Morgunblaðið - 05.03.1997, Síða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 5. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
VIÐSKIPTI
FRÁ Höfn í Hornafirði.
lOOáraaf-
mælishátíð á
Höfn allt árið
Á ÞESSU ári eru liðin 100 ár frá því
að byggð hófst á Höfn í Homafirði.
Af því tilefni verður margt gert til
skemmtunar og fróðleiks og mun
dagskráin standa allt árið.
Meðal helstu viðburða í sumar skal
fyrst nefna yfirlitssýningu á verkum
Svavars Guðnasonar listmálara sem
er einhver þekktasti listamaður
Homafjarðar fyrr og síðar. Sýningin
er haldin af Sýslusafni Austur-
Skaftafellssýslu í samvinnu við Lista-
safn Íslands. íþróttahúsi staðarins
verður breytt í sýningarsal enda verð-
ur sýningin ein af þeim stærri sem
haldin hefur verið hér á landi á verk-
um Svavars, og þama má sjá fjöl-
mörg verk sem ekki hafa verið til
sýnis hérlendis áður. Má þar m.a.
nefna listaverkagjöf dönsku Dahlman
hjónanna að ógleymdri nýlegri gjöf
Astu Eiríksdóttur, ekkju Svavars, en
hún gaf Homafjarðarbæ á dögunum
flölda teikninga eftir Svavar ásamt
Qómm olíumálverkum. Em verkin nú
í innrömmun.
í dagskrá mars og apríl kennir
margra grasa en hæst ber djasstón-
leika 6. mars með Djassbandi Homa-
Qarðar ásamt Magnúsi Eiríkssyni,
Pálma Gunnarssyni og Grétari Orv-
arssyni, fmmsýningu Leikfélags
Homaíjarðar, Gjugghelgi elskenda á
Homafirði, hátíðarfund bæjarstjómar
Hornafjarðar, útgáfuhátíð vegna af-
mælisdisksins Kæra Höfn, þar sem
landskunnir tónlistarmenn og söngv-
arar flytja homfírsk lög o.fl.
Enn meira stendur til í sumar og
verður hápunktur hátíðarhaldanna
fyrstu helgina í júlí. Þá verður haldin
hin árlega Humarhátíð sem notið
hefur mikilla vinsælda undanfarin ár.
Forsetahjónin koma í heimsókn, vina-
bæjarmót norræns vinabæjar Homa-
fjarðar verður haldið, listafólk og
skemmtikraftar mæta á staðinn
o.s.frv. Þessi dagskrá verður vel kynnt
í sérstöku dagskrárblaði sem gefið
verður út fyrir sumarið.
Þann 1. júní verður Pakkhúsið opn-
að með pompi og pragt en þar verður
til húsa nýtt Sjóminjasafn Sýslusafns-
ins á jarðhæð, en á efri hæð verður
notaleg kaffistofa og sýningarsalur.
Pakkhús þetta var byggt árið 1930
og hefur verið í endurgerð undanfarin
ár. Húsið er í hjarta bæjarins við
höfnina og þar em áætlaðar ýmsar
uppákomur í framtíðinni.
Jafnframt þessu er áætlað að hefja
uppgröft á foma bæjarstæðinu í
Hólmi sem fannst í sumar í mynni
Laxárdals. Áætlað er að grafa upp
skálann í júní og kanna til hlítar
kumlið sem bærinn fannst út frá.
Kona á Kútmaga-
kvöld í fyrsta skipti
ísafirði - Árlegt kútmagakvöld Li-
onsklúbbs ísafjarðar var haldið í fé-
lagsheimilinu í Hnífsda! á laugar-
dagskvöld. í nær tuttugu ár hefur
aðgangur að samkomu þessari ein-
ungis verið heimilaður karlmönnum.
Breyting varð á hefð þessari á laug-
ardag er Þórunn Gestsdóttir, aðstoð-
armaður bæjarstjóra ísafjarðarbæj-
ar, mætti til skemmtunarinnar og
var ekki vísað frá eins og Bryndísi
Schram um árið.
Auk Þórunnar mættu um áttatíu
karlmenn á skemmtunina og nutu
þeir hinna ýmsu sjávarrétta þ.á m.
hinna hefðbundnu kútmaga. Sama
kvöld og kútmagakvöldið fór fram í
Hnífsdal bauðst gestum Sjallans á
ísafirði að sjá nektardansmeyjar frá
Óðali Erotic Club í Reykjavík og
komu þær við í Hnífsdal til að sýna
karlmönnunum hvað þær ættu í
vændum kæmu þeir í veitingahúsið
Sjallann.
