Morgunblaðið - 05.12.1996, Qupperneq 60
ÍO FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ÁADDl,
SRTV A£> GGÍSA,
Atepþá-NH4h{
STol 0(5 þesSA)
Sl//pu ~
E/NHVe/Z GAUZÆTM&f
A£> /ZSYU4 AÐ TEsMZ* /U/6Í
£1/OAÐ É<3 AFVoPNAD/
MANN/
Grettir
Tommi og Jenni
Ljóska
5ME THINKS 1VE BEEN C0L0RIN6IN A C0L0RIN6 B00KIN5TEAP 0F D0ING MY RE6ULAR UiORK.^ NO, SjlR.. MV 006 CÖLORED TH05E PlCTURES
{ C ^
(3ni 3-27/ , X
Já, herra skólastjóri... Hún heldur að ég hafi Nei, herra... Bentu honum á hvað ég
kennarinn minn sendi mig verið að lita í litabók í hundurinn minn mála snyrtilega innan út-
til þín... staðinn fyrir að vinna litaði þessar linanna...
verkefnin mín. myndir.
BRÉF
TÍL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
• Netfang: lauga@mbl.is
Vandi þjóð-
kirkjunnar
Frá Hákoni H. Kristjónssyni:
KÆRI Siguijón Ámi Eyjólfsson
prestur.
Ég þakka þér ágæta grein sem
þú skrifar í Morgunblaðið 24. nóv.
1996 um sögulega stöðu presta í
kirkju Krists og mun tveggja stefna
varðandi prestdóm í aldanna rás,
þ.e. prestdóm í þrengri merkingu
og hinn almenna prestdóm, þar sem
þú rekur fræðilegt samhengi þess
að hin íslenska þjóðkirkja aðhyllist
hinn almenna prestdóm. Jafnframt
telur þú hinn almenna prestdóm
skapa nokkurn vanda í þjóðkirkj-
unni þar sem sumum prestum finn-
ist sem þeir leyfi leikmönnum að
taka að sér ýmis verk innan kirkj-
unnar og ef spurt sé hver skuli ráða
sé svarið iðulega: Presturinn, og
með þessari afstöðu séum við að
tileinka okkur óþarfiega mikia páp-
isku. í framhaldi af þessari orðræðu
kemur þú einmitt að kjarna vanda-
máls þjóðkirkjunnar þegar þú segir
að vitlaust sé spurt. Spurningin eigi
ekki að vera hvor eigi að ráða, prest-
urinn eða söfnuðurinn, heldur eigi
Kristur að ráða. Ef nú prestur vill
að unglingastarf í kirkjunni byrji
kl. 5.15 en safnaðarstjórnin að það
byiji kl. 5.30 og hvorugur vill gefa
eftir og allt lendir í hnút, þá stoða
lítið leiðbeiningar þínar eða annarra
velviljaðra presta um það að hvor
aðili um sig eigi að virða verksvið
hins og Kristur skuli ráða því hann
svarar víst ekki blessaður þótt
spurður sé. Annar hvor aðilinn verð-
ur að ráða, annars lendir allt í glund-
roða svo sem dæmin sanna. Betra
er að ákveða fyrirfram hver ráði
hveiju ef ágreiningur verður en að
sjálfsögðu er sama hver ræður ef
ekki er ágreiningur. Sjálfur aðhyllist
ég þá skoðun að presturinn eigi að
ráða helgihaldinu í þröngri merk-
ingu þess orðs en söfnuðurinn öllu
öðru. Ég segi í þröngri merkingu
vegna þess að ég vil t.d. ekki að
presturinn geti komið í veg fyrir að
yfir moldum mínum verði sungið
Við fjallavötnin fagurblá þótt það
sé ekki sálmur og ég vil ekki að
presturinn geti hafnað mér sem
skírnarvotti þótt ég sé nokkuð við
aldUr' HÁKON H. KRISTJÓNSSON,
nú í Dómkirkjusöfnuði,
áður í Langholtssöfnuði,
Hverfísgötu 16a, Reykjavík.
