Morgunblaðið - 05.03.1997, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 05.03.1997, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MARZ 1997 19 Jóhann Hjálmarsson Dagskrá um verk Jóhanns Hjálmars- sonar DAGSKRÁ um verk Jóhanns Hjálmarssonar verður fimmtudaginn 6. mars í kaffistofu Gerðarsafns í Kópavogi. Flutt verður stutt ágrip af ferli skáldsins og félagar úr Ritlistarhópi Kópavogs flytja ljóð að eigin vali úr bókum þess. Jóhann Hjálmarsson verður sjálfur heiðursgestur samkomunnar, og les úr nýjum ljóðum sín- um. Síðastliðið haust voru 40 ár frá útkomu fyrstu bókar Jóhanns, Aunguls í tímann, en síðasta bók hans, Rödd í speglunum, kom út fyrir þremur árum. Alls eru ljóðabækur skáldsins orðnar 14 á þessum árum, auk fjög- urra þýðingasafna og ann- arra verka. Dagskráin hefst að venju kl. 17 og stendur eina klukkustund. Að lestri lokn- um gefst gestum kaffistof- unnar kostur á að spyija skáldið um verk þess og feril. TÓNLIST Tríó Reykjavíkur HAMRABORG Flytjendur. Peter Máté píanó, Guðný Guðmundsdóttir fíðla, Gunnar Kvar- an selló. 2. mars kl. 20. UNDIRRITAÐUR minnist þess, að þegar Halldór Haraldsson hætti sem píanóleikari með Tríói Reykja- víkur og tók við stjórn Tónlistarskól- ans í Reykjavík, að þá hafi nokkur efi komist að um hvort með ráðningu Peter Máté, í stað Halldórs, hafí TR valið heppilegustu lausnina. Eftir tónleikana í Hamraborg á sunnudag- inn, er ástæðulaust að óttast lengur að valið hafi ekki verið rétt, svo ágætlega féll píanóleikur Peters að öðrum að mjög ánægjulegt var á að hiýða. Peter hefur mjög mikla leikni á píanóið og samleiks virðist hann vera fæddur til. Ef reynt væri að leita að einhveiju sem betur mætti fara væri það kannske helst það, að í „forte“ á hann til að gleyma sér og fer þá út úr rammanum. En þetta er smáatriði sem einfalt er að lag- færa, það gleðilega er, eins og fyrr segir, valið sýndi sig að vera mjög heppilegt og ekki er mér grunlaust, LISTIR Scan-Foto/Lars Aamodt DORRIT Willumsen tekur við bókmenntaverðlaunum Norður- landaráðs úr hendi Olof Salmen, forseta Norðurlandaráðs, í Ósló síðastliðið mánudagskvöld. Slæmir dómar Norð- manna sitja í mér DORRIT Willumsen tók við bók- menntaverðlaunum Norður- landaráðs í Ósló á mánudags- kvöld fyrir bók sína Bang. En roman om Herman Bang. Dorrit sagðist vera ánægð með verð- iaunin en benti ennfremur á að slæmir dómar sem birtust í Nor- egi um bókina sætu enn í sér. Dorrit sagðist mundu nota peningana sem hún fékk í verð- Íaun til að ferðast til Japans en þar ætlar hún að safna í sarpinn efnivið í næstu bók, ólíkt verð- iaunabókinni verður það samtíð- arsaga. Þetta var i fjórða skipti sem Dorrit er tilnefnd til Norður- landaráðsverðlaunanna í bók- menntum. Hún er 56 ára að aldri. Fyrsta bók hennar, Knagen, kom út árið 1965 og var smásagna- safn. Frægust er hún sennilega fyrir skáldsögu sína Marie, sem fjallar um vaxlistakonuna Mad- ame Tussaud. Rétt var valið við að heyra samleik Tríósins, að Peter hafí tekið að sér mótun sam- leiksins, að einhverju leyti a.m.k. Sá fjölhæfí Emest Bloch var fyrst- ur á efnisskránni. Bloch, f. 1880 í Sviss og verður líklega að teljast svissneskur tónlistarmaður, þótt hann hafi dvalið langtímum erlendis, m.a. um lengri tíma í Bandaríkjun- um, sem tónskáld, hljómsveitarstjóri og