Morgunblaðið - 27.02.1997, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Páll Óskar verður fulltrúi íslands á Eurovision í Dyfiinni
„Gallharður aðdáandi
söngvakeppninnar“
PÁLL ÓSKAR Hjálmtýsson verð-
ur fulltrúi íslands í Söngvakeppni
evrópskra sjónvarpsstöðva, Euro-
vision, sem haldin verður í
Dyflinni á Irlandi 3. maí næstkom-
and. Páll Óskar fer utan að beiðni
Sjónvarpsins og hyggst flylja eig-
ið lag og texta. Hann segist stefna
að því að ná mestri athygli áhorf-
enda og skemmta sér konunglega
um leið.
Páll Óskar Hjálmtýsson segir
að dagskrárstjóri Sjónvarpsins,
Sigurður Valgeirsson, hafi beðið
sig um að keppa fyrir Is-
lands hönd þegar hætt var
við undankeppni hér á
landi. „Eg sló til vegna þess
að efni og aðstæður leyfa
og það hittir á réttan tíma-
punkt á mínum ferli. Ég hef
áður verið beðinn að taka
þátt í söngvakeppninni,
fyrst 1991, en neitað vegna
þess að mér hafa ekki líkað
lögin sem voru í boði. Sjálf-
ur er ég gallharður aðdándi
söngvakeppninnar og ber
mikla virðingu fyrir henni.“
Stökkpallur til einhvers
annars og meira
Páll Óskar segist vinna
verkið sem verktaki fyrir
Sjónvarpið og hann hafi
alla þræði í hendi sér, annað
hafi ekki komið til greina.
„Ég hef ákveðnar skoðanir
á þessari keppni og hvaða
leiðir eru bestar til að vekja
á sér athygli og ekki síst
til að nota keppnina sem
stökkpall til einhvers ann-
ars og meira. Ég geri mér
grein fyrir því að söngvakeppnin
hefur leikið ákveðna þátttakend-
ur grátt og veit út í hvað ég er
að fara, en um leið er hún keppni
sem allir elska að hata og horfa
samt á. í þessu tilfelli 500 milljón
manns.“
Páll Óskar segir að á sjöunda
og áttunda áratugnum hafi kepp-
endur yfirleitt verið raunveruleg-
ar stjörnur úr sínum heimalönd-
um og grúi laga hafi komið fram
á þeim tíma sem teldust klassísk
dægurlög í dag. „Við megum ekki
gleyma því að á árum áður kepptu
í söngvakeppninni listamenn eins
og Cliff Richard, Sandie Shaw og
Abba, svo fáeinir séu nefndir. Á
þessum áratug hefur aftur á móti
og bætir við að lagið sé danslag
með „hátíðlegri" laglínu og segi
frá manneskju sem lifað hafi hátt
um dagana og liggi nú útlifuð
fyrir dauðanum á Betty Ford-
stofnuninni, „búin að lifa hinu
ljúfa lífi til hins ítrasta og hlusta
á allt of mörg Eurovision-lög“.
Hann samdi lagið með Trausta
Haraldssyni á Akureyri, lauk við
það í fyrradag, en á sviðinu með
honum í Dyflinni verða engir
hljóðfæraleikarar, aðeins fjórar
dansmeyjar.
Lagið, sem ekki hefur
fengið heiti, verður frum-
flutt á Rás 211. mars og
myndband við það frum-
sýnt 25. mars. Páll Óskar
fer síðan út með föru-
neyti 26. apríl til að búa
sig undir keppnina. „Svo
skemmtilega vildi til að
Island var dregið síðast í
þátttökuröðinni og ég
verð því síðastur á svið,
næst á eftir Frakklandi,
Danmörku og Englandi,
sem eru ekki amaleg lönd
að keppa við hliðina á. Á
netinu segja menn að eft-
irsóttustu sætin séu
fyrsta sætið, þriðja og
það síðasta, það sýni töl-
fræðin. Þeir spá Islandi
líka sigri eftir tölfræðiút-
reikningum og miða þá
við lögin sem hafa komið
frá okkur hingað til, mik-
ið umtal um Island og ís-
lenska tónlist ytra, en
hafa vitaniega ekki
heyrt lögin sjálf.“
„Lagið sem ég fer með
út er besta lag sem ég hef samið
um dagana, ris að mínu mati
langt yfir meðalmennskuna sem
hefur tröllriðið söngvakeppninni
undanfarin ár. Ég er ekki að fara
í þessa keppni til að þóknast ein-
um eða neinum, ekki til að vinna
hana, ekki til að gera grín að
sjálfum mér eða keppninni og
ætla ekki að fara að afsaka það
eftir tvö ár að hafa tekið þátt.
