Morgunblaðið - 27.02.1997, Blaðsíða 60
OPIN KERFI HF.
Sími: 567 1000
HPVécö'3**'
<o>
AS/400
Mikið úrval
viðskiptahugbúnaðar
<33> NÝHER3I :
MORGUNBLADW, KRINGLAN I, 103 REYKJAVJK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBUSCENTRUM.IS / AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI 1
FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
ÞAÐ hefur verið umhleypingasamt á Aust-
urlandi undanfarnar vikur eins og víðar á
landinu. Mikil snjókoma var t.d. á Eskifirði
Morgunblaðið/RAX
og því var að mörgu leyti hentugast fyrir
þá sem þurftu að sinna erindum utandyra
að fara fótgangandi um bæinn.
E1 á Eskifirði
ÚA segir
upp starfs-
« fólki
ÚTGERÐARPÉLAG Akureyringa
ætlar um næstu mánaðamót að
segja upp vinnu- og greiðslufyrir-
komulagi starfsfólks landvinnslu
félagsins á Akureyri. Aðgerðirnar
eru hluti af gagngerri endurskipu-
lagningu á landvinnslu félagsins.
Ákveðið hefur verið að fækka
starfsfólki í þjónustudeildum og
skrifstofu um 19.
Guðbrandur Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri ÚA, sagði að teknar
yrðu upp viðræður við starfsfólk
um breytingar á bónuskerfi og
stefnt væri að því að ljúka þeim
fyrir lok aprílmánaðar. Hann sagði
að afkoma í landvinnslu hefði verið
slæm síðustu misserin og nauðsyn-
legt væri fyrir fyrirtækið að bregð-
ast við því.
Björn Snæbjörnsson, formaður
Verkalýðsfélagsins Einingar, sagð-
ist ekki hafa fengið upplýsingar
um hvaða breytingar fyrirtækið
vildi gera á samningum við starfs-
fólk. Ekki hefði verið óskað eftir
viðræðum við félagið, en viðbrögð
þess við áformum fyrirtækisins
kæmu í ljós þegar þær hæfust.
■«-j* ______________________
■ Stefnt að nýjum/14
Rafiðnaðarmenn samþykkja verkfall og taka upp prósentukröfur
Samkomulag um til-
færslu úr bónuskerfum
Aðilar segja eina hindrun úr
veginum en ágreiningur um
launabreytingar er óleystur
SAMNINGANEFNDIR vinnuveit-
enda og Verkamannasambandsins
náðu í gær samkomulagi um að-
ferðir við að færa hluta af bónus-
greiðslum fiskvinnslufólks að
taxtakaupi. Enn er þó óleystur
ágreiningur um launabreytingar og
verður tekist á um þau mál á næstu
dögum. Fulltrúar deiluaðila eru
sammála um að ein hindrun sé nú
úr veginum en samkomulagið snú-
ist þó aðeins um tæknilega út-
færslu á breytingum á launakerf-
unum.
Miðstjórn og samninganefnd
Rafiðnaðarsambandsins hefur
samþykkt að setja sameiginlegar
launakröfur iandssambanda ÁSI
um krónutöluhækkun launa til hlið-
ar og fara eigin leiðir í kjaraviðræð-
unum. „Við viljum fá prósentu-
hækkanir. Þar er um að ræða tölu-
vert hærri upphæðir. Menn hafa
talað um 6-7% hækkun á ári,“ seg-
ir Guðmundur Gunnarsson, for-
maður Rafiðnaðarsambandsins.
Verkfall samþykkt með öllum
greiddum atkvæðum
Rafiðnaðarmenn sem starfa hjá
Reykjavíkurborg samþykktu í gær,
fyrst verkalýðsfélaga, með öllum
greiddum atkvæðum, boðun verk-
falls sem á að hefjast á miðnætti
9. mars. Ef vinnustöðvunin hefst
nær hún m.a. til Rafmagnsveitu
Reykjavíkur, Sjúkrahúss Reykja-
víkur, Hitaveitunnar og Vatns-
veitunnar auk Vélamiðstöðvar
borgarinnar. Á kjörskrá voru 97
félagsmenn. 78 eða 80,4% tóku
þátt í atkvæðagreiðslunni og sam-
þykktu þeir tillögu samninganefnd-
arinnar um verkfallsboðun með öll-
um greiddum atkvæðum.
