Morgunblaðið - 13.12.1996, Side 1

Morgunblaðið - 13.12.1996, Side 1
286. TBL. 84. ÁRG. FÖSTUDAGUR13. DESEMBER1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Góður árangur á fundi Heimsviðskiptastofnunarinnar Frjáls viðskipti með upplýsingatækni Singapore. Reuter. Reuter Jólasveinn í Beirút JÓLASVEINNINN er kominn til Beirút og er hér verið að stilla honum upp milli pálmatrjáa. Þessi uppblásni jólasveinn var fluttur til Líbanons frá Bandaríkjunum og á að standa fyrir utan stórversl- un i höfuðborg íandsins. TIMAMOTASAMKOMULAG náðist á ráðstefnu Heimsviðskiptastofnun- arinnar, WTO, í Singapore í gær um fijáls viðskipti með upplýsingatækni og -búnað auk þess sem málamiðlan- ir voru gerðar í erfiðum deilum um reglur á vinnumarkaði. „Allt gekk upp,“ sagði framkvæmdastjóri WTO, Renato Ruggiero, er lokafundur hans með leiðtogum sendinefndanna 128 hófst, þar sem ganga skyldi frá texta lokayfirlýsingar. Hún verður staðfest er ráðstefnunni lýkur í dag. Samningurinn um upplýsinga- tæknina, sem tekur gildi árið 2000, er stærsta skref sem tekið hefur verið til að koma á algeru frelsi á ákveðnu sviði viðskipta. Hann er einkum talinn geta komið Bandaríkj- unum til góða vegna styrkrar stöðu þeirra í slíkri framleiðslu. Gert er ráð fyrir að verð á hvers kyns hátæknibúnaði muni lækka en einnig á vörum á borð við bíla, ljós- myndavélar og þvottavélar. Við- skipti með vörurnar sem samning- urinn tekur til nema um 40.000 milljörðum króna á ári. Charlene Barshefsky, viðskipta- fulltrúi Bandaríkjanna, sagði að já- kvæðu áhrifin af tollalækkunum, sem samþykkt var að framkvæma í áföngum á næstu árum, myndu vega langtum þyngra en tekjutap aðildar- landanna vegna breytinganna. Leon Brittan, aðalfulltrúi Evrópu- sambandsins (ESB), taldi að samn- ingurinn um upplýsingatæknina myndi virka sem öflugur hvati á hagvöxt. í ríkjum ESB eru tollar víða mjög háir og lengi var veruleg andstaða þar við að lækka þá. Óánægja þróunarríkja Þróunarríki voru mjög andvíg því að settar yrðu reglur um aðbúnað á vinnustöðum og báru því við að þau hefðu ekki efni á að gera sömu kröfur og auðugu iðnríkin. Banda- ríkjamenn beittu sér mjög í málinu en talsmenn fátækra ríkja töldu að með hertum ákvæðum væru iðnveld- in aðeins að reyna að vernda eigin framleiðslu fyrir ódýrari vörum frá þróunarlöndum. ■ Finnst WTO/26 Tilræði við son Saddams Bagdað. Reuter. UDAY Saddam Hussein, syni Sadd- ams Husseins, forseta íraks, var í gær sýnt banatilræði, að því er greint var frá í íraska sjónvarpinu í gær. Talsmaður skrifstofu forsetaemb- ættisins í írak sagði að skotið hefði verið á Uday þar sem hann var á ferð í bifreið sinni um hverfið al- Mansour í Bagdað í gærkvöldi. Hann hefði særst, en væri ekki í hættu. „Rannsókn er hafin á þessum grimmilega glæp,“ sagði talsmaður- inn. Formlega ber Uday_ titilinn For- maður ólympíunefndar Iraks, en völd hans eru sýnu meiri en það embætti segir til um. Sjónvarpsfréttastöðin CNN hafði eftir bandarískum embættismanni að ætla mætti að tilræðinu hefði verið beint að stjórn Saddams og gæti grafið undan henni. Hins vegar væri ekki hægt að útiloka að fjöl- skyldueijur lægju að baki. Netanyahu bregst við árás á gyðinga Lofar að efla gyðingabyggðir Beit El. Reuter. ÞÚSUNDIR manna komu saman í Beit El, byggð gyðinga á Vestur- bakka Jórdanar, vegna útfarar Ettu Tzur og Efraims, 12 ára sonar henn- ar, sem palestínskir hermdarverka- menn skutu til bana á miðvikudag. Benjamjn Netanyahu, forsætisráð- herra ísraels, ávarpaði fólkið og sagði að hvergi yrði hvikað frá því að stækka byggðir gyðinga á Vest- urbakkanum. „Fyrsta svar okkar til þessara morðingja og skepna er að Israelar verða hér