Morgunblaðið - 02.04.1997, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 02.04.1997, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ MININGAR MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 1997 45 + Guðlaug Jó- hanna Júlíus- dóttir var fædd í Hokingsdal í Arn- arfirði 12. janúar 1916. Hún andaðist 21. mars síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru Július Guðlaugsson og Jó- hanna Guðrún Jó- hannsdóttir. Eftir- lifandi systur henn- ar eru Krisljana Sigríður, f. 4. sept- ember 1917, og Guðríður Jóhanna, f. 23. júlí 1923. Ung flutti hún með foreldrum sinum að Horni í Mosdal en þegar Guðlaug var 12 ára flutti fjölskyldan búferl- um til Bíldudals. Guðlaug flutti síðar til Reykjavíkur og gerðist vinnukona. Árið 1937 giftist Guðlaug Skúla Zophaníassyni iðnverka- manni og ökukennara, f. 28. ágúst 1914, d. 4. júní 1948. Með honum eignaðist hún tvo syni, Þóri, málarameistara, f. 17. ágúst 1937, maki Una O. Guð- Elsku Guðlaug mín, ekki hvarfl- aði að mér að ég ætti eftir að kveðja þig svona stuttu á eftir henni mömmu minni. Þetta er mik- ið áfall. Ég hélt að ég fengi að hafa þig aðeins lengur eftir að hún fór, en lífið er víst svona, við erum hér í dag og farin á morgun þó okkur finnist það stundum ekki réttlátt. Elsku Guðlaug mín, ég minnist þess nú þegar við kynntumst fyrst, þegar við Jón vorum að byija sam- an og ég kom í fyrsta skipti upp í Hlíðar, hvað þú tókst vel á móti mér og hún Þuríður mín, blessuð sé minning hennar, fyrrverandi tengdamamma þín sem bjó hjá ykkur Guðmundi. Ég minnist máltiðanna sem hún eldaði alltaf mundsdóttir, og Július, vélvirkja, f. 3. júli 1944, maki Svanborg Jónsdótt- ir. Hinn 19. maí 1956 giftist Guð- laug eftirlifandi eiginmanni sínum Guðmundi Jóns- syni, f. 20. septem- ber 1918. Þau eign- uðust tvo syni, Jón, vélvirkja, f. 26. október 1956, maki Guðrún M. Sig- urbjörnsdóttir, og Viðar, vélvirkja, f. 8. nóvember 1958. Guðlaug átti átta barnabörn og níu barna- barnabörn. Guðlaug og Guð- mundur hafa búið í Mávahlíð 7 frá árinu 1962. Guðlaug vann ýmis verka- konustörf, m.a. við þvotta í Borgarþvottahúsinu og hjá Hjálpræðishernum. Hún var einnig í fiskvinnu til marga ára og við heimilishjálp hjá Reykja- víkurborg. Útför Guðlaugar fór fram frá Bústaðakirkju 1. apríl. á miðvikdögum, þá var alltaf svo fínn matur, mér fannst svo skrýtið að fá svona flottan mat á virkum degi. Þar eignaðist ég ömmu því hún var mér ótrúlega góð eins og hún var við alla. Elsku Guðlaug mín okkar sam- leið hefur staðið í 20 ár og hefur hún öll verið yndisleg. Ég minnist ferðanna sem við fórum til útlanda saman, sérstaklega þegar við fór- um fyrir nokkrum árum til Portúg- als. Við fórum að láta klippa þig og stelpan klippti þig svo _ stutt, því hún skildi okkur ekki. Ég hló svo mikið og þú spurðir mig daginn eftir hvort ég væri hætt að hlæja. Þetta var alveg yndilegt allt sam- an. Þegar við fluttum í Barmahlíð- ina labbaði ég alltaf yfir og við fengum okkur kaffisopa og rædd- um málin, en undir það síðasta stoppaði ég alltaf stutt því ég þurfti að flýta mér heim til mömmu því þá var hún orðin veik og þú sagð- ir alltaf „hvað ertu að flýta þér?“ Elsku Guðlaug mín, það er svo margs að minnast frá liðinni tíð, það er allt geymt í minningunni um góða tengdamömmu. Ég veit að nú eruð þið búnar að hittast þú og mamma og ég veit líka að þið lítið til með okkur hinum sem eftir erum. Elsku Guðmundur minn, ég veit hvað allt er orðið tómt núna, en ég veit líka að Guð gefur okkur styrk á erfiðri stund og vakir yfir okkur. Elsku Guðlaug mín, hafðu þökk fyrir allt sem þú varst mér og ailt sem þú gafst mér. Guð blessi þig og varðveiti. Þín tengdadóttir, Guðrún. Kveðja til ömmu Þær eru margar minningarnar sem koma upp i hugann þegar ég sest niður við að skrifa örlitla kveðju til þín, amma mín. Ein er frá því ég var níu ára og þú passaðir okkur systkinin á meðan pabbi og mamma heimsóttu Ameríku. Þá veiktumst við af hlaupabólu. Mér er minnisstætt hvernig þú reyndir með öllum ráð- um að minnka óþægindi og kláða litlu sjúklinganna og hversu þolin- móð þú varst þegar ég vakti þig á nóttunni. Það var notalegt fyrir litla stelpu að fá að kúra hjá ömmu lasin og bólótt. Tvær afmælisveislur eru mér minnisstæðari en aðrar. Önnur var þín og hin okkar pabba. Þú varðst 75 ára og við systkinin gáfum þér nýja munnhörpu. Það var gaman að sjá á þér undrunarsvipinn þá og heyra þig spila fyrir afmælis- gestina. Hin veislan var haldin á Flúðum