Morgunblaðið - 05.03.1997, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 05.03.1997, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B/C/D 53. TBL. 85. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 5. MARZ 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Reuter ■jjEpvÝ; i y p uj m iipfPr ' Átak gegn útlendingahatri ROMAN Herzog, forseti Þýska- lands, sagði í gær að styrkan efnahag landsins mætti að hluta til þakka erlendu vinnuafli og kvað það ekki rétt, sem margir Þjóðveijar héldu fram, að út- lendingar hefðu af þeim vinnu. Herzog lét þessi orð falla við opnunarathöfn evrópsks árs gegn kynþáttahatri, sem hófst formlega í Berlín í gær. Kynþáttahatur hefur aukist í Þýskalandi í kjölfar sameining- ar þýsku ríkjanna, ekki síst með auknu atvinnuleysi. Hefur upp- gangi hægri öfgamanna í Þýskalandi verið líkt við tíma- sprengju. Við athöfnina í gær mótmælti hópur manna þeirri ákvörðun þýskra yfirvalda að skylda börn, fædd utan Þýskalands, til að fá áritun til dvalar í landinu. Á myndinni ganga útlend börn með mótmælaskilti frá Brandenborg- arhliðinu með áletrunum á borð við „Sömu réttindi fyrir alla“. Stjórnleysi ríkir í suður- hluta Albaníu Tirana, Róm, Madríd, London. Reuter. VOPNAÐIR íbúar í bænum Sarande í Suður-Albaníu bjuggu sig í gær undir að berjast við albanskar örygg- issveitir en fréttir höfðu þá borist um að hermenn væru aðeins nokkra kíló- metra frá bænum. í gær viðurkenndi utanríkisráðherra landsins, Tritan Shehu, að yfirvöld hefðu enga stjóm á ástandinu í suðurhluta Albaníu en fullyrti að dregið hefði úr hættunni á borgarastyijöld eftir að yfirvöldin lýstu yfir neyðarástandi, settu á út- göngubann og bann við vopnaburði. Shehu lét þessi orð falla í samtali við ítalska blaðið L’Unita en stjómvöld afléttu í gær sólarhringsbanni við fréttasendingum erlendra fjölmiðla frá Albaníu. Ritskoðun er áfram í gildi gagnvart albönskum blöðum og ljósvakamiðlum. Að minnsta kosti 19 manns hafa látið lífið í átökum frá því á föstu- dag. í gær sagði albanska ríkissjón- varpið frá því að fjögurra ára stúlka hefði látist af skotsárum. Þá fullyrtu íbúar í þorpum í suðurhlutanum að hópar vopnaðra manna færu um ruplandi og rænandi og hefðu m.a. drepið leigubílstjóra. Sósíalistar, sem eru í stjórnarand- stöðu, kváðust í gær hafa reynt að fá Salih Berisha, forseta landsins, til að mynda ríkisstjórn allra flokka til að binda enda á ofbeldisölduna, en hann hefði „ekki sýnt neinn sátta- vilja“. Engin erlend afskipti Ráðamenn í mörgum Evrópuríkj- um lýstu í gær yfir áhyggjum sínum vegna upplausnarástandsins í Alb- aníu en aftóku jafnframt afskipti af málinu. Javier Solana, framkvæmda- stjóri Atlantshafsbandalagsins, sagði bandalagið ekki vera alþjóðalögreglu og að semja yrði um lausn mála í Albaníu. Sama var uppi á teningnum hjá Vestur-Evrópusambandinu en for- maður þings þess, Lluis Maria de Puig, sagði sambandið ekki geta haft hernaðarafskipti af málinu, því átökin kynnu að breiðast út til tveggja aðildarlanda, Grikklands og Ítalíu. Malcolm Rifkind, utanríkis- ráðherra Bretlands, sagðist hins veg- ar myndu taka málið upp hjá Evrópu- sambandinu og hjá Öryggis- og sam- vinnustofnun Evrópu, sem Albanir væru aðilar að. ■ „Fólkið hefur engu“/26 Yasser Arafat í Bandaríkjunum Friðanimleitan- ir eini kosturinn Washington, Jerúsalcm. Reuter. YASSER Arafat, leiðtogi sjálfstjórnarsvæða Palestínumanna, sagði í gær að hann ætti „einskis annars úrkosti" en að halda áfram friðar- viðræðum við ísraelsstjórn þrátt fyrir þá ákvörðun hennar að reisa nýtt hverfi fyrir gyðinga við Austur-Jerúsalem. Engir styrkir til einrækt- unar manna Washington. Reuter. BILL Clinton Bandaríkjaforseti lagði í gær bann við því að ríkið styrkti tilraunir til einræktunar manna og bað vísindamenn sem starfa hjá einkareknum stofnunum að setja svipað