Morgunblaðið - 05.03.1997, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
MIÐVIKUDAGUR 5. MARZ 1997 13
Atvinnu-
lausum
fækkar
UM síðustu mánaðamót voru 449
manns á atvinnuleysisskrá, sam-
kvæmt yfirliti frá Vinnumiðlunar-
skrifstofunni á Akureyri, 257 konur
og 192 karlar. Heldur hefur fækkað
á atvinnuleysisskránni frá mánuðin-
um á undan.
Pjðldi atvinnulausra nú er nánast
sá sami og í lok febrúar í fyrra. Þá
voru 448 manns á skrá, 237 karlar
og 211 konur. Atvinnuástandið hjá
körlum er því mun betra um þessar
mundir en á sama tíma í fyrra en
hins vegar verra hjá konum.
Skólar sunnan Glerár
verða hverfisskólar
BÆJARSTJÓRN Akureyrar sam-
þykkti á fundi í gær að breyta skip-
an skólamála sunnan Glerár, en
skólanefnd hafði lagt slíka tillögu
fyrir bæjarráð. Miklar umræður urðu
um málið á fundinum og fylgdist
fjöldi foreldra og kennara, einkum
við Gagnfræðaskóla Akureyrar, með
umræðunum.
Átta bæjarfulltrúar, úr Framsókn-
arflokki, Alþýðuflokki og Alþýðu-
bandalagi, samþykktu tillöguna.
Nýr Bliki í
heimahöfn
Dalvík. Morgunblaðið.
NÝR togari, Bliki EA 12, í eigu
hins nýja útgerðarfyrirtækis BGB
liggur nú í heimahöfn á Dalvík.
Togarinn var keyptur frá Græn-
landi og kemur í stað eldri Blika
sem bíður þess að verða seldur.
Útgerðarfyrirtækið BGB varð til
nú um siðustu áramót með samein-
ingu útgerðanna Blika hf. á Dalvík
og GBen sf. á Árskógsströnd.
Hinn nýi Bliki var endumýjaður
í Slippstöðinni á Akureyri og settur
í hann sá búnaður sem íslensk lög
og reglur kveða á um. Togarinn
er 1734 rúmmetrar að stærð og
verður gerður út frá Dalvík. Ráð-
gert er að Bliki fari í sína fyrstu
veiðiferð fyrir nýja eigendur á
morgun, fimmtudaginn 6. mars.
Tveir fulltrúar Sjálfstæðisflokks sátu
hjá, en einn þeirra, Þórarinn B. Jóns-
son, var á móti breytingunum.
Þær eru fólgnar í þvi að þrír hverf-
isskóla verða á svæðinu, fyrir 1. til
10. bekk, en áður voru þrír skólar
með nemendur í 1. til 7. bekk. Nem-
endur skólanna þriggja fluttust þá í
Gagnfræðaskóla Akureyrar sem var
safnskóli fyrir 8.-10. bekk allra ungl-
inga sunnan Glerár.
Með samþykkt bæjarstjómar
ÁTAK í krabbameinsleit hjá konum
stendur nú yfir á Heilsugæslustöð-
inni á Akureyri. Leitað er að legháls-
krabbameini en leit að forstigum
krabbameins hefur reynst árangurs-
rík.
Einnig er leitað að bijóstakrabba-
meini en staðreyndir sýna að tólfta
hver kona fær sjúkdóminn. Sjálfs-
skoðun bijósta er mikilvæg forvarna-
raðgerð og regluleg bijóstaskoðun
getur bjargað lífi konunnar.
Að þessu sinni voru 517 konur
eldri en 40 ára boðaðar og hvattar
verða Gagnfræðaskólinn og Bama-
skóli Akureyrar sameinaðir í eina
stofnun, sem fram til þessa hefur
gengið undir vinnuheitinu Brekku-
skóli. Samþykkt var á fundi bæjar-
stjómar að hætta að nota það heiti.
