Morgunblaðið - 02.04.1997, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 02.04.1997, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Dæmd til skilorðsbundinnar refsingar fyrir að stinga konu Árás í örvæntingu ERU ÞEIR AÐ FA’ANN? Mikíll fiskur en misgóðar aðstæður KONA á fertugsaldri var í síðustu viku dæmd í Héraðsdómi Reykjavík- ur til að sæta átta mánaða fangelsi, skilorðsbundið til þriggja ára, fyrir stórfellda líkamsárás. Hún hafði stungið konu á fimmtugsaldri með hnífi í vinstri framhandlegg svo að sár hlaust af. Dómurinn taldi rétt að fresta fulln- ustu refsivistar ákærðu skiiorðsbund- ið í þijú ár frá uppsögn dómsins, vegna málavaxta. Þar hafí örvænt- ing, tilfinningatengsl og væntum- þykja móður í garð dóttur sinnar, sem átti við fíkniefnavanda að stríða, ráð- ið ferð ákærðu að heimili konunnar sem fyrir stungunni varð. Greiddi með fíkniefnum Hún hafi farið í því skyni að freista þess að koma dóttur sinni til aðstoðar og taldi dómurinn að ekki hafi vaknað ásetningur hjá ákærðu um að nota hnífinn gegn eldri kon- unni, fyrr en í þann mund sem sú síðarnefnda kom að henni í rifrildi við_ dóttur sína. í yfirheyrslu hjá lögreglu bar hin ákærða að sú sem stungin var hefði fengið dóttur sína til að misnota fíkniefni, notað nafn hennar í því skyni að koma fíkniefnum til lands- ins og að hún hefði talið að dóttirin væri á leið til útlanda með konunni og að til stæði að hún yrði notuð sem burðardýr fyrir fíkniefni. Málavextir eru þeir helstir að dætur hinnar ákærðu höfðu um skeið gætt sona eldri konunnar á heimili hennar við Réttarholtsveg. Móðir stúlknanna veitti því von bráð- ar athygli að yngri dóttirin, sem losnað hafði nokkru áður úr slæmum félagsskap, var tekin að neyta fíkni- efna. Kvað hún eldri dóttur sína hafa sagt sér að konan á Réttar- holtsvegi greiddi fyrir barnapössun- ina með fíkniefnum. Hefði yngri stúlkan aldrei haft peninga meðferð- is þegar hún kom heim eftir að hafa gætt barnanna, en virtist hins vegar undir einhvers konar áhrifum. Þá greindi ákærða frá því að bréf sem innihéldu fíkniefni, nánar tiltek- ið kókaín, hefðu verið send á heim- ili tengdaforeldra sinna, stíluð á dæturnar tvær. Yngri stúlkan hafði sökum ótta ekki þorað að segja til nafns þess sem að sendingunum stóð, þegar á hana var gengið. Að sögn ákærðu fékk hún hins vegar þær upplýsingar hjá lögreglu, þegar bréfunum með eiturlyfjunum var skilað þangað, að konan á Réttar- holtsvegi væri hættuleg, hún hefði hótað fjölskyldu eins lögreglumann- anna og var þeim ráðlagt að „fara ekki í stríð“ við hana. Eftir frekari samtöl við lögreglu kvaðst ákærða ekki hafa fengið skýr svör um hvað hægt væri að gera í málinu. Hún hafi þá rætt við yfir- mann fíkniefnadeildar lögreglu, Björn Halldórsson, og hann sagt sér að hann hefði rætt við umrædda konu og dóttur ákærðu í síma. Björn hefði greint frá því að sér fyndist óhugnanlegt hversu mikið vald eldri konan hefði yfir dóttur hennar, þar sem hann hefði heyrt hana segja stúlkunni hvað hún ætti að segja í símtalinu við Björn. Óttaðist um dóttur sína Þá bar ákærða að um sama leyti hefði henni borist af því njósn að eldri konan væri á leið úr landi ásamt sonum sínum og