Morgunblaðið - 27.02.1997, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 27.02.1997, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ MINIMINGAR FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1997 41 CECILIA CAMILLA HELGASON + Cecilía Camilla Helgason fædd- ist í Reykjavík 13. október 1902. Hún lést á Sjúkrahúsi Akraness 12. febr- úar síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Dómkirkj- unni 24. febrúar. Fjöldi ára er liðinn frá því að við Cecilía Helgason, hún Cilla frænka kynntumst. Við vorum nágrannar í Tjamargötunni frá því að ég flutti þangað smábam. Og alla tíð höfum við verið andlegir nágrann- ar. Hún gladdi mig alltaf. Ég man eftir því að þegar ég var lítill áttu allir von á að Cilla tæki upp á einhveiju, sem öðmm datt ekki í hug. Systur hennar og frænkur þurftu oft að ræða það saman vel og lengi. Ég frétti líka seinna að Borg- firðingar urðu einatt hissa eftir að Cilla flutti í Þverárhlíðina. Ein sagan þaðan var frá því að hún hafði vetursetu í Borgarnesi og auglýsti kennslu á einum síma- staur eða tveimur. „Þetta hlýtur að vera vitlaus manneskja," varð fólki að orði þegar það sá auglýs- inguna. Cilla bauð upp á kennslu í vélritun, dönsku, ensku, bók- haldi, píanóleik og íslensku ef ekki fleiru. Það átti fyrir Borgfirðing- um að liggja að komast að því að þessi kennari var hreint ekki vit- laus, heldur kunni allt sem hún bauð upp á og meira til. Þegar þetta var fékk hún fáa nemendur, ef nokkra. En seinna ritvélavæddi hún hálfa sveitina, kenndi margar námsgreinar og auðgaði lífið í héraðinu með persónuleika sínum, margþættum hæfileikum og hjart- næmu viðmótinu, sem ekkert fékk staðist. Endur fyrir löngu man ég eftir því að sú frétt barst frændgarðin- um í Tjarnargötunni til eyrna að nú væri Cilla búin að kaupa jörð. „Ekki spyr ég að honum Davíð,“ sagði einhver í Þverárhlíðinni og var hneykslaður á því að Davíð á Arnbjargarlæk hefði prangað eyðikoti inn á hrifnæma biskups- dótturina. En Davíð vissi hvað hann söng. Þótt búskaparleiðin væri kannski þyrnum stráð fyrir Reykjavíkurdömuna sem var farin að nálgast fimmtugt, endaðiCilla á því að verða mektarbóndi á Lind- arhvoli ásamt Guðbirni manni sín- um Jakobssyni og seinna syninum Jóni. „Nú er bærinn hruninn ofan á þau,“ fréttist seinna til Reykjavík- ur. Þá bjuggu þau Cilla og fjöl- skyldan í torfbænum sem hún fékk með í kaupunum. Bærinn hafði staðið auður um tíma.Cilla flutti þar inn með fjölskylduna sína og mahónímublurnar biskupsins. Eft- ir þetta bjó Cilla fáeina næstu vetur í Borgarnesi, þar sem aug- lýsingin góða birtist á símastaurn- um. Hún lét ekki deigan síga í lífs- baráttunni og brá fyrir sig hverju sem nauðsynlegt var í búskapnum. „Verst að ég er eiginlega hálf- hrædd við kýr, eins og ég kann vel við þær,“ sagði hún einhverju sinni. En Cilla gat aflað búinu öðruvísi. Hún fór um fjölda ára í leiðangra um landið og kenndi vélritun í flestum bæjum og þorp- um þessa lands. Hún skildi ekki einasta eftir sig vélritunarkunn- áttu, heldur eignaðist hún flesta nemendur sína að vinum. En kannski var mestur auðurinn sam- heldni fjölskyldunnar, sem stofnað var til þegar Cilla stóð á fertugu. Hún missti ekki af neinu tækifæri til að minnast aðdáunar sinnar á Guðbirni heitnum og ekki var síðra mat hennar á syninum Jóni, fósturdótturinni Sigurbjörgu og barnabörnunum. Hún átti líka því láni að fagna að öll fjölskyld- an hafði erft eða lært hennar einstaka já- kvæða lífsviðhorf auk þess sem þau hafa flest náð frábærum árangri hvert á sínu sviði, í námi, starfi og öðru því sem þau hafa tekið sér fyrir hendur. Minnisstæður verður mér síð- asti fundur okkar Cillu fyrir rúm- um tveim árum. Hún var þá hætt öllum ferðalögum, orðin blind, ör- vasa og rúmföst