Morgunblaðið - 13.12.1996, Qupperneq 52
52 FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 1996
MORGU NBLAÐIÐ
Guðmundar Arasonar
mótíð hefst í dag
skák
Iþróttahúsið við
Strandgötu
2. GUÐMUNDAR
ARASONAR MÓTIÐ
Haldið í íþróttahúsinu við Strand-
götu í Hafnarfirði 13.-21. desember.
Teflt frá kl. 17 virka daga en frá
kl. 14 um helgar. Aðgangur ókeypis.
Á MÓTINU tefla 20 íslenskir
skákmeistarar, þar af átta yngri
en tvítugir og tíu erlendir.
Guðmundur Arason, 77 ára,
fyrrverandi forseti Skáksambands
Islands, gerir það ekki endasleppt
við unga og upprennandi ísienska
skákmenn. Hann heldur nú alþjóða-
mót sitt í annað sinn í samvinnu
við Skákfélag Hafnarfjarðar, sem
sér um framkvæmdina. Mótið í
fyrra heppnaðist frábærlega vel og
nú var hægt að fjölga keppendum.
Guðmundur hefur fengið til liðs við
sig hollenska fyrirtækið Smitfort
Staal B/V, en stór hluti af ryðfríu
stáli sem flutt er inn til landsins
kemur frá því.
Eriendu keppendumir á mótinu
em mun hærri á stigum en þeir
íslensku og flestallir atvinnumenn.
Það er þó spá skákþáttarins að
sumir þeirra muni ekki ríða feitum
hesti frá viðskiptum við okkar
menn. Tækifæri eins og þetta era
alltof sjaldgæf fyrir íslenska skák-
menn á uppleið og þeir sem ætla
sér stóra hluti verða að grípa tæki-
færið.
íslensk skákhreyfing hefur lengi
notið velvildar Guðmundar Arason-
ar. Stuðningur hans og annarra
bakhjarla hefur reynst henni lífs-
nauðsynlegur. Þrátt fyrir frábæra
afrekaskrá hefur skákíþróttin verið
troðin undir af öðmm keppnis-
greinum í baráttu um opinberan
stuðning. Það virðist vænlegast til
árangurs á þeim vettvangi að láta
meðalmennskuna duga í alþjóðleg-
um keppnum en beita fremur ork-
unni í að stunda lobbýisma í opin-
bemm stofnunum og gera út at-
vinnumenn til þess, en ekki í eigin-
lega keppni.
Anand náði Kasparov
Indveijinn Anand vann glæsileg-
sigur á Vasílí ívantsjúk frá
Ukraínu í þriðju umferð „sterkasta
móts allra tíma“ í Las Palmas á
Kanaríeyjum. Þar með er Anand
kominn í efsta sætið ásamt Gary
Kasparov, PCA-heimsmeistara,
sem gerði jafntefli við Kramnik.
Þeir Anatólí Karpov, FIDE heims-
meistari, og Búlgarinn Topalov
LAS PALMAS XXI. styrfcleikafl. stig 1 2 3 4 5 6 VINN:
1 Karpov, Anatólí RÚS 2.775 XX ’/2 'A ’A VÁ
2 Anand, Viswanathan IND 2.735 ’/i XX 1A 1 2
3 Topalov, Veselin BÚL 2.750 % XX 0 % 1
4 Kasparov, Garv RÚS 2.785 1 XX 'A 1/2 2
5 Kramnik, Vladimir RÚS 2.765 1A % ’A XX 154
6 Ivantsjúk, Vasílí ÚKR 2.730 % 0 ’A XX 1
Guðmundur Þráinn
Arason Guðmundsson
skildu einnig jafnir.
ívantsjúk beitti
fremur sjaldgæfu af-
brigði af spánska
leiknum gegn Anand,
en kom þó ekki að
tómum kofunum.
Indveijinn endur-
bætti fyrri skákir með
glæsilegri skipta-
munsfóm í fjórtánda
leik. Hann hélt síðan
vel á spöðunum og
eftir 20 leiki var ljóst
að hann myndi vinna
meira en nægilegt lið
til baka. Ivantsjúk
lenti í endatafli með
þijú þeð fyrir mann,
en hann hafði ekkert mótspil. Hann
gaf þegar ljóst var að peðin myndu
falla eitt af öðm.
Hvítt: Anand
Svart: ívantsjúk
Spánski leikurinn
1. e4 — e5 2. Rf3 — Rc6 3. Bb5
- a6 4. Ba4 - Rf6 5. 0-0 - Bc5
6. Rxe5 — Rxe5 7. d4 — Rxe4
8. Hel - Be7 9. Hxe4 - Rg6 10.
c4 - 0-0 11. Rc3 - d6 12. Rd5
- Bh4 13. Dh5!