væri ætlunin að dóttir sín færi með. Kvaðst hin ákærða hafa séð það fyrir sér að slyppi dóttir hennar til Hollands, sæi hún hana ekki framar á iífi. Kvöldið áður en hnífstungan átti sér stað, laugardaginn 25. maí síð- astliðinn, tók hin ákærða að neyta áfengis og drakk áfram á laugardeg- inum. Ölvuð og í miklu uppnámi hafi hún einsett sér að ná dóttur sinni, en ákærða kvað lögreglu hafa sagt sér að hún væri hættuleg og gæti sent menn til að vinna fjöl- skyldu ákærðu mein. Því hafi hún haft hníf með þegar hún hélt að Réttarholtsvegi, sjálfri sér til varnar. Dóttir hennar kom til dyra og bað hún hana að koma heim, en þær mæðgur lentu í átökum í gangi húss- ins. Meðan á þessu stóð kom húsráð- andi fram á ganginn og spurði hvað gengi á og réðst á ákærðu. I varnar- skyni hafi þá ákærða stungið eldri konuna með hnífnum í handlegg. Átök þeirra bárust síðan inn í eldhús og rifnaði m.a. upp skurður á höfði þeirrar sem fyrir stungunni varð. Við leit í íbúðinni fundist tæki og tól til neyslu fíkniefna. SJOBIRTINGSVEIÐI hófst í nokkr- um ám á Suðurlandi í gærmorgun. Misvel tókst til, þar sem víða voru ár á ís eða að íshröngl og krap rak með straumi og fiskur gaf sig lítt í kuldanum. Þannig tókst t.d. ekki að opna Vatnamótin svokölluðu fyrir austan Klaustur og veiði gekk stirð- lega framan af degi í Hörgsá vegna þessa. Aftur á móti byijaði veiði vel í Geirlandsá og Varmá en í Hörgsá fór fiskur að taka er leið á daginn og sólin hafði séð fyrir verulegu magni af ísskörum með bökkum. Veiðimenn við Geirlandsá hirtu átta væna fiska fyrir hádegið og siepptu öðru eins. Margt af því var einnig vænn fiskur, en vorbirtingur- inn er misvel haldinn og margir sleppa horuðustu fiskunum. Þetta eru hrygningarfiskar frá síðasta hausti og því ekki allir upp á sitt besta eftir vetrardvöl í ánni. Innan um eru hins vegar vænir geldfískar. í Geirlandsá voru stærstu fiskarnir um 5-6 pund og veiddust mest á spón, Reflex, í Ármótunum. Gunn- laugur Óskarsson formaður Stanga- veiðifélags Keflavíkur, var meðal þeirra sem opnuðu ána og sagði hann mikinn físk vera á ferðinni þetta vorið. Litlu austar, í Hörgsá, sáu menn mikinn fisk, en erfitt var um vik vegna íss og fiskur tók grannt vegna kulda. Það fór þó að rætast úr og upp úr kaffileytinu voru komnir 4 vænir fiskar á land, 3-5 punda, og menn sáu mun stærri fiska á sveimi. Lítið eitt austarj í Eldvatni á Brunasandi, veiddust fimm fiskar, allt að 4 pundum, um morguninn, en ekki var rennt þar seinni partinn. Jón Marteinsson, sem fór fyrir veiðimönnum í þessum vötnum sagði útlitið afar gott ög Handtöku- skipun verði felld niður DONALD og Connie Jean Hanes. MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi bókun vegna beiðni bandarískra stjórnvalda um að Don- ald Hanes og Connie Jean Hanes verði framseld til Bandaríkja Norð- ur-Ameríku sem Hanes-hjónin af- hentu Rannsóknarlögreglu rikisins í gær. „Við undirrituð Donald Hanes, kt. 220550-2069, og Connie Jean Hanes, kt. 161145-2039, erum reiðubúin tii að fara sjálfviljug og á eigin kostnað frá íslandi til Bandaríkja Norður-Ameríku og gefa okkur þar fram við þann dóm- stól í fylkinu Arizona sem á að dæma í því máli sem er grundvöllur