Morgunblaðið - 02.04.1997, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 1997 49
OLIMAR
GUÐMUNDSSON
Óli Már Guð-
mundsson fædd-
ist 24. júní 1940.
Hann lést á heimili
sínu í Reykjavík 21.
mars síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Guðmundur Loftur
Jónsson verkstjóri
hjá Ríkisskipum í
Reykjavík, fæddur
2. apríl 1914
Reykjavík, dáinn 17.
nóvember 1966 og
Karólína G. Guð-
jónsdóttir, fædd 31.
mars 1913 í Voð-
múlastaðahjáleigu í Austur-
Landeyjahreppi í Rangárvalla-
sýslu, dáin 21. mars 1948. Óli
Már var einkabarn foreldra
sinna. Óli Már missti móður
sína 8 ára gamall og ólst eftir
það upp hjá föður sínum.
Óli Már var kvæntur Kol-
brúnu Dexter en þau slitu sam-
vistum.
Óli Már kvæntist Hrefnu
Guðmundsdóttur 2. maí 1970.
Foreldrar Hrefnu voru Aðal-
heiður Klemensdóttir húsfreyja
í Reykjavík, fædd 21. október
1910 í Reykjavík, dáin 26. októ-
ber 1995, og Guðmundur Krist-
ján Kristjánsson, vélsljóri í
Reykjavík, fæddur 19. júlí 1904
í Reykjavík, dáinn 27. janúar
1958.
Börn Óla Más og
Hrefnu eru 1)
Klemens Arnarson.
Maki hans er Eva
Rós Jóhannsdóttir.
Þau eiga Astrósu
Önnu. 2)_ Guðný
Linda Óladóttir.
Maki hennar er
Markús Hallgríms-
son. 3) Guðmundur
Loftur Ólason.
Óli Már var raf-
veituvirki að
mennt. Ungur að
árum hóf hann
störf hjá föður sín-
um hjá Ríkisskipum. Síðar vann
hann við vörubifreiðaakstur
m.a. við byggingu Búrfellsvirkj-
unar. Þá réðst hann til starfa
hjá frönskum verktaka sem
byggði háspennulínu frá Búr-
fellsstöð að Geithálsi. Vann um
nokkurra mánaða skeið að línu-
byggingum í Frakklandi. Vann
í allmörg ár hjá verktakafyrir-
tækjunum Hafi hf. og Jóni Aðils
sf. að byggingu á öllum megin
flutningslínum fyrir Landsvirkj-
un. Réðst síðan í ársbyijun 1980
til starfa hjá Landsvirkjun á
stofnlínudeild rekstrarsviðs og
vann þar til dauðadags.
Útför Óla Más Guðmundsson-
ar verður gerð frá Fossvogs-
kirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 15.
Okkur vinnufélögum Óla Más var
illa brugðið þegar hann á dögunum
fékk aðkenningu að því sem aðeins
viku síðar átti eftir að leggja hann
að velli. Fráfall hans var því skyndi-
legt og óvænt og ótímabært.
Hann vann við stofnlínukerfi
Landsvirkjunar þar sem oft og tíðum
reynir á bæði líkamiegt og andlegt
úthald. Var þar engan bilbug á hon-
um að finna. Hann gekk rösklega
að störfum sínum. Því kom fregnin
um að hann væri allur öllum þeim
sem til þekktu á óvart. Ástæða var
til að binda vonir við að hann næði
sér á nýjan leik.
Með Óla Má er genginn sérstæður
einstaklingur sem í mörgu fór sínar
eigin leiðir og fór oft og tíðum hratt
fram í siglingu sinni um lífið. Það
gustaði oft og gaf á báðar hliðar
enda persónuieiki hans allur með
þeim hætti. Hann var hreinn í öllum
manniegum samskiptum. Tjáði sig
þannig að vel skildist og var afar
fjarri því að tala á bak nokkrum
manni. Hann var einstakur ákafa-
maður um allt sem hann tók sér
fyrir hendur hvort sem var í starfi
eða leik. Hann náði og einkar góðum
tökum á viðfangsefnum sínum. Hin
síðari misseri vann hann töluvert að
tölvuskráningu og sparaði hvorki
tíma né fyrirhöfn né heldur frítíma
sinn til að ná tökum á tölvumálum.
Hann gekk glaðbeittur að störfum
sínum. Þegar kallið kom hafði hann
verið öryggistrúnaðarmaður félaga
sinna á vinnustaðnum um nokkurt
skeið. Vann hann það viðkvæma og
vandasama verk með sama áhuga
og allt annað sem hann tók sér fyr-
ir hendur.
