Morgunblaðið - 05.03.1997, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 05.03.1997, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MARZ 1997 7 FRÉTTIR Forysta ASI ræddi við fulltrúa ríkisstj órnarinnar Stj órnin að verða tilbúin með viðbrögð Morgunblaðið/Ámi Sæberg Ahugaverður iðnaður DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra segir að ef ASÍ taki sæmilega vel í tilboð vinnuveitenda um launalið nýrra kjarasamninga muni ríkis- stjórnin þá þegar kynna tillögur sín: ar í skattamálum. Forystumenn ASI ræddu við Davíð Oddsson og Pái Pétursson, félagsmálaráðherra, í gær um stöðuna í kjaramálum. Forystumenn ASI óskuðu eftir fundinum og vildu ganga eftir svör- um ríkisstjórnarinnar við kröfugerð sem þeir lögðu fram í síðasta mán- uði um breytingar í skattamálum og fleiri málum. „Við lýstum því mati okkar að sú vinna sem við höfum lagt í að svara þessari kröfugerð gengi vel og að við teldum að við yrðum í stakk búnir til að koma með okkar sjónar- mið um leið og kjarasamningar væru komnir á það stig að það sé ástæða til þess að telja að ríkisstjórnin hefði efni á að spila spilunum út. Við sögð- um jafnframt að ef menn væru að fara í verkföll og verðbólgusamninga í kjölfarið á verkföllum væri ekkert svigrúm hjá ríkissjóði til að spila neinu út,“ sagði Davíð. Óbreytt svör „Við fengum sömu svör og við fengum á okkar síðasta fundi um að ríkisstjórnin væri ekki tilbúin til að svara okkur formlega fyrr en mál væru komin á það stig að við værum að sjá í lokasprettinn. Við vorum upplýst um að verið væri að vinna í málinu á vettvangi ríkis- stjórnarinnar," sagði Grétar Þor- steinsson, forseti ASÍ. Grétar sagði að forysta ASÍ gæti ekki svarað tilboði vinnuveitenda, sem búist er við á hverri stundu, fyrr en hún hefði séð hvað ríkis- stjórnin byði. Það kynni þó að vera að tilboð atvinnurekenda yrði svo lágt að ekki væri um annað að ræða en hafna því strax. „Við höfum lagt áherslu á að þarna yrðu að fara saman svör stjórnvalda og það útspil atvinnurek- enda, sem okkur skilst að sé á leið- inni, varðandi launahækkanir. Þessir þættir eru samtengdir þannig að við getum ekki svarað tilboði atvinnu- rekenda fyrr en það liggur fyrir hvað ríkisstjórnin ætlar að gera í skattabreytingum," sagði Grétar. Davíð sagðist hafa skilning á þessu sjónarmiði enda myndi ekki standa_ á svörum ríkisstjórnarinnar ef ASÍ tæki sæmilega vel í tilboð vinnuveitenda. „Um leið og tilboð kemur frá Vinnuveitendasambandinu og þeir telja að það sé eitthvert vit í því þannig að það sé hægt að ræða það, þá er komin rétta stundin til þess að ríkið og Alþýðusambandið eigi nýjan fund þar sem við myndum skýra frá okkar sjónarmiðum og okkar svörum." Davíð sagðist vera hóflega bjart- sýnn á stöðuna í kjaramálum. „Ég hef þá trú að mál geti gengið í báð- ar áttir. Þó hef ég heldur verri til- finningu fyrir málinu þessa stund- ina. Það er alltaf viss hætta á því að menn geti talað sig inn í vit- lausar áttir og endað í verkföllum með öllu því tjóni sem því fylgir fyrir almenning í landinu. Þó heldur maður í vonina um að á næstu tveim- ur sólarhringum kunni að nást samn- ingar.“ Agreiningur í skattamálum Grétar sagði að fulltrúar ASÍ hefðu á fundi með forystumönnum ríkisstjórnarinnar í síðasta mánuði farið ítarlega yfir kröfur ASÍ í skattamálum. Ekkért nýtt hefði komið fram varðandi þau mál á fundinum í gær. „Við leggjum höfuð- áherslu á skattalækkanir hjá meðal- tekjuhópunum. Við höfnum hug- myndum um flata lækkun skattpró- sentu ef ekkert annað er í spilunum." „Ég hef ekki hafnað þeim leiðum sem forystumenn ASÍ hafa bent á, en ég vil leita leiða til þess að lækka skatta á skattgreiðendur _í landinu þannig að allir njóti þess. Ég vil hins vegar í leiðinni forðast að skemma skattkerfið eins og ég tel að gerist með fjölgun skattþrepa. Það er mik- ill ávinningur af því fyrir launafólk að hafa greitt sína skatta og vera laus við framhaldið. Ef við förum í gamla farið verða skattar eftirá- greiddir. Þú getur t.d. haft auknar