Morgunblaðið - 27.02.1997, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1997 45
FRETTIR
Formenn norrænna hægri kvenna
Þátttaka kvenna í
ákvarðanaferli mikilvæg
FORMENN norrænna landssam-
banda hægri kvenna og nokkrir
þingmenn hittust 1. febrúar sl. í
húsi Sjálfstæðisflokksins í Reykja-
vík, Valhöll. Fundir sem þessir eru
árlegur viðburður. Þeir eru haldnir
til skiptis í hvetju Norðurlandanna
og að þessu sinni var Landssam-
band sjálfstæðiskvenna gestgjafi.
Þetta er í fyrsta sinn sem slíkur
fundur er haldinn á íslandi en um
er að ræða óformleg samráðssam-
tök kvenna á hægri væng stjórn-
málanna.
Umræðuefni fundarins var
hvernig virkja mætti ungar konur
í stjórnmálum en í framsöguerind-
um fulltrúa hvers lands var jafn-
framt ijallað um jafnréttismál,
stöðu kvenna í stjómmálaflokkun-
um, hlutdeild þeirra í opinberum
nefndum og ráðum, atvinnuþátt-
töku kvenna, launamun kynjanna
og síðast en ekki síst voru jafnrétt-
islög á Norðurlöndunum rædd og
aðgerðir til að stuðla að raunveru-
legu jafnrétti kvenna.
í fundarlok var eftirfarandi
ályktun samþykkt: „Jafnrétti er
ekki mál kvenna einungis. Þátttaka
kvenna á öllum stigum ákvarðana-
ferlisins er mikilvægur þáttur í því
að tryggja lýðræðislega þróun í
samfélaginu.
Stjórnmálaflokkar verða að
gegna forystuhlutverki í því að
skapa ungum foreldrum raunhæfa
möguieika á því að taka þátt í
stjórnmálastarfi. Slíkt kallar á
breytingar á starfsskipulagi flokk-
anna og samtaka kvenna. Lýðræði
er stefnt í hættu ef hægri flokkam-
ir stuðla ekki að þátttöku ungs
fólks í stjórnmálum.“
Listin að
lifaí 13.000
eintökum
FÉLAG eldri borgara í Reykjavík
og nágrenni hefur nýlega hafið út-
gáfu á félagsriti sem ber nafnið List-
in að lifa. Fýrsta blaðið, haustblað,
kom út í september 1996 og jólablað
í desember. Fyrsta tölublað á þessu
ári kom út í byijun febrúar.
Tímaritið Efri árin kom út á veg-
um félagsins frá 1988-96. Segja má
að Listin að lifa taki við hlutverki
fréttabréfs FEB og tímaritinu Efri
árin. Undir útgáfuna fellur einnig
ritið Málefni aldraðra, sem áður kom
út á vegum þjónustusviðs aldraðra
hjá Félagsmálastofnun, en Reykja-
víkurborg.
Útgáfumálin haldast í hendur við
sívaxandi starfssvið félagsins. FEB
fagnaði tíu ára afmæli á síðasta ári
og félagsmönnum fer fjölgandi.
Stefnt er að því að Listin að lifa
komi út ijórum sinnum á ári. Blaðið
er gefið út í um 13.000 eintökum.
Ritstjóri er Oddný Sv. Björgvins.
Fjallað um
nauðguná
málþingi
MÁLÞING gegn kynferðisofbeldi
heldur áfram í Háskólabíói nk.
laugardagsmorgun þann 1. mars
kl. 10-13. Yfirskrift fundarins er
Nauðgun.
Meðal fyrirlesara verða: Eyrún
Jónsdóttir sem mun fjalla um
Neyðarmóttökuna og hlutverk
hennar, Theódóra Þórarinsdóttir
fjallar um Stígamót og starf þeirra,
Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir fjallar
um viðhorf fjölmiðla og fréttir af
kynferðisbrotamálum, Sigríður
Friðjónsdóttir fjallar um hvort
nauðsynlegt sé að lögreglukonur
komi að rannsókn nauðgana, Anna
Einarsdóttir fjallar um kynferðis-
ofbeldi gegn þroskaheftu fólki og
Steingerður Steinarsdóttir um
stöðu þolandans í augum almenn-
ings. Yfirskrift næsta fundar þann
8. mars er Vændi, klám og kyn-
ferðisleg áreitni og að lokum verða
almennar pallborðsumræður þann
15. mars.
Fjölmörg félög og félagasamtök
standa á bak við Málþingið meðal
þeirra eru: Stígamót, Samtök um
kvennaathvarf, Kvenna- og karla-
keðjan, Barnaheill, Kvennaráð-
gjöfin, Samtök um kvennalista og
Landssamband Framsóknar-
kvenna.
Allir eru velkomnir á málþingið
meðan húsrúm leyfir, enginn að-
gangseyrir.