Vistaskipti
og nám
Frá Arnþrúði Jónsdóttur:
AÐ GEFNU tilefni viljum við koma
eftirfarandi upplýsingum á fram-
færi.
Við stofnun Evrópusambandsins
opnuðust augu manna fyrir nauð-
syn þess að efla menningarskipti
milli þjóðanna, enda er það stefna
sambandsins að efla símenntun og
stuðla að auknum samskiptum
landanna, þar sem þátttakendur
kynnast nýjum starfsháttum og
læra tungumál annarraþjóða. EES-
samningurinn gerir Islendingum
mögulegt að taka þátt í slíkum
verkefnum á vegum Evrópsam-
bandsins.
Eitt þessara verkefna er kallað
starfsnám (A Work Experience Pro-
gramme). Markmiðið er að ungt
fólk geti aflað sér þekkingar og
reynslu án þess að greiða það dýru
verði. Verkefnið er skipulagt þannig
að nemarnir stunda fyrst nám í
málaskóla í 2 til 4 vikur og í fram-
haldinu fara þeir til starfa í fyrir-
tækjum, oftast í ferðaþjónustu.
Þátttakendur greiða einungis fyrir
málanámið, en fá frítt fæði og hús-
næði auk vasapeninga. Fríðindin
og vasapeningarnir jafngilda lág-
markslaunum í landinu og eru ekki
skattskyld þar sem um námspró-
gramm er að ræða. Þetta þýðir í
raun að þeir sem dvelja í 3 mánuði
eða lengur eru að afla sér þekking-
ar og reynslu með mun minni til-
kostnaði en annars væri mögulegt.
Vistaskipti & nám býður starfs-
nám í Evrópu og er í samstarfi við
málaskóla í Bretlandi og Austur-
ríki. Skólarnir starfa með leyfi
stjórnvalda í viðkomandi landi og
verða samstarfsfýrirtæki þeirra að
hlíta þeim reglum sem sett eru varð-
andi starfsnám. Vinnutími og
vinnuskylda verður að vera sam-
kvæmt lögum í landinu og einnig
verður aðbúnaður að vera í sam-
ræmi við það sem þar viðgengst.
Ef þátttakandi er óánægður með
einhvern þátt prógrammsins ber
honum að tilkynna það starfs-
mannastjóra og síðan fulltrúa mála-
skólans, ef ekki hefur tekist að fá
úrlausn mála.
Síðastliðin 2 ár hafa nær 300
íslensk ungmenni á aldrinum 18-30
ára tekið þátt í þessu verkefni.
Fyrr á þessu ári fékk Vistaskipti &
nám ákveðna viðurkenningu fyrir
þetta starf, þegar Evrópusamband-
ið ákvað að veita fyrirtækinu 14
Leonardo da Vinci-styrki, sem ís-
lenskum ungmennum býðst til þátt-
töku í starfsnámi í Austurríki.
Hver sá sem hefur samskipti og
samstarf við yfir 350 ungmenni á
ári þarf að gera sér grein fyrir því
að ekki er hægt að gera öllum full-
komlega til hæfis. Reynsla Vista-
skipta & náms af ungmennaskipt-
um, bæði í Bandaríkjunum og Evr-
ópulöndum, undanfarin 7 ár sann-
færir okkur hins vegar um að hægt
er að sinna slíku starfi með góðum
árangri. Þjónustukannanir sem fyr-
irtækið framkvæmir með reglulegu
millibili sýna að okkur hefur tekist
bærilega að gera flesta viðskipta-
vini okkar ánægða, en til að svo
megi verða þurfum við að fá rök-
studdar upplýsingar frá þátttakend-
um um það sem betur má fara.
ARNÞRÚÐUR JÓNSDÓTTIR,
forstöðumaður Vistaskipta & náms.