Morgunblaðið - 05.03.1997, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 5. MARZ 1997 17
Vaxandi
ógn af E-
pillunni
MISNOTKUN tilbúinna efna
eins og E-pillunnar (ecstasy)
og megrunarpillna, sem
kynntar eru sem eins konar
kraftaverkalyf, eykst stöðugt
um heim allan. Kemur það
fram í skýrslu frá Sameinuðu
þjóðunum. Segir þar einnig,
að ríkisstjórnir geri allt of lítið
til að hafa hendur í hári þeirra,
sem framleiða og dreifa fíkni-
efnum. Þá er vakin athygli á
miklum völdum alþjóðlegra
glæpahringa og sagt, að þeir
séu bein ógnun við ríkisvaldið,
lögreglu, dómara og stjóm-
málamenn.
Ciller áfram
í stjórn
TANSU Ciller, varaforsætis-
ráðherra Tyrklands, sagði í
gær, að hún ætlaði ekki að
slíta samstarfinu við Velferð-
arflokk Necmettins Erbakans
forsætisráðherra. Var tilefnið
það, að herinn hefur varað
Erbakan og flokk hans við að
ýta undir íslamskt trúarofs-
tæki en flokkur Cillers er and-
vígur áhrifum trúflokka í
stjórnmálum og hlynntur
Vesturlöndum. Aður höfðu
íjölmiðlar haft eftir Ciller, að
hún myndi segja skilið við
Erbakan færi hann ekki að
ráðum hersins.
Rod-Larsen
sektaður
TERJE Rod-Larsen, fyrrver-
andi skipulagsráðherra Nor-
egs, hefur verið sektaður um
500.000 ísl. kr. fyrir að hafa
gefið rangar upplýsingar í
skattframtali fyrir 1986 um
kaup og tekjur af hlutabréfum
í fískvinnslufyrirtækinu
Fideco. Rod-Larsen varð að
segja af sér sem ráðherra sl.
haust vegna þessara mála og
hafði þá aðeins gegnt embætt-
inu í þijár vikur.
Nauðgunum
fjölgar
NAUÐGANIR eru hvergi fleiri
en í Suður-Afríku og þeim
fjölgaði enn á síðasta ári en
öðrum alvarlegum glæpum
fækkaði hins vegar. Nauðgan-
ir voru 119,5 á hveija 100.000
íbúa en 115,2 1995. í fyrra
var framið 61,1 morð á hveija
100.000 íbúa en 64,6 árið áð-
ur.
Kosningar í
Alsír
STJÓRNVÖLD í Alsír hafa
boðað til almennra þingkosn-
inga í landinu 5. júní nk. og
var það ákveðið eftir fund
Liamine Zerouals forseta og
leiðtoga níu stjórnmálaflokka.
Ekkert kjörið þing eða sveitar-
stjórnir hafa verið í Alsír síðan
1992 þegar herstjórnin aflýsti
kosningum, sem líklegt þótti,
að bókstafstrúarmenn myndu
vinna. Síðan hefur geisað mik-
il óöld í landinu og a.m.k.
60.000 hafa fallið í valinn.
FRÉTTIR
Þýzk-franskar tillögur á ríkjaráðstefnu ESB
VES verði sameinað ESB
Bonn. Reuter.
UTANRÍKISRÁÐHERRAR
Þýzkalands og Frakklands, Klaus
Kinkel og Hervé de Charette,
greindu frá því eftir fund í Bonn á
mánudaginn að þeir hefðu sam-
mælzt um sameiginlegar tillögur
varðandi umbætur á sameiginlegu
utanríkis- og öryggismálastefnu
ESB (CFSP), sem lagðar yrðu fram
á vettvangi ríkjaráðstefnunnar nk.
mánudag.
Kinkel sagði að ríkisstjórnir
beggja landa leggðu til að Vestur-
evrópusambandið, VES, yrði sam-
einað ESB í áföngum. Þetta skyldi
fest í grundvallarsáttmála sam-
bandsins.
Ríkjaráðstefnan ætti einnig sam-
kvæmt þýzk-frönsku tillögunum að
fela leiðtogaráði ESB, sem kemur
saman tvisvar á ári, umboð til að
leggja VES^ línurnar um starf þess
og stefnu. Ákvæði um friðargæzlu-
og mannúðarverkefni ætti ennfrem-
ur að skrá í hinn endurskoðaða
sáttmála, sögðu ráðherrarnir.
