Morgunblaðið - 05.03.1997, Blaðsíða 48
UYUNDAI
HÁTÆKNI TIL FRAMFARA
H Tæknival
SKEIFUNNI 17
SlMI 550-4000 • FAX 550-4001
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMl 669 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBUaCENTRUM.lS / AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1
MIÐVIKUDAGUR 5. MARZ 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Miklar
breytingar
* á brott-
fararsal
Grindavík. Morgunblaðið.
RÁÐIST hefur verið í að stækka
brottfararsalinn í Flugstöð Leifs
Eiríkssonar i suður og bætast
þannig við þrjú borð eða sex af-
greiðslustöðvar. Eftir breytingar
verður hægt að innrita farþega á
tuttugu stöðum i stað fjórtán. Þá
flytja Flugleiðir alla aðstöðu
starfsfólks og söludeild í hús-
næðið sem Póstur og sími hafði
áður. 1 húsnæði sem losnar verður
sett upp öryggisskoðunarsvæði
og í framtíðinni verður þar
sprengjuleitartæki.
Að sögn Óskars Valdimarssonar
þjá Framkvæmdasýslu ríkisins er
stækkun brottfararsalarins orðin
mjög brýn og var brugðið á það
ráð að rífa salerni og fleira, sem
var ónýtt húsnæði. Vonast er til
að þessi stækkun og eins hagræð-
ing hjá Flugleiðum þegar álagið
er mest dugi næstu 10-15 ár.
„Á svæðinu sem Flugleiðir
rýma bak við vegginn í brottfar-
T arsalnum verður sett upp öryggis-
skoðunarsvæði með færiböndum
fyrir farangur. Ráðgert er síðan
að setja þar upp sprengjuleitar-
tæki en Alþjóða flugmálastofnun-
in hefur gert kröfur um slíkt
tæki á alla alþjóðaflugvelli fyrir
aldamót. Samtals munu þessar
breytingar kosta um 60 miHjónir
króna. Er þá ekki talinn kostnað-
ur Flugleiða. Sprengjuleitartæki
mun svo kosta um 50 miHjónir
króna,“ sagði Óskar. Hann sagði
að næsta stækkun flugstöðvarinn-
ar yrði tvöföldun brottfararsalar-
ins í norður. Búist er við að ráð-
ist verði í þá stækkun árið 2015.
Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson
VEGGIR í flugstöð Leifs Eiríkssonar hafa verið brotnir niður
til að stækka brottfararsalinn.
1.367 bíða eftir bæklunaraðgerðum
Stefnt að því að
stytta biðlista
HEILBRIGÐISRÁÐUNEYTIÐ
vinnur nú að aðgerðum sem miða
að þvi að stytta biðtíma eftir bækl-
unaraðgerðum niður í 3-6 mánuði.
Nú eru 1.367 á biðlistum eftir bækl-
unaraðgerðum og hefur sjúklingum
sem bíða fjölgað á síðustu árum.
Biðtími eftir gerviliðaaðgerð er
núna 9 mánuðir.
Samkvæmt fjárlögum hefur heil-
brigðisráðuneytið 100 milljónir til
ráðstöfunar í hagræðingarsjóði og
er fyrirhugað að verja hluta þeirra
til að gera sérstakt átak í að fækka
á biðlistum eftir bæklunaraðgerð-
um. Stefnt er að því að endurskoða
dreifíngu aðgerða í ljósi þess að
bæst hefur við ný læknisaðstaða á
Akureyri og veitt hefur verið sér-
stakt fé til Sjúkrahússins á Akra-
nesi í bæklunaraðgerðir.
Heilbrigðisráðherra vill auka
samvinnu og sameina verkefni
sjúkrahúsanna á Reykjavíkursvæð-
inu. Með því móti er reiknað með
að aukin sérhæfing fáist, betra
skipulag og meiri afköst, m.a. þar
sem slysalækningar yrðu einungis
á einum stað.
Hér á landi eru gerðar fleiri bak-
aðgerðir en í nágrannalöndum okk-
ar og ætlar heilbrigðisráðuneytið
að kanna þetta sérstaklega í sam-
vinnu við landlækni og hvaða áhrif
þetta hefur á biðlista og biðtíma í
bæklunarlækningum yfirleitt.
■ Mestur vandi/12
Verkamenn hjá skipafélögum og Löndun
89,8% samþykktu
verkfall 12. mars
YFIRGNÆFANDI meirihluti Dags-
brúnarmanna hjá Eimskipi hf., Sam-
skipum hf. og fyrirtækinu Löndun
ehf., eða alls 89,8%, samþykkti í at-
kvæðagreiðslu í gær tillögu um verk-
fall sem hefjist á miðnætti 12. mars.
138 voru á kjörskrá hjá Eimskipi,
77,5% greiddu atkvæði. 86,9% sam-
þykktu tillöguna en 12,1% sagði nei.