framkominnar framsalsbeiðni bandarískra stjórnvalda. Er þetta í samræmi við þá yfirlýs- ingu sem við gáfum íslenskum stjórnvöldum, dags. 7. febrúar 1997, en íslensk stjórnvöld fram- lengdu fyrir tilstuðlan forsætisráð- herra þau tímamörk sem tiltekin eru í yfirlýsingunni til 1. apríl 1997. Við teljum það hins vegar óviðun- andi ef okkur er ekki gert kieift að gefa okkur beint og milliliða- laust fram við ofangreindan dóm- stól í Arizona-fylki Bandaríkja Norður-Ameríku. Eins og staðan er í dag iiggur fyrir að við verðum handtekin strax við komu okkar til Bandaríkja Norður-Ameríku af al- ríkisstjórn ríkisins. Yrðum við í framhaldi af því flutt sem fangar alríkisstjórnarinnar til Arizona í fangaflutningakerfi sem er í senn mjög seinvirkt og óþægilegt. Gæti slíkur flutningur tekið iangan tíma með viðkomu okkar í fjölmörgum gæslustöðvum í fangaflutninga- kerfinu, sem starfar eftir seinvirkri heildaráætlun, í mismunandi borg- um og fylkjum Bandaríkja Norður- Ameríku. Slíkt fyrirkomulag myndi auka verulega á óþægindi okkar af málinu og vera lítillækkandi fyr- ir okkur. Teljum við að þetta myndi vera sérstaklega óviðunandi í Ijósi þess að þetta er ónauðsynlegt, eins og rakið verður hér á eftir. Reiðubúin til að fara sjálfviljug og á eigin kostnað Við vekjum í fyrsta lagi athygli á því að við höfum dvalið á Islandi síðan 5. febrúar 1997 án þess að vera í nokkurs konar farbanni eða gæslu af hálfu íslenskra stjórn- valda. Allan þann tíma höfum við iýst okkur reiðubúin til að fara sjálf- viljug og á eigin kostnað frá Is- landi tii Bandaríkja Norður-Amer- íku eftir að hafa fengið nægilegan tíma til að undirbúa brottför okkar héðan með tilliti til fjölskylduað- stæðna og annarra aðstæðna okkar hérlendis. Við meðferð framsals- beiðni Bandaríkja Norður-Ameríku er ekki talin ástæða til að setja okkur í neins konar farbann eða gæslu. Við vekjum í öðru lagi athygli á því að þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir okkar og lögmanns okkar í Arizona- fylki Bandaríkja Norður-Ameríku til að fá stöðu okkar upplýsta frá ákæruvaldi fylkisins Arizona og öðrum aðilum fengum við ekki að vita um tilvist framsalsbeiðninnar fyrr en eftir óformlegum leiðum seint í mars 1997. Formlega var okkur tilkynnt um framsalsbeiðnina 24. mars 1997 þegar íslensk stjórn- völd tilkynntu íslenskum lögmanni okkar um hana. Gögn málsins, svo sem ákæruna, sáum við fyrst 26. mars 1997 þrátt fyrir ítrekaðar óskir. Við vekjum í þriðja lagi athygli á því að bandarískur Iögmaður okk- ar hefur frá upphafi verið að vinna í því að fá alríkishandtökuskipun á hendur okkur í Bandaríkjum Norð- ur-Ameríku fellda niður þannig að við gætum gefið okkur beint og milliliðalaust fram við þann dómstól í fylkinu Arizona sem á að dæma í því máli sem er grundvöllur fram- kominnar framsalsbeiðni bandarí- skra stjórnvalda. Hefur alríkis- stjórnin fyrir sitt leyti lýst sig reiðu- búna til þess að fella handtökuskip- un niður enda er fyrirsjáanlegt að við verðum ekki ákærð fyrir neinn refsiverðan verknað á grundveili alríkislaga. Hefur málið strandað á ákæruvaldinu í fylkinu Arizona sem virðist af einhveijum ástæðum telja það heppilegra að við verðum flutt