í skákinni Smirin-Izeta í Las
Palmas 1993 var hér leikið 13. g3
- c6 14. Rf4 og staðan var u.þ.b.
í jafnvægi.
13. - c6
14. Hxh4!! - Dxh4 15. Dxh4 -
Rxh4 16. Rb6 - Hb8 17. Bf4 -
Rf5 18. d5 - He8 19. Kfl - h6
20. h3 - He4 21. Bh2 - cxd5
22. g4 — Hxc4 23. Rxc4 — dxc4
24. Hel - Be6 25. gxf5 - Bxf5
26. Bxd6 - Bxh3+ 27. Kgl -
Hd8 28. He8+ - Hxe8 29. Bxe8
- Be6 30. a4 - g5 31. a5 - Kg7
32. Ba4 - Kg6 33. Bdl - Bd5
34. Bc2+ - Kf6 35. Bc7 - Ke6
36. Bh7 - Bf3 37. Kh2 - Kd5
38. Bc2 - Be4 39. Bdl - Kd4
40. Be2 - Bd3 41. Bb6+ - Kd5
42. Bdl - f5 43. Kg3 - Ke5 44.
Bc5 - Kf6 45. Bh5 - f4+ 46.
Kh2 og ívantsjúk gafst upp.
Jólagjöf skák-
áhugamanna
70 ára afmælisrit Skáksambands
íslands er nýkomið út. Þráinn
Guðmundsson, fyrrverandi forseti
SÍ, hefur haft veg og vanda af
samningu ritsins sem er
yfirgripsmikið og ýtarlegt. Það er
310 síður að stærð og er prýtt
miklum fjölda mynda. Þama er
rakin saga sambandsins frá
stofnun þess 1925. Ekki er um
þurra upptalningu á staðreyndum
að ræða, heldur skyggnst bak við
tjöldin. í bókarauka er lífleg
frásögn frá Ólympíuskákmótinu í
Moskvu 1994 og skákir þaðan.
Þetta er rit sem enginn skák-
áhugamaður getur látið fram hjá
sér fara.
„Skáksamband íslands í 70 ár,
1925-1995“, er aðeins fáanlegt á
skrifstofu Skáksambands íslands,
Faxafeni 12. Það má fá þar eða
panta í síma 568 9141 á milli kl.
10 og 13 daglega. Verð bókarinnar
er kr. 5.900, sem verður að teljast
hóflegt þegar tekið er mið af
umfangi ritsins.
Margeir Pétursson
FLÍSASKERAR
OG FLÍSASAGIR
I T /
1s3 Ifk
±: lít it
Stórhöfða 17, við Gullinbrú,
síml 567 4844
Kjarvalsstaðir
Bækur, kort, plaggöt, gjafavörur.
Opið daglega frá kl. 10-18.
Giljagaur.
Giljagaur á
Þjóðminjasafni
GÖMLU íslensku jólasveinamir
koma í heimsókn einn af öðrum á
Þjóðminjasafn íslands eins og verið
hefur undanfarin ár. Giljagaur er
annar og verður í safninu í dag kl. 14.
BRIPS
Umsjón: Arnór G.
Ragnarsson
Bridsfélag Reyðarfjarðar
og Eskifjarðar
ÞRIÐJUDAGSKVÖLDIÐ 10.
desember var spilaður tvímenning-
ur og varð lokastaðan á þessa leið:
Böðvar Þórisson - Þorbergur Hauksson 135
GuðmundurMagnússon-JónasJónsson 127
Auðbergur Jónsson - Hafsteinn Larsen 125
ÁsgeirMetúsalemsson - Kristján Kristjánsson 123
Félag eldri borgara í Kópavogi
Spilaður var Mitchell-tvímenn-
ingur föstud. 6.12. sl. 20 pör mættu.
Úrslit:
NS
RafnKristjánsson-OliverKristófersson 271
EysteinnEinarsson-SævarMagnússon 264
BaldurÁsgeirsson - Magnús Halldórsson 252
Þórhildur Magnúsd. - Halla Ólafsd. 233
HannesAlfonsson-GarðarSigurðsson 233
AV
Alfreð Kristjánsson - Lárus Amórsson 255
Ingibjörg Stefánsd. - Þorsteinn Davíðsson 233
HelgaHelgad.-ÁmiJónasson 230
Eggert Einarsson - Karl Adoifsson 226
Meðalskor 216.