------» » ♦-----
Fyrirlestur um
kynferðislegt
ofbeldi o g ann-
að ofbeldi
ÁHUGAHÓPUR um refsistefnu og
afbrotafræði (ÁRA) gengst fyrir fyr-
irlestri um afbrotafræði í dag,
fimmtudaginn 27. febrúar, í stofu
201 í Odda, Háskóla íslands, kl.
20.30. Til umfjöllunar er kynferðis-
ofbeldi og annað ofbeldi. Frummæl-
andi er bandaríski afbrotafræðing-
urinn Piers Beirne. Fyrirlestur hans
ber yfirskriftina „Interspecies Sexu-
al Assault".
Beirne er prófessor við University
of Southern Maine og er víðkunnur
innan afbrotafræðinnar. Hann hefur
gefið út íjölda ritverka á síðustu
árum. Sérsvið hans er samanburður
á afbrotum á milli landa og skýring-
ar á afbrotahegðan. Beirne hefur
einnig gefíð út kennslubækur í af-
brotafræði og er ristjóri tímaritsins
Theoretical Criminology.
Áhugafólk getur lagt fram fyrir-
spurnir og tekið þátt í umræðum.
Fyrirlesturinn er öllum opinn og
aðgangur er ókeypis.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
JÓHANN Öm í hinni nýju verslun sinni, Sportmynd.
Framköllunarþj ónustan
Sportmynd tekur til starfa
Blönduósi. Morgunblaðið.
NÝTT þjónustufyrirtæki, Sport-
mynd, hóf nýlega rekstur á Blöndu-
ósi. Fyrirtækið býður upp á Kodak-
framköllunarþjónustu.
Auk framköllunar á litmyndum
eru filmur, rammar, albúm og fleira
er tengist ljósmyndavörum til sölu
hjá Sportmynd, sem er tii húsa á
Húnabraut 13 og eru eigendur fyrir-
tækisins hjónin Hjördís Blöndal og
Jóhann Örn Arnarson.
Athugasemd vegna
fréttar af dómi
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá Magn-
úsi Eyþórssyni, framkvæmdastjóra
Max ehf.:
„í grein á bls. 37 í Morgunblað-
inu 25. febrúar 1997 er vitnað í
dóm sem fyrrverandi skrifstofu-
stjóri MAX ehf. fékk í síðastliðinni
viku. Þar er sagt að fyrirtækið hafi
rambað á barmi gjaldþrots og vil
ég því koma eftirfarandi athuga-
semd á framfæri.
Fjárdrátturinn hafði mikil og
alvarleg áhrif á lausafjárstöðu og
þ.a.l. á rekstur MAX og neyddist
fyrirtækið til að endurfjármagna
reksturinn og auka við skuldbind-
ingar sínar af þeim sökum. Fjár-
drátturinn var einnig meðvirkandi
þáttur í því að fyrri eigendur seldu
hlutafé sitt. Það er hins vegar ekki
rétt að fyrirtækið „rambaði á barmi
gjaldþrots".
MÁX jók veltu sína milli áranna
1995 og 1996 og var i lok ársins
1996 með meiri markaðshlutdeild
í útivistarfatnaði og í vinnufatnaði
en nokkru sinni fyrr.“
Morgunblaðið/Aðalheiður Högfnadóttir
Bílaleiga Akur-
eyrar á Hellu
Hellu. Morgunblaðið.
ÚTIBÚ frá Bílaleigu Akureyrar hefur
tekið til starfa á Hellu. Það er Víg-
lundur Kristjánsson á sem hyggst
bjóða þjónustu bílaleigunnar í hérað-
inu. Að hans sögn hefur slíka þjón-
ustu vantað á svæðið um hríð og
væntir hann helst viðskiptavina með-
al ferðamanna og vátryggingafélaga.
Víglundur hefur á staðnum Suzuki
Vitara jeppa og Subaru Impresa
fólksbíl til umráða, en getur útvegað
aðra bíla með litlum fyrirvara.
■ STÉTTARFÉLAG sálfræðinga
á íslandi hefur sent frá sér eftirfar-
andi: „Félagið lýsir áhyggjum sín-
um yfir framtíð sálfræðiþjónustu á
íslandi. í ljósi bágborinna launakj-
ara og fálegra viðbragða við kröfu-
gerð Stéttarfélags sálfræðinga í
yfirstandandi kjaraviðræðum óttast
félagið að sálfræðingar muni nú
flæmast úr opinberum störfum,
m.a. til útlanda, auk þess sem sál-
fræðingar munu skila sér illa heim
að námi loknu.“
------♦---------
LEIÐRÉTT
Ljóðlína brenglaðist
í minningargrein Láru Ingu Lárus-
dóttur um Þorbjörgu Sigríði Jóns-
dóttur á blaðsíðu 34 í Morgunblað-
inu í gær, miðvikudag, brenglaðist
ljóðlína eftir Stephan G. Stephans-
son. Rétt er hendingin svona:
„Bognar aldrei, — brotnar í
bylnum stóra seinast."
