Morgunblaðið - 27.02.1997, Blaðsíða 47
L
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1997 47
BRÉF TIL BLAÐSIIMS
Mælistika
fátæktarinnar
Frá Kjartani Helgasyni:
AF FRÉTTUM að dæma í morg-
un, boðaði „stuttbuxnadeild“
flokksins til fundar í gærkvöldi um
fátækt. Ekki átti ég kost á að
sækja hann enda aldrei nálægt
þeim félagsskap komið. Mér finnst
merkilegt að þeir skuli þó taka
þetta á dagskrá. Ekki verður séð
að þeir hafi boðið íslenskum fá-
tæklingi að hafa þar framsögu.
Ræðumenn voru nefndir Jónas
Haralz og Pétur Blöndal. Ég þekki
þessa menn ekki nema af afspum
I og má vera að þeir geti talist ann-
I ar hvor vera fulltrúi hins fátæka
manns. Mér er þó sagt að Jónas
hafi, þegar hann kom frá námi,
farið fljótt í framboð fyrir sósíal-
ista, bæði hér í Reykjavík og í
S-Þingeyjarsýslu. Þá væntanlega
til þess að boða sósíalisma. Hinn
sé sjómannssonur norðan af Siglu-
firði af þeirri alkunnu Blöndalsætt.
Báðir þessir menn hafa þó sveimað
um í íslenskum og alþjóðlegum
peningakerfum og hafa eflaust
mat sitt á fátækt og ríkidæmi
miðað við það sem þar gerist. Ef
dæma má af frétt á gufunni, sem
að vísu var ekki endurtekin í há-
deginu, þá virðist fátækt í guðs
eigin landi, eiginlega vera einungis
hjá einstæðum mæðrum, sem eru
í vandræðum að vista börn sín og
geta að sjálfsögðu ekki hlaupið frá
þeim til að vinna. Eitthvað fannst
þó Pétri þetta skondið. Ég náði
aldrei í fréttinni við hvað hann
miðar fátækt. Hitt virðist þó vera
orðið skondið þegar farið er að
deila um mismunandi laun. Er ég
þar að vitna í orð háskólaprófess-
ors, sem telur það stórskaðlegt,
ef ekki getur haldist launamismun-
ur, sem mestur að manni skilst.
Annars verði eftirspurn eftir emb-
I ættum takmarkaður og geti kostað
' landflótta í stórum stíl. Þannig
* geti orðið stór hætta á að banka-
* stjórar flýi land, ef þeir fá ekki
helst hærri laun en þeir sem lægst
eru launaðir og er þar verið að
tala í hundraðshluta. Það er víst
nokkuð til í þessu. Ekki er langt
síðan frægur læknir, sem hafði
' notið námsstyrkja hjá íslenska rík-
inu, sennilega Lánasjóði ísl. náms-
í manna, sagðist vera farinn, því
laun væru miklu hærri, sem honum
I biðust erlendis. Það er von að Þór-
| arinn V. telji 2-3% hækkun við
hæfi. Annars fari allt úr skorðum.
Innan um allan þennan fróðleik
syndir svo háttvirtur forsætisráð-
herra eins og „papa doc“ á Haiti.
Hjá honum voru menn farnir að
skjóta. Sá var einn munur þeirra.
Hvar ætla þessi ósköp að enda?
Hagfræðingur þjóðarinnar var bú-
{ inn að tilkynna að svona ætti þetta
I að vera út árið 1997. Af hveiju
eru menn að eyðileggja þetta líkan
' fyrir honum? Ætlið þið aldrei að
skammast ykkar, verkaiýðsleið-
togar? Maðurinn getur farið að
gráta og þið vitið að það er orðið
lítið um sálusorgara nú til dags.
Þeir eru allir að stunda pappírslaus
viðskipti.
Skráðu mögulegar afsakanir
fyrir því að rækta ekki heilsuna.
Ákveddu síðan hvernig þu
ætlar að sigrast á þeim.
Safnaóu 5 hollráóum og þú færó 10Ö0 kr.j;
afslátt af þriggja mánaða kortum í Mætti
og Gatorade brúsa og duft frá Sól hf.
