Morgunblaðið - 27.02.1997, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 27.02.1997, Qupperneq 40
40 FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ SIGURÐUR SIG URÐSSON + Sigurður J. Sig- urðsson fædd- ist í Hnífsdal 16. apríl 1894. Hann lést á Kumbaravogi 18. febrúar síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Sigurður Jónasson, sjómað- ur, f. 12.6. 1866, d. 5.7. 1965, og Ingi- björg ívarsdóttir, d. 1905. Systkini Sigurðar eru Lárus Mikael, f. 1890, d. 1910; Arni, dó níu ára gamall; Stein- unn, f. 1891, d. 1985; Guðjón Gísli, f. 1895, d. 1982; Halldór, f. 1900 (látinn); Helga Pálína, f. 1901, d. 1987; og Jónas, f. 1904, d. 1962. Hálfsystkini Sig- urðar samfeðra eru: Lárus Ingvar, f. 1911, býr í Reykja- vík; Jón Arinbjörn, f. 1914, d. 1936; Karl Kristján, f. 1918, býr í Hnífsdal, Ásgeir, f. 1920, d. 1941, María Elisabet, f. 1923, býr í Hafnarfirði; og Salomon Þorlákur, f. 1930, býr á ísafirði. Hinn 10. desem- ber 1920 kvæntist Sigurður Sæunni Sigurðardóttur, f. 17.5. 1897, d. 12.12. 1981. Foreldrar Sæunnar voru Sig- urður Jóhannesson og Þorgerður Jón- atansdóttir. Sigurð- ur og Sæunn byij- uðu búskap í Hnífs- dal og fluttu til Reykjavíkur árið 1949. Þau voru barnlaus en tóku í fóstur bróðurdótt- ur Sæunnar, Þórunni Jónas- dóttur, f. 25.3. 1917, d. 6.11. 1979, og ólst hún upp hjá þeim. Sigurður stundaði sjó- mennsku og bræðslustörf í Hnífsdal. Eftir að hann flutti til Reykjavíkur starfaði hann hjá Ríkisskipum, þar til hann hætti störfum. Utför Sigurðar verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Föðurbróðir minn er látinn saddur lífdaga, 102 ára. Siggi, eins og hann var alltaf kallaður, var ættaður úr Dölun- um, en ólst upp á ísafirði og í Hnífsdal, bjó hann þar mikinn hluta ævi sinnar ásamt konu sinni Sæunni Sigurðardóttur, sem er látin fyrir nokkrum árum. Þau ólu upp eina dóttur, Þórunni Jón- asdóttur, og eru það hennar börn og eiginmaður, Jakob Guðmunds- son, sem hafa hugsað um Sigga í ellinni og reynst honum svo frá- bærlega vel að betur verður ekki gert. + Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, BJÖRN KRISTINSSON frá Hrísey, lést á dvalarheimilinu Hornbrekku í Ólafsfirði, mánudaginn 24. febrúar. Útförin fer fram frá Hríseyjarkirkju laugardaginn 1. mars kl. 14.00. Alvilda Möller, Friðbjörn Björnsson, Sigurhann Björgvinsdóttir, Jóna Björnsdóttir, Baldur Friðleifsson, Nanna Björnsdóttir, Vilhelm Björnsson, Sigurður Björnsson, Shona Björnsson, Almar Björnsson, Þórunn Björg Arnórsdóttir, Birna Birgisdóttir, Ólafur Helgi Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabörn. Eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, KRISTÍN ÓLAFSDÓTTIR, Drápuhlfð 23, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 28. febrúar kl. 10.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakk- aðir, en þeim, sem vilja minnast henn- ar, er bent á líknarfélög. Guðmundur Gíslason, Sigríður Guðmundsdóttir, Arnar Guðmundsson, Elín Fanney Guðmundsdóttir, Ásgeir Halldórsson, Ólöf Svava Guðmundsdóttir, Hlöðver S. Guðnason, barnabörn og barnabarnabörn. + Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR, Gnoðarvogi 72, Reykjavík, lést á heimili sínu 25. febrúar. Haukur Páisson, Páll Ingi Hauksson, Guðlaug Lyngberg, Sigurður Hauksson, Þórunn Lína Bjarnadóttir, Bryndís Elín Hauksdóttir, Bjarni Þór Guðjónsson, Þórir Hauksson, Valgerður Hanna Hreinsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. MINNINGAR VALDIMAR FRIÐRIK GÍSLASON Ég var oft hjá Sigga og Sæju í Hnífsdal þegar ég var átta og níu ára og betri aðbúnað gat ég bara ekki haft, þau vildu allt gera til að mér þætti dvölin sem best og skemmtilegust. Þarna áttu þau myndarheimili, hann var bræðslu- maður og hún vann í fiski. Augasteinninn þeirra, Þórunn, var þá 17 ára eða svo. Siggi var