Matur og matgerð
Frómas
Bömin mín vilja bara ananasfrómas á
jólunum, sem þau kalla ömmufrómas
segir Krístín Gestsdóttir, sem býr til
kaffifrómas handa sjálfri sér.
OKKUR hefur verið innprentað
frá blautu bamsbeini að gefa
með okkur um jólin, en ekki
hitta gjaflmar alltaf í mark. Við
áttum góðan vin, sem bjó hér í
nágrenninu við ákaflega frum-
stæð skilyrði. Ég bakaði oft
smákökur og færði honum fyrir
jólin og eitt sinn báðu bömin
mín mig um að gefa honum
ömmufrómas líka, en þau vor-
kenndu þessum góða vini sínum
og hugsuðu mikið til hans um
jólin. Eg setti frómasið í skál
og gaf honum með smákökun-
um. Að afliðnum jólum hitti ég
hann og spurði hvernig honum
hefði líkað kræsingar. Hann
svaraði: „Kökumar vom góðar,
en ég borðaði ekki grautinn
heldur gaf fuglunum hann.“
Vonandi hefur fuglunum orðið
gott af. Ég held þó ekki að ég
setji út skál með frómas handa
músarindlunum sem nokkuð er
af hér í kringum mig núna, en
gef þeim heldur kom eða hristi
brauðmola úr plastpokunum
sem brauðin koma í.
Kaffifrómas
________4 dl lútsterkt kaffi___
___________Tdl sykur___________
_________8 blöð matarlím_______
___________2 pelar ijómi_______
__________4 eggjarauður________
__________2 eggjahvítur________
þeyttur ijómi til að skreyta með
nokkrar súkkulaðikaffibaunir til að
skreyta með (fást tilbúnar í
plastpokum)
1. Byijið á að búa til lút-
sterkt kaffi, geymið 'A dl af því
en hellið hinum 3 'A dl í lítinn
pott ásamt sykrinum og sjóðið
niður um helming. Kælið. Þegar
soðið er niður er lögurinn soðinn
við háan hita þar til hann
minnkar verulega. Þetta á að
verða þykk kvoða.
2. Leggið matarlímið í bleyti
í kalt vatn í 5 mínútur. Hitið í
potti kaffíð sem þið tókuð frá
('A dl), vindið matarlímið upp
úr vatninu og bræðið í heitu
kaffinu, takið pottinn af hitan-
um áður. Kælið án þess að
hlaupi saman.
3. Hrærið saman eggjarauður
og kaffí/sykuriöginn þar til það
er ljóst og létt. Hellið matarlím-
skaffinu varlega út í og blandið
vel saman.
4. Þeytið ijómann. Þeytið
eggjahvíturnar sér. Setjið hvort
tveggja varlega út í og blandið
saman, hellið síðan í skál. Látið
stífna í kæliskáp í minnst 3 klst.
5. Þeytið ijóma og sprautið
í toppa ofan á skálina, setjið
eina súkkulaðikaffíbaun í hvern
ijómatopp.
Næsta uppskrift er úr bók
minni 220 gómsætir ávaxta- og
beijaréttir.
Ananasfrómas
1 heildós bragðsterkur
_________ananas i bitum_______
_________8 blöð matarlím______
___________‘A dl sykur________
________safí úr ‘A sítrónu____
__________2 pelar ijómi_______
_________2 eggjahvítur________
þeyttur ijómi og ananasbitar
til að skreyta með
1. Opnið dósina, hellið á sigti
og síið safann frá. Takið frá
nokkra bita til skrauts.
2. Leggið matarlímið í bleyti
í kalt vatn í 5 mínútur.
3. Setjið 1 dl af ananassafan-
um í pott og hitið að suðu, tak-
ið þá pottinn af hellunni og
bræðið matarlímið í heitum saf-
anum. Hellið honum síðan sam-
an við hinn safann ásamt sítrón-
usafanum.
4. Hrærið eggjarauður með
sykri þar til það er ljóst og létt.
Þeytið ijómann og þeytið eggja-
hvítumar sér.
5. Hellið köidum ananassaf-
anum út í eggjaarauðuhræruna,
setjið síðan ijómann og stíf-
þeyttar hvíturnár varlega út í
með sleikju.
6. Látið þetta byija að stífna
en setjið þá ananasbitana út í.
Heljið í skál. Setjið í kæliskáp
í 2-3 klst.
7. Þeytið ijóma og sprautið
toppa ofan á skálina, skreytið
með ananasbitunum sem þið
tókuð frá.