Morgunblaðið - 31.12.1996, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 31.12.1996, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 1996 55 Ur dagbók lögreglunnar í Reykjavík Friðsæl jól að mestu 27. - 30. des. JÓLIN hafa verið mjög róleg á starfssvæði lögreglunnar í Reykjavík og fátt borið til tíðinda. Eftir liðna helgi eru þó 294 færsl- ur í dagbók. Af þeim eru 5 vegna iíkamsmeiðinga, 11 innbrot, 7 þjófnaðir og 21 tilkynning vegna eignarspjalla. Fíkniefni komu við sögu fjögurra mála. Heimilisófriður og ofbeldi Afskipti þurfti að hafa af 22 vegna ölvunarháttsemi á al- mannafæri og 29 þurfti að vista í fangageymslunum vegna hennar sem og ýmissa annarra mála. Til- kynningar vegna hávaða og ónæðis innan dyra voru 21 og til- vik vegna heimilisófriðar voru 8. Ofbeldi hafði verið beitt í fjórum þeirra. Ellefu ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur og jafn- margir ökumenn eru grunaðir um ölvunarakstur. Einn þeirra hafði lent í umferðaróhappi áður en til hans náðist. Auk þessa var til- kynnt um 25 umferðaróhöpp um helgina. Meiðsli á fólki urðu í fjór- um tilvikum. Á föstudag missti fjögurra ára gamalt barn framan af fingri þeg- ar það klemmdist á milli stafs og hurðar. Það var flutt á slysadeild með sjúkrabifreið. Álft festist í rimlum við Iðnó. Vegfaranda tókst að losa hana úr prísundinni áður en lögreglumenn komu á vettvang. Um kvöldið þurfti að flytja tvo aðila á slysadeild eftir harðan árekstur tveggja bifreiða á gatnamótum Skógarsels og Stekkjarbakka. Skorinn í andliti Tilkynnt var um að maður hefði verið stunginn með hnífi í húsi í miðborginni. Það reyndist ekki á rökum reist. Hins vegar var mað- ur skorinn í andliti á veitingahúsi við Klapparstíg síðar um nóttina. Hann var fluttur á slysadeild. ' Maður varð fyrir bifreið á Háa- leitisbraut við Kringlumýrarbraut aðfaranótt laugardags. Hann hlaut höfuðmeiðsli, en þau voru taliri minniháttar. Á laugardag kviknaði í feiti í potti eldavélar húss við Öldugötu. Mikill reykur fylgdi í kjölfarið, en litlar skemmdir. Um kvöldið valt bifreið á gatnamótum Lauf- ásvegar og Skálholtsstígs. Öku- maður hlaut minniháttar meiðsli. Um nóttina var tilkynnt um eld í sameign verslunar við Hvera- fold. Tjón varð mestmegnis vegna vatns, en sjálfvirkt slökkvikerfi er í húsinu. Á sunnudagsmorgun varð gangandi vegfarandi fyrir bifreið á Barónsstíg við Eiríksgötu. Hann hlaut skurð á augabrún og á hnakka og var því fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild. Til slagsmála kom á milli ölvaðra manna í húsi á Seltjarnarnesi. Vista þurfti tvo í fangageymslun- um og flytja einn á slysadeild. Fíkniefni á góðkunningjum Síðdegis gekk maður berserks- gang utan dyra á Laugavegi. Skemmdir urðu m.a. á fjórum bif- reiðum. Maðurinn var handtekinn og vistaður í fangageymslu. Að- faranótt mánudags fundust fíkni- efni á tveimur mönnum, sem handteknir voru á Vatnsmýrar- vegi. Um var að ræða marijuana, 19 alsælutöflur og amfetamín. Mennirnir hafa nokkrum sinnum áður komið við sögu slíkra mála. Um nóttina var kveikt í ára- mótabrennu við Leirubakka, en