Morgunblaðið - 27.02.1997, Blaðsíða 42
42 FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
RAÐAUGi YSINGAR
IÐNSKÓUNN f REYKJAVÍK
Laus störf
við ræstingar
Iðnskólinn í Reykjavík óskar eftir að ráða
fólk til ræstingarstarfa frá 1. mars 1997.
Allar nánari upplýsingar um starfið og launa-
kjör veitir ræstingarstjóri í síma 552 6240.
Iðnskólinn í Reykjavík.
Fiæðslumiðstöð
Rejigavíkur
Auglýsir lausar stöður
Langholtsskóli
Starfsmaður óskast nú þegar til starfa í
Langholtsskóia.
Starfið er fólgið í aðstoð við nemendur á
göngum og í frímínútum, gæslu í lengdri við-
veru og öðrum störfum sem til falla.
Upplýsingar veita skólastjóri og aðstoðar-
skólastjóri í síma 553 3188.
Olduselsskóli
Sérkennari eða kennari með reynslu af sér-
kennslu óskast í stundakennslu til vors.
Æskilegt er að hann geti hafið störf nú þegar.
Upplýsingar veita skólastjóri og aðstoðar-
skólastjóri í síma 557 5522.
• Fríkirkjuvegi 1 • ÍS-101 Reykjavík, • Sími: (+354)535 5000
• Fax: (+354) 535 5050 • Netfang: fmr@rvk.is
Til sölu gyllt stokkabelti
sem er tólf stokkar og pör, smíðað af Aðal-
birni Péturssyni árið 1924. Einnig doppubelti.
Upplýsingar hjá Helgu í síma 553 7496
eða 569 1230.
Aðalfundur
Omega Farma ehf. verður haldinn á Hótel
Sögu, Þingstofu A, föstudaginn 14. mars
kl. 15.00.
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Reikningur félagsins fyrir árið 1996.
3. Kosning stjórnar og endurskoðenda.
4. Önnur mál.
Reikningar félagsins, ásamt dagskrá fundar-
ins, munu liggja frammi á skrifstofu félagsins
viku fyrir aðalfund.
Stjórn Omega Farma ehf.
Flugmenn
-flugáhugamenn
Febrúarfundurinn um flugöiyggismál hefur
verið færðurtil fimmtudagskvöldsins 6. mars.
Að venju verður fundurinn á Hótel Loftleiðum
og hefst hann kl. 20.00.
Flugbjörgunarsveitin í Reykjavík,
Flugmálafélag íslands,
Flugmálastjórn,
Öryggisnefnd FÍA.
Dagsbrún - Framsókn
Félagsfundur verður haldinn í Bíóborg við
Snorrabraut fimmtudaginn 27. febrúar
kl. 13.00.
70 þúsund kr. lágmarkslaun.
Sýnum vilja íverki og fjölmennum á fundinn.
Skírteini við innganginn.
Dagsbrún - Framsókn.
Aðalf undur Árness hf.
Aðalfundur Árness hf. verður haldinn í sam-
komuhúsinu Gimli á Stokkseyri laugardaginn
15. mars 1997 kl. 11.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. grein 4.04.
í samþykktum félagsins.
2. Önnur mál, löglega fram borin.
Þær tillögur, sem hluthafar óska að leggja fyr-
ir fundinn, verða að hafa borist stjórn félags-
ins laugardaginn 8. mars nk.
Endanleg dagskrá, ársreikningur Árness hf.
og tillögur munu liggja frammi á skrifstofu
félagsins frá 8. mars og verða gögn send
þeim hluthöfum sem þess óska.
Þorlákshöfn, 24. febrúar 1997.
Stjórn Árness hf.
Skrifstofuhúsnæði
Vantar ca. 80-100 fm gott húsnæði fyrir
teiknistofu, gjarnan í námunda við Borgartún.
Áhugasamir sendi svör á faxnúmer 562 6508
eða í síma 561 3419.
Námskeið um liðveislu
FFA - fræðsla fyrir fatlaða og aðstandendur
- stendur fyrir námskeiði um liðveislu í
Menningarmiðstöðinni Gerðubergi laugar-
daginn 1. mars nk. Námskeiðið er ætlað
aðstandendum, fötluðum og öðrum, sem
áhuga hafa á að kynna sér mismunandi
möguleika á notkun liðveislu fyrir fatlaða.
Þátttökugjald er kr. 1.000 og er innifalið í
því námskeiðsgögn, hádegisverðurog kaffi.
Dagskrá:
09.00 Námskeiðið sett - dagskrá kynnt.
Ásta Friðjónsdóttir, starfsmaður FFA.
9.10 Liðveisla fyrir hverja?
Hvernig er hægt að nota liðveislu?