tónlistarskólastjóri. Bloch samdi fyrir flestar samsetningar hljóðfæra, mest þó líklega fyrir hljómsveitir. Þijú næturljóð fyrir fiðlu, selló og píanó eru ekki stór eða flókin í formi, en hafa yfír sér dulræna fegurð, byija gjarnan á dökka tónsviði pían- ósins eða á g-streng fiðlunnar og fíkra sig hægum skrefum upp í birt- una. Næturljóðin skiluðu sér skáld- lega og fallega úr höndum þremenn- inganna. Tríó nr. 1 í F-dúr eftir Camille Saint-Saéns heyrðist nú líklega í fyrsta skipti hér á landi. Saint-Saéns ferðaðist mikið utan Frakklands og kynnti verk sír. sjálfur sem hljóm- sveitarstjóri, organleikari og píanó- leikari og varð t.d. mjög vinsæll í Þýskalandi. Verk hans eru ekki flók- in í formi, né hljómrænt og því að- gengileg áheyrendum, skrifuð í eins- konar nýklassískum stíl. Kammer- verk hans náðu þó ekki fótfestu utan heimalandsins, Frakklands. Tríóið sem TR flutti er líklega samið á all- löngum tíma, þjóðlagastemmningum skýtur upp hér og þar og reynir víða á tækni- og samspilshæfni flytjenda, en er um leið þrungið músíklegum töfrum. Hér varð að sýna tillitsemi og tilhliðrun í samleik og þeirri sam- vinnu var mjög ánægjulegt að fylgja, sem áheyrandi. Tríóið op. 70 nr. 1 í D-dúr var síðast á efnisskránni. Upp úr stóð í flutningnum annar þátturinn, sem var feikifallega mótaður, og skildi eftir spor. Hvers vegna tríó þetta hefur fengið nafnið Draugatríóið er líklega vegna tónstigans niður eftir hljómborðinu, í lok annars þáttarins, sem er það eina sem minnt gæti á draug er flýtir sér ofan í gröfina sína áður en klukkurnar hringja. Allt annað í þættinum gefur manni til- Farfuglar bókmenntanna FARFUGLAR (Zugvögel) nefnist norræn bókmenntakynning í Þýska- landi. Kynningin hefst í dag, mið- vikudag, með því að menningar- málaráðhera Finnlands, skáldið Claes Andersson, og sænski rithöf- undurinn P.O. Enquist, setja nor- ræna bókastefnu í Munchen sem nefnist Bæjaraland les. Fjörutíu norrænir rithöfundar munu síðan kynna verk sín og taka þátt í um- ræðufundum í Bæjaralandi. Bókmenntakynningin er skipu- lögð af bókmenntaskrifstofum Norðurlanda og norrænu menn- ingaskrifstofunni í Bonn og nýtur m.a. styrks frá ráðherranefndinni í Kaupmannahöfn. Eftir kynninguna í Miinchen verður norræn dagskrá og sameiginleg sýning á Bókastefn- unni í Leipzig 23. mars. Eftir það kemur röðin að bóka- og tónlistar- dögunum Nordisch Klang í Grefis- wald í byijun maí, ljóðadögum í Múnster, upplestri og umræðufund- um í Hamborg, Bonn og fleiri þýsk- um borgum. í Berlín verður sérstök barnabók- menntadagskrá í október, en áhersla er lögð á barna- og ungl- ingabókmenntir á kynningunni. Búist er við að um hundrað nor- rænir rithöfundar komi fram á nor- rænu bókmenntakynningunni, en áhugi á norrænum bókmenntum er mikill í Þýskalandi. Bækur margra norrænna rithöfunda eru meðal metsölubóka þar. Söngtónleikar á Hvolsvelli GUÐRÍÐUR Júlíusdóttir sópran og Agnes Löve píanóleikari halda tón- leika í sal Tónlistarskóla Rangæinga á Hvolsvelli í kvöld miðvikudag kl. 21. Flutt verður fjölbreytt dagskrá með lögum og aríum eftir ýmsa höfunda, innlenda og erlenda. Guðríður er búfræðingur og bóndi í Rafholti í Holta- og Landssveit. Hún er nemandi við söngdeild Tónlistar- skóla Rangæinga. Kennari hennar frá því hún hóf söngnám árið 1992 er Jón Sigurbjömsson. Þetta