Hjá Samskipum voru 65 manns á
kjörskrá. 83% greiddu atkvæði,
94,4% sögðu já en 5,6% nei. Hjá
Löndun voru 17 á kjörskrá, 94,1%
greiddi atkvæði, 93,7% sögðu já en
6,3% nei. Fjórar félagskonur í verka-
kvennafélaginu Framsókn, sem
starfa hjá Eimskipi, greiddu einnig
atkvæði í gær um verkfallstillögu og
var hún samþykkt með öllum greidd-
um atkvæðum.
Atkvæðagreiðsla stendur nú yfir
meðal Dagsbrúnarmanna á olíu-
stöðvum og bensínafgreiðslustöðvum
um boðun verkfalls sem hefjast á
16. mars. Er niðurstöðu að vænta á
föstudag.
Viðræður um kjaramál taldar á viðkvæmu stigi á miðnætti
Byijað að ræða launalið-
inn og úrslitalotan hafin
Morgunblaðið/Ásdís
FORYSTUMENN í ASÍ eftir að ýmis sérmál voru í höfn í gær-
kvöldi. F.v. Hervar Gunnarsson varaforseti og Grétar Þorsteins-
son forseti ASÍ, Örn Friðriksson formaður Samiðnar og Björn
Grétar Sveinsson formaður Verkamannasambandsins.
KJARAVIÐRÆÐUR landssam-
banda og verkalýðsfélaga innan ASÍ
og samtaka vinnuveitenda eru á afar
viðkvæmu stigi að mati deiluaðila.
Fullvíst er talið að vinnuveitendur
muni leggja fram útfærða tillögu að
heildarsamningi fyrir gagnaðila í
dag en Þórarinn V. Þórarinsson,
framkvæmdastjóri VSÍ, segir að
umræða um launalið vegna væntan-
legra kjarasamninga hafi byrjað í
gærkvöldi. Þá lögðu vinnuveitendur
fram tillögur um breytingar á orlofs-
málum. Þórarinn og Ari Skúlason
framkvæmdastjóri ASÍ voru sam-
mála um það um miðnætti, þegar
* fundum lauk hjá sáttasemjara, að
úrslitalotan í yfirstandandi kjaravið-
ræðum væri tvímælalaust runnin
upp.
Fyrstu verkföll sem samþykkt
hafa verið í einstökum fyrirtækjum
eiga að hefjast á miðnætti næstkom-
andi sunnudagskvöld. „Aukin hætta
^ á verkföllum kallar á að launþegar
hafi alveg skýra mynd af því hvað
þeim stendur til boða án verkfalla,
þannig að menn geti sjálfir metið í
ljósi reynslunnar hveiju líklegt er
að verkföll skili í raunveruiegum
kjarabótum," segir Þórarinn.
Að sögn Ara var farið yfir ijöl-
mörg sérmál og sameiginleg mál
landssambanda í gær, sem út af
stóðu, en hann taldi að niðurstaða
lægi þó fyrir í þeim flestum.
Slitnað upp úr viðræðum við
V estmannaeyinga
í gærkvöldi slitnaði upp úr við-
ræðum vinnuveitenda við Verkalýðs-
félag Vestmannaeyja, sem hefur
boðað yfírvinnubann í fiskimjöls-
verksmiðjum í Eyjum frá og með
næstkomandi mánudegi. Vinnuveit-
endur efast um að löglega sé að
verki staðið við boðunina og at-
kvæðagreiðsluna um yfírvinnubann-
ið, að sögn Þórarins.
Niðurstaða lá fyrir, í endanlegri
mynd, í viðræðum deiluaðila í gær
um orðalag í aðalkjarasamningi um
gerð fyrirtækjasamninga. Varð nið-
urstaðan sú m.a. að hafa heimildar-
ákvæði í aðalkjarasamningi um bein-
ar viðræður starfsmanna og trúnað-
armanna á hveijum vinnustað við
stjórnendur um gerð vinnustaða-
samninga.
■ Forysta ASÍ/7
Aukinnjarð-
fræðiáhugi
eftir umbrot
TÖLUVERT fleiri nemendur
hafa sótt námskeið í jarð-
fræði í Fjölbrautaskólanum í
Breiðholti á þessari vorönn
en undanfarin ár og telja
jarðfræðikennarar skólans
að það megi þakka gosinu í
Vatnajökli í október og
Grímsvatnahlaupi í kjölfarið.
Fjölgunin hefur einkum verið
áberandi í kvöldskólanum.
Að sögn Áslaugar Gísla-
dóttur, landfræðings og jarð-
fræðikennara, voru grunn-
námskeið í jarðfræði mjög
lífleg á síðasta misseri enda
ekki á hverjum degi sem at-
burðir gerast um leið og fjall-
að er um þá. „Þegar við lásum
um gos undir jökli gaus undir
Vatnajökli og þegar fjallað
var um jökulhlaup hófst
Grímsvatnahlaupið," segir
hún.
Áslaug segir að margir
nemenda á grunnnámskeiði i
jarðfræði í kvöldskólanum
fyrir jól hafi ákveðið að skrá
sig í valnámskeiðið eftir jól.
„Það gefur til kynna að nátt-
úruhamfarirnar hafi valdið
auknum áhuga á jarðfræði,"
segir hún.