Morgunblaðið - 31.12.1996, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Umferðaróhapp
við Héraðsvötn
Sauðárkróki - Einmuna veður-
blíða hefur verið í Skagafirði yfir
jólin og eins og annars staðar á
landinu var kirkjusókn góð og
hátíðahald allt fór vel fram.
Vegir voru greiðfærir til allra
átta, en mikil hálka gerði nokkr-
um ökumönnum erfitt fyrir og
varð orsök nokkurra umferðaró-
happa, en sem betur fer urðu eng-
in alvarleg meiðsl á fólki.
Alvarlegasta óhappið varð síð-
astliðinn föstudag þegar bifreið á
leið frá Sauðárkróki fór útaf veg-
inum við eystri brú Héraðsvatna.
Ökumaðurinn missti stjórn á bif-
reiðinni, sem er fólksbifreið af
Toyota gerð, rétt áður en að
brúnni kom og lenti bifreiðin á
vegriði við brúna, kastaðist út af
veginum og hafnaði á hvolfi um
15 metra frá brúarsporðinum úti
á ísilögðum Héraðsvötnunum.
Mikil mildi var að traustur ís var
á Vötnunum eftir mikinn frosta-
kafla að undanförnu og því fór
betur en annars hefði orðið, en í
bílnum voru börn auk ökumanns-
ins og sluppu allir án teljandi
meiðsla.
Morgunblaðið/Silli
LANDSBANKI íslands hlaut fyrstu verðlaun fyrir jólaskreytingu,
Húsavík - Húsvíkingar áttu hvít
og friðsæl jól í hinu fegursta og
hagkvæmasta veðri. Þeir fjöl-
menntu til aftansöngs á aðfanga-
dag og var kirkjan fullsetin
kirkjugestum, sem sungu
jólasálmana og hlýddu á orð
sóknarprestsins séra Sighvats
Karlssonar.
Bærinn var skreyttur með
mesta móti og ljósum prýddur
fyrir þessi jól, enda var starfandi
nefnd sem hvatti til þess að menn
svo gerðu og að verslað væri í
heimabyggð frekar en að sækja
verslun til fjarlægari staða og
talið er að það hafi haft nokkur
áhrif. AHtaf er þó eitthvað af því
að menn sæki jólaverslanir sínar
Hvítog
friðsæljól
á Húsavík
til fjarlægari staða innanlands
og einnig til útlanda.
Verðlaunuð voru þau fyrir-
tæki, sem talið var að hafi átt
eftirtektarverðustu jólaskreyt-
ingarnar og þótti skreyting
Landsbankans vera best, önnur
verðlaun hlaut Shell-skálinn og
3.-4. sæti skipuðu Garðarshólmi
og Öryggi. Af íbúðarhúsum hlutu
eigendur Uppsalavegar 19 fyrstu
verðlaun, Álfhóll 6 önnur verð-
laun og Mararbraut 11, gamli
Jörvi, þriðju verðlaun.
Fyrsta áfanga jólafagnaðarins
lauk svo með friðsælum dansleik
í Félagsheimilinu. Barnaball
kvenfélagsins var fjölmennt af
börnum og foreldrum.
Sala flugelda er hafin og eftir
er að sjá hve mikið menn eiga
eftir í buddunni til kaupa á þeim,
en um síðustu áramót fauk út í
loftið á aðra milljón króna og
þeim eldri þótti nóg um og að
betur hefði mátt veija því fé.
Hátíðleg jól í Hólmínum
Stykkishólmur - Jólin voru íbúum
Stykkishólms góð. Veðráttan var
hagstæð svo allir komust leiðar
sinnar fyrir jólin og góð þátttaka
var í helgihaldinu.
Það sem einkenndi jólaundir-
búninginn í Stykkishólmi var hve
miklum jólaskreytingum var kom-
ið fyrir á götu, stofnunum og í
heimahúsum. Aidrei fyrr hefur
bærinn verið jafn mikið og fallega
skreyttur. í byijun desember var
kveikt á stóru jólatré sem er gjöf
frá Drammen sem er vinabær
Stykkishólms í Noregi. Stykkis-
hólmsbær setti miklar götuskreyt-
ingar og kom fyrir jólatijám á
áberandi stöðum í bænum. íbúar
voru duglegir við að skreyta hús
sín og garða ljósum. Allt þetta
fólk var meira meðvitað um að
jólin væru að nálgast.
Einmuna tíð hefur verið í des-
ember og þar af leiðandi allir veg-
ir færir. Það varð til þess að marg-
ir fóru í verslunarferðir til Reykja-
víkur til að kaupa inn fyrir jólin.
Þrátt fyrir það eru kaupmenn í
Stykkishólmi ánægðir með versl-
unina. Að sögn þeirra fór hún seint
af stað en líflegt var í búðunum
síðustu dagana fyrir jól.
Jólin voru rauð
Flestum fínnst það tilheyra jól-
um að hafa snjó. Hólmarar fengu
að þessu sinni rauð jól. Á aðfanga-
dag var hvöss sunnanátt með rign-
ingu og fór þá það litla snjóföl sem
hér var. Margir áttu leið í kirkju-
garðinn til að setja ljós og skreyt-
ingar á leiði ættingja. Erfiðlega
gekk að halda loga á kertunum
vegna veðursins, en um kvöldið
lægði og á jóladag var hið feg-
ursta veður.
Hólmarar fengu sinn skammt
af jólamessum. A aðfangadag var
messað í Stykkishólmskirkju og
eins á annan dag jóla. Á miðnætti
á jóianótt fjölmenntu, að venju,
Hólmarar við messu í katólsku
kirkjunni og þá héldu hvítasunnu-
menn sína jólamessu á jóladag.
Kirkjusókn var mjög góð. Það var
mikil ró yfir bænum þessa jólahá-
tíð.
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
Kœru viðskiptavinir!
Guð gefi ykkur blessunarríkt ár.
Þökkum viðskiptin á liðnu ári.
______________________________________.
. S5 & i
1 0
llí .
Morgunblaðið/Jenný Jensdóttir
EKKI þótti þeim Unni, Steinari og Birtu lyktin góð af
skötunni sem þau báru fram.
Börnin buðu
til skötuveislu
Drangsnesi - Sá siður að borða
skötu er að sjálfsögðu í heiðri
hafður á Drangsnesi eins og
annars staðar á landinu á Þor-
láksmessu. Að vísu hefur yngri
kynslóðin átt það til að fussa
og fitja upp á nefið yfir lykt-
inni sem fyllir húsið þegar for-
eldrarnir háma í sig vel kæsta
skötuna með sælubros á vör.
f Drangsnesskóla eru hug-
myndaríkir og framtakssamir
krakkar sem fengu þá hug-
mynd að bjóða til skötuveislu
í samkomuhúsinu Baldri á Þor-
láksmessu. Og veisla var það
svo sannarlega. Vel kæst skata
á borðum, en saltfiskur fyrir
þá sem ekki borða skötu og
heimabakað rúgbrauð með
smjöri.
Eina aðstoðin sem þau
þurftu var að sjóða skötuna,
um allt annað sáu þau sjálf.
Skipulagningu, innkaup, fram-
reiðslu, uppvask og þrif á hús-
inu á eftir. Allt þetta sáu þau
um með miklum sóma.
/)ö/iAufii oifAsAf/tifi
Interflora.
Blómastofa Friðfinns
Suðurlandsbraut 10, símar 553 1099 og 568 4499.