Nú eru góð ráð dýr. Finnst mér
og varla á hvers manns færi að
benda á úrlausnir. Ég er alveg
sammála þeim, sem segja að allt
verði tekið aftur af Friðrik fjár-
mála. Eða getur verið að stærð-
fræðiþekking þeirra lærðu hafi
ekkert betri verið fyrr á árum og
árangurinn sé að koma í ljós? Spyr
sá sem ekki veit. Eitthvað er að.
Er það t.d. ekki rannsóknaratriði
fyrir samkeppnisráð, sem ioksins
hefur vaknað af vondum draumi,
en er ekki alveg komin til ráðs,
að kíkja þó ekki væri nema á aug-
lýsingu Flugleiða þar sem þeir
gefa strax útsöluafslátt upp á ísk.
6.000 fyrsta dag sölunnar. I gamla
daga var leyft að stunda slíkar
útsölur aðeins á vissum tímabilum
á árinu. Nú eru útsölur á hverjum
degi og menn farnir að tala um
aðalútsölur o.s.frv. Þá eru gáfu-
mennimir farnir að bjóða rað-
greiðslur til 24 mánaða eða jafnvei
þriggja ára. En aðrir hæstu vexti
í 10 daga og svo mætti lengi telja.
Hvar ætlar þetta að enda? Eða er
þetta allt bara góðærið að
blómstra? Þá eru menn að færa
ýmis fyrirtæki á silfurfati til einka-
geirans. Sumir hafa orðið að biðja
um aðstoð i lífsins ólgusjó, en aðr-
ir láta sér nægja tapið eins og
Eimskip og Nýherji. A maður von
á nýjum afslætti eða frádrætti eða
hvað þeir vilja nefna þetta við
skattalögin nýju? Er von að manni
dámi og einhveijir séu ruglaðir?
Það virðist vera eiginlega það eina,
sem er eftir af íslensku efnahags-
lífi, það eru lukkuhjólið hans
Hemma, gullkista háskólans, bingó
og lottó og hvað það nú heitir.
Þetta getur gengið einhvern tíma,
sýnist mér. Rúllan er mikil og svo
er stundum sem vinningurinn
gengur ekki upp o.s.frv. Mér skilst
að fjármálaráðherra sé farinn að
stunda einhvers konar slíkan rekst-
ur til að bjarga ríkissjóði fyrir utan
að selja eignir. Jafnvel sýnist mér
stutt í að Ingibjörg Sólrún fari að
reyna þetta líka. Annars er hún
greind, að venju. Hún fær víst ein-
hveija skatta af þessu. Hve mikinn
hundraðshluta veit ég ekki.
Að lokum myndi ég svo segja
eins og maðurinn endaði ræðu sína
út í hött: Væri ekki ráð að senda
þeim Jónasi og Pétri smásjá? og
jafnvel fleirum.
KJARTAN HELGASON,
Langholtsvegi 184, Reykjavík.
| Staðgreiðsluverð:
9.800 kr.
húsgögn
Ármúla 44 • sími 553 2035
Bjargar bjórinn einhverju?
Frá Halidóri Kristjánssyni:
ÞAÐ eru nokkrar vikur síðan ég
var að hlusta á umræðuþátt, einn
af mörgum sem háðir eru í fjölmiðl-
um hlustendum til upplýsingar. Þar
var verið að ræða um áfengismál
og kom fram sú skoðun að með-
ferð íslendinga og neysla áfengra
drykkja hefði mjög batnað síðan
áfengi bjórinn var leyfður. Það var
fullyrt án þess að nánari greianr-
gerð fylgdi.
Nú er það svo að mér finnst
ýmislegt benda til annarrar niður-
stöðu. Því finnst mér tilfinnanlega
vanti að rökstyðja þessa skoðun
um bætta meðferð áfengis. Því eru
þessi orð skrifuð til að ganga eftir
umræðu og lýsa eftir rökum þeirra
sem telja að eitthvað hafi snúist
til betri vegar í meðferð áfengis
hér á landi eftir að bjórinn var
leyfður.
Það er nefnilega ýmislegt sem
bendir til annars.
Fyrst er að hugleiða hvort neysl-
an hefur minnkað eða aukist. Éft-
ir því fer nú hvort ástandið batnar
eða versnar. Það áfengi sem lög-
lega er drukkið fer vaxandi. Og
ég held að það séu engin rök fyrir
því að ólöglega neyslan hafi minnk-
að stórum.
Um það getum við lítið fullyrt.
