Morgunblaðið - 13.12.1996, Síða 19

Morgunblaðið - 13.12.1996, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 1996 19 VIÐSKIPTI Peugeot hugleiðir uppsagnir París. Reuter. FRANSKI bílaframleiðandinn PSA Peugeot Citroen kann að neyðast til að segja upp starfsmönnum, ef stjórnvöld samþykkja ekki starfs- lokasamninga eins og franski bíla- iðnaðurinn leggur til, að sögn Jacqu- es Calvets stjórnarformanns. „Ef þeir neyða okkur til að segja upp starfsmönnum, sem getur hugs- azt, mun það kosta okkur minna en starfslokasamningar og ég mundi samþykkja það því að ég hefði ekki um annað að velja,“ sagði Calvet blaðamönnum . Hann sagði að útlitið í greininni væri svart. Gert væri ráð fyrir að sala á frönskum bílum mundi minnka um 9-10 af hundraði á næsta ári í 1,93 milljónir bíla á sama tíma og Evrópumarkaðurinn stæði líklega í stað. Calvet lét þess ekki getið hve mörgum þyrfti að segja upp. Frönsk blöð hermdu í síðasta mánuði að hann og stjórnarformaður Renaults, Louis Schweitzer, leituðu eftir sam- þykki stjórnarinnar við því að samið yrði um starfslok 40.000 starfs- manna á fimm árum gegn því að 14.000 ungir starfsmenn yrðu ráðn- ir í staðinn. Þar með yrði ráðizt gegn atvinnu- leysi ungs fólks í Frakklandi og meðalaldur starfsmanna yrði lækk- aður. Starfsmenn PSA eru 139.900, þar af 112.200 í Frakklandi. Starfsmenn Renaults eru 139.950, þar af 99.884 í Frakkiandi. Hrun blasir við stöðinni í Gdansk Gdansk. Reuter. ENDANLEGT hrun hinnar gjald- þrota skipasmíðastöðvar í Gdansk virðist blasa við þar sem banki í borginni telur ólíklegt að fyrirtækinu verði veitt nauðsynlegt lán. Lánið er að upphæð 120-150 millj- ónir dollarar og mundi tryggja hluta 5.000 manna starfsliðs næga vinnu við smíði fímm skipa fyrir þýzkan fjárfesti meðan leitað væri að nýjum fjárfesti til að bjarga stöðinni. Þýzka tilboðið er runnið út og án þess hefur stöðin lítið að gera. Stöð- in, sem ríkið ræður yfír, hefur verið rekin samkvæmt gjaldþrotareglum síðan í ágúst og nema skuldir henn- ar 415 milljónum zlotýa eða 148 milljónum dollara. Starfsmennirnir, sem efndu til mótmælaherferðar gegn hruni skipasmíðastöðvarinnar í síðustu viku, fá laun úr sérstökum sjóði rík- isins fram í miðjan febrúar. Gdansk-banki, sem skiptaráðandi fyrirtækisins hefur reynt að semja við um lán, segir að núverandi sam- starf um samning um smíði eins skips hafí verið óviðunandi og fælt bankann frá frekari samningum um skipasmíði. (vh SILFURBÚÐIN vXy Kringlunni 8-12 • Sími 568 9066 - Þar færÖu gjöfina - í dag og á morgun fá krakkarnir að kynnast nýjustu Disney leikjunum í Boðeind. Pocahontas, Toy Story, Hringjarinn frá Notre Dame og margt, margt fleira. Fyrstu viðskiptavinirnir fá glaðning. Veitingar fyrir alla á staðnum og óvæntur gestur kemur í heimsókn. Opið er í dag frá 9-18 og á morgun frá 10-16. BQÐEIND Tölvuverslun - þjónusta ■ Mörkinni 6 Sími: 588 2061 ■ Fax: 588 2062 Frá kr. 129.900,- r Fhoítía íPl, ve^-Danaí G-et'Mía^i' Þeir sem stefna hátt þurfa að hafa greiðan aðgang að upplýsingamiðlun nútímans, og því fyrr- því betra. More margmiðlunartölvan frá Boðeind er öflug tölva fyrir alla, jafnt verðandi geimfara eins og hana Emilíu, sem aðra meðlimi fjölskyld- unnar. 133 MHz örgjörvi, 16 MB vinnsluminni, 1280 MB harður diskur, geisladrif, hátalarar og margt fleira. Nú er rétta tækifærið til að uppfylla óskir allra í fjölskyldunni. More tölvan er öflug og varanleg heimilistölva fyrir alla í fjölskyldunni, börnin líka. I N T E'R ACTIVE \'*AI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.