Morgunblaðið - 05.03.1997, Page 15
|L MORGUNBLAÐIÐ
ESB sam-
þykkiryf-
irtöku BA
Morgunblaðið. Brussel.
FRAMKVÆMDASTJÓRN Evrópu-
sambandsins hefur lagt blessun sína
yfír yfírtöku British Airways á
franska flugfélaginu Air Liberté, sem
átti sér stað í september á síðasta
ári. Framkvæmdastjómin segir það
álit sitt að þessi yfírtaka skapi Brit-
ish Airways ekki yfirburðastöðu á
markaðnum og því muni hún ekki
leggjast gegn henni.
British Airways keypti franska
flugfélagið í kjölfar gjaldþrots þess
síðastliðið haust. Air Liberté hóf
mikið verðstríð á franska innanlands-
markaðnum sem olli verulegum
lækkunum á flugfargjöldum. Verð-
stríðið reyndist hins vegar félaginu
ofviða og óskaði það eftir gjaidþrota-
skiptum í september á síðasta ári.
Air Liberté sinnir fyrst og fremst
innanlandsflugi innan Frakklands,
en BA hefur á undangengnum miss-
erum verið að hasla sér völl á þeim
markaði, nú síðast með yfírtöku á
franska flugfélaginu TAT í septem-
ber á síðasta ári. Bæði þessi flugfé-
lög reka starfsemi sína fyrst og
fremst frá Orly-flugvellinum í París.
----------*—*—*---
Renmilt
fækkar
starfsfólki
París. Reuter.
FRÖNSKU Renault bílaverksmiðj-
urnar hafa tilkynnt nefndum starfs-
manna að í ráði sé að fækka störfum
um 2.764 í Frakklandi. Fyrirtækið
stendur frammi fyrir miklu tapi og
minnkandi eftirspum og hefur þegar
ákveðið að loka verksmiðju í Belgíu.
Reiðir verkalýðsleiðtogar hafa tjáð
fyrirtækinu að það kunni að standa
andspænis löngum yinnudeilum
vegna niðurskurðarins. Ahrifamiklir
stjómarliðar í franska þinginu saka
stjórnarformann Renault, Louis
Schweitzer, um fljótfærni og hvetja
tii viðræðna.
Á fimmtudaginn ákvað Renault
að loka verksmiðju sinni í Vilvoorde
skammt frá Briissel í júní og þá
missa þá 3.100 atvinnuna, en 1.000
störf birgðafyrirtækjum komast í
hættu. Starfsmenn Renault eru
140.000.
Talsmaður Renault sagði að mið-
nefndir starfsmanna kæmu saman
13. marz að ræða „atvinnuáætlun"
í Frakklandi.
Samkvæmt áætluninni er gert ráð
fyrir „endurskipulagningu starfs-
mannahalds, tilfærslum innan fyrir-
tækisins, útrýmingu starfa og ráð-
stöfunum til að útvega ungu fólki
atvinnu." Nýráðningar eiga að vega
á móti starfslokasamningum að sögn
talsmannsins.
Niðurskurðurinn er sá mesti hjá
Renault síðan lögð voru niður 3.700
störf 1992 þegar fyrirtækið var enn
í ríkiseign. Franska ríkið á enn 46%
í því.
Starfsmenn Renault hafa boðað
eins klukkutíma verkfalls á fóstudag
í öllum verksmiðjum fyrirtækisins í
Frakklandi, Belgíu og Spáni til að
mótmæla lokun belgísku verksmiðj-
unnar.
Röng
afkomu-
hugtök
í FRÉTT á viðskiptasíðu í gær var
ranglega sagt að afkoma Eimskips
af reglulegri starfsemi hefði versn-
að um 711 milljónir á milli ára.
Eins og lesa mátti úr töflu sem
fylgdi með fréttinni var hér átt við
afkomu af rekstri án fjármuna-
tekna- og fjármagnsgjalda. Beðist
er velvirðingar á þessum mistökum.
____________________________________MIÐVIKUDAGUR 5. MARZ 1997 15
VIÐSKIPTI
| pU mest seldu fólksbíla- Lr i tegundirnar í Br frá J \ J jan.-feb. 1997 fyrra ári Fjöldi % %
1. Tovota 245 17,9 +39,2
2. Subaru 177 12,9 +471,0
3. Mitsubishi 151 11,0 +93,6
4. Volkswaqen 131 9,6 -3,7
5. Hvundai 108 7,9 +25,6
6. Nissan 90 6,6 +30,2
7. Ford 80 5,8 +6,7
8. Opel 77 5,6 +40,0
9. Suzuki 70 5,1 +1,4
10. Renault 60 4,4 +20,0
11. Honda 31 2,3 +121,4
12. Volvo 18 1,3 -18,2
13. Masda 17 1,2 -22.7
14. Ssanqvonq 16 1,2
15. Skoda 15 1,1 +87,5
Aðrar teg. 82 6,0 -9,9
Samtals 1.368 100,0 +31,3
Bifreiðainnflutningur
í janúar til febrúar
1996 og 1997
1368
.FÓLKSBÍLAR,
nýir
1996 1997
VORU-,
SENDI- og
HÓPFERÐA-
BÍLAR, nýir
^ 120^
1996 1997
Sala fólksbíla vex um nær þriðjung
NÆR þriðjungi fleiri nýir fólksbílar seldust á fyrstu tveimur mánuðum ársins,
en á sama tímabili í fyrra, samkvæmt upplýsingum frá Skráningarstofunni hf.