svo fyndinn og skemmtilegur og léttur. Oftar en ekki var hann með mig á háhesti eða í boltaleik, en Sæunn var akkeri heimilisins, svo hagsýn og reglusöm. Þau fluttu svo suður til Reykja- víkur og eftir það missti ég mikið samband við þau. Ég held samt að þau hafi verið svolítið eins og afskorin blóm sem vantar ræturnar á, sérstaklega hann, sem fann litla fótfestu í borginni. Fósturdóttir þeirra lést langt fyrir aldur fram. En þá komu afabömin og tengdabörn og gerðu allt sem þau gátu til að hjálpa. Þau hjónin eyddu síðustu æviár- um í Kumbaravogi og þar lést Sæunn fyrir nokkrum árum. Ég gat því miður ekki heimsótt frænda minn nógu oft þar sem ég bjó á Súgandafirði, en Ragnar og Heiða kona hans gerðu oft góðar ferðir til hans og fyrir það er ég þakklát. Ég óska frænda mínum, honum Sigga, góðrar heimferðar og efast ekki um að hún Sæja stendur á ströndinni tilbúin að leiða hann gegnum göngin eins og hún gerði í lifanda lífi. Siggi minn, far þú í friði. Takk fyrir mig. Ingibjörg Jónasdóttir frá Súgandafirði. ■+■ Valdimar Friðrik Gíslason ' fæddist í Hólsbæ á Stokks- eyri 30. september 1908. Hann lést í Reykjavík 28. janúar síð- astliðinn og fór útför hans og Kristjönu Þorsteinsdóttur, eiginkonu hans, fram frá Frí- kirkjunni í Reykjavík 7. febr- úar. Þakkarorð til Valdimars Gísla- sonar er mér ljúft að setja hér nið- ur á blað því það er af miklu að taka og verður því að segja í fáum orðum og koma kjamanum fram. Ég á Valdimari mikið að þakka allt frá því að ég lauk námi í kjöt- iðnaði og eins meðan ég var for- maður F.Í.K. Það var alltaf hægt að leita ráða hjá honum og ráða- góður var hann. Veg kjötiðnaðar vildi hann alltaf sem mestan og vann að því að gera allt sem hann gat til að svo mætti vara. Til þess að lífga upp á aðalfundi félagsins setti hann upp sýningu á þeim vörum sem heildverslunin hans hafði upp á að bjóða til kjötiðnaðar- manna á sama stað og fundirnir voru haldnir og bauð til móttöku að fundi loknum. Einnig studdi hann við bakið á félaginu þegar þurfti að halda námskeið á vegum þess. Það var okkur mikils virði á sím- um tíma að það var kjötiðnaðar- maður sem setti upp heildverslun sem sérhæfði sig í að flytja inn tæki og aðrar vörur fyrir kjötiðnað- inn og ekki var verra að geta sest niður með Valdimari og þegið góð ráð varðandi það sem verið var að festa kaup á eða verið að hugsa um fyrir framtíðina, hvort sem var tæki eða skyldar vörur fyrir kjöt- iðnaðinn. Ekki var verra að það var hægt að fá veiðisögu í kaup- bæti því veiðiskap kunni Valdimar góð skil á og stundaði þá iðju eins og tími og geta leyfði. Einhveiju sinni var það að ég var að tala við hann í síma að norðan og sagði honum frá því meðal annars að ég væri nýkominn úr laxveiði og vildi hann þá vita hvar ég hefði verið að veiða og sagði ég honum það. Þá þekkti hann þetta vatnasvæði mjög vel og gat frætt mig um góða veiði- staði í því sem ég átti eftir að nýta mér vel. Þannig var Valdimar Gíslason það var sama hvar var borið niður, hann var vel heima og fróður um hin ýmsu mál og gerði sér far um að miðla því til annarra. Varð ég þeirrar ánægju aðnjótandi að vera á meðal þeirra og vil ég færa miklar þakkir fyrir. Því miður gat ég ekki komið þessari grein frá mér fyrr þar sem ég var fjarri heimaslóðum en betra er seint en aldrei. Ég frétti það síðan að kona Valdimars hefði lát- ist stuttu á eftir honum þannig að það er skammt stórra högga á milli í fjölskyldunni. Aðstandend- um votta ég samúð mína. Lúfar minningar um Valdimar munu lifa. Guðjón H. Finnbogason, f.v. formaður F.f .K. EINAR KRIS TJÁNSSON + Einar M. Krist- jánsson var fæddur í Reykjavík 2. október 1926. Hann lést á Sjúkra- húsi Reykjavíkur 4. febrúar síðastlið- inn. Foreldrar hans voru hjónin Krist- ján Ebenesersson, Vestfirðingur að ætt, og kona hans Sigríður