Morgunblaðið - 02.04.1997, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 02.04.1997, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 1997 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Eftirspurn eftir hlutabréfum í Samheija níföld á við framboð Fyrirtækið í hópi stærstu hlutafélaga landsins EFTIRSPURN eftir hlutabréfum í Samheija hf. á Akureyri varð níföld á við framboð. 6Um 6.300 einstaklingar og fyrir- tæki óskuðu eftir hlutabréfum í félaginu, samtals að andvirði rúm- lega 400 milljónir króna að nafn- verði, eða 3,6 milljarðar króna að söluverði í hlutaQárútboði sem lauk sl. miðvikudag. I boði voru hluta- bréf fyrir 45 milljónir króna að nafnvirði, eða 405 milljónir króna að söluverði. í hlutafjárútboðinu var hægt að skrifa sig að hámarki fyrir 100 þúsund krónum að nafnvirði og að lágmarki fyrir 1.000 krónum. Þegar hlutabréfunum verður útdeilt má hins vegar gera ráð fyrir að bréf að nafnvirði um 7.000 krónur og HÁSKÓLINN á Akureyri og Verk- menntaskólinn á Akureyri hafa kom- ið á fót samstarfi til að efla starf- semi skólanna á sviði upplýsinga- tækni og fjarkennslu. Samningur HA og VMA er þriðji samstarfs- samningurinn sem HA gerir á stutt- um tíma en áður hafði skólinn gert samstarfssamning við_ Háskóla ís- lands og Tækniskóla íslands. Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans á Akureyri, og Bernharð Haraldsson, skólameistari Verk- menntaskólans á Akureyri, undirrit- uðu samstarfssamninginn sl. mið- vikudag að viðstöddu íjolmenni. Meðal gesta voru Björn Bjarnason menntamálaráðherra og Guðmundur Bjarnason, umhverfis- og landbún- aðarráðherra, og flutti Björn ávarp við þetta tækifæri. Samstarf skólanna felst einkum í eftirfarandi verkefnum; að koma á örbylgjusambandi milli tölvukerfa skólanna, að hafa samstarf um ýmsa þætti er varða uppbyggingu og rekst- ur tölvukerfa skólanna, samnýtingu á tækjum og gögnum, samnýtingu á tenginu við þriðja aðila ásamt sam- ræmingu netkerfa og hugbúnaðar og innkaupa á tölvubúnaði. Háskólinn verði leiðandi Einnig skal unnið að því að gera skólunum tæknilega mögulegt að koma upp sameiginlegum gagnabönk- um og samnýta gagnasöfn þeirra eftir því sem við á. Loks að hafa samvinnu um uppbyggingu og framkvæmd flar- kennslu og að vinna sameiginlega að þróun á aðferðum og tæknilegu um- hverfi til stuðnings henni. í máli Þorsteins Gunnarssonar, rektors kom fram að Háskólinn á Akureyri stefnir að því að verða leið- andi í notkun tölvu- og upplýsinga- tækni við kennslu og rannsóknir og að nýta þá tækni til skilvirkari starf- söluverði um 64 þúsund krónur komi í hlut hvers aðila. Sigurður Sigurgeirsson, forstöðumaður Landsbréfa á Norðurlandi segir stefnt að því að senda út greiðslu- seðla til tilvonandi hluthafa í lok þessarar viku. Póstkostnaður um 1,6 milljón króna Kostnaður Landsbréfa við að senda út greiðsluseðil í pósti til þeirra 6.300 aðila sem óskuðu eftir hlutabréfum er um 220 þúsund krónur. í framhaldinu eru hluta- bréfin svo send til nýrra hluthafa í ábyrgðarpósti og er kostnaðurinn við það rúmlega 1.350 þúsund krón- ur. Kostnaðurinn við innheimtu hlutafjárloforða og að senda út semi stofnunarinnar. HA hefur nýver- ið stigið sín fyrstu skref á sviði fjar- kennslu. Heilbrigðisdeild háskólans er m.a. frumkvöðull í að bjóða upp á meistaranám í hjúkrunarfræði með fjarkennslufoiTni í samvinnu við há- skólann í Manchester. VMA hefur hins vegar lengri reynslu á sviði fjar- kennslu. VMA hafi frumkvæði á landsvísu í máli Bjöms Bjamasonar mennta- málaráðherra kom fram að Verk- menntaskólinn hefði fengið formlegt leyfi til Qarkennslu þann 16. maí 1995 en slík starfsemi hefði þá þegar hafist innan skólans. Bjöm