„Þetta var forvitnilegt og
skemmtilegt kvöld og eiginlega alveg
eins og ég átti von ár. Þar sem þetta
var í fyrsta skipti sem ég sæki slíka
skemmtun hef ég ekki samanburð
og mér fannst karlamir ekki fara
fram úr hófi. Þeir voru nú það elsku-
legir að standa upp og syngja ,;Fóst-
urlandsins Freyja" fyrir mig. Eg ef-
ast um að ég eigi eftir að upplifa
slíka stemmingu aftur að vera eina
konan í hópi hátt í hundrað herra-
manna. Mér leið mjög vel,“ sagði
Þómnn Gestsdóttir.
Stórt snjóflóð úr Fossahlíð
ísafirði - Um þijú hundrað metra
breitt snjóflóð féll úr svonefndri
Fossahlíð í Skötufírði í ísafjarðar-
djúpi aðfaranótt þriðjudags og lokaði
þjóðveginum á milli Isafjarðar og
Reykjavíkur. Snjómoksturstæki hóf
að ryðja snjónum úr flóðinu eftir
hádegi í gær og var áætlað að vegur-
inn yrði orðinn fær að nýju síðdegis.
Um leið og tekist hafði að opna
veginn var leiðin til Reykjavíkur orð-
in fær en þæfmgsfærð var á Stein-
grímsfjarðarheiði í gær. Tvö snjóflóð
féllu einnig á veginn á Óshlíð sömu
nótt og var hann raddur í gærmorg-
un. í gær var einnig hafíst handa
við að ryðja Hrafnseyrarheiði en að
öllu jöfnu er hún ekki mokuð á þess-
um árstíma. Heiðin var rudd fyrir
Orkubú Vestfjarða en starfsmenn
hennar þurftu að koma spenni að
Mjólkárvirkjun í Arnarfirði.
Hagnaður Visa vex
um tæpan fjórðung
HAGNAÐUR af reglulegri starf-
semi Visa-ísland nam 86,7 milljón-
um króna á síðasta ári. Hagnaður-
inn óx um 16,4 milljónir króna eða
23,32% frá árinu áður þegar hann
nam 70,3 milljónum króna. Eigið
fé í árslok nam 874,2 milljónum
króna.
Á aðalfundi Visa sem haldinn
var á föstudaginn var kom fram
í máli Jóhanns Ágústssonar, for-
manns stjórnarinnar, að árið 1996
hefði reynst fyrirtækinu hagstætt
á alla lund og mikil gróska verið
í starfsemi þess.
Kortavelta Visa nam 93 millj-
örðum króna á síðasta ári. Þar af
voru viðskipti með kreditkortum
55,5 milljarðar króna og jukust
um 12% og viðskipti með debet-
kortum 38 milljarðar króna og
jukust um 55%. Innanlandsvelta
kreditkorta var 47 milljarðar
króna og veltan erlendis 8 milljarð-
ar króna. Innanlands jukust boð-
greiðslur mest eða um 18% og
námu alls 6,6 milljörðum króna.
Raðgreiðslur námu 3,8 milljörðum
og jukust um 12%. Þá jókst úttekt
reiðufjár í hraðbönkum hér innan-
lands mjög mikið og úttket er-
lendra ferðamanna nam 2,1 millj-
arði króna og jókst um 25,6% frá
fyrra ári.
Visakort á 85% heimila
í frétt frá Visa kemur fram að
Visakort eru nú á 85% allra heim-
ila í landinu og 75% landsmanna
á aldrinum 18-67 ára eru með slík
kort. í árslok voru útgefin árskort
227 þúsund, en þar af voru kredit-
kort 107 þúsund og fjölgaði um 6
þúsund milli ára og debetkort 120
þúsund og fjölgaði um 19 þúsund
milli ára. Þá hefur sérkortum Visa,
þ.e. gull- og farkortum fjölgað um
helming á tveimur árum.
Stjórn Visa var endurkjörin en
hana skipa eftirtaldir: Jóhann
Ágústsson, aðstoðarbankastjóri
Landsbanka íslands, formaður,
Sólon R. Sigurðsson, bankastjóri
Búnaðarbanka íslands, varafor-
maður, Sigurður Hafstein, fram-
kvæmdastjóri Sambands íslenskra
sparisjóða, ritari, og Björn Björns-
son, bankastjóri íslandsbanka hf.,
meðstjórnandi. Hinir þrír fyrstt-
öldu hafa verið í stjórn félagsins
frá upphafí árið 1983 og fram-
kvæmdastjóri frá sama tíma hefur
verið Einar S. Einarsson.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
FLUGFLUTNINGAR efndu til móttöku í síðustu viku í tilefni af opnun hinnar nýju skrifstofu og vöruaf-
greiðslu. Á myndinni eru f.v. þeir Úlfur Sigurmundsson, Þórarinn Kjartansson, Einar Ólafsson, Elías
Skúli Skúlason, Pierre Wesner og Lucien Huesmann.