„Þessi niðurstaða staðfestir það
sem ég hef áður sagt að menn
hafa fengið sig fullsadda og eru
mjög ósáttir við gang mála og vilja
nú fá að sjá niðurstöður," segir
Guðmundur.
VSÍ telur verkbönn
koma til greina
Formannafundur VMSÍ skoraði
í gær á aðildarfélög að hefja undir-
búning að boðun verkfalla. Þórar-
inn V. Þórarinsson, framkvæmda-
stjóri VSÍ, segir að ef verkföll skelli
á 10. mars gætu þau orðið víðtæk
og langvinn. „Ég fæ ekki séð að
Vinnuveitendasambandið láti
keðjuverkföll stöðva lungann úr
atvinnurekstrinum án þess að
bregðast við því. Verkbönn eru eitt-
hvað sem við hljótum að skoða ef
þessar aðstæður skapast,11 segir
hann.
■ Rafiðnaðarmenn/4
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
RAFIÐNAÐARMENN hjá Reykjavíkurborg greiða atkvæði um
verkfall á hádegi í gær í húsnæði Rafmagnsveitu Reykjavíkur.
Borgarnes
Stal vöru-
bíl og ók
langan veg
VÖRUBÍL var stolið frá Borgar-
verki hf. í Borgamesi í fyrrinótt
þar sem hann stóð við hús fyrir-
tækisins við Sólbakka.
Svo virðist sem þjófurinn hafi
þurft að komast til Grundarfjarðar
en átt í erfíðleikum með að kom-
ast leiðar sinnar því að þar fannst
bíllinn í gær óskemmdur.
Ekki er ljóst hver var þarna á
ferð, en málið er í rannsókn hjá
lögreglunni í Borgarnesi. Af vegs-
ummerkjum að dæma hefur þjóf-
urinn notað skrúfjárn til að koma
bílnum í gang og ekið þannig til
Grundarfjarðar um nóttina.
Grunur leikur á að sami aðili
hafi unnið skemmdir á öðrum
vörubíl í eigu Borgarverks, en
hann stóð einnig við Sólbakka.
Rúða í bílnum var brotin.
Kaupmannasamtök íslands senda kaupmönnum áskorun
Enga tékka án debetkorta
KAUPMANNASAMTÖK íslands
hafa hafa beint því til allra kaup-
manna og annarra smásala að
hætta algjörlega viðtöku tékka frá
einstaklingum frá 1. mars nema
þeir framvísi debetkorti með mynd.
Benedikt Kristjánsson, formað-
ur Kaupmannasamtakanna, segir
að þótt mikið hafi dregið úr út-
gáfu ávísana eftir tilkomu debet-
korta hafi ábyrgð banka á eigin
ávísunum ekki aukist.
íslandsbanki ábyrgist tékka
upp að 10 þús. kr. en aðrir bank-
ar ábyrgjast því aðeins tékka að
skráð sé númer debetkorts. Kaup-
menn hafa óskað eftir því að
bankarnir og sparisjóðir skyldi
alla tékkareikningshafa til að hafa
debetkort með mynd af sér fyrir
1. mars en eftir þann tíma verði
ekki tekið við tékkum án debet-
korta. Þeir hafa, að sögn Bene-
dikts, ekki fengið viðbrögð.
Benedikt segir að þrátt fyrir
að dregið hafi úr útgáfu tékka
verði kaupmenn enn fyrir umtals-
verðu tjóni vegna fólks sem greiði
með tékkum án debetkorta. Því
valdi m.a. svokallaður 10 daga
skilafrestur banka á tékkum, sem
þýði að 10 dögum eftir að kaup-
maður leggur inn tékka getur
hann átt von á að honum verði
skilað.
Benedikt segir að kaupmenn
muni áfram vinna að því að fá
banka og sparisjóði til að taka á
sig aukna ábyrgð á tékkum.