um kyrrt, halda áfram að byggja og búa hérna,“ sagði forsæt- isráðherrann. Þjóðfrelsisfylking Palestínu (PFLP) lýsti tilræðinu á hendur sér og hótaði fleiri árásum á gyðinga. Tilræðismennirnir skutu á bíl gyð- ingakonunnar og sonar hennar og særðu einnig eiginmann hennar og fjögur börn. Netanyahu og fleiri ráð- herrar í stjórn hans voru viðstaddir útförina til að sýna samstöðu með 130.000 gyðingum sem búa á Vest- urbakkanum. Skaut Palestínumann ísraelskur bóndi í suðurhluta ísraels skaut í gær til bana Samir Abu Shaqfa, fertugan palestínskan verkamann, sem hann kvaðst fyrst hafa grunað um að vera innbrots- þjófur, en sagði síðar að hann hefði talið manninn hryðjuverkamann. Fjölskylda Abus Shaqfas sagði að hann hefði verið myrtur til að hefna fyrir morðið á gyðingakon- unni og syni hennar. Yasser Arafat, leiðtogi Palestínumanna fordæmdi morðið á Palestínumanninum. ■ PLO gagnrýnt/23 Reuter FJÖLDI manns var viðstaddur útför gyðingakonu og tólf ára gamals sonar hennar á Vesturbakkan- um í gær, þar á meðal Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Israels. Fækkar um 400.000 í flóttamannabúðum í Tanzaníu Hútúar flykkiast til Uganda Ngara, Nairobi. Reuter. ^ * Sameinuðu þjóðirnar Annan líklegastur Sameinuðu þjóðunum. Reuter. TALIÐ er að Kofi Annan frá Ghana hafi færst skrefi nær því að verða næsti framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna eftir að öryggisráð stofnun- arinnar gekk í tvígang til óformlegr- ar atkvæðagreiðslu í gær. í bæði skiptin greiddu fulltrúar 14 ríkja Annan atkvæði. Aðeins Frakkar lögðust gegn honum. Egyptar studdu því Annan, en þeir hafa verið á bandi núverandi framkvæmdastjóra, Bout- ros Boutros-Ghali. Talið er að nú verði lögð áhersla á að snúa Frökkum á sveif með Annan. UM 400.000 flóttamenn af þjóðerni Hútúa hafa flúið búðir í norðvestur- hluta Tanzaníu og haldið til Úganda til að komast hjá því að verða send- ir til heimkynna sinna í Rúanda, að sögn talsmanns Matvælahjálpar Sameinuðu þjóðanna, WFP, í gær. Skæruliðar Tútsa í Zaire boðuðu í gær einhliða vopnahlé. Mestur var straumurinn frá Benaco-búðum, sem voru stærstar, en þaðan var talið að um 180.000 manns hefðu þegar lagt land undir fót og fáir væru eftir. Sagði fulltrúi Flóttamannahjálpar SÞ að brottförin virtist vandlega skipulögð. Talsmaður WFP, Julie Johnson, sagði fyrr um daginn að 80% flótta- manna í svonefndum Lumasi-búð- um, þar sem 113.000 manns voru, væru farnir. Stjórnvöld í Tanzaníu eru staðráð- in í að sjá til þess að allt flóttafólkið verði farið úr landi fyrir áramót. Þungvopnað herlið um 10.000 Tanzaníumanna er í grennd við flóttamannabúðirnar en hefur ekki reynt að beita valdi til að koma fólk- inu úr landi. Embættismenn segja að orsök flóttans úr búðunum núna sé að liðsmenn Interahamwe, vopn- aðra öfgasamtaka Hútúa er stóðu fyrir fjöldamorðum á Tútsum í Rúanda árið 1994, ógni þeim sem hyggist fara heim. Interahamwe- menn vilja ekki fara til Rúanda af ótta við hefndir Tútsa, er nú ráða Rúanda, vegna fjöldamorðanna. Einhliða vopnahlé Leiðtogi hinna sigursælu uppreisn- armanna Tútsa í austurhluta Zaire, Laurent Kabila, lýsti í gær yfir ein- hliða vopnahléi í átökunum við stjórnarher Zaire og sagði þetta gert vegna þrýstings annarra ríkja. Hann hvatti stjórn Zaire til að gera slíkt hið sama en hótaði því að ef stjórnin vildi hvorki gefast upp né ganga tii samninga yrði baráttunni haldið áfram. Skæruliðarnir hafa tekið margar borgir í héruðunum. Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna sagði í gær að flogið yrði með neyðargögn handa 100 þúsund rúandískum flóttamönnum í Zaire.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.