Morgunblaðið - 05.12.1996, Síða 64
64 FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
* r
Alexandra Kjuregej Argunova
J Ó L A T Ó N L E I Ii A 11
til styrktar endurhæfingarstarfi í Krýsuvík.
MEÐFERÐ, NÁM OG VINNA
íslenska Óperan 7. desember 1996 kl. 16.00.
Óperukórinn syngur ásamt einsöngvurum.
Stjórnandi Garðar Cortes.
Miðasala íslensku Óperunnar opin daglega frá kl. 15-19.
Miðapantanir í síma 551 1475.
Miðaverð kr. 1.000.
Jk Krýsuvíkursamtökin
FÓLK í FRÉTTUM
Býr í stóru húsi með svíninu Max
Þarf að hafa gaman af öllu
► BANDARÍSKI leikarinn og
hjartaknúsarinn George Cloon-
ey, 35 ára, skipaði sér á bekk
meðal stjarna í Hollywood með
leik sínum í sjónvarpsþáttunum
„ER“ eða Bráðavaktin og er
nú orðinn einn vinsælasti karl-
kyns leikari af sinni kynslóð.
Nú er hann að hasla sér völl
í kvikmyndum og nýjasta
mynd hans heitir „One
Fine Day“ þar sem hann leikur
á móti Michelle Pfeiffer auk
þess sem hann leikur Batman
tman
mynd-
inni sem frum-
sýnd verður næsta sumar.
Einnig leikur hann í myndinni
„The Peacemaker" ásamt Nic-
ole Kidman. „Hann þarf ekki
að segja neitt þegar maður er
nálægt honum, augu hans segja
allt sem segja þarf,“ segir Kid-
man um Clooney en hún er ein
þeirra sem hrifist hafa af leik-
aranum.
Clooney er piparsveinn og
býr ásamt svíninu Max í stóru
húsi með sundlaug, tenni-
svelli, körfuboltavelli og
bílskúr sem hýsir bílana
hans, Corvette árgerð
1959 og Ford Bronco.
Hann fékk „forræði"
yfir Max þegar hann
hætti með fyrrverandi
unnustu sinni, Kelly
Preston, sem nú er gift
leikaranum John Tra-
volta.
Hann hefur mátt hafa
mikið fyrir frama sínum
og lék í mörgum lélegum
sjónvarpsþáttaröðum, eins og
hann orðar það, og B-kvik-
myndum, sem seint verða tald-
ar til meistaraverka kvik-
myndasögunnar, áður en
frægðin knúði dyra, eða öllu
heldur áður en hann knúði á
dyr Bráðavaktarinnar og fékk
þar hlutverk eftir nokkuð
harðfylgi. „Maður þarf að hafa
fyrir hlutunum og hafa gaman
af öllu því sem snertir brans-
ann því annars þýtur hann
framhjá og maður verður eftir
og gleymist,“ segir George
Clooney.
Hewitt ók drukkinn
JAMES Hewitt, fyrrum elsku-
hugi Díönu prinsessu, missti
ökuleyfi sitt í eitt ár og var sekt-
aður um 50.000 krónur eftir að
hann var fundinn sekur í vik-
unni um að hafa ekið bíl undir
áhrifum áfengis.
Hewitt, sem er 38 ára, sagð-
ist saklaus af ákærunum.
Lögreglan lét Hewitt blása í
áfengismæli eftir að annar bíll
hafði keyrt á bíl hans og mæld-
ist þá áfengismagn í blóði hans
yfir leyfilegum mörkum. Hewitt
var þó ekki talinn valdur að
árekstrinum.
Kriiigluiiiii 8-12 • s $68 6010