Morgunblaðið - 13.12.1996, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 13.12.1996, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 1996 45 AÐSEIMDAR GREINAR ig varpað fyrir próflausa að tækju þeir þetta próf yrðu þeir sérstaklega verðlaunaðir fyrir það með launa- hækkun, og það umtalsverðri. Þannig eru hámenntaðir leiðbein- endur því einnig mögulega á lægri launum en kennarar sem hafa minni menntun og eru launin þó nógu lág fyrir. Allir þeir sem ætla sér að hafa kennslu að aðalstarfi, t.d. í framhaldsskólum, eru því skyldaðir til þess að taka þetta próf, og eyða til þess heilu ári, og skiptir þá engu hversu mörg ár sémám viðkomandi hefur tekið. Þetta jaðrar auðvitað við ofbeldi og menn eins og dr. Askell rekast á þennan vegg þegar þeir koma til íslands úr löngu og erfiðu námi og ætla að hasla sér völl í skólakerfinu. Nei, ætli þeir sér eitthvert atvinnuöryggi og ein- hvetja framtíð, en ekki ráðningu til árs í senn, þurfa þeir að gjöra svo vel og klára sig af „ofbeldis- og kennslufræðinni". Annað sem er umhugsunarvert í þessu sambandi er eftirfarandi: Svo virðist sem menntun í uppeldis- og kennslufræðum skili sér ekki í betri frammistöðu nemenda, a.m.k. ef tekið er mið af þessari könnun á stærðfræðikunnáttu grunnskóla- nema. Svo yfirgripsmikið kennslu- réttindanám ætti hins vegar að gera það væri einhver skynsemi í því. Enginn virðist þó ætla sér að endurskoða, hvað þá breyta því í ljósi þessara niðurstaðna. Getur verið að aðrir þættir hafi meira að segja um frammistöðu nemenda en það hvort kennarinn viti eitt og annað um þroska barna og unglinga og nám og námsáhuga, eins og sum námskeiðin heita víst á hinni of- metnu námsbraut, nú eða það hvort kennarinn hafi einhvern þann kæk sem truflað gæti nemendur í kennslunni og nauðsynlegt reynist að lagfæra (myndbandsnámskeið). Svo er það auðvitað álitsefni hvort þetta nám bæti í raun nokkru við þá kunnáttu sem menn verða sér úti um með reynslu, almennri skyn- semi og ályktunum í lífinu sjálfu. Ég er nokkum veginn viss um að það hafa ekki verið gerðar neinar kannanir á því. Ég þekki allnokkra sem hafa orðið sér úti um þessi réttindi og það er eftirtektarvert að það virðist samdóma álit þeirra að námið bæti litlu við þá þekkingu sem þeir höfðu fyrir, en: Þeir urðu að taka þetta próf til þess að eiga sér einhveija framtíð í kennslu. Hér hefur nokkuð verið rætt um afleiðingar svonefnds kennslurétt- indanáms fyrir íslenskt mennta- kerfí. Auðvitað á að vera megin- markmið slíks kerfís að laða það fólk að skólunum hverju sinni sem hefur mesta hæfni og fagmenntun til að bera. Vísasta leiðin til þess að fæla það frá er hins vegar að þvinga það til náms í uppeldis- og kennslufræðum, eins og gert er í dag. Auðvitað fæla líka önnur at- riði frá; t.d. skammarlega lág laun kennara, sem oft vinna sín verk við erfíðustu aðstæður, og yfírvöld þurfa að taka á því máli jafnframt. Það er hins vegar óþarfí að gera því fólki, sem þó vill kenna og hef- ur til þess ágæta fagmenntun, enn erfiðara fyrir með prófí eins og því sem mé_r hefur orðið tíðrætt um hér. Ýmsar leiðir eru færar til þess að losa um höftin í íslensku skólakerfí á þessu sviði. Við háskól- ann hér í Björgvin er kennara- menntun eða kennslureynsla t.d. ekki gerð að skilyrði við ráðningu í kennarastöður, en þeir sem ekki hafa slíkt fyrir, þurfa að ljúka grunnnámi í kennslufræðum fyrsta starfsveturinn, sem samanstendur af þremur þriggja daga námskeið- um. Ef til vill væri ekki úr vegi að taka upp eitthvert slíkt fyrirkomu- lag við ráðningar í kennarastöður í íslenskum framhaldsskólum, þ.e. að menn geti lokið einhveiju grunn- námi í kennslufræðum á fyrsta starfsári, sem teldist fullnægjandi. Umfang þess yrði þó eðli máls sam- kvæmt að vera mun minna en um- fang þess kennsluréttindanáms sem nú er boðið upp á við Háskóla ís- lands og um leið markvissara og sérstaklega bundið framhaldsskóla- stiginu. Ég bind nokkrar vonir við að breytingar í þessa átt geti orðið á næstu misserum eða árum, ef marka má þau orð sem höfð voru eftir Bimi Bjarnasyni menntamála- ráðherra í Morgunblaðínu á dögun- um, í þá veru að skoða þyrfti hvort landslög stæðu á einhvern hátt í veginum fyrir því að hæft fólk feng- ist til kennarastarfa hveiju sinni. Höfundur er lektor við háskólann íBjörgvin. TOSHIBA myndbandstækin með Pro-Drum myndhausnum eru bylting frá eldri gerðum. 40% færri hlutir, minni bilunartiðni, skarpari mynd. Toshiba PrO-Drum nr 1 á topp 10 lista What Video. Verð frá kr. 38.610 stgr. Wr : rOSBlBA 0 o o ///- EinarFarestvett&Co.hf. Borgartúni 28 - Sími 562 2901 og 562 2900 JOLAA er bók sem á erindi til allra foreldra se: eiga börn á unga aldri. Þetta er saga hægt er að lesa aítur og aftur. Jó' er bók með boðskap. “The Rector's Wife”. Skýr persónusköpun og skilningur á tilfinningalífi fólks, væntingum þess, gleði og vonbrigðum. FRODI BÓKA & BLAÐAÚTGÁFA nir, fullar af vörum sem eru hannaöar í jólapakkana Habitat, stórar og fallegar verslanir í Kringlunni og á Laugavegi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.