þangað sem fangar. Við vekjum í íjórða lagi athygli á því að við erum reiðubúin til að samþykkja hvers konar eftirlit eða fylgd í ferð okkar frá íslandi til viðkomandi dómstóls í Arizona-fylki í Bandaríkjum Norður-Ameríku að því tilskyldu að við verðum ekki handtekin áður en við gefum okkur þar fram og að farin verði beinasta leiðin á sem skemmstum tíma. í ljósi þessa teljum við eðlilegt að orðið verði við þeirri kröfu okkar að alríkishandtökuskipun í Banda- ríkjum Norður-Ameríku verði felld niður og okkur gert kleift að gefa okkur beint og milliliðalaust fram við viðkomandi dómstól í Arizona- fylki í Bandaríkjum Norður-Amer- íku, eftir atvikum í fylgd eða undir eftirliti. Mótmælum framsalsbeiðni Afriti af þessari bókun verður komið til sendiráðs Bandaríkja Norður-Ameríku á íslandi í þeirri von að það muni beita sér fyrir því að fundin verði viðunandi lausn á þessu máli í samræmi við framan- greint án þess að til framsalsmeð- ferðar þurfí að koma með tilheyr- andi kostnaði og óþægindum fyrir alla aðila. Ennfremur óskum við eftir því við íslensk stjórnvöld að þau beiti sér fyrir því að slík lausn verði fund- in. Verður afrit af þessari bókun send til dómsmálaráðuneytisins á íslandi. Á meðan framangreind krafa okkar er til meðferðar og ekki hef- ur verið orðið við henni mótmælum við framkominni beiðni Bandaríkja Norður-Ameríku um framsal á okk- ur og óskum eftir því að Héraðs- dómur Reykjavíkur úrskurði um það hvort skilyrði laga um framsal séu fyrir hendi.“ Forvarna- starf í skólum skipulagt MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur sett á laggirnar hóp fímm sér- fræðinga sem koma á með tillögur um skipulagningu á forvamastarfi í skólum. I hópnum verða sérfræðingar sem reynslu og þekkingu hafa af málefninu en í því eru skólastjóri, kennari, námsráðgjafí, skólahjúkrun- arfræðingur og barnageðlæknir. Teyminu er einkum ætlað að vinna að stefnumörkun í forvarna- starfi í skólum, sérstökum úrræðum vegna áhættu sem varðar sjálfsvíg og fíkniefnaneyslu á báðum skóla- stigum og að tillögum um þætti sem ákjóslanlegt er að tekið sé mið af í námsefni grunn- og framhaldsskóla með sérstöku tilliti tii áhættu sem varðar sjálfsvíg og fíkniefnaneyslu. Áætlað er að teymið ljúki störfum fyrir árslok 1997. Lögð verður áhersla á samráð við grunn- og framhaldsskóla, Vímuvarnaskólann og Jafningjafræðslu framhaldsskól- anna í tillögugerð þessari. Áhættuþættir ræddir á námskeiði Þá hefur verið ákveðið að halda námskeið fyrir grunn- og framhalds- skólakennara 13.-15. ágúst nk. í samvinnu við endurmenntunarstofn- anir kennara. Umsjón hefur Árni Einarsson. Á námskeiðinu verður fjaliað um áhættuþætti áfengis- og vímuefnaneyslu ungs fólks, áhættu- þætti sjálfsvíga, greiningu þessara þátta og viðbrögð við þeim. Nám- skeiðið er einkum ætlað skólastjórn- endum, umsjónarkennurum, náms- ráðgjöfum og skólahjúkrunarfræð- ingum í grunn- og framhaldsskólum. Námskeiðið í nánar auglýst innan skamms með sérstöku bréfi til allra skóla. Fræðslumiðstöð í fíknivörnum hefur verið falin umsjón með for- varnaverkefni ráðuneytisins og verð- ur Árni Einarsson verkefnisstjóri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.