Landsvirkjun er stór og víðfeðmur
vinnustaður. Svo er þó skipulagi og
starfi öllu fyrir að þakka að einstakl-
Sérfræðingar
í b 1 ó m a s k r e v t i n g u m
við «11 tækifæri
I blómaverkstæói 1
I tSlNNA |
Skólaviirðustíg 12,
á horni Bergstaðastrætis.
sími 551 9090
ingar geta fundið sér í tímans rás
þann farveg í starfi sem best hentar
bæði fyrirtækinu sem og starfs-
mönnum. Það gilti vel um Óla Má
að hann var sáttur í starfi og nýtt-
ust kraftar hans vel í þágu fyrirtæk-
isins.
Ekki verður skilist svo við Óla
Má að ekki sé minnst á þá færni
sem hann náði í briddsspili. Var
hann raunar á árum áður í röð allra
fremstu briddsspilara landsins. Á
vinnustað sínum bar hann því bæði
höfuð og herðar yfír annars ágæta
spilara þar og hafði mikla ánægju
af að taka í spil með vinnufélögunum
þó alvara þeirra spila væri ekki með
sama hætti og áður var þegar hann
reyndi með sér í hópi þeirra allra
bestu. Nú þegar dagur hefur náð
yfirhönd yfir nóttu og birta yfir
myrkri kveður félagi okkar. Það var
okkur mikið ánægjuefni að sjá hve
mjög birti og hin síðari ár í hans
eigin lífi. Hann var augljóslega afar
sáttur við sjálfan sig, starf sitt og
síðast en ekki síst við allt sitt einka-
líf. Þar var í öllu bjart yfir.
Atvik haga því svo til að við sem
þetta ritum fáum ekki fylgt félaga
okkar síðasta spölinn. Því kveðjum
við hann hér og nú. Við kveðjum
ágætan samstarfsmann og góðan
vin og biðjum honum blessunar. Við
sendum Hrefnu og íjölskyldunni allri
okkar innilegustu samúðarkveðjur.
Jón Aðils,
Þorgeir J. Andrésson.
I
ERFI
DRYKKJUR
Látið okkur annast
erfLdrykkjuna.
Fyrsta flokks þjónusta
og veitingar.
Rúmgóð og þœgileg
salarkynni.
Upplýsingar í síma 552-9900
MINNINGAR
Það kom eins og reiðarslag yfir
mig þegar konan .mín hringdi í mig
í hádeginu 21. mars og sagði mér
andlát svila míns. Hann hafði kennt
veikinda nokkrum dögum áður og
farið í rannsókn, ekkert hafði komið
út úr þeirri rannsókn sem benti til
þess að nein hætta væri á ferðum,
en maðurinn með ljáinn spyr ekki
um_ stað og stund.
Á svona stundum leitar hugurinn
til baka og fer ekki hjá því að marg-
ar minningar skjóta upp kollinum.
Ég minnist þess er ég kynntisf Óla
fyrst hvað mér þótti hann léttur í
spori, alltaf á ferðinni út og súður
að redda hinu og þessu fyrir ætt-
ingja og vini.
Mér var sagt af kunningja mínum
gömlum KR-ingi að ÓIi Már hefði
þótt eitthvert besta efni í knatt-
spyrnumann á sínum yngri árum.
Mér er það í minni þegar við hjónin
bjuggum á Skagaströnd og dóttir
okkar var fermd, að þeim leiddist
innisetan svilum mínum Óla og Ge-
off Brabin og fóru út á fótboltavöll-
inn með unga frændur og vini og
sýndu þar ungum og upprennandi
knattspyrnuhetjum hvernig átti að
meðhöndla boltann. Fljótlega söfn-
uðust að ungir knattspyrnuáhuga-
menn og urðu augun eins og undir-
skálar þegar þessir snillingar léku
þarna listir sínar.
Óli vann árum saman sem línu-
maður hjá Landsvirkjun og kunni
vel við útivinnu uppá öræfum lands-
ins. Þar kom sér vel að hann var
alla tíð grannur og harður af sér,
enda ekki heiglum hent að stunda
viðgerðir uppi á öræfum um hávetur.