Einars- dóttir, ein hinna nafnkunnu systk- ina frá Blómstur- völlum við Bræðra- borgarstíg í Reykjavík. Einar var menntaður garðyrkju- fræðingur. Hann kvæntist eftirlifandi konu sinni Guðbjörgu Krist- jónsdóttur 7. maí 1948. Þau settu saman heimili sitt í Reykjadal í Mos- fellssveit og eign- uðust fjögur mann- vænleg börn. Krist- ján er elstur og er slökkviliðsstjóri á Selfossi, Bryndís, húsmóðir í Reykja- vík, Daði Þór, skólastjóri Tón- listarskólans í Stykkishólmi, og Pétur, nemandi í Kaupmannahöfn. Útför Einars fór fram 13. febrúar síðastliðinn og var hann jarðsettur að Lágafelli í Mosfellsbæ. Einar Kristjánsson átti sitt ævi- starf í Mosfellssveit. Fyrst sem garðyrkjustjóri í Reykjadal og síð- ar bóndi þar til 1967. Eftir það varð hann starfsmaður við skólana að Brúarlandi og Varmá til 1996. Einar á það inni hjá okkar kynslóð í Mosfellshreppi að hans sé minnst. Því miður átti ég ekki þess kost að vera við útför hans eða senda honum kveðju þá. Nú skal reynt að bæta úr því, þó að litlu leyti sé. Þegar Stefán Þorláksson hóf rekstur á nýrri, fullkominni gróðr- arstöð í Reykjadal 1948 skyldi vel til vandað. Éinar var valinn úr hópi umsækjenda, þá nýútskrifað- ur úr Garðyrkjuskóla ríkisins að Reykjum í Ólfusi. Þetta var ekki misráðið, því Einar stóð fyrir sínu og brást hvergi trausti vinar síns og vinnuveitanda Stefáns Þorláks- sonar. Eftir að Stefán féll frá 1959 og næstu ár þar á eftir breyttust aðstæður í Reykjadal. Þá breytti Einar einnig til og hóf störf hjá Mosfellshreppi. Þar skilaði hann seinni hluta ævistarfsins, eða um 30 árum sem umsjónarmaður í skólum sveitarinnar. Sporaslóðir okkar Einars lágu saman strax og hann kom í Reykjadal og þá á vettvangi Ung- mennafélagsins í félags- og íþróttamálum. Hann lét einnig mjög til sín taka í leiklistarmálum félagsins og ávallt var hann boðinn og búinn. Traustur var hann sam- starfsmaður, orðheldinn og dug- mikill. Á árunum eftir stríð taldi Ungmennafélagið Afturelding það skyldu sína að tefla manni fram í hreppsnefnd. Einar beitti sér manna mest fyrir því. Guðmundur Skarphéðinsson hafði verið fulltrúi félagsins í hreppsnefnd á þessum árum, en vildi draga sig í hlé árið 1962. Þá réð Einar mestu um það að ég tæki sæti hans. Margir góð- ir menn studdu þetta framboð, en Einar stýrði stuðningsmanna- hópnum. Listinn vann og þá hófst starf mitt sem oddviti sem stóð í tæp 20 ár samfleytt. Okkur Einari varð vel til vina. Hann var mjög framsækinn og duglegur og vináttu hans hefi ég ætíð metið mikils. Hann vann öll- um málum vel og sat um hríð í ýmsum nefndum sveitarfélagsins, ætíð jákvæður og úrræðagóður. Heimili Guðbjargar og Einars ber vott um smekkvísi og myndar- skap, börnin vel gerð og dugleg og gegna ábyrgðarstöðum. Einar var eftirsóttur til ýmissa auka- starfa og naut óskoraðs trausts samstarfsmanna á hinum ýmsu sviðum. Hann var umboðsmaður Samvinnutrygginga í Kjósarsýslu og framkvæmdastjóri Búseta á sama svæði og fleira mun hafa komið til að sinna í frístundum. í aðalstarfi Einars sem umsjón- armaður í skóla voru vinsældir hans annálaðar. Hann var traustur og trúr börnum og unglingum og á þeim hafði hann gott lag. Hann var einnig trúr sínum yfirmönnum, þeim sem stýrðu skólunum, og vann sín störf af alúð og myndar- skap. Þessi fátæklegu orð verða ekki fleiri, en við samferðarmennirnir hér í Mosfellsbæ þökkum sam- fylgdina. Við viljum heiðra minn- ingu Einars sem drengskapar- manns og votta ástvinum hans samúð við fráfall hans. Minningin lifir. Jón M. Guðmundsson. Crfisdrykkjur flO^WdMogohú/lð IralcAn-mn Sími 555-4477 Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvu- sett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 5691115, eða á netfang þess Mbl@centrum.is en nánari upplýsingar þar um má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.