Morgunblaðið - 31.12.1996, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Framkvæmdastjóri Póstdreifingar hf.
Næsta öruggt að
skaðabótamál
verði höfðað
NÆSTA öruggt er að Póstdreifíng
ehf. mun höfða skaðabótamál gegn
Pósti og síma hf. fyrir meinta óeðli-
lega samkeppnishætti, að sögn
framkvæmdastjóra póstdreifíngar-
fyrirtækisins, Jóns Jarls Þorgríms-
sonar.
Jón segir að úrskurður samkeppn-
isráðs um erindi fyrirtækisins um
meinta misnotkun Póst- og síma-
málastofnunar á markaðsráðandi
stöðu sinni staðfesti í öllu umkvart-
anir þess. Eins og greint hefur verið
frá var niðurstaða samkeppnisráðs
sú að Póstur og sími hafi með sam-
keppnishindrandi athöfnum reynt að
útiloka keppinaut sinn frá póstdreif-
ingannarkaðinum.
Jón Jarl segir einna mikilvægast
að samkeppnisráð hafi tekið undir
kvörtun Póstdreifíngar um að Póstur
og sími hafi brotið reglugerðir um
innritunarflokka og gjaldskrá fjölda-
sendinga. Segir hann að Póstur og
sími hafi komist upp með undirboð,
ýmist með því að lækka verð á
fjöldasendingum niður fyrir allt vel-
sæmi eða hleypa auglýsingabæki-
ingum inn í innritunarflokk sem ein-
göngu eigi við pólitískan eða trúar-
legan póst.
Ný lög um póstþjónustu taka gildi
um áramótin og kveðst Jón Jarl
vera feginn að tekist hefði við með-
ferð þingsins á frumvarpi laganna
að koma í veg fyrir að víkka út
einkaleyfi Pósts og síma á póstdreif-
ingu. Staðið hefði til að flokka opinn
nafnapóst undir einkaleyfið en því
hafi verið hrundið í samgöngunefnd.
Sænska póstþjónustan dæmd
til greiðslu sektar
Jón Jarl segir að í Svíþjóð hafí
sænska póstþjónustan verið dæmd
til greiðslu sektar fyrir óeðlilega
samkeppnishætti, að upphæð 10
milljónum sænskra króna. í því til-
viki segir Jón að sænska póstþjón-
ustan hafi keypt keppinaut sinn á
póstdreifíngarmarkaðinum, einka-
fyrirtækið City Mail. Sænska póst-
þjónustan hafí síðan neyðst til að
selja fyrirtækið aftur. „Ég hefði vilj-
að sjá Póst og síma dæmdan til að
greiða sekt vegna misbeitingar
sinnar á markaðsráðandi stöðu,“
sagði Jón Jarl.
Vandi Póstdreifingar er að sögn
Jóns Jarls á hinn bóginn sá að fyrir-
tækið hefur takmarkaðan aðgang
að gögnum Pósts og síma. „Við
höfum ýmis gögn undir höndum en
höfum árangurslaust leitað frekari
gagna."
Fyrirtækið hefur m.a. kvartað
yfír því til umboðsmanns að bréfí
sem sent var samgönguráðuneytinu
fyrir ári hafí ekki verið svarað. Seg-
ir Jón Jarl að enn hafí bréfínu ekki
verið svarað en í því hafí verið leitað
viðbragða ráðuneytisins við áliti
samkeppnisráðs frá 16. febrúar
1995 þar sem mælt var fyrir um
fjárhagslegan aðskilnað póstþjón-
ustu sem háð er einkaleyfí annars
vegar og annarri póstþjónustu sem
stofnunin innir af hendi.
Loks segir Jón Jarl það vera til
vitnis um takmarkaðan samstarfs-
vilja ráðuneytisins að ekki hafí verið
staðið við loforð ráðherra um að
skipa samstarfsnefnd um málefni
póstdreifíngarmarkaðarins.
*
Atta úrskurðir vegna
Pósts og síma
S AMKEPPNISYFIRV OLDUM
hefur frá því í apríl árið 1994
borist nokkur erindi frá keppi-
nautum Pósts og síma þar sem
kvartað er yfir starfsemi stofn-
unarinnar á því sviði sem er
utan einkaleyfisrekstrar þess.
Vegna erindanna hefur sam-
keppnisráð tekið fimm ákvarð-
anir og sent frá sér þrjú álit,
nú siðast um erindi Póstdreif-
ingar ehf. um meinta misnotk-
un Póst- og símamálastofnunar
á markaðsráðandi stöðu sinni.