Þannig seldust á tímabilinu 1.368 nýir fólksbílar, en 1.042 bílar í fyrra. Athygli
vekur að Toyota hefur aukið sölu sína um 39% milli ára og hefur því ívið
sterkari stöðu en í fyrra. Þá hefur Subaru nú skotist upp í annað sætið yfir
mest seldu fólksbílana, en sala þessarar tegundar var nær sexfalt meiri en í
fyrra. Sala fleiri tegunda hefur aukist mikið, en nokkur dæmi eru um tegundir
sem virðast eiga á brattan að sækja á markaðnum, t.d Volvo og Mazda-bíla.
Fyrirhugað álver á Grundartanga
Landsbréf at-
huga möguleika
á fjármögnun
LANDSBRÉF hf. munu hugsanlega
sjá um hluta fjármögnunar vegna
byggingar álvers Columbia Ventures
á Grundartanga. Hlutur Landsbréfa
gæti numið einum milljarði króna en
áætlaður heildarkostnaður við smíði
álversins nemur um 13 milljörðum.
Málið á frumstigi
Bygging álversins verður að mestu
leyti fjármögnuð með erlendum
bankalánum en að undanfömu hafa
forsvarsmenn Columbia Ventures
kannað hvort unnt sé að fjármagna
hluta hérlendis. Áætlaður kostnaður
við smíði álversins er um 13 millj.
króna og hefur verið rætt um að
Landsbréf tækju að sér að útvega
um einn milljarð til framkvæmdanna.
Davíð Björnsson, hjá Landsbréf-
um, segir að á þessari stundu sé al-
veg óvíst hvort af fjármögnuninni
verði eða hvaða kjör yrðu í boði.
„Þetta mál er á frumstigi og við
þurfum að vinna okkar heimavinnu
áður en hægt er að gefa nánari upp-
lýsingar. Landsbréf hafa eingöngu
samið við Columbia Ventures um að
sjá um þessa ijármögnun ef þeir fara
út í hana hérlendis. Þetta fjárfesting-
arverkefni yrði mjög sérstakt og
ekki hægt að bera það saman við
aðrar íjárfestingar. Hér yrði um
langtímalán að ræða og við myndum
því líklega leita til stórra fjárfesta
með fjármögnunina, sem væru reiðu-
búnir að binda fé sitt til fímmtán ára
eða svo,“ segir Davíð.
Gengið til samninga í framhaldi af bílaútboði Ríkiskaupa
Jeppar boðnir með
600þús. kr. afslættí
RÍKISKAUP hafa í framhaldi af
útboði ákveðið að ganga til samn-
inga við 11 bílaumboð um kaup á
samtals 75 nýjum bílum fyrir 18
ríkisstofnanir. Um er að ræða bíla
í ýmsum flokkum, bæði fólksbíla,
jeppa, sendibíla og pallbíla. Heildar-
verðmæti bílanna er áætlað um 163
milljónir króna.
Bjarni Þórólfsson, verkefnastjóri
hjá Ríkiskaupum, sagði í samtali
við Morgunblaðið að tilboðin hefðu
verið mjög hagstæð í samanburði
við almennt verð bílaumboðanna.
Ríkisstofnanir þurfa fyrir útboðið
að senda inn útfyllta kaupóskayfír-
lýsingu, þar sem þær lýsa því hvers
SalaVW
eykst utan
Þýzkalands
Frankfurt. Reuter
SALA Volkswagen AG í janúar
jókst um 18,1% í 329.300 bíla,
einkum vegna góðrar útkomu í
Brasilíu og Asíu, en lítil aukning
varð á sölunni í Þýzkalandi.
Janúarsala VW í Þýzkalandi
jókst um 2% í 73.300 bíla úr
71.870 í janúar 1996.
Vöxtur fyrirtækisins erlendis
var undirstaða hagnaðar VW
1996, sem tvöfaldaðist í 673
milljónir marka.
Cathay kaupir
fleiri Airbus
París. Reuter.
FLUGFÉLAGIÐ Cathay Pac-
ific Airways Ltd hefur undirrit-
að samninga um kaup á tveim-
ur langfleygum Airbus A340-
300 og einni A330-300 far-
þegaþotu að sögn Airbus Ind-
ustrie.