Þór Þórarinsson, framkvæmdastjóri
Svæðisskrifstofu Reykjaness.
10.00 Liðveisla í tómstundum.
Árni Stefánsson, Félagsmálastofnun
Reykjavíkur.
10.30 Liðveisla í tómstundum frá sjónar-
hóli notanda.
Edda Erlendsdóttir.
10.45 Kaffi.
11.00 Liðveisla frá sjónarhóli notanda.
Hugrún Dögg Þorfinnsdóttir.
11.15 Liðveisla frá sjónarhóli foreldra.
Olga B. Jónsdóttir.
11.30 Liðveisia í búsetu - frekari liðveisla.
Jóna S. Harðardóttir, Svæðisskrif-
stofu Reykjavíkur.
12.00 Matur.
13.00-13.30 Liðveisla í atvinnu.
Margrét Magnúsdóttir, Svæðisskrif-
stofu Reykjaness.
13.30 Hópavinna - liðveisla í dag -
í framtíðinni.
14.30 Kaffi.
15.00 Samantekt hópa.
15.30 Námskeiðsslit.
Vinsamlegast skráið þátttöku á skrifstofu
Þroskahjálpar í s. 588 9390 fyrir 28. febr. nk.
Bifreiðasmiðir
- réttingamenn
Kynning á Coiro-réttingabekk hjá Bíla-
sprautun Suðurnesja í Keflavík föstudaginn
28. febrúar.
Rútuferð frá íslakki hf. kl. 16.00.
íslakk hf.,
Smiðjuvegi 11E, sími564 3477.
■J Útboð
Landsvirkjun Lagnaefni
Landsvirkjun óskar hér með eftir tilboðum í
lagnaefni vegna framkvæmda við Kröflustöð
í samræmi við útboðsgögn KRA-06.
Um er að ræða afhendingu, FOB, á rörum
og tengiefni í safnæðar.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Lands-
virkjunar, Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík,
frá og með fimmtudeginum 27. febrúar 1997
gegn óafturkræfu gjaldi að upphæð kr. 1.000
með vsk. fyrir hvert eintak.
Tekið verður á móti tilboðum á skrifstofu
Landsvirkjunar, Háaleitisbraut 68, Reykjavík,
til opnunar 11. mars 1997 kl. 14.00.
Fulltrúum bjóðenda er heimilt að vera við-
staddir opnunina.
Útboð
Húsfélagið á Suðurlandsbraut 22 í Reykjavík
óskar eftir tilboðum í að fjarlægja skvett-
hraun, framkvæma steypuviðgerðir og draga
steiningu upp á alla útveggi hússins, ásamt
hreinsun og málun á gluggum og öðru tré-
verki, auk annarra verka sem lýst er nánar
í útboðsgögnum.
Helstu verkþættir og áætlaðar magntölur:
Fjarlægja allt skvetthraun u.þ.b. 1300m2
Sléttpússa og steina veggfleti u.þ.b. 1300 m2
Leggja steinhellur á vatnsbretti u.þ.b. 350 m
Hreinsa og mála glugga o.fl. u.þ.b. 3400 m
Annað sem nánar er tiltekið í verklýsingu
Sala útboðsgagna hefst fimmtudaginn
27. febrúar 1997 í Línunni hf., húsgagna-
verslun, á Suðurlandsbraut 22.
Útboðsgögn verða seld á 2.000 kr.
Opnun tilboða fer fram í fundarsal Félags
íslenskra hjúkrunarfræðinga á Suðurlands-
braut 22 (4. hæð) þriðjudaginn 11. mars
1997 kl. 15.00.
Verkinu skal lokið 31. júlí 1997.
T.R. - Ráðgjöf Jón Rafns Antonsson,
Knarrarvogi 4.
Verkfræðistofa Aðalsteins Þórðarsonar,
Suðurlandsbraut 10.
íbúð óskast til leigu
Leitum eftir 2ja-4ra herb. íbúð miðsvæðis
í Reykjavík til leigu fyrir traustan aðila.
Skilvísum greiðslum og góðri umgengni
heitið.
Upplýsingar veitir
r^n FASTEIGNA
MARKAÐURINN ehf
ÓÐINSGÖTU 4. SlMAR 551-1540, 552-1700, FAX 562-0540
Hvöt,
félag sjálfstæðiskvenna í Reykjavík,
Hvatarkonur og aðrlr velunnarar félagslns fjölmennið gleðjumst
saman vegna 60 ára afmælis Hvatar í afmælishófi i boði stjórnar
sem haldið verður í Valhöll laugardaginn 1. mars kl. 17.00-19.00.
Formaður Sjálfstæðisflokksins, Davíð Oddsson, flytur hátiðarræðu.
Veislustjóri: Þuríður Pálsdóttir. Stjórnin.