Fyrst barst Samkeppnis-
stofnun kæra frá Radiomiðun
hf. vegna meintrar misnotkun-
ar Póst- og símamálastofnunar
á einkaleyfisaðstöðu sinni. I þvi
tilviki var einkum til umfjöllun-
ar meint misnotkun á einka-
leyfisstöðu til eflingar á mark-
aðsráðandi stöðu söludeiida
stofnunarinnar á hinum al-
menna notendabúnaðarmark-
aði. I ákvörðunarorðum er
mælt fyrir um fjárhagslegan
aðskilnað þeirrar starfsemi
sem Iýtur að viðskiptum með
notendabúnað frá þeirri starf-
semi sem nýtur einkaleyfis-
verndar.
A fundi samkeppnisráðs 16.
febrúar 1995 voru tekin fyrir
tvö erindi, annað frá Sjón-
varpshandbókinni hf. en hitt
frá Póstdreifingu hf. Kvörtun
Sjónvarpshandbókarinnar um
meinta mismunun Póst- og
símamálastofnunar við innrit-
un blaða og tímarita var vísað
frá. í niðurstöðum ráðsins um
erindi Póstdreifingar var mælt
fyrir um fjárhagslegan aðskiln-
að þeirrar póstþjónustu sem
háð er einkarétti annars vegar
og annarri póstþjónustu hins
vegar.
I áliti um erindi Samtaka
seljenda fjarskiptabúnaðar
vegna reglugerðar um Póst-
og símamálastofnun sagði að
hraða bæri formbreytingu
rekstrar stofnunarinnar til að
jöfnuður næðist í samkeppni.
Mismunun á sviði
öryggisþjónustu
Samkeppnisráð tók ákvörð-
un í maí á þessu ári um erindi
Nýherja hf. og Öryggisþjón-
ustunnar hf. um notkun Securi-
fon-búnaðar á símstöðvum
Pósts og síma. Þá taldi sam- _
keppnisráð að með því að heim-
ila aðeins einu öryggisþjón-
ustufyrirtæki að hafa búnað til
línuvöktunar inni á símstöðv-
um Pósts og síma væri fyrir-
tækjum á sviði öryggisþjónustu
mismunað og samkeppni milli
þeirra hindruð.
Síðasti úrskurðurinn gekk
20. desember sl. í máli Póst-
dreifingar ehf. þar sem stað-
fest var að með samkeppnis-
hindrandi athöfnum reyndi
Póstur og sími að útiloka
keppinaut stofnunarinnar á
póstdreifingarmarkaðinum.
Morgunblaðið/Kristinn
SAFNAHÚSIÐ í Tryggvagötu 15 þar sem Myndlistaskólinn í Reykjavík og félag-
ið íslensk grafík hafa verið til húsa undanfarin ár en á að hýsa Borgarbókasafn,
Borgarskjalasafn og Ljósmyndasafn Reykjavíkur í framtíðinni.
Morgunblaðið/Einar Falur
„ÞAÐ liggur tíu ára vinna á bak við uppsetningu grafíkverkstæðisins, sem er
mjög sérhæft," segir Gréta Mjöll Bjarnadóttir, formaður félagsins íslensk grafík.
Myndin er tekin af ætingarpressunni á grafíkverkstæðinu.
Borgarbókasafn flutt í Tryggvagötu 15
Myndlistaskólinn og
Grafíkfélagið á götunni
BORGARSTJÓRN Reykjavíkur hef-
ur ákveðið að aðalsafn Borgarbóka-
safns verði flutt í Safnahúsið í
Tryggvagötu 15 þar sem Myndlista-
skólinn í Reykjavík og verkstæði fé-
iagsins íslensk grafík eru nú til húsa.
Borgarskjalasafn og Ljósmyndasafn
Reykjavíkur munu einnig verða flutt
í þetta húsnæði en ætlunin er að
þessum flutningum verði lokið fyrir
árið 2000 þegar Reykjavík verður
menningarborg Evrópu.
Þá á hluti Listasafns Reykjavíkur,
þar á meðal Erró safnið, einnig að
vera flutt í Hafnarhúsið sem stendur
við hlið Tryggvagötu 15. Óvissa rík-
ir hins vegar um hvað verður um
starfsemi Myndlistaskólans og Graf-
íkfélagsins sem hafa haft aðsetur
sitt í þessu húsnæði um nokkurt
skeið.
