta
tímabil mótaði okkur öll, þetta var
góður tími sem skilur eftir hlýjar
minningar.
Deyr fé
deyja frændur
deyr sjálfur hið sama.
En orðstír
deyr aldregi
hveim er sér góðan getur.
(Úr Hávamálum)
Við sendum aðstandendum
Helga okkar samúðarkveðjur.
F.h. krakkanna í fijálsíþrótta-
deild UMFK á árunum 1984-
1987.
Jón Már og
Sigurður Ingvars.
Þar sem jökulinn ber við loft
hættir landið að vera jarðneskt,
en jörðin fær hlutdeild í himninum,
þar búa ekki framar neinar sorgir
og þessvegna er gleðin ekki nauð-
synleg, þar ríkir fegurðin ein, ofar
hverri kröfu. (H.K.L.)
Þegar fréttin um fráfall Helga
barst okkur til eyrna flutu minn-
ingarnar af árunum með honum
fram. Hann var dróttskátaforingi
okkar á seinni hluta unglingsár-
anna, þeim árum sem mótuðu
okkur hvað mest. Þessum tíma
4
.
4
i
í
(
<
<
<
<
<
I