síðastliðið sumar í yndis- legu veðri. Þú naust ferðarinnar, útiverunnar og þess að sjá öll langömmubörnin samankomin. Elsku amma Gulla. Hafðu þökk fyrir samfylgdina, góðar stundir og ljúfar minningar. Þín, Sigríður Þórisdóttir (Sirrý). GUÐLA UG JOHANNA JÚLÍUSDÓTTIR -4- Jaime Óskar ■ Morales fæddist í Valparíso í Chile 24. október 1951. Hann lést á heimili sínu 18. mars síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Exequiel Morales, fæddur 11. desember 1917, og Fresía Letelier, fædd 19. janúar 1926. Systkini Ja- ime voru Roxanna B. Morales og Patricia Morales. Fyrrverandi sam- býliskona Jaimes er Margrét S. Jónsdóttir og þau eignuðust tvö börn, Evu Morales, f. 4. júní 1980, og Önnu Teresu Morales, f. 29. mai 1985. Þá ól hann upp Svanhildi Dóru Björgvinsdóttur, f. 9. október 1976, dóttur Margrétar. Útför Jaimes fer fram frá Akureyrarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lifs- ins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur i verki var gjöf, sem gleym- ist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynn- ast þér. (Ingibj. Sig.) Á kveðjustund er gott að hugsa til þeirra stunda er við áttum með vini okkar Jaime. Veiðiferðimar og ævintýrin sem þeim fylgdu, þegar hann stóð við eldavélina og veisla var á næsta leiti eða er við sátum fyrir framan sjónvarpið og hvöttum KA-liðið. Þá var oft glatt á hjalla og oftar en ekki fögn- uðum við. Kæri Jaime, þú sagðir okkur frá land- inu þínu Chile og þang- að ætluðum við að fara saman. Þar bjuggu for- eldrar þínir sem þér þótti svo vænt um og systir. Þú sendir hana Svönu þína þang- að og nú er hún bytjuð f skóla, umvafin kærleika ættingja þinna. Stoltur varst þú af Evu þinni og Önnu og betri pabba hefði ekki verið hægt að hugsa sér. Börnin þín þijú voru þér allt. Hlýhugur þinn til Möggu og sér- staklega náið og kærleiksríkt sam- band við systur þína Roxönnu ásamt allri framkomu þinni við vini þína sýndu vel hve einstakur þú varst og tryggur. Þú vildir allt fyr- ir alla gera, en vildir hins vegar ekki láta aðra hafa fyrir þér. Þú varst mikill KA-maður, KA- liðið átti hug þinn og betri stuðn- ingsmann gæti ekkert lið átt. Elsku Jaime, við þökkum fyrir að hafa fengið að kynnast þér og fengið að vera vinir þínir. Minningarnar um þig munu ylja okkur um ókomna tíð. Megi góður guð gefa dætrum þínum, foreldrum og ástvinum öll- um nægan styrk til að sigrast á sorginni. „Far þú í friði, friður guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt.“^y Inga, Simon og börn. Frágangur afmælis- og minningargreina Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá er enn fremur unnt að senda greinamar í símbréfi (5691115) og í tölvupósti (MBL@CENTRUM.IS). Um hvern látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfi- legri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þijú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. JAIME ÓSKAR MORALES LETELIER Birgir Friðriksson, Hildur María Herbertsdóttir, Guðbjörg Friðriksdóttir, Hólmkell Gunnarsson, Sigtryggur Friðriksson og barnabörn. 1' + Faðir okkar og tengdafaðir, JÓHANN SIGURÐSSON, frá Ljótsstöðum 2, lést á Landspítalanum fimmtudaginn 27. mars. Jarðsungið verður frá Akureyrarkirkju 4. apríl kl. 10.30. Þeir sem vildu minnast hans er bent á deild 11 E á Landspítalanum. Margrét Á. Jóhannsdóttir, Haraldur B. Siggeirsson, Sigurborg Jóhannsdóttir, Albert Jakobsson, Sigrún Jóhannsdóttir. + Ástkær eiginkona mín, STEFANÍA SVEINSDÓTTIR, frá Arnarbæli, Markarflöt 49, Garðabæ, lést á Vífilstaðaspítala 27. mars. Kristján Friðriksson. + Ástkær móðir okkar, tengdamóöir, amma og langamma, INGA JENNÝ ÞORSTEINSDÓTTIR frá Ölverskrossi, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju fimmtu- daginn 3. apríl kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeir, sem vilja minnast hennar, láti Krabba- meinsfélagiö njóta þess. Sigríður Sæunn Óskarsdóttir, Kjartan Már fvarsson, Þórdís Óskardóttir Kámpe, Áke Ingemar Kámpe, Jakobfna Óskarsdóttir, Bergleif Joensen Örn Óskarsson, Auður Óskarsdóttir, Guðmundur Einarsson. barnabörn og barnabamabörn. + Útför GIZURAR BERGSTEINSSONAR fyrrum hæstaréttardómara, fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 3. apríl kl. 13.30. Dagmar Lúðviksdóttir, Lúðvfk Gizurarson, Vaigerður Einarsdóttir, Bergsteinn Gizurarson, Marta Bergman, Sigurður Gizurarson, Guðrún Magnúsdóttir, Sigrfður Gizurardóttir, bamabörn og barnabamabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.