hún hafði verið ætluð íbúum Breiðholts til ánægju og upplyft- ingar. I desembermánuði hafa lög- reglumenn sérstaklega eftirlit með ölvuðum ökumönnum. í Reykjavík hafa 83 ökumenn þegar verið grunaðir um ölvunarakstur það sem af er þessum desember- mánuði, en lögreglumenn á Suð- vesturlandi hafa verið að fýlgjast sérstaklega með þessum þætti umferðarmálanna að undanförnu. Framundan eru áramót. Það er von lögreglu að fólk hugsi sig um tvisvar, og jafnvel oftar ef þörf krefur, áður en það ákveður að setjast undir stýri undir áhrif- um áfengis. Fólk er hvatt til að gæta hófs í áfengisneyslu um ára- mótin og gleyma ekki bömunum. Fólk er jafnframt hvatt enn sem fyrr til varkárni í meðferð flugelda og blysa. Lögreglan óskar öllum gleði, gæfu, friðar og farsældar á nýju ári. Endurhæfingarmiðstöð Reykjalundar Gjöf notuð til kaupa á þolprófunartækjum VIÐ afhendingu gjafabréfs, talið frá vinstri: Sverrir Hermanns- son bankastjóri, Gísli J. Eyland, formaður Landssamtaka hjarta- sjúklinga, Björn Ástmundsson, forstjóri Reykjalundar, og Hauk- ur Þórðarson yfirlæknir. Styrkur úr Fræðslu- sjóði Jóns Þórarins- sonar STYRKUR úr Fræðslusjóði Jóns Þórarinssonar var afhentur við brautskráningarathöfn Flens- borgarskólans í Víðistaðakirkju 21. desember sl., og hlaut Hrund Einarsdóttir verkfræðingur styrkinn að þessu sinni. Upphæðin styrksins var 225 þúsund krónur. Fræðslusjóður Hrund Jóns Þórarins- Einarsdóttir sonar var stofn- 3-ður með erfðaskrá Önnu Jónsdótt- ur ljósmyndara í Hafnarfirði og er hlutverk hans „að styrkja til fram- haldsnáms efnilegt námsfólk sem lokið hefur fullnaðarprófi við Flens- borgarskólann í Hafnarfirði. Anna Jónsdóttir var dóttir fyrsta skóla- stjóra Flensborgarskólans, Jóns Þórarinssonar, og með þessari ráð- stöfun á eigum sínum vildi hún halda nafni og minningu hans á lofti, segir í fréttatilkynningu. Fyrsta úthlutun úr sjóðnum fór fram 16. desember 1992, á hundraðasta afmælisdegi Önnu, en síðan hefur úthlutunin farið fram samhliða brautskráningu í desem- ber. Hrund Einarsdóttir er fædd 7. september 1970. Foreldrar hennar eru Dröfn Guðmundsdóttir kennari og Einar Sigurðsson tæknifræðing- ur. Hún lauk stúdentsprófi frá Flensborgarskólanum um jólin 1989 eftir sjö anna námstíma og BS-prófi í rafmagnsverfræði frá Háskóla íslands vorið 1994. Hún stundar nú framhaldsnám í bygg- 'ngarverkfræði við San Jose Uni- versity í Kalifomíu og stefnir að mastersprófi í burðarþolsfræði í árslok 1997. Formaður skólanefndar Flens- borgarskólans, en hún er jafnframt stjórn sjóðsins, er Gunnar Rafn Sig- úrbjörnsson. LANDSSAMTÖK hjartasjúklinga og Landsbanki íslanda færðu Endurhæfingarmiðstöð Reykja- lundar 2 milljónir króna að gjöf 27. desember sl. Fjárhæðin verður notuð til að kaupa ný þolprófunar- tæki, ásamt fylgihlutum fyrir hjarta- og lungnasjúklinga, en núverandi tæki eru úr sér gengin. Hjarta- og lungnasjúklingar hafa um árabil fengið snarpa og markvissa endurhæfingu á Rey- kjalundi er stendur að jafnaði í fjórar vikur. Vikulega er tekið á móti fimm hjartasjúklingum og eru því daglega 20-25 