tekjur í júlí til áramóta og í júní árið eftir færðu allt í einu stórhækk- aðan skatt. Þetta er tímabil sem við þekkjum og viljum vera lausir við,“ sagði Davíð. KRAKKARNIR í 1. bekk G í Hvassaleitisskóla ætla að mæta vel undirbúnir til leiks í atvinnu- lífinu. Liður í slíkum undirbún- ingi er heimsókn í fyrirtæki, þar sem krakkamir fara í starfskynn- ingu. í gær kynntu þeir sér starf- semi Nóa-Síríus. Páskaeggja- framleiðslan vakti töluverða hrifningu og var greinilegt að krökkunum þótti þessi iðnaður hinn áhugaverðasti. Útgefandi: Umsjón með útboði og milliganga um skráningu: Fjárhæð útboðs: Útboðsfyrirkomulag: Útboðsgengi: Sölutímabil: Söluaðilar: Tilgangur útboðs: Skilmálar: Viljayfirlýsiríg stærstu eigenda: Fóðurblandan hf., kt. 550169-0889, Korngörðum 12, 104 Reykjavík Kaupþing hf., kt. 560882-0419, Ármúla 13A, 108 Reykjavík. Sími: 515-1500 Fax: 515-1599. Almennt útboð á hlutabréfum í Fóðurblöndunni hf. Fjárhæð útboðsins er að nafnverði 27.039.744 krónur að hámarki, sem eru 10,2% af núverandi hlutafé. Þar af er hluti útboðs til almennings að nafnverði 16.153.846 krónur að lágmarki og 26.923.077 krónur að nafnverði að hámarki. Um er að ræða' sölu á þegar útgefnum hlutabréfum. Hlutafé félagsins skiptist í einnar krónu hluti og margfeldi þeirrar tölu. Útboðið er ekki sölutryggt en heildarkostnaður vegna útboðsins og fyrirhugaðrar skráningar á Verðbréfaþing íslands er áætlaður um 2,5% af söluvirði hlutabréfanna. Útboðið skiptist í tvo hluta. Annars vegar verða 300-500 aðilum seldir 140.000 króna hlutir á söluverði og hins vegar verða viðskiptavinum og starfsmönnum Fóðurblöndunnar hf. sem þess hafa óskað, samkvæmt könnun forstjóra, seldir 140.000- 280.000 króna hlutir á söluverði. Útboðsgengi til almennings er 2,60. Gengi hlutabréfanna til viðskiptavina og starfsmanna verður 2,40. Gengi getur breyst á sölutímabilinu eftir markaðsaðstæðum, en upplýsingar um útboðsgengi fást hjá söluaðilum. 7. mars 1997- 14. mars 1997. Kaupþing h'. og Kaupþing Norðurlands hf. hafa sölu hlutabréfanna með höndum. Frá og með 5. mars verður hægt að fá allar upplýsingar um útboðið, s.s. útboðs- og skráningarlýsingu hjá söluaðilum. Önnur gögn sem vitnað er til I útboðs- og skráningarlýsingu er hægt að nálgast hjá Kaupþingi hf. Samantekt um fyrirtækið og útboðið má finna á „Veraldarvefnum" undir heimasíðu sparisjóðanna á slóðinni http://www.spar.is/FB. Á hluthafafundi Fóðurblöndunnar hf. þann 20. desember 1996 var ákveðið að breyta félagsformi fyrirtækisins úr einkahlutafélagi í almenningshlutafélag. Jafnframt var ályktað um vilja hluthafa til að skrá félagið á Verðbréfaþing (slands. Tilgangurinn er að gera Fóðurblönduna hf. að almenningshlutafélagi og fjölga hluthöfum nægilega, svo að félagið uppfylli skilyrði um hluthafafjölda til skráningar á Verðbréfaþing (slands. Þessi skref miða að því að gera hlutabréf félagsins markaðshæf. Hlutabréfin skulu staðgreidd við kaupin. Starfsmenn eiga kost á greiðslukjörum. Hlutabréfin verða send kaupendum í ábyrgðarpósti eigi slðar en 40 dögum eftir að kaupin eiga sér stað og söluaðili hefur gefið út kvittun. Hver einstaklingur eða lögaðili getur að hámarki keypt einn hlut og án skriflegs umboðs einungis fyrir hönd fjögurra einstaklinga eða lögaðila. Fóðurblandan hf. hefur sótt um staðfestingu ríkisskattstjóra á því að félagið hafi fullnægt skilyrðum 1. mgr. 11. gr. 1. nr. 9/1984, með áorðnum breytingum, um frádrættarbærni kaupverðs hlutabréfa á árinu 1997. Árlega verður sótt um þá heimild til rlkisskattstjóra. Gunnar og Sigurður Garðar Jóhannssynir, stærstu núverandi eigendur Fóðurblöndunnar hf., hafa að markmiði að selja fyrir 1. mars 1998 það mikið af þeim hlutabréfum sem þeir ráða yfir, að eftir standi minni en 50% hlutur. Þetta er að því gefnu að þeir telji verð bréfanna viðunandi. Þessi yfirlýsing er gefin sem fyrirheit um eigna- og valddreifingu innan félagsins í framtíðinni. KAUPPING HF Ánnúla 13A Sími 515 1500

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.