Að þessum þremur meðtöldum
hefur Cathay pantað alls 24
vélar úr Airbus A330/340 fjöl-
skyldunni — þar af 11 A340-
300 og 13 A330-300 að sögn
Airbus.
konar bíla þær hafa hug á að kaupa.
Bílarnir eru síðan flokkaðir niður
eftir stærð, mótorstærð, burðargetu
o.s.frv. Á svipuðum tíma fer fram
forval þar sem bjóðendum gefst
kostur á að sýna hvað þeir hafa í
boði, þ.e.a.s. bifreiðategundir með
tæknilegum upplýsingum. Að því
búnu er hafíst handa við að raða
saman því sem er í boði og þörfum
einstakra stofnana.
í útboðinu sjálfu kemur síðan í ljós
hvaða bíll er ódýrastur í hverjum
flokki.
Mitsubishi til lögreglunnar
Að þessu sinni var t.d. samið við
FERÐASKRIFSTOFAN Sam-
vinnuferðir-Landsýn gerði nýver-
ið samning við Avis-bílaleiguna
um gagnkvæm viðskipti fyrirtíekj-
anna. Avis-bílaleigan sem er ein
sú stærsta á sínu sviði í heiminum
í dag mun útvega viðskiptavinum
Samvinnuferða-Landsýnar bíla-
leigubíla á öllum helstu áfanga-
Bifreiðar og Landbúnaðarvélar hf.
um kaup á Land Rover Discovery
jeppum sem buðust á 2.184 þúsund
kr., en almennt verð er 2.780 þús-
und kr. Afslátturinn nam því um
600 þúsund krónum af hveijum bíl.
Þá buðust Renault Megane
Classic fólksbílar á 1.048 þúsund
kr., en almennt verð er 1.498 þús-
und kr. Mitsubishi Galant býðst nú
á 2.170 þúsund kr„ en kostar al-
mennt hátt í 2,7 milljónir kr. Þess-
ir bílar eru ætlaðir lögreglunni.
Loks má nefna að Ford Econoline
var boðinn á 2.298 þúsund kr„ en
almennt verð er um 2.617 þúsund
kr.
stöðum félagsins.
Fram kemur í frétt frá ferða-
skrifstofunni að hún hafi áður átt
viðskipti við ýmsar bílaleigur, en
með þessum samningi skuldbindi
hún sig til að skipta eingöngu við
Avis. Samningar við Avis tryggi
hagstæðara Ieiguverð og um leið
bætta þjónustu fyrir neytendur.
Stjórnarformaður SH
Anægju-
legt að L V
hefur trú
á félaginu
JÓN Ingvarsson, stjórnarfor-
maður Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna hf„ segir ekkert
nema gott um það áð segja að
íjárfestar á borð við Lífeyrissjóð
verslunarmanna skuli hafa
þann áhuga og trú á félaginu,
sem fram hafí komið við kaup
lífeyrissjóðsins á 6,7% eignar-
hlut í SH.
Kaupin voru gerð með fyr-
irvara um forkaupsrétt stjóm-
ar, hluthafa og framleiðenda,
sem selt hafa afurðir í gegnum
SH á síðastliðnum 12 mánuð-
um. Jón benti á að SH væri
lokað hlutafélag og ógerlegt
væri að segja fyrir um hvort
aðilar myndu nýta forkaupsrétt
sinn.
Könnun Fijálsrar
verslunar
Bónus er
vinsælasta
fyrirtækið
BÓNUS er nú vinsælasta fyr-
irtæki landsins, samkvæmt ný-
legri skoðanakönnun tímarits-
ins Fijálsrar verslunar. Tekið
var úttak úr símaskrá og svör-
uðu alls 491. Tæplega 19%
þátttakenda kváðust hafa já-
kvætt viðhorf til Bónuss en þar
á eftir koma Hagkaup, Flug-
leiðir, Samheiji og Eimskip.
Eimskip var aftur á móti
oftast nefnt þegar spurt var
um fyrirtæki sem þátttakendur
höfðu neikvætt viðhorf til.
Kváðust 9% þátttakenda hafa
neikvætt viðhorf til félagsins,
en þar á eftir komu Flugleiðir,
Hagkaup, Bónus og RÚV.
Fram kemur í tímaritinu að
aldrei áður hafí matvöruversl-
anir notið jafn mikilla vinsælda
meðal almennings. í þrettán
efstu sætunum eru sex þekktar
matvörukeðjur, Bónus, Hag-
kaup, 10-11, Fjarðarkaup,
Nóatún og Kaupfélag Árnes-
inga.
HELGI Jóhannsson framkvæmdastjóri Samvinnuferða-Landsýn-
ar, Auður Björnsdóttir deildarstjóri Samvinnuferða-Landsýnar,
Hafsteinn J. Reykjalín eigandi Avis á íslandi, Pálmar Sigurðsson
framkvæmdastjóri Avis á íslandi, Leif Eddy Iversen sölu- og
markaðsstjóri Avis í Evrópu.
Samvinnuferðir
semja við Avis