eru aðrir einsöngstónleikar skólans sem haldnir eru nú í vor en þeir era liður í 40 ára afmælishaldi Tónlistarskólans og er aðgangur ókeypis og öllum heimill á meðan húsrúm leyfir. Fyrirlestur um leik- og listsýningar UM 20 listamenn úr öllum greinum, ásamt matreiðslumeisturam og jarð- ræktarfólki lögðust á eitt um að skapa málsverð, leik- og listsýningu. Þessi sýning var valin sem ein af þremur athyglisverðustu menningar- viðburðum í Finnlandi árið 1996 af finnska ríkissjónvarpinu. Fjórir ís- lendingar tóku þátt í þessu verkefni, Dröfn Friðfmnsdóttir myndlistar- fínningu fyrir einskonar upphafn- ingu, hins vegar verð ég að viður- kenna að þessi niðurgangur í píanó- inu kemur dálítið eins og skrattinn, eða draugur, úr sauðarleggnum. Jað- arþættir tríósins vora og glæsilega leiknir, þó skyldi maður hafa hemil á skapinu, þetta er jú bara Beethov- en. Ánægjulegast var þó að þre- menningamir skyldu ná svo vel sam- an í vönduðum samleik og lofar það miklu um framhaldið. Fyrir þá sem aftast sitja í salnum kemur pallaleysið mest niður á selló- inu, en tónninn lendir fyrst á þeim sem fremstir sitja og dofnar við hveija sætaröð eftir það. Tónleikana tileinkuðu þremenn- ingarnir Bimi Ólafssyni fíðluleikara og hans umfangsmikla starfí í ís- lensku tónlistarlífi, bæði sem einleik- ari og kennari. Varðandi ritdóm um orgeltónleika Harðar Áskelssonar í Kópavogskirkju, gleymdist að geta þess að þá tónleika tileinkaði Hörður Guðmundi Gilssyni, sem lengi var organleikari við kirkjuna og dreymdi um nýtt og gott orgel, og fáir, ef nokkrir, organleikarar íslenskir höfðu kynnt sér jafnvel og Guðmund- ur alla innviðu orgelsins og notagildi þess. Ragnar Björnsson maður, Helga Pálína Brynjólfsdóttir textílhönnuður, Margrét Jónsdóttir leirlistamaður og Jórunn Sigurðar- dóttir leikari. Þær þijár síðasttöldu sýna myndir og segja frá þessu verk- efni í Barmahlíð, Myndlista- og hand- íðaskóla íslands í dag miðvikudag kl. 16. Fyrirlesturinn er öllum opinn og enginn aðgangseyrir. Tríó leikur lög eftir Brueh og Schumann Á HÁSKÓLATÓNLEIKUM í Nor- ræna húsinu í dag kl. 12.30 flytja Ármann Helgason klarinettleikari, Guðmundur Kristmundsson víóluleik- ari og Miklós Dalmay píanóleikari þijú lög úr Acht Stucke op. 83 eftir Max Brach og Márchenerzáhlungen op. 132 eftir Robert Schumann. Ármann, Guðmundur og Miklós stofnuðu tríóið á síðasta ári. Allir hafa þeir komið víða við í íslensku tónlistarlífi undanfarin ár og leikið með ýmsum kammerhópum, þ.á m. Cameractica og Caput. Ármann og Miklós hafa báðir unnið til Tónverka- verðlauna Ríkisútvarpsins og léku við það tilefni einleikskonserta með Sin- fóníuhljómsveit íslands og einnig hafa komið út geisladiskar með leik þeirra. Lög Max Brach fyrir klarinettu, víólu og píanó, Acht Stúcke op. 83, era samin á áranum 1908 til 1909 í anda síðrómantíkurinnar. Márch- enerzahlungen op. 132 samdi Schu- mann árið 1853, og var það eitt af síðustu verkum hans. Við blöndum litinn... DU PONT bílalakk notað af fagmönnum um land allt. Er bfllinn þinn grjótbarinn eða rispaður ? DU PONT lakk á úðabrúsa er meðfærilegt og endingargott. Faxafeni 12. Sími 553 8000 #DOEWOO VERKVER Smiðjuvegi 4B • Kópavogi • 567 6620 DIESEL - RAFMAGNS - GAS BURDARGETA 1.0-12.0 TONN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.