Morgunblaðið - 13.12.1996, Side 42
42 FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 1996
3um þær í gluggann þ
Verð ftá kr. 3,060
Margar stærðir -
mikið úrval:
Beyki, mahogany, kirsuberja
Z- brautir & gluggatjöld hf
Faxafeni 14,108 Reykjavík
© 533 5333
>
o
01
a
E
■o
HD 1488
Gufustraujárn
■hí
kr. 3.990
HR 2845
Blandari • 1,5 lítra • 3 hraðastillingar
TJ
X
■Q
VI
Toastissimo-brauðrist • Falleg hönnun Handþeytari • Kraftmikill m/3 hraðastillingum
Heimilistæki hf
SÆTÚNI 8 SÍMI 569 1500
Umboðsmenn um land allt.
<8>
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREIIMAR
Metum menntun
að verðleikum
SVO VIRÐIST sem
allur þorri landsmanna
sé nú þeirrar skoðunar
að menntun og þekking
séu þjóðinni afar mikil-
væg, enda blasa sann-
anir þess alls staðar við.
Meirihluti nýrra starfa
byggist beint eða óbeint
á menntun og þekkingu
og má nefna sjávarút-
veg sem dæmi, en mörg
ný störf þar byggjast
meðal annars á tækni-
þekkingu, markaðs-
þekkingu og þekkingu á
lífríki sjávar. Atburðirn-
ir fyrir og eftir Skeiðar-
árhlaupið sýndu vel hve
þekking getur skipt landsmenn miklu
máli, en mikil þekking á jarðfræði
og verkfræði var forsenda þess að
rof hringvegarins varaði eins stutt
og raun bar vitni. Með rannsóknum
vinnast stöðugt sigrar á ýmsum sjúk-
Er einhver hissa á því,
spyr Snjólfur Ólafs-
son, að Háskóla íslands
gengur illa að fá hæft
fólk til starfa?
dómum og þekking sem ekki var til
fyrir 10 árum gerir mörgum kleift
að iifa eðlilegu lífi í dag. Halda
mætti þessari upptalningu áfram en
það ætti að vera óþarfi.
Margt bendir til að við séum að
dragast aftur úr mörgum þjóðum
hvað varðar hagsæld og má færa
sterk rök fyrir því að ein af orsökum
þess sé skortur á vissri þekkingu.
Má þar nefna tækniþekkingu sem
er af skornum skammti hér á landi
miðað við heistu samkeppnislönd og
er slæm niðurstaða í nýlegri könnun
á menntun íslenskra skólabarna angi
af því máli. Einnig má nefna skort
á menntun á sviði stjórnunar og
skipulagningar, sem veldur til að
mynda umtalsverðri sóun í ríkis-
rekstri, þótt vissulega hafi orðið
framfarir á þessu sviði á síðustu
árum.
Stjórnvöld hafa mikil bein áhrif á
menntun þjóðarinnar, meðal annars
með reglum Lánasjóðs íslenskra
námsmanna og með því hvernig
menntun er metin til launa hjá ríkis-
starfsmönnum.
Lánasjóður íslenskra námsmanna
hefur stuðlað að jafnrétti til háskóla-
náms síðustu þijá áratugi eða svo.
Þó varð nokkur afturför
með þeim breytingum
sem voru gerðar á
sjóðnum árið 1992 og
vegur tvennt þyngst.
Annars vegar voru lán
skert til þeirra sem ná
ekki að stunda nám á
eðlilegum hraða. Hins
vegar voru endur-
greiðslur námslána
þyngdar þannig að
margir eiga í veruleg-
um erfiðleikum með að
greiða lánin til baka
með þeim launum sem
háskólamenntuðu fólki
er víða boðið. Reynslan
hefur sýnt að í mörgum
tilvikum getur langt háskólanám
gert einstaklingum mjög erfitt að
eignast þak yfir höfuðið, vegna þess
hve menntun er litið metin til launa.
Þolinmæði þeirra sem hafa lifað á
lánum í mörg ár til að mennta sig,
og hlustað á fögur orð stjórnmála-
manna um mikilvægi menntunar, er
þrotin. Sumir hópar hafa á síðustu
árum náð að rétta hlut sinn nokkuð
með harðri baráttu og ýmsir geta
verið nokkuð sáttir við sinn hlut.
Stórir hópar eru hins vegar ennþá
mjög ósáttir og ef ráðamenn þijósk-
ast við að rétta hlut þeirra má búast
við hörðum deilum á næstunni.
Hvernig skyldi nú fjármálaráð-
herra, fyrir hönd ríkisstjórnar Davíðs
Oddssonar, hafa metið menntun til
launa í síðustu samningum við Félag
háskólakennara? Byijunarlaun ein-
staklings, sem lýkur fimm ára há-
skólanámi 25 ára gamall og gerist
lektor við Háskóla íslands eru 91.268
kr. Til að verða dósent við háskólann
þarf að hafa lokið doktorsprófi sem
tekur gjarnan 3-4 ár í viðbót. 28 ára
doktor sem fær dósentstöðu hefur
106.832 kr. í mánaðarlaun. Ætli
þetta sé í samræmi við þau skilaboð
sem ráðherrar Framsóknarfiokksins
fengu á nýafstöðnu flokksþingi sínu
um mikilvægi menntunar?
Er einhver hissa á því að Háskóla
íslands gangi illa að fá hæft fólk á
mörgum sviðum og haldist illa á
því? Er einhver hissa á því að margt
ungt menntafólk kýs nú að setjast
að í útlöndum? Ætla stjórnvöld að
halda áfram að meta menntun að
verðleikum í orði en ekki á borði?
Munu árgangarnir sem lentu í kenn-
araverkföllum í grunn- og mennta-
skóla einnig lenda í verkföllum í
háskóla?
Höfundur er dósent! Háskóla
íslands.
Snjólfur Ólafsson
FYRIRLI6GJANDI: GfiLFSLÍFIVÉLAR - RIPPER ÞJÖPPUR - D/ELUR
- STEYPUSA6IR - HRJERIVÉLAR - SA6ARBLÖB - Vonfluö (ramleiðsla.
t
4
«1MPiH0Fie
Kínverskt veitingahús
Nýbýlavegi 20, Kópavogi,
sími 554 5022, fax 554 2333
Takið með heim:
5 rétta máltíð kr. 1.100
2ja rétta máltíð kr. 790
Borðað á staðnum:
5 rétta máltíð kr. 1.250
Veisluþjónusta
Frí heimsending