Ég fer til að vekja mestu athyg-
lina á mínum forsendum og hef
trú á því að það sé besta leiðin
til að ná árangri. Það er svo ekk-
ert mál að troða upp fyrir framan
500 miljjónir, ég er þannig sviðs-
maður að mér líður betur eftir
því sem milljónirnar eru fleiri."
verið lenska að senda í keppnina
annars flokks flytjendur með ann-
ars flokks lög eins og það hafi
verið sameiginlegt átak þjóðanna
sem að keppninni standa.“
Yngt upp í dómnefndunum
Páll Óskar segir að skipulags-
nefnd söngvakeppninnar hafi sett
þér það mark að hefja hana til
vegs og virðingar að nýju, fá til
leiks yngri keppendur „og ekki
síst að yngja upp í dómnefndun-
um, en reglurnar hafa verið að
Morgunblaðið/Kristinn
PÁLL Óskar. „Lagið er í hæsta máta óvenju-
legt Eurosvision-lag.“
dómendur skyldu vera á aldrinum
sextán ára til sjötugs. Framvegis
verða þrír fjórðu hlutar dóm-
nefnda yngri en 35 ára. Einnig
er líklegt að kynnirinn verði
söngvarinn úr strákahljómsveit-
inni Boyzone, sem skemmtir í lok-
in og tryggir þannig gott áhorf
ungmenna um alla Evrópu."
Páll Óskar segist ekki fara út
með það fyrir augum að sigra í
keppninni. „Ég ætla mér að vekja
mestu athygli áhorfenda og
skemmta mér konunglega um
leið. Ég lofa því að lagið sem ég
fer með út á eftir að vekja tölu-
verða athygli, því það er í hæsta
máta óvepjulegt fyrir þessa
söngvakeppni," segir Páll Óskar
Morgunblaðið/Halldór
GEIMSKUTLURNAR voru tilkomumiklar þegar
þær gengu milli gesta.
Geimskutlur
veittu ungmenn-
um áfengi
EFTIRLITSMENN vínveitingahúsa
höfðu afskipti af tveimur ungum
stúlkum á dansstað við Hverfisgötu
um liðna helgi þegar þeir voru á
ferð um veitingastaðina. Þær voru
í sérkennilegum klæðum með kúta
á baki, merkta erlendum áfengis-
framleiðanda, og líktust helst geim-
förum að sögn lögreglu.
Úr kútunum lágu slöngur með
sprautur á endanum og sprautuðu
geimskutlur þessar úr kútunum upp
í munn þeirra gesta sem vildu, án
endurgjalds. Talsvert margir vildu
notfæra sér það boð. í Ijós kom að
innihald kútanna var áfengi frá ein-
um innflytjanda slíkra veiga.
Áður en til afskipta eftirlitsmanna
kom, höfðu m.a. gestir veitingahúss
þar sem flestir voru undir tvítugu
fengið að smakka á vökvanum, auk
þess sem ekki hafði verið haft fyrir
því að spyija um skilríki, samkvæmt
upplýsingum frá lögreglu. Einnig
hafði sést til stúlknanna sprauta upp
í fólk á götu, jafnvel ungmenni sem
á vegi þeirra urðu.
Stúlkurnar neituðu að framvísa
skilríkjum og höfðu eftirlitsmenn því
samband við starfsfólk innflytjánd-
ans, þar sem upplýsingar þar að
lútandi fengust.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglu hefur þetta mál vakið upp
spumingar um hvort slíkar áfengis-
kynningar stangist á við lög. Ástæða
þótti til að láta embætti lögreglu-
stjóra í Reykjavík kanna málið frekar.
Varúðarráðstafanir á Skeiðarársandi
Bæklingur á fjórum
tungumálum
I RAÐI er að gefa út upplýs-
ingabækling á íslensku, ensku,
frönsku og þýsku til þess að vara
ferðamenn við hættum sem leynast
í nánd við jakana á Skeiðarársandi.
