Morgunblaðið - 02.04.1997, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 02.04.1997, Blaðsíða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 1997 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT 83 flóttamenn í albönskum báti drukkna eftir árekstur við ítalskt herskip Uppreisnarmenn hóta að ráðast á ítalska hermenn Tirana, Róm, Ósló. Reuter, The Daily Telegraph. ítalir hyggjast stjórna fjölþjóðlegum öryggissveitum í Albaníu Reuter ALBANSKIR flóttamenn koma til Brindisi á Ítalíu eftir að þeim var bjargað úr báti sem sökk eftir árekstur við ítalskt herskip á föstudag. MIKIL reiði og sorg ríkti um helgina í Albaníu eftir að ítalskt herskip sigldi á albanskan bát frá bænum Vlore með þeim afleiðingum að 83 flóttamenn drukknuðu á föstudag. Uppreisnarmenn, sem hafa náð bænum á sitt vald, hótuðu að drepa ítalska hermenn í hefndarskyni ef þeir yrðu sendir til bæjarins eins og ráðgert hefur verið. Italska stjórnin sagði þó að atburðurinn myndi ekki hafa áhrif á þau áform ítala að stjórna íjölþjóðlegum öryggissveit- um í Albaníu og hún bauð Albönum að tilnefna sérfræðinga til að rann- saka málið í samvinnu við ítalska embættismenn. Talið er að um 120 flóttamenn hafi verið í albanska bátnum, sem „glæpamenn" voru sagðir hafa stol- ið í Vlore. Óttast er að 83 Albanir, þar af rúmur helmingurinn konur og börn, hafi drukknað eftir árekst- urinn við ítalska herskipið. Fjögur lík fundust og 34 mönnum var bjargað. Nokkrir þeirra sem sem björguð- ust sögðu að ítalska herskipið hefði siglt á bátinn af ásettu ráði en ít- alski sjóherinn neitar því. Hann seg- ir að albanski báturinn hafi ítrekað reynt að komast framhjá tveimur ítölskum herskipum og að iokum siglt í veg fyrir annað þeirra, þannig að ekki hafi verið hægt að komast hjá árekstrinum. Herskipin voru að framfylgja fyr- irmælum um að stöðva báta með albanska flóttamenn og fá þá til að snúa aftur til Albaníu. ítalir höfðu samið við stjórn Albaníu um að ítölsk herskip fengju að halda uppi eftirliti við strönd landsins til að stemma stigu við flóttamanna- straumnum til Ítalíu. Um 13.000 Albanir flúðu til Ítalíu í liðnum mánuði. 5.000 manna öryggissveitir Ráðgert er að ítalir stjórni um 5.000 manna öryggissveitum, sem eiga að veija flugvöllinn í Tirana og hafnimar í Vlore og Durres og vernda flutningabfla sem sendir verða með hjálpargögn til Albaníu. Frakkar sögðust í gær ætla að senda 1.000 hermenn til Albaníu, Grikkir hafa lofað 700 hermönnum, Spán- verjar 500, Tyrkir 500 og Rúmenar 400. Gert er ráð fyrir að Italir sendi 2.000-2.500 hermenn og Frakkar, Portúgalir, Austurríkismenn, Ung- veijar, Slóvenar, Danir og Svíar segjast einnig vera reiðubúnir að taka þátt í aðgerðunum. Bandaríkja- stjórn kvaðst ekki ætla að senda hermenn til Albaníu en sagði annars konar aðstoð koma til greina. Hollenski stjórnarerindrekinn Jan de Marchant et d’Ansembourg, for- maður nefndar Evrópusambandsins sem skipuleggur hjálparstarfið og öryggisgæsluna í Albaníu, sagði að fyrstu öryggissveitirnar yrðu ekki sendar þangað fyrr en í lok vikunnar. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna lýsti í vikunni sem leið yfir stuðningi við íhlutun öryggissveitanna í Alba- níu og þing landsins samþykkti hana með 95 atkvæðum gegn einu á sunnudag. Þjóðarsorg í Albaníu Areksturinn á föstudag er mannskæðasta sjóslysið í nútíma- sögu Albaníu og lýst var yfir þjóðar- sorg í landinu á mánudag vegna þeirra sem drukknuðu. Flaggað var í hálfa stöng og fórnarlambanna var minnst með mínútu þögn á hádegi. Um 7.000 manns komu saman í Vlore, skutu upp í loftið og köstuðu blómum í sjóinn til að minnast fórn- arlambanna. Mikil reiði er meðal íbúanna í garð ítala. „Við viljum enga ítali í þessum bæ. Við misstum Qölskyldur okkar,“ sagði einn þeirra, 34 ára karlmaður. „Ef við sjáum ítalska hermenn í Vlore ær- umst við öll.