sagðist hafa hug á því að skilgreina hlutverk VMA á þann veg að skólinn hefði til frambúð- ar frumkvæði á landinu öllu á þessu sviði á framhaldsskólastigi. „Það er alveg ljóst að skólarnir standa ekki aðeins frammi fyrir því hlutabréfin er því tæplega 1,6 millj- ónir króna. Eftir hlutafjárútboðið verður Samheiji með allra fjölmennustu og stærstu hlutafélögum landsins. Fyrir útboðið voru hluthafar í Samheija 54 og fjölgar nú um 6.300. Þessu til viðbótar stendur starfsmönnum fýrirtækisins til boða að kaupa tæp- lega 13 milljóna króna hlut að nafn- virði, í eigu þeirra Samheijafrænda, Kristjáns og Þorsteins Vilhelmssona og Þorsteins Más Baldvinssonar, á genginu 5. Meðalfjöldi starfsmanna Samheija í fyrra miðað við heilsárs- störf var 340. Telja má líklegt að flestir starfsmanna fyrirtækisins nýti sinn rétt og því má áætla að fjöldi hluthafa í Samheija verði ná- lægt 6.700 innan tíðar. að nýta sér tæknina til að byggja upp starf og efla þjónustu heldur er alþjóðleg samkeppni á milli há- skóla að færast inn á þetta svið. Skólarnir eru því ekki að keppa sín á milli heldur að keppa á alþjóðlegum markaði um nemendur við skóla- stofnanir erlendis," sagði Björn og bætti við að því væri mikilvægt að velta fyrir sér hvernig ætti að haga stefnumörkun í háskólastarfi okkar með hliðsjón af þessari þróun. Landfræðileg landamæri yfirunnin Bernharð Haraldsson, skólameist- ari VMA, lýsti íjarkennslunni og minntist þess er Pétur Þorsteinsson, skólastjóri á Kópaskeri, hóf á síð- asta áratug að föndra við tölvuna sína, breyta henni í fjarkennslutölvu og tengja grunnskólana. Einnig er þeir Adam Óskarsson og Haukur Ágústsson, kennarar við VMA, hófu Eimskip er trúlega stærsta og Ijölmennasta hlutafélag landsins. Hluthafar eru um 15.000 talsins og markaðsverð fyrirtækisins um 16,2 milljarðar króna. Eftir hlutafjárútboð Samheija má ætla að hluthafar verði um 6.700, markaðsverð fyrirtækisins verði um 12,4 milljarðar króna og fyrirtækið þar með komið í hóp stærstu hlutafélaga landsins. Hlut- hafar í Hlutabréfasjóðnum hf. eru tæplega 7.000 og markaðsverð fé- lagsins um 3,9 milljarðar króna. Hluthafar í íslandsbanka eru um 5.570 og markaðsverð félagsins um 10,3 milijarðar króna. Hluthafar í Flugleiðum eru tæplega 5.000 og markaðsverð fyrirtækisins um 8,5 milljarðar króna. að kenna enska tungu með fjar: kennslu fyrir um þremur árum. í dag býður VMA upp á yfir 20 náms- greinar, yfir 60 áfanga og hefur um 160 nemendur í fjarkennslu. „Fjarkennslan er barn þessa tíma. Hún á eftir að vaxa úr grasi, hún á eftir að stækka og eflast og hún gefur fólki tækifæri og vinnur á al- heimsvísu. Við höfum yfirunnið hin landfræðilegu landamæri þess að geta menntast. Nemendur okkar eru ekki bara á Akureyri eða koma til Akureyrar til að sitja í misskemmti- legum tímum hjá misskemmtilegum og fróðleiksfúsum kennurum. Nú geta menn setið heima hjá sér og unnið verkefni sín þegar þeim hent- ar best. Það skiptir ekki máli hvar nemandinn er, hann getur verið á Sauðárkróki eða Seyðisfírði, í innstu dölum, úti við sjávarsíðuna, eða jafn- vel á togara allt norður undir Smugu,“ sagði Bernharð. Fjölmenni í Hlíðar- fjalli um páskana Metaðsókn varð á föstudaginn langa AÐSÓKN að skíðasvæðinu í Hlíðar- flalli hefur aldrei verið meiri en var á föstudaginn langa síðastliðinn að sögn ívars Sigmundssonar forstöðu- manns Skíðastaða en yfir 3000 manns voru á svæðinu í ijómablíðu, sólskini og logni. Ivar sagði að aðsókn hefði al- mennt verið góð um páskadagana, en þó þurfti að loka skíðasvæðinu laugardaginn fyrir páska, í ausandi rigningu og roki. Einnig þurfti að loka svæðinu eftir hádegi annan dag páska og ekki reyndist unnt að opna fyrr en um hádegi á skírdag. „Við fengum tvo mjög góða daga og þess- ir tveir hálfu dagar voru alveg þokka- legir. í heildina höfum við vissulega fengið betri páska, en líka miklu verri,“ sagði ívar. „En eftir atvikum er ég hæstánægður með aðsóknina og þessi metdagur situr lengi í manni.