Gert er ráð fyrir að af sameining-
unni verði nú í haust. Starfsemi skól-
ans mun fara fram í tveimur skóla-
húsum. Einn skólastjóri verður ráð-
inn að skólanum auk tveggja aðstoð-
arskólastjóra.
til að koma í skoðun. Um síðustu
mánaðamót höfðu um 60 konur svar-
að kallinu og mætt í krabbameins-
skoðun auk þeirra sem hafa pantað
tíma hjá sérfræðingi eða heimilis-
lækni. Til þess að átakið skili sem
bestum árangri þurfa konur á þess-
um aldri að koma áður en átakinu
lýkur þann 14. mars nk.
Konur hvattar til að panta tíma
Til kvenna í aldurshópnum yngri
en 40 ára hafa verið send út 580
bréf en aðeins 57 hafa komið í skoð-
Vatnið
flæddi um
allar götur
STARFSMENN Akureyrarbæjar
voru á þönum í þíðunni í gær enda
ótrúlegt magn af vatni á götunum.
I lok síðustu viku snjóaði af mikl-
um krafti og skaflar voru á hveiju
götuhorni. Sunnanáttin sem réð
ríkjum í gær breytti snjósköflun-
um í vatn sem streymdi um göt-
urnar. Jóhann Aðalsteinsson, einn
starfsmanna bæjarins, var í óða
önn að hreinsa niðurföll svo vatn-
ið rataði rétta leið. Hann sagði
að bæjarstarfsmenn hefðu sinnt
þessu starfi mestan hluta gær-
dagsins og ekki verið vanþörf á,
mest var þó vatnið að sögn Jó-
hanns við Verslunarmiðstöðina
Sunnuhlíð þar sem allt var umflot-
ið og eins í Skarðshlíðinni. Myndin
er tekin við gatnamót Einholts og
Þverholts þar sem gaugandi og
akandi vegfarendur þuftu yfir
stóra polla að fara.
un. Eru þær konur sem hafa fengið
bréf 6 sinnum eða oftar en ekki kom-
ið til skoðunar, hvattar til að panta
tíma strax. Um 90 konur á aldrinum
30-40 ára hafa aldrei farið í krabba-
meinsskoðun.
Starfsfólk Krabbameinsleitar heil-
sugæslustöðvarinnar bendir á að það
að mæta reglulega í skoðun geri
konan ekki einungis fyrir sjálfa sig,
heldur einnig fyrir sína nánustu.
Tekið er á móti pöntunum alla daga
á opnunartíma heilsugæslustöðvar-
innar, frá kl. 8-16, í síma 462 5511.
Morgunblaðið/Kristján
Þrír fyrir-
lestrar um
veraldar-
vefinn
ÞRÍR opnir fyrirlestrar verða haldnir
á vegum Háskólans á Akureyri næst-
komandi föstudag, 8. mars í Odd-
fellowhúsinu við Sjafnarstíg og hefj-
ast þeir kl. 14. Fyrirlestramir fjalla
um veraldarvefínn, menntun og upp-
lýsingaleit. Allir fyrirlesaramir eru
erlendir og verða fyrirlestrarnir flutt-
ir á ensku.
Dr. Marisa Lucena er í yfírstjórn
Kidlink tölvusamskiptaverkefnisins
fyrir böm 10 til 15 ára. Hún veitir
verkefninu í Brasilíu forstöðu en þar
hefur átt sér stað markverð upp-
bygging á Kidlink, m.a. fyrir börn
sem minna mega sín. Frá upphafi
verkefnisins 1990 hafa um 80 þús-
und böm frá 97 löndum tekið þátt
í verkefninu. Marisa hefur nýlokið
að veija doktorsritgerð sína um tölv-
usamskipti bama.