Mikill vandi að flylja skólann
Myndlistaskólinn í Reykjavík hef-
ur verið til húsa í Tryggvagötu 15
frá árinu 1981. Valgerður Bergsdótt-
ir, skólastjóri, segir að unnið hafi
verið að lagfæringum á húsinu frá
árinu 1993. „Við höfum sætt okkur
við allt það rask og þær óviðunandi
vinnuaðstæður sem af því hlutust
vegna þess að við héldum að við
fengjum að vera þarna áfram. Við
stöndum frammi fyrir miklum vanda
ef það er rétt að flytja eigi skólann
ásamt tilheyrandi búnaði því hér er
umfangsmikil starfsemi; nemendur
eru hátt á fjórða hundrað og kennar-
ar hátt á fjórða tug. Þetta er rótgró-
in stofnun sem hefur unnið að mynd-
listarmenntun borgarbúa siðustu
fimmtíu ár. í raun er maður alveg
orðlaus yfir þessu.“
Tíu ára vinna á bak við
grafíkverkstæðið
„Ef þetta er rétt kemur mér það
á óvart því við erum nýbúin að ganga
frá formlegum leigusamningi við
borgina," sagði Gréta Mjöll Bjama-
dóttir formaður félagsins íslensk
grafík í samtali við Morgunblaðið.
„Við höfum heyrt sögusagnir um
þennan flutning en enga staðfestingu
fengið á þeim.
Það liggur tíu ára vinna á bak við
uppsetningu grafíkverkstæðisins
sem er mjög sérhæft. Það þurfti að
koma upp sérhönnuðu loftræstikerfí
en uppbyggingin hefur kostað okkur
milljónir. Við fengum húsnæðið í
hendur nánast fokhelt, án rafmagns-
og pípulagnar, og höfum haft alla
uppbyggingu á því í okkar höndum.
Við höfum staðið straum af fram-
kvæmdunum, aðallega með gjöfum
félagsmanna og sjálfboðavinnu síð-
astliðin tíu ár. Það væri slæmt ef
öll þessi vinna væri unnin fyrir gýg
þar sem um miklar fjárhæðir og
mikla vinnu er að ræða.“
Valgerður Hauksdóttir, fyrrver-
andi formaður féiagsins og í verk-
stæðisnefnd, sagði að verkstæðið
væri nú loksins komið í nothæft
ástand eftir margra ára baráttu og
gífurlega vinnu. „Það var fyrst í
haust sem við gátum farið að vinna
á verkstæðinu. Þetta er fyrsta grafík-
verkstæði sinnar tegundar á landinu
og um brautryðjendastarf að ræða.
Öll uppbygging hefur miðað að því
að búa til nútímaverkstæði þar sem
sérstakar kröfur eru gerðar til loft-
ræstingar og heilsufarslegra þátta.
Þar að auki er það ekki einfalt mál
að flytja verkstæði sem þetta, sem
hefur verið sérsmíðað inn í þetta
húsnæði.
Verkstæðið er ekki aðeins fyrir
grafíklistamenn í félaginu íslensk
grafík heldur alla myndlistarmenn,
erlenda sem íslenska, meðal annars
er gestaíbúð í húsnæðinu sem hefur
verið fullbókuð þetta ár og er fullbók-
uð fram á það næsta. Það er enginn
vafí, að staðsetningin á verkstæðinu
í miðri borginni hefur áhrif á ásókn
í það.“
Tekið verður á húsnæðisvanda
skólans og Grafíkfélagsins
Guðrún Jónsdóttir, formaður
menningarmálanefndar Reykjavík-
urborgar, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að borgarstjóm gerði sér fylli-
lega grein fyrir því að flutningur a
borð við þennan á stofnunum gerðist
ekki í einu vetfangi. „Þessi mál þarf
að ræða vandlega áður en hafíst verð-
ur handa. Það hefur aðeins verið tek-
in stefnumarkandi ákvörðun um
framtíðarráðstöfun húsnæðisins en
eftir er að ræða við viðkomandi stofn-
anir. Rætt verður sérstaklega við
Myndlistaskólann og Grafíkfélagið
um húsnæðismál þeirra og á þeim
verður tekið. Það er ekki ætlunin að
skilja þær eftir úti í kuldanum. Við
höfum þó ekki fundið húsnæði fýnr
þær. Okkur þótti það álitlegur kostur
að hafa þessi þijú söfn á einum stað
og láta þau mynda heild ásamt Hafn-
arhúsinu sem mun rýma hluta af
Listasafni Reykjavíkur í framtíðinm.
Aðspurð sagði Guðrún að hús-
næðið sem ætlað var undir Borgar-
bókasafnið í gamla Morgunblaðshús-
inu í Aðalstræti hefði verið of Htið
þegar til átti að taka. „Við hefðum
þurft að hafa eina hæð til viðbótar
til ráðstöfunar. Ekki hefur verið
ákveðið hvað gert verður við þetta
húsnæði en til greina kemur að borg-
in selji það aftur.“