“ Frá áramótum hafa skipst á skin og skúrir í rekstri skíðasvæðisins í Hlíðaríjalli að sögn ívars. Fyrstu tvær vikurnar sem það var opið í janúar voru mjög góðar, en í febrúar og fram í miðjan mars voru veður- guðir rekstrinum ekki hliðhollir. Eft- ir það fór að rofa til og aðsókn hef- ur verið góð frá þeim tíma. „Það er greinilegt að margt fólk kemur að sunnan um helgar til að fara á skíði. Eina helgina voru við með þijá hópa upp á 250 manns, þannig að það er alveg ljóst að skíðaiðkun dregur stór- an hóp hingað norður." Enn er nægur snjór í Hlíðarfjalli og verður opið þar fram að næstu mánaðamótum. Um næstu helgi verð- ur FlS-mót haldið í Hlíðarfjalli og ijölmennasta skíðamót landsins, Andrésar Andarleikarnir, hefst að venju sumardaginn fyrsta. „Aðaltekj- ur okkar koma yfirleitt inn í þessum mánuði og mér sýnist ijárhagsleg afkoma geta komist í viðunandi horf á þeim tíma sem eftir er.“ -----» ♦ ♦----- Þjófnaðir, innbrot og skemmdarverk Teknir við landafram- leiðslu TVEIR menn voru handteknir á Akureyri nýlega fyrir landafram- leiðsiu. Um tvö aðskilin mál er að ræða. í öðru tilvikinu var lagt hald á eimingatæki, um 50 lítra af Ianda og um 100 lítra af gambra, en í hinu tilvikinu voru einungis tekin tæki og búnaður til áfengisframleiðslu. Tveir ungir menn voru um helgina gómaðir fyrir rúðubrot, annars vegar við Bónusskó í Brekkugötu og hins vegar rúðu í Vídeólandi við Geisla- götu. Þá gaf sig maður fram við lög- reglu skömmu eftir að hann hafði brot- ið rúðu í húsi við Munkaþverárstræti. Tilkynnt var um eitt innbrot um helgina, en farið hafði verið inn í Hæfingastöðina við Skógarlund. Ekki er ljóst hvernig þeir sem þar voru að verki komust inn, en litlu var stolið og engar skemmdir unnar. Fjögur skemmdarverk voru kærð eftir helgina, m.a. í Kjarnakoti við Kjarnaskóg. Þá voru þijú þjófnaðar- mál kærð, í einu tilvikanna hafði gestkomandi maður í heimahúsi stol- ið 18 þúsund krónum í peningum af húsráðendum og vodkaflösku. Þijú slys voru tilynnt um helgina, þar af voru tveir skíðamenn sem höfðu dottið í Hlíðarijalli og voru taldir fótbrotnir. Þá slasaðist maður á vélsleða, en meiðsl hans voru ekki talin alvarleg. tí^>kal ijál|) LaiHlssamtökin Þroskaliiálp Aðalfundur Þroskahjálp á Norðurlandi eystra heldur aðalfund laugardaginn 12. apríl kl. 14.00 í Iðjulundi. 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. Stjórnin. Dreginn til Akureyrar NORSKI togarinn Remöytral kom með norska frystitogarann Hekktind í togi til Akureyrar í fyrrinótt en skiptiteinn í skrúfu skipsins fór úr sambandi á rækju- miðunum við Austur-Grænland sl. föstudag. Togarinn verður tekinn upp í dráttarbraut Slippstöðvarinnar hf. í dag en reiknað er með að viðgerð taki nokkra daga. Remöytrál hafði hins vegar stuttan stans á Akur- eyri, tók olíu og kost en hélt svo aftur á miðin. Það er ekki á hverjum degi sem norskt skip kemur til viðgerðar á Akureyri og Ingi Björnsson, fram- kvæmdastjóri Slippstöðvarinnar, sagðist aðspurður ekki muna eftir að slíkt hefði gerst. Samningur Háskólans á Akureyri og Verkmenntaskólans á Akureyri Samstarf á sviði upplýs- ingatækni og fjarkennslu Morgunblaðið/Kristján BERNHARÐ Haraldsson, skólameistari VMA, í ræðustóli eftir undirritun samstarfssamningsins. Við borðið sitja Björn Bjarnason menntamálaráðherra og Þorsteinn Gunnarsson, rektor HA.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.