“ Vlore er á valdi uppreisnarmanna, sem hafa krafist afsagnar Salis Ber- isha, forseta Albaníu. Uppreisnar- mennirnir sögðu ljóst að Italir bæru ábyrgð á harmleiknum og nokkrir þeirra hótuðu að drepa ítalska her- menn ef þeir yrðu sendir til bæjar- ins. „Það leikur enginn vafi á því að bátnum var sökkt af ásettu ráði,“ sagði Dilaver Alia, sem á sæti í bæjarstjórn Vlore. „Berisha og ítalir sömdu um að beita öllum ráðum til að stöðva flóttamannastrauminn, jafnvel að sökkva bátum." Silvio Berlusconi, fyrrverandi for- sætisráðherra Italíu, sagði atburðinn sverta ímynd Ítaiíu erlendis og krafðist þess að stjórnin hætti þegar í stað tilraunum sínum til að draga úr flóttamannastraumnum. „Við verðum að þvo þennan smánarblett af okkur, þótt þetta kunni að hafa verið slys er ljóst að það á rætur að rekja til ákvörðunar sem stjórnin hefði ekki átt að taka.“ Nokkrir hægrimenn á ítalska þinginu, þeirra á meðal Alessandra Mussolini, sonardóttir Benitos Muss- olinis, einræðisherrans fyrrverandi, kröfðust þess að hætt yrði við að senda ítalska hermenn til Albaniu vegna hættu á að þeir yrðu drepnir í hefndarskyni. Romano Prodi, forsætisráðherra Ítalíu, kvaðst hins vegar telja að atburðurinn hefði ekki áhrif á þátt- töku ítala í aðgerðum öryggissveit- anna. Hann bauð albönsku stjórninni að skipa nefnd sérfræðinga til að rannsaka atburðinn og lofaði að veita henni aðgang að öllum opinber- um gögnum um slysið, m.a. leynileg- um skjölum sjóhersins. „Stjórnin vill upplýsa þetta mál til fullnustu, þann- ig að öllum vafa verði eytt í eitt skipti fyrir öll.“ Prodi kvaðst vonast til þess að öryggissveitirnar yrðu sendar til Albaníu sem allra fyrst en margir voru þeirrar skoðunar að harmleik- urinn á föstudag myndi torvelda starf þeirra. Forsætisráðherrann varði aðgerð- ir ítölsku herskipanna og sagði að þeim væri ekki ætlað að hindra að Albanir kæmust til Ítalíu, heldur að stemma stigu við flóttamanna- straumnum og beijast gegn glæpa- hópum, sem græddu á því að flytja fólk með ólöglegum hætti til Ítalíu. Um 20-30 ungmeimi réðust á ít- alska sendiráðið í Ósló aðfaranótt mánudags, brutu rúður og sprautuðu vígorð á bygginguna til að mótmæla aðgerðum ítölsku herskipanna í Adr- íahafi. 20 falla í átökum Tuttugu manns féllu í átökum sem blossuðu upp í þorpinu Frakull, um 110 km suður af Tirana, á föstudag. Átökin hófust þegar um 25 vopnað- ir menn óku inn í þorpið, höfðu í hótunum við þorpsbúa og kröfðust þess að þeir legðu niður vopn. Þorpsbúar söfnuðust saman og hófu skothríð á árásarmennina eftir að þeir höfðu orðið tveimur mönnum að bana. 17 aðkomumannanna og þrír þorpsbúar féllu í átökunum. Þetta eru mannskæðustu átökin í Albaníu frá því óöldin hófst þar í liðnum mánuði. íbúar þorpsins lýstu árásarmönnunum ýmist sem leyni- þjónustumönnum eða glæpamönn- um og óttuðust að ráðist yrði aftur á þorpið í hefndarskyni. * _________________ Ibúar Austur-Evrópu jákvæðari í garð ESB Brussel. Morgunblaðið Reuter ÝMSAR tillögur eru nú til umræðu á ríkjaráðstefnu ESB, til að koma í veg fyrir að framkvæmdastjórnin þenjist endalaust út eftir því sem aðildarríkjum fjölgar. Frakkar vilja fækka um helm- ing í framkvæmdastjórn ESB Róm. Reuter. IBUAR þeirra tíu Austur-Evrópuríkja sem sækja hvað fastast eftir aðild að Evrópu- sambandinu eru jákvæðari en áður í garð sambandsins, ef marka má nýja skoðana- könnun sem fram- kvæmdastjóm ESB hef- ur látið gera. Um 40% íbúa þessara ríkja, þ.e. Rúmeníu, Búlgaríu, Pól- lands, Slóvakíu, Tékk- lands, Slóveníu, Ung- verjalands og Eystra- saltsríkjanna þriggja, telja framtíð lands síns „mest tengda Evr- ópusambandinu", en þetta er um 6% aukn- ing frá svipaðri könnun sem unnin var fyrir