FLUGFLUTNINGAR ehf., um-
boðsaðili Cargolux á íslandi,
opnaði formlega í síðustu viku
nýja skrifstofu og vöruaf-
greiðslu á Héðinsgötu 1-3 í
Reykjavík. Hið nýja húsnæði er
á svæði Tollvörugeymslunnar
eins og hið eldra, en er mun
rýmra og hentugra.
Samtals hefur fyrirtækið til
umráða um 400 fermetra á þess-
um stað. Starfsmenn eru fimm
talsins á skrifstofunni, en einnig
starfar fólk á vegum félagsins
á Keflavíkurflugvelli.
Þórarinn Kjartansson, fram-
kvæmdastjóri Flugflutninga
ehf. segir fyrirtækið ennfremur
hafa verið að huga að byggingu
Nýtt hús-
næði
Cargolux
vörugeymslu á Keflavíkuflug-
velli. Sótt hafi verið um lóð þar
fyrir um tveimur árum, en mál-
ið hafi þokast hægt. „Þetta und-
irstrikar það að rekstur Cargol-
ux á íslandi er kominn á fastan
grunn,“ sagði hann.
Starfsemi Cargolux hér á
landi hófst haustið 1994. Vélar
frá félaginu hafa viðkomu hér
tvisvar í viku á leiðinni á milli
Evrópu og Bandaríkjanna. Á
sunnudögum hefur viðkomu vél
á leið í austurátt frá Bandaríkj-
unum og fer sjðan áfram til
Lúxemborg. Á miðvikudögum
kemur hingað vél frá Lúxem-
borg en heldur síðan áfram til
Houston.
Markaðshlutdeild Cargolux í
útflutningi sem fór um Kefla-
víkurflugvöll var 8,4% á árinu
1996, en í innflutningi var hlut-
deildin 20,9%. Talsverð aukning
varð á innflutningi á árinu en
minni á útflutningi.
Fosshótel opna
íReykjavík
FOSSHÓTEL ehf. munu á morgun
opna formlega tvö nýuppgerð hótel
í Reykjavík, City Hótel á Ránargötu
og Hótel Lind við Rauðarárstíg.
Undanfarna mánuði hafa staðið
yfír gagngerar endurbætur á báðum
hótelunum, bæði á herbergjum og
sameiginlegri aðstöðu og eftir breyt-
ingamar eru nær öll herbergin á
báðum hótelunum með baðherbergi.
Fosshótelkeðjan, sem stofnuð var
á síðasta ári, er í eigu Safaríferða
en að Safaríferðum standa ferðaskrif-
stofa Guðmundar Jónassonar, ferða-
skrifstofan Úrval Útsýn og Ómar
Benediktsson, sem eiga 30% hlut
hver auk Halldórs Bjarnasonar, fram-
kvæmdastjóra Safaríferða sem á 10%
hlut.
Innan keðjunnar eru rekin sex
hótel og eitt gistiheimili, Hótel Áning
á Sauðárkróki og Varmahlíð, Hótel
Harpa á Akureyri og Kjarnalundi,
Hótel Hallormsstaður, Hótel Lind og
City Hótel auk gistiheimilisins Gula
Villan á Akureyri.
Að sögn Ómars Benediktssonar
standa yfir viðræður við fleiri hótel
um að ganga til liðs við keðjuna en
ætlunin er að Fosshótel verði innan
skamms að fínna sem víðast um
landið.
Sala Robo-
tics veldur
lækkunun
New York. Reutcr.
FYRIRHUGUÐ kaup banda-
riska tölvunetbúnaðarframleið-
andans 3Com Corp. á mótald-
framleiðandanum Ú.S. Robotics
fyrir 6.6 milljarða dollara hafa
leitt til lækkunar á verði hluta-
bréfa í 3Com, U.S. Robotics og
öðram helztu netfyrirtækjum
Bandaríkjanna.
Verð hlutabréfa í 3Com í
Santa Clara í Kaliforníu lækk-
aði um 4 dollara í 35 dollara.
Meiri viðskipti vora með hluta-
bréf í því fyrirtæki en öðrum
fyrirtækjum og skiptu rúmlega
40 milljónir bréfa um eigendur.