Matur og matargerð
Gómsætt
brauð á góu
Þetta er skrifað fyrsta dag góu - á konu-
daginn, segir Kristín Gestsdóttír, sem
notaði daginn til að baka brauð.
SJÁLFSAGT hefði maðurinn
minn átt að baka brauðið, sem
við gæddum okkur á í háeginu,
en á mínu heimili er konudagurinn
eins og hver annar dagur er við
hjónin skiptum á milli okkar verk-
unum og matargerðin kemur í
minn hlut. Bæði brauðin lagði ég
í gærkvöldi og hnoðaði í hræri-
vél. Síðan stakk ég brauðskálun-
um í kæliskápinn og lét brauðið
bijóta sig þar. Mín reynsla er sú
að best sé að láta brauðdeig lyfta
sér lengi við lágan hita, jafnvel
hálfan eða heilan sólarhring.
Þannig verður brauðið létt og
auðmeltanlegt og minna ger þarf
í það. Þá er best að setja skálina
með deiginu í kæliskáp.
Til þess að brauðbakstur
heppnist þarf að hafa tvennt í
huga. Vökvinn má alls ekki fara
yfir 40°C, og deigið þarf að vera
lint. Ef þessa er gætt, misheppn-
ast brauðið aldrei. Eg hefi þá
reglu að stinga fingrinum ofan í
vökvann, ef hvorki finnst hiti né
kuldi er vökvinn mátulegur, sem
sé fingurvolgur. Gott er að blanda
til helminga kaldri mjólk og heitu
vatni úr krananum (já, hitaveitu-
vatni) þá fæst rétt hitastig. Lyft-
ing verður betri ef bauðið er flatt
örlítið úr með kökukefli og vafið
upp, einnig ef skál með vatni er
sett á botn bakaraofnsins. Fínt
þurrger sem flestir nota má setja
beint út í mjölið og deigið þarf
ekki að lyfta sér nema einu sinni,
en pressuger þarf að hræra út í
volgan vökva og láta lyfta sér
tvisvar. í þeim uppskriftum sem
hér fara á eftir eru gert ráð fyrir
að nota fínt þurrger. Það fæst í
'U kg lofttæmdum umbúðum og
50 g smábréfum. Þið verðið sjálf
að ákveða hversu lengi þið viljið
láta deigið lyfta sér, en það þarf
um helmingi minna ger í brauð-
deig sem lyftir sér lengi. Ef keypt
er ger í stórum pakkningum, er
best að geyma það í lokaðri
krukku í kæliskáp. Þannig geym-
ist það ímarga mánuði.
Ekki er vorlegt um að lítast
nú á konudaginn, 7 frost á mælin-
um og snjóruðningarnir úti fyrir
dyrum mínum á fjórða metra.
Samt bjóðum við góu velkomna
með þessari vorlegu vísu:
Velkomin sértu, Góa mín
og gakktu inn í bæinn,
vertu ekki úti í vindinum
vorlangan daginn.
Malt/hunangsbrauð með
sólblómafræi
2 di rúgmjöl
6 dl hveiti
1 dl hveitiklíð
1 dl sólblómafræ
'h tsk. salt
1 msk. þurrger (Vi tsk. við langa
lyftingu)
2 msk. matarolía
1 msk. hunang (nota má
púðursykur)
3 dl maltöl
eggjarauða eða mjólk til að pensla
brauðið með
sólblómafræ til að strá á brauðið
Brauð nr. 2
Hafrabrauð
6 dl hveiti
3 dl hafragijón
1 dl hveitiklíð
Vi tsk. salt
1 msk. þurrger ('h tsk. við langa
lyftingu)
1 msk. púðursykur
1 'h dl mjólk
1 'h dl vatn úr heita krananum
eggjarauða eða mjólk til að pensla
brauðið með
sesamfræ eða hafragijón til að strá
á brauðið
Aðferð við bæði brauðin:
1. Setjið öll þurrefnin í skál og
blandið saman, takið frá 'h dl til að
hnoða upp í brauðið.
2. Setjið matarolíu og fmgurvolg-
an vökvann út í og hrærið saman.
(Brauð nr. 1: Ylvolgt maltöl, brauð
nr. 2: köld mjólk + heitt vatn).
3. Nú er hægt að móta brauðið
strax með mjölinu sem tekið var frá
og láta lyfta sér á bökunarplötu eða
láta deigið lyfta sér tvisvar og móta
það í síðara skiptið. Þegar deigið er
mótað er best að fletja það örlítið
út með kökukefli og vefja saman
Leggja síðan á bökunarpappír á bök-
unarplötu, samskeytin snúi niður.
4. Smyijið brauðið með eggja-
rauðu eða mjólk og stráið sólblóma-
fræi yfir brauð nr. 1 en sesamfræi
eða hafragijónum yfir brauð nr. 2.
5. Hitiðbakaraofní210°C, blást
ursofn í 190°C, setjið brauðið í miðj-
an ofninn og bakið í um 30 mínútur.
6. Leggið hreint stykki yflr
brauðið meðan það er að kólna.