bann, þar til ráðgjafarnefnd forsetans hefði skilað niðurstöðu um einræktun, en hún hefur tæpan hálf- an annan mánuð til stefnu. Bannið er enn víðtækara en annað bann, við tilraunum á fósturvísum, sem tók gildi árið 1994. „Allar upp- götvanir sem snerta sköpun manns- ins eru ekki eingöngu mál vísinda- manna. Þær varða siðgæði og and- lega göfgi,“ sagði forsetinn. Clinton sagðist ekki efast um að einræktun dýra gæti stuðlað að mikl- um framförum í vísindum, landbún- aði og læknisfræði. Hann hefði hins vegar miklar áhyggjur af hugmynd- um um að innan fáeinna ára yrði hægt að einrækta menn. „Það er skylda okkar og stefna að halda friðarferlinu áfram," sagði Arafat. Þrátt fyrir alla erfiðleikana sem við stöndum frammi fyrir eigum við einn kost: að starfa áfram í þágu friðar.“ Hann ræddi málið við Bill Clinton Bandaríkjaforseta og lýsti viðræðunum sem „mjög jákvæðum og hlýjum“. Arafat var spurður hvort hann liti á Benjamin Netanyahu, forsætisráð- herra Israels, sem „félaga“ sinn, eins og forvera hans í embættinu, eða „andstæðing". „Sem félaga," svaraði Arafat. „Ég verð að virða val ísra- ela... Við erum að friðmælast við ísraelsku þjóðina." Í gær fyrirskipaði Netanyahu að flórum skrifstofum palestínskra stjórnvalda í Austur-Jerúsalem skyldi lokað í dag. Fullvíst er að þessi ákvörðun mun ýta enn frekar undir reiði Palestínumanna. Frakkar hafa gagnrýnt áform Israelsstjórnar en Hervé de Charette, utanríkisráð- herra ísraels, sagði eftir fund með David Levy, starfsbróður sínum í ísrael, að deilan myndi ekki skaða samskipti ríkjanna. Oryggisráð Sam- einuðu þjóðanna átti að ræða deiluna í gær en umræðunni var frestað þar til í dag að beiðni Bandaríkjamanna. Reuter YASSER Arafat kyssir enni Ölmu Brown, ekkju Rons Brons, viðskiptaráðherra Bandaríkjanna. Veitti Arafat henni heiðurs- merki fyrir framlag manns hennar til uppbyggingar á Gaza. Evrópusambandið Tvrkir eiga litla von um aðild Brussel. Reuter. TYRKIR fengu í gær skýr skilaboð um að aðild að Evrópusambandinu (ESB) væri ekki á næsta leiti. Var þetta niðurstaða fundar mið- og hægriflokka á Evrópuþinginu, en ástæðan er ástand mannréttinda- mála í Tyrklandi. Wilfried Martens, leiðtogi hægri- manna á Evrópuþinginu, sagði Tyrki ekki líklega aðildarþjóð ESB, hvort sem til skemmri eða lengri tima væri litið. Fundarmenn, m.a. Helmut Kohl, kanslari Þýskalands, og Jose Maria Aznar, forsætisráðherra Spán- ar, hefðu vissulega lýst yfir áhuga á því að eiga náin samskipti við tyrk- nesk stjórnvöld en að ESB-aðild væri ekki til umræðu. Áfengiseinkasala ríkisins í Svíþjóð stenst ekki lög ESB Kaupmenn fagna sigrí Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. ÁLIT aðallögmanns ESB-dómstóls- ins, sem birt var í gær, um að áfengiseinkasala ríkisins standist ekki gagnvart reglum Evrópusam- bandsins olli miklu fjaðrafoki í Sví- þjóð. Sænska stjórnin heldur fast við að finna verði leiðir til að halda einka- sölunni með einhveijum hætti en kaupmenn fagna hins vegar. Búist er við að dæmt verði í málinu i maí, en dómstóllinn hefur sjaldnast geng- ið gegn umsögn aðallögmanns. Margot Wallström félagsmálaráð- herra segir of snemmt fyrir kaup- menn að fagna sigri, því ekki komi til greina að áfengissala verði gefin með öllu fijáls, enda tíðkist það hvergi. Hún segist bíða dóms og at- huga megi hvort einkaleyfissala gæti komið í staðinn. Hugmyndin er þá væntanlega að ríkið veiti einka- leyfi til smásölu en haldi eftirliti með sölunni. Fordæmi eru fyrir slíku, til dæmis í tóbakssölu á Italíu. Þegar sænska stjórnin samdi um aðild að ESB samdi hún ekki um undanþágu fyrir sænska kerfið. Hún mun hafa álitið sig hafa vilyrði fyrir að það fengi að haldast, enda virðast niðurstöðurnar hafa komið henni í opna skjöldu. ■ Ríkiseinkasala á áfengi/6

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.