Einnig verður komið fyrir áberandi
skiltum við þjóðveginn og við vegi
sem liggja út á sandinn. Lögregluyf-
irvöld hafa heimild til að loka
ákveðnum svæðum á Skeiðarársandi
telji þau ástæðu til.
Þetta kom fram í svari Davíðs
Oddssonar forsætisráðherra við fyr-
irspurn Hjörleifs Guttormssonar,
þingmanns Alþýðubandalags, á Al-
þingi í gær.
Hjörleifur taldi að einnig væri
ástæða til að koma upp stikuðum
leiðum á sandinum, bæði ferða-
mönnum til leiðbeiningar og sem
öryggisráðstöfun. Hann benti á að
ástæða gæti verið til að loka svæði
við vestanverða Skeiðará og Sælu-
húsakvísl.
Refsing milduð vegna
ruddaskapar hins slasaða
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur dæmt mann til greiðslu 50
þúsund króna sektar, þar sem
sannað þótti að hann hefði sýnt
gáleysi þegar hann tók ölvaðan
mann föstum tökum og sleppti
honum svo, með þeim afleiðingum
að sá ölvaði féll í gólfið og slasað-
ist töluvert. Dómarinn virti það
hinum ákærða til refsilækkunar,
að hinn ölvaði hafði ítrekað sýnt
honum og vinum hans ókurteisi
og ruddaskap. Öllum kröfum
mannsins um skaðabætur var vís-
að frá dómi.
Málavextir voru þeir, að hinn
ákærði var ásamt kunningjum sín-
um á skemmtistað í Reykjavík,
þegar ölvaður maður kom þar að.
Hann káfaði fyrirvaralaust á konu
í hópnum og var rekinn á brott.
Hann kom hins vegar aftur og var
enn að áreita hópinn. Þegar hann
kom í þriðja skipti greip hinn
ákærði í hann og fór með hann
nokkur skref fyrir horn á skil-
rúmi, þar sem hann sleppti honum.
Maðurinn féll í gólfið og var m.a.
deilt um hvort hinn ákærði hefði
haldið manninum í hálstaki, svo
hann hafi verið meðvitundarlaus
þegar hann skall í gólfið. Við
höggið brotnaði m.a. augnumgjörð
hægra auga, hreyfing augans
skertist og augað varð óeðlilega
djúpstætt.
Sýndi gáleysi
Hinn ákærði neitaði að hafa
verið valdur að meiðslum manns-
ins, en dómarinn taldi sannað að
hann hefði ýtt við manninum, sem
í beinu framhaldi féll við og hlaut
áverkana. Þótt ekki yrði slegið
föstu að ákærði hefði beitt miklu
afli þætti hann allt að einu hafa
sýnt af sér gáleysi með háttsemi
sinni, enda verið fullljóst að mað-
urinn var mjög ölvaður og aðstæð-
ur á þröngum ganginum með þeim
hætti að hætta væri á að hann
félli og slasaði sig við þessar að-
stæður. Þá benti dómarinn á, að
hinn ákærði hefði ekki sætt refs-
ingum, utan þess að gangast und-
ir dómsátt fyrir 13 árum fyrir of
hraðan akstur og væri refsing
hans ákvörðuð með hliðsjón af
því, auk þess sem upplýst væri
að maðurinn hefði ítrekað sýnt
ákærða og vinum hans ókurteisi
og ruddaskap áður en hinn ákærði
tók á honum.
Dómarinn, Ingibjörg Benedikts-
dóttir, vísaði frá kröfum mannsins
um bætur vegna tjóns á fatnaði
og kostnaðar vegna Iæknisvitjana,
þar sem þær voru ekki studdar
neinum gögnum.
Þá var einnig vísað frá kröfu
um tvær milljónir í bætur vegna
varanlegrar örorku, þar sem sú
upphæð byggðist aðeins á áætlun
og sama ætti við um kröfu um
einnar milljónar miska- og þján-
ingabætur. Loks var kröfu manns-
ins um greiðslu málskostnaðar vís-
að frá.
i
I
I
l
i
t
I
t
i
I
i
I
1
i
I
i
I
I
I
'H