Morgunblaðið - 16.03.1997, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 16. MARZ 1997 51
FRETTIR
Starfshópar á veg-
um stjómvalda
ALÞINGI hefur með ályktun frá
5. júní 1996 beint því til ríkisstjórn-
arinnar að skipa starfshóp, m.a.
með fulltrúum þingflokkanna, til
að gera úttekt á og skilgreina
hvaða stofnanir og verkefni á sviði
heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytis séu í raun félagsleg
verkefni sem eðlilegra væri að
heyrðu undir félagsmálaráðuneyt-
ið, segir í fréttatilkynningu frá
forsætisráðuneytinu.
Ennfremur segir: „Á fundi ríkis-
stjórnarinnar hinn 26. september
sl. var að tillögu menntamálaráð-
herra fallist á að koma á fót starfs-
hóp til að fjalla um verkaskiptinu
ráðuneyta í þágu fatlaðra.
í samræmi við þessa ályktun
Alþingis og samþykkt ríkis-
stjórnarinnar hefur forsætisráð-
herra skipað starfshóp til að fjalla
um framangreind viðfangsefni. í
hópnum eiga sæti Sigríður Anna
Þórðardóttir, alþingismaður, for-
maður, skipuð samkvæmt sameig-
inlegri tilnefningu þingflokka
Sjálfstæðisflokks og Framsóknar-
flokks, Rannveig Guðmunsdóttir,
alþingismaður, skipuð samkvæmt
sameiginlegri tilnefningu þing-
flokka jafnaðarmanna, Alþýðu-
bandalags og Samtaka um kvenna-
lista, Kristján Erlendsson, skrif-
stofustjóri, skipaður samkvæmt
tilnefningu félagsmálaráðherra og
Trausti Þorsteinsson, fyrrverandi
fræðslustjóri, skipaður samkvæmt
tilnefningu menntamálaráðherra.
NY SENDING FRA UBRA
Vorum að taka upp buxna- og pilsdragtir með
stuttum og síðum pilsum, ásamt heilum og
tvískiptum kjólum, blússum og höttum í lit við.
Stœrðir 36 til 48.
Opið í dag sunnudag
frá kl. 14-17
Dtraarion
Reykjavíkurvegi 64 ■ Hafnarfirði • Sími 565 1147
Fyrirlestur í
Tækniskólanum
um skógrækt
VÉLADEILD Tækniskóla íslands
stendur fyrir fyrirlestraröð um
umhverfismál á þessari önn. Fyrir-
lestrarnir eru hluti af umhverfis-
fræðiáfanga sem kenndur er í véla-
deild skólans.
Næstkomandi þriðjudag 18.
mars mun dr. Árni Bragason, for-
stöðumaður Rannsóknastöðvar
Skógræktar ríkisins að Mógilsá
flytja fyrirlestur sem hann kýs að
kalla: Hvers vegna skógrækt á
Islandi. Fyrirlestur Árna hefst kl.
17.00 og er haldinn í stofu 325 á
annarri hæð í húsnæði Tækniskól-
ans að Höfðabakka 9. Fyrirlestur-
inn er öllum opinn, en að honum
loknum verður opnað fyrir umræð-
ur.
-----»■ ♦ ■♦--
Marsvaka
KFUM
o g KFUK
KFUM og KFUK í Reykjavík bjóða
öllum sem áhuga hafa á að koma
í hús félaganna við Holtaveg, gegnt
Langholtsskóla, sunnudaginn 16.
mars og taka þátt í Marsvöku sem
hefst kl. 20.
Á dagskrá er söngur, lofgjörð og
fyrirbæn. Ragnar Gunnarsson,
framkvæmdastjóri félaganna, mun
hafa hugvekju. Gospelbandið Nýir
menn mun taka lagið og leiða al-
mennan söng. Með Marsvökunni er
þess vænst að ýmsir, sem vilja end-
urnýja tengslin við félögin eða
kynna sér þau í fyrsta sinn, nýti
sér þetta tækifæri.
-----» » 4----
lJ
Afangastaöir
Sölutímabil
1.3. 30.4.
Sölutímabil
1.5. -30.6.
©llÉv
Fræðslukvöld
fyrir afa og
ömmur fatlaðra
barna
FFA, fræðsla fyrir fatlaða og að-
standendur, stendur fyrir fimmta
og siðasta fræðslukvöldi fyrir afa
og ömmur fatlaðra barna annað
kvöld, mánudaginn 17. mars, kl.
20 hjá Þroskahjálp, Suðurlands-
braut 22.
Sr. Bragi Skúlason fjallar um
áfallið og sorgina sem fjölskyldan
verður fyrir þegar barn greinist
með fötlun. Kaffi, umræður.
Þátttaka tilkynnist til skrifstofu
Þroskahjálpar.
Ferðir skulu farnar á tímabilinu 5. apríl til 30. september.
Lágmarksdvöl er 7 dagar oghámarksdvöl er 1 mánuður.
Flugvallarskattar eru innifaldir í verði.
(Farflöhltn fflila I bctnujlugi Fluglelða og um Kaupmamahöfn mcð Flugleiðum ogSAS.)
Leitið nánari upplýsinga um sumarleyfisfargjöldin
hjá sölufólki Flugleiða eða hjá ferðaskrifstofunum.
Hafið samband við söhiskrifstofurFluglciða, umboðsmenn,
fcrðaskrifstofiimar cða símsöludeild Flugleiða í síma 5050100
(svarað minud.-föstud. kl. 8-19ogá laugard. kl. 8-16.)
VefurFlugleiða á Intemetinu: www.icelandair.is
Nctfangfyrir almcnnar uppJýsingar: info@icelandair.is
FLUGLEIDIR
Traustur íslenskur ferðafélagi
Kaupmaniialiöfii 31.570 kr. 35.560 kr.
Ósló 32.240 kr. 36.240 kr.
Stokkhólmur 30.990 kr. 34.990 kr.
Amsterdain 33.840 kr. 37.840 kr.
Lúxemboro' o 33.100 kr. 37.100 kr.
París 33.130kr. ÍJB. 37.130 kr.
Milanó 36.880 kr. 40.880 kr.
Barcelona 36.320 kr. 40.320 kr.
Vín 3 7.440 kr. 41.440 kr.
Zurich 3 7.000 kr. ms 41.000 kr.
Hambore' o 33.580 kr.* 37.580 kr.
Frankfurt 33.980 kr.* 37.980 kr.
London 30.920 kr.* 34.920 kr.*
Glasgow 24.920 kr.* fS 28.920 kr.*
Manchester 27.920 kr.* 31.920 kr.* * Gildir eingöngu í beinu flugi Flugleiða.