Þeir nefndu einnig sameiginlegar
hugmyndir um hvernig gera mætti
framkvæmd sameiginlegu utanrík-
is- og öryggismálastefnunnar skil-
virkari. Þeir sögðust sammála um
þörfína á því, að stofnað yrði nýtt
embætti, skipað manni sem hefði
það hlutverk að hafa umsjón með
samræmingu stefnunnar.
„ESB þarfnast nánara samráðs
og undirbúnings á sviði sameigin-
legu utanríkis- og öryggismála-
stefnunnar," sagði Kinkel.
Með tilliti til áformanna um að
taka ný aðildarríki inn í raðir ESB,
lögðu ráðherrarnir áherzlu á að
ákvarðanataka innan sambandsins
yrði gerð skilvirkari með aukinni
beitingu meirihlutaákvarðana.
Fermingarmyndir
PETUR PETURSSON
LJÓSMYNDASTÚDÍÓ
LAUGAVEGI 24 • SÍMI 552 0624
Utanríkisráðherra Bretlands
Varar við samstarfi án samráðs
París. Reuter.
MALCOLM Rifkind, utanríkisráð-
herra Bretlands, varaði í fyrradag
Frakkland og Þýzkaland við því að
auka samstarf innan Evrópusam-
bandsins án þess að eiga samráð
við hin aðildarríkin. Bretland krefj-
ist þess, að öll löndin verði að sam-
þykkja hvers konar áætlanir um
að nokkur útvalin aðildarríki gangi
lengra í samrunanum en önnur.
Áskorun Rifkinds kemur í kjölfar
sameiginlegra hugmynda stjóm-
valda í Bonn og París um að ákvæði
um aukinn sveigjanleika verði tekin
upp í sáttmála ESB, sem kæmu í
veg fyrir að eitt ríki gæti beitt
neitunarvaldi gegn fyrirætlunum
annarra um nánari samruna.
„Það sem er vafasamt, er sú til-
laga að lítill hópur Evrópuríkja
geti tekið sig saman um nánari
samruna innan ESB án samþykkis
annarra aðildarríkja. Vilji þessi ríki
auka samstarf á vettvangi ESB,
þýðir það að þau verða að geta
nýtt sér stofnanir ESB, en þær til-
heyra öllum ESB-ríkjunum sameig-
inlega,“ sagði Rifkind í París.
Þangað lagði hann leið sína eftir
svipaðar heimsóknir í Stokkhólmi
og Bonn, til að útskýra betur af-
stöðu brezku stjórnarinnar til sam-
starfsins innan ESB, sem hefur
sett Breta að miklu leyti út í hom
í sambandinu.
■-----------■
SLIM-LINE
dömubuxur
frá gardeur
öðunnj
tískuverslun
j V/Nesveg. Seltj., s. 561 1680 j
$ jteíKmjj lj
Takmarkað magn
Stendur til
8.mars
ÞAW
70% ,
ats\áttur.
UTSALA
á raftækjum og eldhúsáhöldum
Kæliskápar
8 gerðir
Frystiskápar
3 gerðir
Verðdæmi:
Gerð KFS250
mál: 141x54x57.
Fullt verð
kr. 46.200.
Þvottavélar
2 gerðir
1000/500 sn.
Verð áður
kr. 59.600.
Þurrkarar frá
kr.31.900.
Uppþvottavéiar „
3 gerðir. -L
Verðdæmi:
Gerð GS601
12 manna,
4 kerfi,
mikrósía.
Fullt verð
kr. 59.900.
Innbyggingar-
ofnar
5 gerðir
Verðdæmi:
HE0601 ofn,
MP 604 hellur.
Verð áður
kr. 79.600.
‘ • • * • •
Örbylgju-
ofnar
4 gerðir.
Verðdæmi:
Fullt verð
kr. 19.900.
Núaðe1
Viú aðeins
Sælkeraofn
Fermingar-
stæða
2x50 wött.
Verð áður
kr. 43.900.
Kaffivélar frá kr. 1.000 - Stálpottar 30% aflsáttur
- Römerpottar 40% afsláttur.
Sleppta ekki þessu Uektfieri
Einar
Farestveit&Cohf
Borgartúni 28, sími 562 2900 / 562 2901