á sjúkrahúsinu á Akranesi. En geðslagið hafði ekki breyst. Við hjónin komum inn á stofuna og bárum strax kennsl á Cillu þar sem hún lá. Ég heilsaði frænku minni og sagði til okkar: „Heldurðu að ég þekki þig ekki? Mikið ertu nú fallegur, elskan mín,“ sagði hún og hlýjaði mér í eitt skiptið enn um hjartaræturn- ar. Ég hugsaði líka að kannski þyrftu viðmælendur mínir að verða blindir til að geta að fullu metið útlitið. Cilla sýndi þarna ennþá einu sinni þá verðmætu náðar- gáfu, sem alltaf hefur glatt um- hverfíð þótt stundum hafi sumum orðið hverft við af því sem hún sagði og gerði. Ég er ekki í vafa um það að Cilla Helgason er nú þegar byijuð að setja svip sinn á nýtt tilveru- stig og lífga þar upp. Við gömlu nágrannamir í Tjarnargötunni og fjölskyldur okkar sendum Lindar- hvolsfólkinu hjartanlegar kveðjur okkar með innilegri hluttekingu. Páll Asgeirsson. Mig langar að minnast látinnar nágrannakonu minnar Cecilíu Camillu Helgason fv. húsfreyju að Lindarhvoli í Þverárhlíð. Mörgum fannst það ævintýri lík- ast þegar hún Cilla gerðist jarðar- eigandi uppi í sveit og von bráðar farin að stunda búskap. Hún Cilla okkar var fædd og uppalin í Reykjavík, sannkölluð Reykjavík- urdama og heimsborgari, hún var ekki bara Kvennaskólagengin, heldur fékk hún líka menntun í Danmörku og Englandi. Cilla var afbragðs góð vélritunardama og kenndi vélritun í Reykjavík og víða úti á landsbyggðinni. Einnig kenndi hún á píanó á Reykjavík- urárum sínum, hún talaði vel dönsku og ensku og kenndi þau tungumál í einkatímum. Cilla var alin upp í umhverfi mennta og menningar eins og það gerðist best á þeim tíma, enda var biskups- heimilið annálað menningarheimili. Þegar Cilla vann á embættisskrif- stofu föður síns, þótti hún með flinkustu skrifstofudömum i Reykjavík, enda samviskusöm og hæfileikarík. Segja má að lífssýn Cillu hafi verið nokkuð ólík því sem gerðist til sveita á þessum tíma og jafnvel síðar. Áratuga kynni við fólkið á Arnbjargarlæk hafa staðið síðan 1933, en hún var fyrsti dval- argesturinn sem mætti þegar sum- arhótelið var opnað þar. Samskipt- in við Cillu verða þó ekki náin og tíð fyrr en hún sest að í sveitinni með fjölskyldu sína. Hún festi kaup á eyðijörð, Lækjarkoti, næsta bæ við Arnbjargarlæk. Þarna var hún öll sumur með son sinn og fóstur- dóttur og oft voru hjá henni kunn- ingjakonur með börn. Guðbjörn eiginmaður hennar vann í Reykjavík, hann kom upp- eftir til fjölskyldu sinnar um flestar helgar og svo í sumarfríum. Ekki var nútímaþægindum fyrir að fara í gamla torfbænum í Lækjarkoti, hann var þó timburklæddur að inn- an. Aldrei heyrðist æðruorð hjá Cillu, en Guðbjörn var úr sveit og vanur sveitastörfum. 1953-1954 fer að bera á alvarlegum hugleið- ingum þeirra hjóna að setjast að í sveitinni og hefja búskap. Þau voru bæði hlaðin ótrúlegum vilja- styrk og áræði. Þarna var stórkostlegt verkefni sem lá framundan, það þurfti að byggja allt uppfrá grunni, íveru- hús, peningshús og ræktun. Hér voru ekki bara orðin tóm, heldur hafist handa. Þetta var sannkallað grettistak, þegar horft er til þess að þau hjónin voru bæði komin um miðjan aldur. íbúð sína í Reykjavík seldu þau til að fjármagna fram- kvæmdir. Og viti menn, 1955 var risið myndarlegt íbúðarhús í Lind- arhvoli og skúrbygging sem hýsti tvær kýr. Bústofninn var smár í fýrstu en áfram var haldið við uppbyggingu staðarins og búið stækkaði. Þetta var mikið erfiði og áraun, en margt þó til ánægju. Jón sonur þeirra og Guðrún tengdadóttir koma „heim í heiðar- dalinn" 1965, taka við jörð og búi og þá breytist allt til betri afkomu. Cilla og Guðbjörn höfðu sitt eigið heimili í Lindarhvolshúsinu. Þarna gátu þau slappað af og áttu góða daga. Guðbjörn maður Cillu deyr 1981, eftir langvarandi