Morgunblaðið - 31.12.1996, Qupperneq 1
104 SÍÐUR B/C/D
298. TBL. 84. ARG.
ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 1996
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Morgunblaðið/RAX
Hryðjuverkamenn myrða 300 manns á Indlandi
Spr engj utilræði
í yfirfullri lest
Guwahati. Reuter.
Milosevic
búin ný-
árskveðja
Belgrað. Reuter.
STJÓRNARANDSTÆÐINGAR í
Serbíu boðuðu í gær til mótmæla-
fundar í kvöld og hugðust senda
Milosevic nýárskveðju. Þeir ítrek-
uðu kröfu um að Slobodan Milosevic
forseti segði af sér eftir að hafa
fengið i hendur og lesið upp bréf,
sem virtist skrifað af andófsmönn-
um innan hersins. Yfirmenn hers
Júgóslavíu sögðu hins vegar í bréfi
að herinn væri ekki klofinn í af-
stöðu sinni til Milosevic.
Zajedno hefur boðað til mikils
„samkvæmis" í dag. Til að fá að-
göngu nægir að framvísa kerti,
freyðivíni eða vekjaraklukku, sem
stillt verður þannig að hún hringi á
miðnætti. Á hringingin að minna
Milosevic á að tími hans sé útrunn-
inn.
Mótmælin hafa nú staðið í 43
daga. Þau hófust eftir að Milosevic
neitaði að viðurkenna ósigur í bæj-
arstjórnarkosningum í 14 borgum,
þar á meðal Belgrað, 17. nóvember.
AÐ MINNSTA kosti 300 manns
létu lífið í gær þegar sprengja eða
sprengjur tættu í sundur nokkra
vagna í yfirfullri lest í ríkinu
Assam á Norðaustur-Indlandi.
Fullyrða talsmenn lögreglunnar,
að skæruliðar af Bodo-ættbálkn-
um hafi verið að verki en þeir
berjast fyrir sjálfstæðu ríki Bodo-
manna.
Talsmenn járnbrauta á Ind-
landi sögðu að björgunarmenn
hefðu náð 35 eða 40 líkum úr
braki lestarvagnanna, en búist
væri við að mun fleiri hefðu látið
lífíð.
„Bodo-skæruliðarnir sprengdu
upp þijá vagna þegar lestin var á
brautarstöðinni í Sensapani og
ljóst er að 300 manns að minnsta
kosti týndu lífi,“ sagði háttsettur
lögreglumaður í Guwahati,
stærstu borg í Assam. Sensapani
er 200 km fyrir vestan Guwahati.
Sagði hann, að sprengjan hefði
verið sprengd með fjarstýringu.
Sprengdu brú á sunnudag
í fyrradag sprengdu skærulið-
arnir upp brú á þjóðbrautinni milli
norðausturhéraðanna og annarra
hluta Indlands og særðust þá sjö
manns.
Bodofólkið, sem býr fyrir norð-
an Brahmaputra-fljót, hefur kraf-
ist þess að fá að stofna sérstakt
ríki innan Indlands en lítill öfga-
hópur hefur barist fyrir algerum
aðskilnaði frá 1989.
Meira en 5.000 manns hafa lát-
ið lífið í átökum ýmissa hópa í
Assam síðastliðin þijú ár en í gær
hafði enginn lýst þessu síðasta
hryðjuverki á hendur sér. Lestin,
sem sprengd var upp, var á leið
til Nýju Delhi og er talið, að flest-
ir farþeganna hafi ætlað að vera
þar um áramótin.
Mannskæðasta hryðjuverk sög-
unnar var framið í júní 1985 þeg-
ar flugvél frá flugfélaginu Air
India var sprengd í loft upp með
329 manns um borð undan strönd-
um írlands.
Vænta
sáttaum
Hebron
Jerúsalem. Reuter.
ÍSRAELSKIR og palestínskir
embættismenn sögðu í gær að
Benjamin Netanyahu, forsæt-
isráðherra Israels, væri reiðu-
búinn til að afhenda bæinn
Hebron á Vesturbakkanum
stjórn Palestínumanna.
Nabil Abu Radainah, aðstoð-
armaður Yassers Arafats, for-
seta Palestínumanna, sagði að
samkomulag um að afhenda
80% af Hebron yrði undirritað
á leiðtogafundi í dag ef samn-
ingamönnum tækist að greiða
úr síðustu ágreiningsatriðun-
um. Annars yrði það undirritað
á fimmtudag eða föstudag.
Mohammad Dahlan, samn-
ingamaður Paelstínumanna,
sagði að herlið ísraela héldi
brott frá Hebron í næstu viku.
Hebron er slðasti bærinn af
sjö, sem áttu að fá sjálfstjórn
á Vesturbakkanum samkvæmt
samkomulaginu frá 1995.