Morgunblaðið - 05.03.1997, Page 34
34 MIÐVIKUDAGUR 5. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
4-
Ljóska
Ferdinand
Smáfólk
ANDTME‘1' MAVE A 5ECRETARV OF PEFEN5E AND A SECRETARV OF A6RICULTURE... ___ | BUT THEV DON T HAVE A 5ECRETARY OF BIRD5 50 YOU CAN NEVER BE THE SECRETARV OF BIRD5.. í VOURE \ » l'jK l RlGHT..U)H0 ) | / f V^CARE5? J
í |
Og þeir hafa varnarmálaráð- En þeir hafa ekki fuglamálaráð- Þú hefur rétt fyrir
herra og landbúnaðarráð- herra svo að þú getur aldrei orð- þér... hverjum
herra... ið fuglamálaráðherra ... stendur ekki á sama?
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reylqavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
• Netfang: lauga@mbl.is
Stephanssjóð í stað
Stephansstofu?
Opið bréf til alþingismanna
Frá Tryggva. V. Líndal:
KÆRU Páll Pétursson og Mörður
Ámason:
Nú liggur fyrir Alþingi þings-
ályktunartillaga frá ykkur, um
stofnun „Stephansstofu", til að
sinna málefnum Vestur-íslend-
inga og afkomenda þeirra og ann-
arra íslendinga erlendis. Eru uppi
hugmyndir um að spyrða stofuna
við Vesturfarasafnið á Hofsósi.
Þó að eflaust sé einhver hagræð-
ing í því, vil ég þó, sem almennur
borgari, minna á allar hinar stofn-
anirnar og hópana sem einnig
væri hægt að beina slíkri starf-
semi til.
Þar er fyrst að nefna Vináttufé-
lag íslands og Kanada, VÍK, sem
ég veiti formennsku. En það hefur
Kanada að sínu viðfangsefni; lýði
þess og landshætti. í reynd hefur
það þó frá stofnun sinni fyrir
tveimur árum, lagt megin áherslu
á umfjöllun um Vestur-Islendinga,
vegna þarfar fólks fyrir eitthvert
slíkt félag. Má segja að félagið sé
í raun tilraun til að spyrða saman
áhuga fólks á landsvinafélagi, fé-
lagi um Vestur-íslendinga, og
áhugafélagi um mannfræði.
Vestur-Islendinganefnd VÍK
var stofnuð til að hlaupa í skarðið
fyrir Þjóðræknisfélagið hér á Is-
landi, sem var þá mjög í láginni.
Mannfræðinefnd VÍK var stofnuð
til að taka upp hanskann fyrir hið
burtsofnaða Félag áhugamanna
um mannfræði. (En þess má geta
að undirritaður nam mannfræði í
Kanada.)
Félagið hefur einkum starfað
sem alþýðlegt fyrirlestrafélag og
hafa fyrirlestramir verið margir
og fjölsóttir.
í stjórn okkar hafa m.a. setið
fyrrum félagar í Þjóðræknisfélag-
inu, fyrrum_ háskólanemar í
Kanada frá íslandi, nýbúar frá
Kanada á íslandi og starfsmaður
ræðismannaskrifstofu Kanada á
íslandi.
Vikublaðið Lögberg-Heims-
kringla, sem enn kemur út í
Kanada, greinir frá fundum okkar.
Næst má nefna Þjóðræknisfé-
lagið á íslandi, en það er nú í
uppsveiflu. Það beinist einkum að
Vestur-íslendingum í Kanada og
í Bandaríkjunum.
Þá má nefna Stofnun Vilhjálms
Stefánssonar, er tengist Há-
skólanum á Akureyri. En Vil-
hjálmur var kanadískur ríkisborg-
ari af íslenskum ættum, og land-
könnuður, einkum í Kanada. Hann
var mannfræðingur. Höfðar hann
því til áhuga bæði Vestur-íslend-
inganefndar VÍK og mannfræði-
nefndar VÍK. Mannfræðingur hef-
ur og verið starfsmaður hjá stofn-
uninni og er vonandi að slík þjóð-
fræðileg tengsl víki ekki alveg
fyrir áherslu á náttúrufræðileg
efni.
Einnig má nefna stofnanir er
tengjast Háskóla Islands og Vest-
ur-Islendingum: Árnastofnun,
Stofnun Sigurðar Nordal, ís-
lenskudeild og enskudeild HÍ,
Mannfræðistofnun, mannfræði-
nefnd HÍ, mannfræðideild HÍ, og
norrænu nefndina um kanadísk
fræði.
Ekki má heldur gleyma ræðis-
mannsskrifofu Kanada á íslandi,
en þar starfar fólk við að rækta
tengsl okkar við Vestur-íslendinga
í Kanada, svo og við aðra Kanada-
menn; einkum þó á viðskiptasvið-
inu.
Af öðrum landsvinafélögum hér-
lendis er tengjast Vestur-íslending-
um eða Kanada, má nefna vináttu-
félag Islands og Bandaríkjanna og
Anglíu. Varðandi virkjun félaga-
tengsla við íslendinga annars stað-
ar en í Ameríku, má nefna Nor-
rænu félögin á íslandi.
Þá er að nefna Vesturfarasafnið
á Hofsósi, svo sem vikið var að í
upphafi.
Einnig hefur verið starfandi
þjóðræknisfélag á Akureyri, sem
er nefnd utúr einu af Þjóðræknis-
félögum íslendinga í Vesturheimi.
Þá má telja samskiptanefnd
utanríkisráðuneytis um Vestur-
íslendinga, sem lauk störfum í
fyrra, eftir að hafa safnað upplýs-
ingum um fólk af íslenskum upp-
runa í Kanada og Bandaríkjunum.
Einnig safna- og listadeild
menntamálaráðuneytis, sem hefur
stutt menningarferðir þangað,
ásamt utanríkisráðuneytinu. Flug-
leiðir og Búnaðarsambandið hafa
einnig staðið fyrir hópferðum
þangað, sem og ferðafélög og tón-
listarfélög.
Á árum áður mun einnig hafa
verið til þingmannanefnd, sem
Jónas frá Hriflu stofnsetti, til að
tryggja framlög til viðhalds sam-
bandinu við Vestur-íslendinga.
Lifir hún nú eflaust áfram í anda.
Handritadeild og þjóðdeild Þjóð-
arbókhlöðu má ekki gleyma, en
þær varðveita og safna efni frá
Vestur-íslendingum.
Loks má nefna Sagnfræð-
ingafélag íslands og Ættfræðifé-
lagið, en þar eru áhugamenn um
Vestur-íslendinga sem hægt væri
að styrkja.
Eðlilegast þætti mér ef um
Stephansstyrk eða Stephanssjóð
væri að ræða, fremur en Stephans-
stofu; þangað gætu þá allir ofan-
nefndir aðilar átt kost á að sækja
um fé til tiltekinna verkefna.
Þannig væru einnig mestar líkur
á að um alþýðlega hópvirkni yrði
að ræða, þegar upp væri staðið.
TRYGGVIV. LÍNDAL,
Skeggjagötu 3, Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
-