vanheilsu. Cilla var áfram í Lindarhvoli í umsjón og skjóli sonar síns og tengdadóttur. Umhyggja þeirra og nærfærni við gömlu konuna var alveg til fyrirmyndar. Eftir að heilsu Cillu fór alvarlega að hraka, var hún um tíma á Dvalarheimilinu í Borgarnesi og síðustu ár á öldrun- ardeild Sjúkrahúss Akraness. Það var alltaf gaman að fá Cillu í heim- sókn, hún var hress og kát og spjallaði um alla heima og geima, sagði sögur úr æsku sinni og gerði grín að sjálfri sér bæði í þátíð og nútíð. Hún hafði mjög skemtilega frásagnarhæfileika. Einnig var sérlega ánægjulegt að skreppa í kaffi til Cillu og Guðbjörns. Þá spilaði hún oft á píanóið okkur til ánægju. Ég, sem þessar línur rita, kynnt- ist Cecilíu Helgason í júlí 1943, þegar hún kom á fæðingardeild Landspítalans til að fæða son sinn. Þá datt hvorugri okkar í hug að við ættum eftir að lenda hlið við hlið sem sveitakonur uppi í Borgar- firði, en svona fór nú samt. Lindar- hvolsfjölskyldan er í mínum huga og fjölskyldu minnar mjög sannir og traustir vinir. Að lokum kveð ég vinkonu mína, Cillu Helgason, með hjartans þökk fyrir alla vin- semd við mig og fjölskyldu mína. Guð blessi Cillu. Aðstandendum hennar votta ég og fjölskylda mín innilega samúð. Brynhildur Eyjólfsdóttir, Arnbjargarlæk. GUÐNISIGURÐUR INGVARSSON + Guðni Sigurður Ingvarsson fípHdist 21. fphn'iar síðast- fæddist 21. febrúar síðast- liðinn. Hann lést samdægurs og fór útför hans fram í kyrr- Þey. Sonur okkar er látinn og söknuð- urinn er mikill og sorgin sár. Við fáum ekki að halda þér í örmum okkar og sjá þig vaxa úr grasi. Við hefðum viljað gefa þér alla okkar ást og umhyggju en nú ertu í faðmi ástvina okkar í himnaríki, hjá Guði og englunum. Guð blessi þig, ástin okkar litla. Þínir foreldrar, mamma og pabbi. t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÓLÖF ÁRNADÓTTIR, Hraunbraut 47, Kópavogi, lést á Landspítalanum 26. febrúar. Marvin Hallmundsson, Hallmundur Marvinsson, Guðrún Jónsdóttir, Gyða María Marvinsdóttir, Vilmundur Tryggvason, Eysteinn Marvinsson, Guðrún Waage og barnabörn. t Ástkær faðir okkar, ALFREÐ KRISTINSSON bifreiðastjóri, Fálkagötu 28, Reykjavík, lést að kvöldi 24. febrúar. Jarðarförin auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Bjarni Geir Alfreðsson, Kristinn Alfreðsson, Sigríður Alfreðsdóttir. t Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÞORSTEINN GUÐBJÖRNSSON, Brunngötu 4, Hólmavík, sem lést 17. febrúar sl., verður jarðsunginn frá Hólmavíkurkirkju laugardaginn 1. mars kl. 14.00. Aðalbjörn Þorsteinsson, Ingibjörg Sigtryggsdóttir, Guðmundur Magni Þorsteinsson, Lilja Björk Ólafsdóttir, Birna Katrín Þorsteinsdóttir, Sjöfn Þorsteinsdóttir, Hjörtur Númason, Bjarni Hákon Þorsteinsson, Helga Hanna Þorsteinsdóttir, Steinunn Jóhanna Þorsteinsdóttir, Reynir Björnsson og barnabörn. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, SVEINBJÖRN HJALTASON, Álfheimum 38, Reykjavík, verður jarðsunginn frá kirkju Filadelfíu- safnaðarins, Hátúni 2, föstudaginn 28. febrúar kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Trúboðasjóð Fíladelfíu. Berit Gutsveen, Klara Sveinbjörnsdóttir, Helgi Valgeirsson, Sigríður Sveinbjörnsdóttir, Aðalgeir Olgeirsson, barnabörn og barnabarnabörn. t JÓNAS PÉTURSSON fyrrverandi alþingismaður, Lagarfelli 8, Fellabæ, sem lést þriðjudaginn 18. febrúar, verð- ur jarðsunginn frá Egilsstaðakirkju laug- ardaginn 1. mars kl. 14.00. Vandamenn. t Okkar ástkæri, GEIR FRIÐBERGSSON hjúkrunarfræðingur, verður jarðsunginn frá Digraneskirkju föstudaginn 28. febrúar kl. 13.30. Hólmfríður Geirdal Jónsdóttir, Bergur Geirsson, Björk Guðjónsdóttir, Össur Geirsson, Vilborg Jónsdóttir, Saga Össurardóttir, Freyþór Össurarson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.