Oli Már hafði ákveðnar skoðanir
á mönnum og málefnum og fylgdi
sannfæringu sinni eftir, það fór
ekki framhjá neinum hvaða skoðun
hann hafði á tilteknum málum þeg-
ar um var rætt, alltaf var þó stutt
í húmorinn. Þau Óli og Hrefna komu
oft austur í sumarbústaðinn okkar
litla á Rangárvöllum og brást það
ekki að Óli rak höfuðið upp undir
þakskeggið og sendi mér þá „snotr-
ar“ athugasemdir um stærðina á
bústaðnum. Ferðalög voru Óla hug-
stæð og gleymi ég seint þegar við
Alla heimsóttum þau hjón síðastlið-
ið sumar norður að Blönduvirkjun
þar sem þau voru í sumarfríi. Óli
dreif í því að fá leyfi til að sýna
okkur virkjunina og var það
ógleymanlegt. Óli var búinn að
vinna við byggingu Blönduvirkjunar
og var öllumm hnútum kunnugur
og höfðum við miklu meira út úr
þessari skoðunarferð en ef við hefð-
um haft venjulegan leiðsögumann.
Þá var bridsíþróttin Óla mikið
áhugamál. Hann var á árum áður
í flokki snjöllustu bridsmanna
landsins og sýna hinir íjölmörgu
verðlaunagripir hans að þar stóð
hann í fremstu röð.
Nú þegar vegir okkar skiljast um
sinn, er mér efst í huga þakklæti
til svila míns fyrir ótalmargar ánæg-
justundir og vináttu í gegnum árin.
Ég sendi Hrefnu mágkonu minni
og fjölskyldu hennar mínar dýpstu
samúðarkveðjur og bið góðan guð
að styrkja þau í sorg sinni. Minning-
in um góðan dreng lifir.
Jón Helgason.
F O S S V O G 1
Þegar andlát
ber að höndum
Sími 551 1266
+
Eiginmaður minn og faðir okkar,
BRYNJÓLFUR BRAGI JÓNSSON
fyrrv. leigubílstjóri,
Vanabyggð 3,
Akureyri,
lést að kvöldi laugardagsins 29. mars
á dvalarheimilinu Hlíð.
Jarðarförin auglýst síðar.
Guðrún Sigurbjörnsdóttir
og dætur.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
ÓLI MÁR GUÐMUNDSSON,
Hrísrima 8,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju 2. apríl
kl. 15.00
Hrefna Guðmundsdóttir,
Klemens Arnarson, Eva Rós Jóhannsdóttir,
Guðný Linda Óladóttir, Markús Hallgrímsson,
Guðmundur Loftur Ólason,
Ástrós Anna Klemensdóttir.
t
Systir mín, mágkona og frasnka,
KRISTÍN BERGÞÓRA LOFTSDÓTTIR,
Framnesi,
Ásahreppi,
andaðist á dvalarheimilinu Lundi 29. mars. Hún verður jarðsungin frá
Akureyjarkirkju laugardaginn 5. apríl kl. 14.
Margrét Loftsdóttir, Guðbjörn Jónsson,
Jóna og Þórunn Guðbjörnsdætur.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð vegna andláts og útfarar bróður
okkar og mágs
GÍSLA KRISTJÁNSSONAR
frá Feigsdal,
Arnarfirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólksins á Elliheimilinu Grund og starfsfólki
Landspitalans deild 11A
Jóna Kristjánsdóttir,
Páll Kristjánsson,
Kristín Kristjánsdóttir,
Teitur Kristjánsson,
Margrét Aðalsteinsdóttir.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra fjölmörgu sem
sýndu okkur samúð og kærleika við andlát og
jarðarför elskulegs eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður og afa,
VALTÝS SÆMUNDSSONAR
frá Stóru-Mörk,
Hjallabraut 33,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir til alls starfsfólks fjórðu deildar hjúkrunarheimilisins
Sólvangs. Guð blessi ykkur öll.
María Guðnadóttir,
Kristbjörg Jónína Valtýsdóttir, Emil Þór Eyjólfsson,
Valdís María og Karen.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug vegna andláts og útfarar
VALDÍSAR S. SIGURÐARDÓTTUR,
Kirkjuvegi 11,
Keflavík.
Sigurður Gunnar Benediktsson,
Guðmundur Ingi Benediktsson,
Ingibjörg B. Benediktsdóttir Grant,
Guðrún María Benediktsdóttir, Símon Á. Gunnarsson,
Jóhanna Benediktsdóttir, Guðmundur Haukur Jónsson,
barnabörn og barnabarnaböm.