Morgunblaðið - 31.12.1996, Síða 56

Morgunblaðið - 31.12.1996, Síða 56
56 ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ Grettir BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329 • Netfang: lauga@mbl.is Að hugsa á íslensku Dagur íslenskrar tungu Frá Valgarði Egilssyni: Kvarði og túlkun í orðum DAGUR íslenskrar tungu er ný- liðinn. Fjölþjóðleg könnun sýnir ónóga færni íslenskra ungmenna í stærðfræði og raungreinum. Nýlega var kannað sérstaklega hvert vald 12 ára nemar í íslensk- um skólum hefðu á íslensku og stærðfræði. Var þetta undir um- sjá opinberrar rannsóknastofnun- ar. Á skilablöðum þaðan segir um stærðfræðina að duglegur nem- andi „hefur vald á grunnfærni" (sjá meðfylgjandi mynd). Samkvæmt minni málkennd hefur orðið grunnfærni merking- una: grunnur skilningur, grunn- hyggni, andstæða við djúpan skilning. Svipað segir Orðabók Menningarsjóðs. En nú hefur semsé orðinu verið fengin ný merking - og gagnstæð! Hér hefði nægt að segja: „hef- ur vald á“ eða „hefur náð færni“ Hefur vald á grunnfærni Vantar nokkuð á grunnfærni Vantar verulega á grunnfærni en ofílagt er „að hafa vald á færni“ hvað þá á grunnfærni. Það læra börnin sem fýrir þeim er haft. Ekki er kyn þótt keraldið leki. VALGARÐUR EGILSSON, læknir Hólatorgi 4, Rvk. Lygi, haugalygi, moggalygi Frá Einari Júiíussyni: ÞAÐ FER tvennum sögum af því hver taldi tölfræði vera hæsta stig lyginnar. En sá þekkti allavega ekki til Morgunblaðsins. í blaðinu frá 21. des er farið svo stórkostlega rangt eða villandi með staðreyndir að ég fæ ekki orða bundist. Þar segir í fyrirsögn frétta- greinar: „Skatt- byrðin hefur auk- ist um 10,6% frá 1988.“ 10,6% er alls ekki lítil skattahækkun. Slík tekjuskatts- hækkun væri álíka mikil og fast- eignaskattahækkun Reykjavík- urlistans með holræsaskattinum ill- ræmda sem sjálfstæðismenn hafa réttilega mótmælt harðlega og munu vafalaust leggja snarlega af þegar þeir komast til valda því stefna Sjálfstæðisflokksins hefur hingað til verið skattalækkun en ekki skattahækkun. Getur það verið að Sjálfstæðisflokkurinn hafi stuðl- að að 10,6% skattahækkun? Getur það virkilega verið? Með greininni fylgdu línurit sem sýndu að skatt- leysismörkin hafa á þessu tímabili lækkað úr 78.256 kr í 60.888 kr en skattaprósentan hækkað úr 35,20% í 41,98%. Skattur af 100 þús. króna meðallaunum (lektors- launum) hefur því aldeilis ekki hækkað um 10,6% heldur hefur hækkað úr 92 þús kr í 197 þús kr eða um 114,5%. En stefna ríkis- stjórnarinnar er ekki bara að hækka skattana heldur líka að auka mis- réttið í þjóðfélaginu og leggja skatt- byrðirnar mest á bognu bökin. Skattur af 80 þús króna láglaunum (leiðbeinendalaunum) hefur hækk- að um hvorki meira né minna en 1.207% þ.e. rúmlega þrettánfaldast eins og allir geta sjálfir reiknað. Þó að enn séu sem fyrr miklu meira en næg verkefni í landinu fyrir all- ar vinnufúsar hendur og þó að út- gerðarmenn hafi aldrei dregið úr sjó neitt nálægt því eins mikinn afla og í ár þá færir ríkistjórnin til þeirra hundruð milljarða króna verðmæti en tekur atvinnuna frá þeim sem minnst bera úr býtum og ætlar nú að fara að draga veru- lega úr bótagreiðslum til þeirra. Ég veit ekki hve lengi almenningur lætur níðast svona á sér en ég fer fram á að Morgunblaðið biðjist af- sökunar á því að hafa misreiknað eða mistúlkað 1.207 prósenta skattahækkun sem 10,6% skatt- byrðisaukningu. Ég vil líka að þeir stjórnmálamenn og flokkar sem ekki styðja þessa misréttisstefnu heiti því að skila þjóðinni aftur sam- eign sinni, veita öllum atvinnu að nýju og lækka skattbyrði Iáglauna- manna niður í það sem hún var áður en núverandi ríkisstjórn tók völdin um leið og þeir taka við stjómartaumunum. Vonandi verður það sem fyrst því ríkistjórn sem hefur það sem sín æðstu markmið að skapa atvinnuleysi og flytja fjár- munina frá þeim fátæku til hinna ríku og gefa þeim stærstu auðlindir þjóðarinnar meðan hún hækkar skattana á lægstu launin um 1.207% á alls ekkert langlífi skilið. Náttúruauðlindir þjóðarinnar á að nýta á skynsamlegan, réttlátan og sjálfbæran hátt þannig að fram- tíðarávinningur þjóðarinnar verði sem mestur. Fiskimiðin og fugla- verin eru sameign ríkjandi og óbor- inna kynslóða íslendinga og enginn hefur rétt eða vald til þess að gefa eða selja sjóræningjum og spell- virkjum né neinum öðrum það sem hann á ekki sjálfur. Sé það nauðsyn- legt að þrettánfalda skattbyrði ein- hverra til að fjármagna þá fordæm- is- og gegndarlausu eyðsluaukn- ingu ríkisstjómarinnar sem þegar hefur orðið á minna en áratug þá ætti að horfa til annarra en þeirra lægst launuðu. Hætta mætti t.d. að veita há- tekju- og stofneignamönnum skatt- fijálsar fjármagnstekjur og hluta- bréfaarð og skattfrelsi annarra tekna gegn hlutabréfakaupum. EINAR JÚLÍUSSON, eðlisfræðingur. Einar Júlíusson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.