hjarta- sjúklingar í endurhæfingu og ann- ar eins fjöldi lungnasjúlkinga. Um 220 hjartasjúklingar njóta endur- hæfingar á Reykjalundi árlega. Við afhendingu gjafarinnar sagði Gísli J. Eyland, formaður LHS, að hann vildi lýsa yfir ánægju sinni með hið góða sam- starf LHS og Reykjalundar. Dvöl á Reykjalundi er algjör nauðsyn fyrir þá sem hafa gengist undir hjartaskurðaðgerðir og vilja tak- ast á við lífið á ný. Sigurður Helgason, fyrrverandi formaður LHS, var hvatamaður Kvöldganga á nýársdag í FYRSTU kvöldgöngunni á nýja ár- inu, miðvikudaginn 1. janúar, stendur Hafnargönguhópurinn fyrir göngu- ferð frá Hafnarhúsinu kl. 20. Farið verður niður á Miðbakka og að húsi Hafrannsóknarstofnunar og sjávarútvegsráðuneytisins og síðan að Stjómarráðinu og um Austurvöll að Alþingishúsinu, um Skólabrú að Menntaskólanum og áfram að Fræðslumiðstöð Reykjavíkur, Sóleyj- argötu 1, yfir Tjamarbrúna að Raun- vísindastofnun Háskólans og niður að Grandavegi 27, Landhelgisgæslunni, Slysavamarfélaginu og um Slippinn til baka að Hafnarhúsinu. Allir eru velkomnir í ferð með Hafn- argönguhópnum. að þessu samstarfi LHS og Lands- banka íslands og þakkaði hann Sverri Hermannssyni bankastjóra fyrir skjótar og góðar undirtektir. Sverrir sagði við þetta tækifæri að fjármálastofnanir mættu verja meira fé í fyrirbyggjandi aðgerðir og hann hvatti til frekari sam- vinnu LHS og Landsbanka ís- lands, sem væri tilbúinn að styðja fleiri nauðsynjaverk en þetta. Þeir Björn Ástmundsson, for- stjóri Reykjalundar, og Haukur Þórðarson yfirlæknir þökkuðu góða gjöf og fræddu þeir við- stadda um ýmislegt í starfi Reykjalundar, segir í fréttatil- kynningu. Reiknaðu úl „ éisíðum ^ í Sjóvá-Alnriehhra Velkomin á nýja slóð i tryggingum: www.sjal.is sióváHWaimfwnar Traustur þáttur í tilverunni LAUGAVEGS APÓTEK Laugavegi 16 HOLTS APÓTEK Álfheimum 74 eru opin til kl. 22 Næturafgreiðslu eftir kl. 22 annast Laugavegs Apótek "@C0 CÍTW Skjótvirkur stíflueyðir Eyðir stíflum fljótt • Tuskur • Feiti • Lífræn efni • Hár • Ðömubindi • Sótthreinsar einnig lagnir One Shot fer l fljótt að stíflunni af því að þaö er tvisvar sinnum þyngra en vatn. Útsölustaðir: Bensínstöðvar og helstu byggingavöruverslanir. Dreifing: Hringás ehf., Langholtsvegi 84, s. 533 1330. skólar/ námskeið ýmislegt HEILSUSETUR ÞÓRGUNNU ■ Nám í svæðameðferð Viðurkennd af F.S.M. Kynningar- námskeið byrjar 8. janúar 1997. Svæðameðferðarskóli Þórgunnu, símar 562 4745 og 552 1850. ■ Nuddskóli Nuddstofu Reykjavíkur ■ Svæðameðferð (Kennslutími kvöld og helgar). Vorönn 1996 Nám helst á eftirtöldum kennslustöðum: Reykjavík 8. janúar Akureyri 15. janúar Egilsstöóym 22. janúar Hringdu í síma 557 9736 eða 462 4517 og við sendum þér upplýsingabækling. nudd HEILSUSETUR ÞÓRGUNNU ■ Ungbarnanudd 4ra vikna námskeið fyrir foreldra meö börn á aldrinum 1-10 mánaða byrjar fimmtudaginn 9. janúar. Gott fyrir öll börn, m.a. viö magakveisu, lofti í þörm- um og órólegum svefni. Upplýsingar og innritun á Heilsusetri Þórgunnu í síma 562 4745 milli kl. 12.00 og 14.00 á virkum dögum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.