Þó vitum við að verulegt brugg
hefur verið stöðvað og raunar að
eitthvað hefur frá þeim komist út
á markaðinn. Fjarri sé það mér
að taka upp einhveijar ágiskunar-
tölur frá útlöndum og hugsa sér
að það áfengi sem finnst og næst
sé einhver ákveðinn hundraðshluti
þess sem selt er utan við lög og
rétt, sama hlutfall ár frá ári.
Það er margs að spyija. Telja
menn að neysla áfengis hafi verið
minnkandi síðustu ár væri gott að
heyra við hvað það styðst.
Hefur dregið úr þörf fyrir að
komast í meðferð á hjálparstofnun-
um vegna drykkjufýsnar?
Það er nú öðru nær. Aldrei
meiri aðsókn. Fleiri og yngri biðj-
ast nú hjálpar.
Hvað er þá að segja um dagfar
og hætti?
Er það aflagt að kaliað sé á lög-
reglu að koma í heimahús til að
hindra voðaverk og ýmiss konar
óhæfu?
Fækkar manndrápstilraunum á
og kringum vínveitingastaði?
Og hvað er um akstur ölvaðra?
Fækkar þeim verulega sem hætta
lífi sjálfra sín og ananrra með slíku
gáleysi?
Einu gildir hvar borið er niður
og hvert litið er. Ástandið batnar
ekki. Það versnar yfirleitt.
Hvað er það sem bendir til að
meðferð áfengis hafi batnað eftir
að bjórinn kom?
Þó eru til ljósir blettir í áfengis-
málum. Þegar mæld er neysla
unglinga kemur í ljós að 14 ára
unglingar eru bindindissamari nú
en sá aldurshópur var fyrir nokkr-
um árum. Það sannar að bindindi
er eina forvörnin. Og það sýnir
okkur hvar og hvernig á að vinna.
Þegar þetta er skrifað eru
fréttamenn útvarpsstöðva að segja
ógnarfréttir austan af íjörðum þar
sem óður maður veldur stjórtjóni
með gaffallyftara. Fréttina enda
þeir með því að segja að ekki liggi
fyrir hvers vegna maðurinn tryllt-
ist. Þó höfðu þeir sjálfir sagt í
upphafi að maðurinn var ölóður.
Það er kjarni málsins.
Auðvitað hefur eitthvað orðið til
að ergja manninn. En ógæfa hans
lá í því að hann hafi neytt áfengis
og þar með brotið niður varnir
heilbrigðs manns. Dómgreind og
hófsemi brugðust svo sem oft vill
verða þar sem áfengi er annars
vegar. Það réð úrslitum. Því er það
kjarni málsins að maðurinn var
ölvaður. Ódrukkinn hefði hann
metið stöðuna öðruvísi. Enginn
ódrukkinn hefði hagað sér svona.
Þetta sýnir okkur kjarna máls-
ins. Ungu fólki þarf að verða ljóst
að áfengi er eitur sem á það til
að breyta persónuleika neytenda
sinna og lama heilbrigða dóm-
greind og þar með siðferðisgrun-
dvöll venjulegs fólks.
HALLDÓR KRISTJÁNSSON,
Leifsgötu 6.
IAÐS1NS
mr
Sunnudaginn 9. mars gefur Morgunblaðið út hinn árlega blaðauka Fermingar, en um
4 þúsund ungmenni verða fermd nú í lok marsmánaðar og í aprílmánuði.
Er þetta í áttunda sinn sem slíkur blaðauki er gefínn út með uppiýsingum á einum
stað um allt það sem viðkemur undirbúningi fermingardagsins.
f blaðaukanum verður m.a. rætt við fermingarböm og foreldra um undirbúninginn og
fermingardaginn. Fjallað verður um fatnað, hárgreiðslu,
veisluna ásamt uppskriftum af mat og kökum, skreytingar á fermingarborðið, fermingargjafir og
gefnir minnispunktar varðandi fermingarundirbúninginn.
Auk þess verður fjallað um fermingar íslenskra bama erlendis, tekin verða tali fermingarböm
fyrr og nú, skoðaðar gamlar fermingarmyndir ásamt fleiru.
Allar nánari upplýsingar veita starfsmenn auglýsingadeildar
í síma 569 1171 eða með símbréfí 569 1110.
Skilafrestur auglýsingapantana
er til kl. 12.00 mánudaginn 3. mars.
- kjarni málsins!