Dr. Daniel D. Wheeler er sálfræð-
ingur við kennaradeild Háskólans í
Cincinnatti og sérhæfir sig í hug-
rænni sálfræði auk þess að kenna á
námskeiðum um nám, hugsun,
þrautalausnir og rannsóknaraðferðir.
Hann hefur fengist mikið við notkun
tölva og tölvusamskipta í skóla-
starfi. í nokkur ár var hann forstöðu-
maður menntasviðs Kidlink.
Odd de Presno býr í Suður-Noregi
og starfar í tengslum við upplýsinga-
tækni og stjómun. Hann hefur skrif-
að tólf bækur og um 800 greinar sem
birst hafa í tímaritum um stómun
og upplýsingatækni. Bók hans, The
Online World, hefur verið á veraldar-
vefnum frá því 1993 og er stöðugt
haldið við. Bókin kom út á íslensku
í desember 1995 undir heitinu Net-
heimar. Hann skrifar mánaðarlega
greinar um veraldarvefinn í dagblöð
og tímarit víða um heim. Odd er
stofnandi og stjómandi Kidlink.
Morgunblaðið/Trausti Þorsteinsson
0
Atak í krabbameinsleit hjá konum á Akureyri
Dræm mæting í skoðun
BÍLATORG FUNAHOFÐA 1 S. 587-7777
Ragnar Lövdal,
lögg. bifreiðasali
Toyota Carina E 2000 GLi árg.
'94, gnllsans., sjálfsk., ek. 30 þús.
km. Verð 1.570.000. Skipti.
Arnþór Grétarsson,
sölumabur
Jeep Grand Cherokee Ltd. árg.
‘95, hvitm; einn með ölln, ek. aðeins
17þris. kvt. Verð 3.890.000.
Skipti.
MMC Eciipse GS árg. ‘95,
rauður, rafin. í riíðmn, samUsing,
þjófavaniurketfi o.fl., ek. 24 þtís.
kvt. Verð 2.150.000. Skipti.
Honda Prelude EXl Coupe 2300 Pontiac Bonncville SE árg. ‘95,
cc, árg. '96, ranður, rafin. íníðinn, brúngrár, rafin. í rítðmn,
samUesing, leðnrklieddur að innan, ek. savthesivg, ABS, air bag o.fi. , ek.
14 þús. kin. Verð 2.350.000. Skipti. 11 þiís. kvt. Verð 2.950.000
Nissan Patrol GR SLX 2800 dtsel Audi A 4 árg. ‘96, silfur, sjálfsk.,
Turbo áig. ‘95, hvítm; rafin. iríðinn, ABS, air bag, ck.26 þiís.
samhesing, 32“dekk, áfelgin; ek. 31 Verð 2.49Ö.000. Skipti.
þiís. kiv. Verð 3.450.000. Skipti.
Toyota 4Runner dísel Turbo árg. Subaru Legacy SJ. árg. '91,
‘94, vínrauðm; upphœkkaðm; 33“ rattður, beinsk., ek. 99þ. k.vi.
dekk, krótnfijgiit; ek. 77 þiís. kvi. Verð 1.060.000. Skipti.
Verð 2.580.000. Skipti.
JaguarXJ 6 árg. '88, vínraitðm;
vteð ölln. Sjón er sögu ríkari.
Sóllúga, ek. 90 þiís. kvi.
Verð 1.780.000. Skipti.
Opel Oinega árg. '95, blái; vi/öllu.
Aðeins eitt eintak til, sjálfsk., vél 6 syl
3000 cc, topphíga, leðursæti rafdrifm.
Sjón ersögu ríkari, ek. 26 þús. bn.
Verð 3.800.000. Skipti ájeppa.
Ford Escort 1600 CLX árg. '96,
hvítttt; savihesing, drdttarkúla, ek.
9 þús. kvi.
Verð 1.330.000. Skipti.
UTVEGUM BÍLALÁN ■ VÍSA OG EURO RAÐGREIÐSLUR