ári. Aðeins 6% íbúa þessara ríkja telja hins vegar land sitt eiga hvað mesta samleið með Rúslandi í framtíðinni. í könnuninni var viðhorf íbúa þessara ríkja til ESB einnig mælt og reyndist stór meirihluti þeirra vera jákvæður eða hlut- laus gagnvart því. Þannig töldu 49% íbú- anna markmið sambandsins vera jákvæð en 28% til viðbótar sögðust hlutlaus. Nei- kvæðni í garð ESB er þó lítt áberandi meðal íbúa þessara tíu landa, en að meðal- tali sögðust aðeins 6% þeirra neikvæð í garð sambandsins. Rúmenar og Pólverjar eru hvað jákvæð- astir en um 60% íbúa í þessum löndum sögðust jákvæð í garð ESB. íbúar Eystra- saltsríkjanna virðast hins vegar vera hvað hlutlausastir í þessu samhengi, en um helmingur svarenda sagðist vera hlutlaus og einungis fjórðungur þeirra sagðist vera jákvæður í garð ESB. Það vekur hins vegar athygli að álit stjórnmálamanna í þessum ríkjum er mun jákvæðara en álit íbúa þeirra. Þannig sögðust að meðaltali um 80% þeirra vera jákvæð í garð sambandsins, en aðeins 3% sögðust vera neikvæð. Svipaða sögu er að segja af yfirmönnum fyrir- tækja, menntamönnum, blaðamönnum og öðrum þjóðfélagshópum sem taldir eru hafa teljanleg áhrif á ákvarðanatöku í viðkomandi ríkjum. Rússar ekki hrifnir af aðild að ESB Könnunin náði einnig til nokkurra fyrr- um lýðvelda Sovétríkjanna og fleiri Aust- ur-Evrópuríkja þar sem aðild að Evrópu- sambandinu er fjarlægari eða ekki inni í myndinni að svo stöddu. Samkvæmt niður- stöðu hennar eru Rússar almennt ekki á sama máli og forseti landsins, Boris Jelts- ín, sem hefur lýst því yfir að Rússar vilji gerast aðilar að ESB. Aðeins 13% Rússa telja landið eiga mesta samleið með ESB í framtíðinni, á meðan 27% nefna Sam- veldi sjálfstæðra ríkja og jafn margir nefna Bandaríkin. Um helmingur íbúa fyrrum lýðvelda Sovétrílganna telur lönd sín hins vegar eiga mesta samleið með Rússlandi í fram- tíðinni, íbúar Suð-Austur-Evrópuríkja á borð við Albaníu og Króatíu virðast lítið vilja eiga saman við Rússa að sælda og telja lönd sín ýmist eiga mesta samleið með Bandaríkjunum eða Evrópusamband- inu. FRAKKLAND hefur lagt fram á ríkjaráð- stefnu Evrópusambandsins tillögur um að fækkað verði um helming í framkvæmda- stjórn sambandsins, úr 20 manns í 10. Herve de Charette, utanríkisráðherra Frakklands, segir að Frakkar setji fækkun í framkvæmda- stjórninni sem skilyrði fyrir því að láta af hendi annan af tveimur framkvæmdastjórn- armönnum, sem þeir tilnefna nú. Eins og málum er nú háttað tilnefna smærri ríki ESB einn mann hvert í fram- kvæmdastjórnina en Bretland, Þýzkaland, Frakkland, Spánn og Ítalía tvo. Verði fækkað í stjóminni um helming er hins vegar ljóst að ekki geta öll ríkin tilnefnt fulltrúa í hana. Samningamenn á ríkjaráðstefnunni leita nú leiða til að halda stærð framkvæmda- stjórnarinnar í skefjum er stefnir í að fjölgi í sambandinu um tíu ríki eða fleiri. Fram- kvæmdastjórnin hefur sjálf lagt til að um sinn verði sett 20 manna hámark á fjölda framkvæmdastjórnarmanna og stærri ríkin afsali sér rétti til að tilnefna fleiri en einn í stjórnina. Með þessu gefist tími til að hugsa málið betur, fram að því að aðildarríkin verði fleiri en 20 talsins. Stóru ríkin, önnur en Frakkland, hafa tekið þessari tillögu vel og smærri ríkin eru ánægð með hana því að hún hefur í för með sér að þau halda öll sínum framkvæmdastjórnarmanni, a.m.k. um sinn. Klaus Kinkel, utanríkisráðherra Þýzka- lands, segir að smærri ríkin muni ekki sam- þykkja að færri en 20 sitji í framkvæmda- stjórninni, þótt sjálfur gæti hann sætti sig við 15-20 manna stjórn. írland og fleiri af smærri ríkjunum hafa þvertekið fyrir að þau muni afsala sér rétti til að tilnefna mann í framkvæmdastjórnina. J T j i I 1 > > \ > \ ► I > I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.